Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 18

Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Moskva. AP. | Fimmtán ára gamlir tvíburar sofa innan um sorp og óhreinindi í skoti undir járnbrautar- palli og hafast við á daginn í athvarfi Hjálpræðishersins í niðurníddu hverfi í Moskvu. Denis og systir hans, Olesja, vilja frekar vera heimilislaus en að búa hjá foreldrum sínum í Elektrostal, 58 kílómetra austan við höfuðborg- ina. Þau segja að móðir þeirra hafi beitt þau líkamlegu og andlegu of- beldi, síðan sparkað þeim út í júlí og sagt þeim að fá sér vinnu. Tvíburarnir eru á meðal rúss- neskra barna sem sæta illri meðferð og vanrækslu foreldra sinna og sá hópur fer stækkandi þrátt fyrir batnandi lífskjör margra Rússa. Í skýrslu mannréttindafulltrúa Rússlands segir að brotið sé á rétt- indum barna „með kerfisbundnum hætti“ og fleiri foreldrar níðist á börnum sínum en áður. Er þetta rakið til vandamála sem hafa versn- að frá hruni Sovétríkjanna 1991: fá- tæktar, samfélagslegrar hnignunar og landlægrar áfengissýki. Rússneska hreyfingin Réttindi barna segir að árlega séu um 2.000 börn undir 18 ára aldri myrt af for- eldrum sínum eða öðrum skyld- mennum, eða um 6,9 á hver 100.000 börn. Hlutfallslega margir á hælum Hlutfall rússneskra ungmenna á aldrinum 15-19 ára sem fyrirfóru sér var 20,2 á hver 100.000 ungmenni ár- ið 2004. Í Bandaríkjunum var þetta hlutfall 8,2 á 100.000 í sama aldurs- hópi. Á ári hverju strjúka um 50.000 rússnesk börn að heiman, eða eitt af hverjum 580 börnum. Um 20.000 börn strjúka af ríkisreknum mun- aðarleysingjahælum og öðrum stofnunum. „Margir líta á börnin sem eign sína,“ sagði Boris Altshuler, formað- ur Réttinda barna. „Fólk lítur ekki svo á að það beri neina samfélags- lega ábyrgð á börnunum.“ Yfirvöldin geta annaðhvort ekkert gert eða tekið börnin af foreldrunum og sett þau inn á munaðarleysingja- hæli. Það er ekkert millistig á borð við fjölskylduráðgjöf eða aðra að- stoð. „Allt landið er ein munaðarleys- ingjaverksmiðja,“ sagði Altshuler. Hann bætti við að Rússlandsforseti væri að reyna að fækka þeim börn- um sem alin eru upp í stofnunum en spáði því að skriffinnar myndu reyna að hindra þá viðleitni. Rúss- nesk stjórnvöld verja sem svarar 100 milljörðum kr. á ári í munaðar- leysingja- og upptökuhæli. „Þeir þurfa á börnunum að halda eins og eldivið til að halda kerfinu gangandi,“ sagði Altshuler. Börnum, sem tekin hafa verið af foreldrum sínum með forræðissvipt- ingu, hefur fjölgað um nær 20% í Rússlandi síðustu átta árin. Um 1.384 af hverjum 100.000 börnum búa á stofnunum í Rúss- landi, en í Póllandi er þetta hlutfall 709 börn og 590 í Eistlandi. AP Bág kjör Rússnesku börnin Grisha (t.v.) og Denis reykja fyrir utan athvarf Hjálpræðishersins fyrir heimilislaus börn í Moskvu. »Hreyfingin Réttindi barna segir að árlega séu um 2.000 rússnesk börn undir 18 ára aldri myrt af foreldrum sín- um eða skyldmennum. Fleiri foreldrar níðast á börnunum Eftir Svein Sigurðsson og Ástu Sóley Sigurðardóttur BRESKA lögreglan handtók í gær þriðja unglinginn vegna morðs á 11 ára gömlum dreng í Liverpool. Sá handtekni er 16 ára gamall og segir lögreglan hann grun- aðan um morðið á drengnum, Rhys Jones. „Við verðum að hafa hendur í hári morðingjans. Hér í hverfinu er fólk, sem veit hver hann er og það verður að hjálpa okkur,“ sagði Patricia Gallan aðstoðaryfirlög- regluþjónn á blaðamannafundi í Croxteth-hverfinu í Liverpool áður en drengurinn var handtekinn. Litli drengurinn, Rhys Jones, var skotinn til bana á miðviku- dag á heimleið af knattspyrnuæfingu. Lögreglan yfirheyrði í fyrradag tvo drengi, 18 og 14 ára, en þeim hefur verið sleppt gegn tryggingu. Skorað var á íbúa í hverfinu þar sem glæpurinn var framinn að aðstoða lögregluna á allan hátt. Vitni segja að drengur á þeim aldri, svartklæddur með hettu á höfði og á BMX- reiðhjóli hafi skotið Rhys. Knattspyrnuliðið Everton var uppáhaldslið drengsins og munu bæði leikmenn og áhorf- endur minnast hans með mínútu þögn í næsta leik liðsins. Íbúarnir í hverfinu lifa í stöðugum ótta við vopnaða unglinga Glæpir þar sem byssum er beitt hafa verið fátíðir í Bretlandi, eru innan við hálft prósent skráðra afbrota en þeim hefur þó fjölgað að undanförnu. Aðeins í London hafa sex unglingar verið skotnir síðan í febrúar. Gerist það á sama tíma og viðurlög hafa verið hert en nú er lág- marksrefsing við ólöglegri byssueign fimm ára fangelsi. Við athugun, sem breska innanríkisráðuneytið gekkst fyrir, kom í ljós, að í Bretlandi er auðveldast að komast yfir ólögleg skotvopn í Liverpool og Manchester. Þar ganga þau kaupum og sölum og oft fyrir aðeins nokkrar þúsundir íslenskra króna. „Byssurnar ganga á milli strákanna eins og hver önnur leikföng,“ sagði kona nokkur í Croxteth og bætti við að íbúarnir lifðu í stöðugum ótta við ástandið. Unglingur hand- tekinn fyrir morð 16 ára unglingur er grunaður um morð á 11 ára dreng og er mikill óhugur meðal almennings vegna málsins KUMPÁNLEGIR eru þeir, fuglinn og buffallinn, en þeir eru að fylgjast með 1,4 milljónum gnýja sem flytja sig yfir Masai Mara þjóðgarðinn í Kenýa hvert ár í leit að fersku grasi. Auk gnýjanna fara um 200.000 sebra- hestar og gasellur sömu leið. Þjóðgarðurinn er um 270 km suðvestur af höfuðborg Kenýa, Naíróbí. Reuters Öll dýrin í skóginum eru vinir! Tblisi. AP. | Talsmaður innanríkis- ráðuneytis Georgíu, Shota Utiashvili, tilkynnti í gær að skotið hefði verið á herflugvél, líklega rússneska, sem flaug í leyfisleysi inn í lofthelgi landsins. Hann sagði ekki stað- fest að flugvélin hefði verið rúss- nesk, en allt benti til þess í ljósi sí- endurtekinna at- vika síðastliðinn mánuð þar sem rússneskar flug- vélar hefðu farið inn fyrir lofthelgi Georgíu. Talsmaður rússneska hersins neit- aði öllum ásökunum um að Rússland hefði brotið á lofthelgi Georgíu. Ef rétt reynist að flugvélin hafi verið rússnesk mun þetta vera alvar- legasta atvikið sem átt hefur séð stað í deilu ríkjanna tveggja. Í byrjun mánaðar sögðu Georgíumenn rúss- neska herflugvél hafa skotið flug- skeyti inni í georgískri lofthelgi en Rússar neita því staðfastlega. Herflugvélin er sögð hafa flogið yfir Abkhazia-hérað en hluti þess krefst viðurkenningar á að það sé sjálfstætt frá Georgíu og styðja Rússar þá kröfu. Héraðið liggur við landamæri Rússlands. Utiashvili lagði áherslu á að ekki væri staðfest að vélin hefði brotlent eftir skothríð- ina en sagði íbúa héraðsins hafa heyrt sprengingu og séð eldtungur í skóglendi í héraðinu. Skotið að herflugvél Skoðað Meint flugskeyti Rússa. ♦♦♦ NÍU ára gamall stærðfræðisnill- ingur, March Boedihardjo, hefur fengið inn- göngu í Háskóla babtista í Hong Kong. Er hann yngsti háskóla- neminn í sögu Hong Kong. March fékk tvö A og eitt B í prófum sem fólk tekur yfirleitt þegar það er átján ára gamalt. Hann á að hefja fimm ára nám í háskólanum í næsta mánuði. „Mér finnst gott að lesa í tóm- stundum en um helgar hef ég gam- an af því að fara út að leika mér með félögum mínum,“ sagði March við fréttamenn. „Við getum farið í leiki en ekki talað saman á fræði- legum nótum.“ Níu ára há- skólanemi March Boedihardjo FJÖLSKYLDUR íslamista í palest- ínsku flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í Líbanon voru fluttar það- an í gær. Her Líbanons hefur setið um búðirnar í þrjá mánuði og búist er við að hann ráðist inn í þær. 26 konur og 33 börn voru flutt úr búðunum. Nær 300 manns hafa beðið bana í átökunum. Um 40.000 palestínskir flóttamenn voru í búðunum en flest- ir þeirra flúðu þaðan þegar átökin hófust. Konur og börn flutt á brott Reuters Umsátur Rústir í Nahr al-Bared. STJARNFRÆÐINGAR hafa nýlega uppgötvað gífurlegt tómarúm í geimnum, svæði, sem er næstum einn milljarður ljósára í þvermál og er „fullt af engu“ eins og þeir orða það, ekki einu sinni svartholum eða hinu myrka efni, sem svo er kallað. „Eitthvað þessu líkt hefur ekki fundist áður enda áttum við alls ekki von á því,“ segir Lawrence Rudnick, prófessor í stjarnvís- indum við háskólann í Minnesota, í viðtali við tímaritið Astrophysical Journal. Rudnick segir, að svæðið hafi fundist í stjörnumerkinu Eridanus, Fljótinu, en lengi hafi verið vitað, að þar var „kalt“ svæði. Fundu tóma- rúm í alheimi EINN af síðustu foringjum upp- reisnarmanna í Tétsníu, Rústam Basajev, féll í skotbardaga við rúss- neska lögreglumenn í Grosní, að sögn embættismanna í Moskvu í gær. Tveir lögreglumenn biðu einn- ig bana í bardaganum. Basajev var 35 ára og eftirlýstur fyrir morð á nokkrum lögreglu- mönnum. Hann var náinn sam- starfsmaður Doku Umarovs, leið- toga aðskilnaðarsinna í Tétsníu. Rússnesk stjórnvöld hafa lofað að uppræta það sem eftir er af aðskiln- aðarhreyfingunni. Uppreisnar- foringi fallinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.