Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 23
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Keflavíkurflugvöllur | „Eftir fjög-
ur til fimm ár verður hér jafnstór
eða fjölmennari byggð og fjöl-
mennari vinnustaður en var þeg-
ar varnarliðið fór, auk tækifær-
anna sem starfsemin skapar og
margfeldisáhrifa hennar,“ segir
Kjartan Þór Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar.
Líf er komið að nýju í fyrrver-
andi varnarsvæði á Keflavíkur-
flugvelli. Þangað hafa nú flutt lið-
lega 500 manns og íbúafjöldi
þessa hverfis Reykjanesbæjar
verður kominn í 700 innan nokk-
urra daga. Bílar sjást orðið við
mörg hús og fólk á gangi. Íbú-
arnir eru í háskólaþorpi sem
myndast í kringum Keili sem er
miðstöð vísinda, fræða og at-
vinnulífs. Hjá Keili er hafið nám í
frumgreinadeild og verið að und-
irbúa frekara námsframboð og
fjöldi háskólanema af höfuðborg-
arsvæðinu hefur einnig fengið
leigðar þar íbúðir. Búið er að
opna grunnskóla og leikskóla og
verið að undirbúa opnun versl-
unar, kaffihúss, bankaútibús og
heilsugæslu.
Fjöldi starfa verður til
Töluverð atvinnustarfsemi er
þegar komin á svæðið, fyrir utan
þekkingarmiðstöðina, og stór-
verkefni eru í undirbúningi.
Kjartan Eiríksson, sem víkur sér
undan því að vera nefndur „bæj-
arstjóri“ byggðakjarnans, nefnir
fyrst Dreifingarmiðstöðina sem
tekur við og dreifir vörunum í all-
ar verslanir Pennans. Þar starfa
nú á þriðja tug manna og starf-
semin fer vaxandi. Verktakar sem
unnu fyrir varnarliðið eru enn
með aðstöðu á svæðinu og ÍAV-
þjónusta hf. er með töluverða
starfsemi. Ratsjárstofnun starfar
á Keflavíkurflugvelli og þar er
Brunamálaskólinn kominn með
aðstöðu. Kjartan áætlar að starfs-
mannafjöldinn á svæðinu sé kom-
inn nokkuð á annað hundraðið.
Þróunarfélag Keflavíkurflug-
vallar ehf. er að fullu í eigu rík-
isins en félagið fékk það hlutverk
að koma þeim eignum sem ríkið
yfirtók þegar herinn fór í borg-
araleg not. Félagið tók til starfa
upp úr síðustu áramótum og segir
Kjartan að starfið hafi gengið
vonum framar.
Kjartan segir að til þess að ná
markmiðum félagsins sé höfuð-
áherslan lögð á að ná þangað
nýrri starfsemi, helst erlendri
fjárfestingu. Ný starfsemi kalli á
húsnæði eða land til bygginga og
henni fylgi starfsfólk sem þurfi
íbúðarhúsnæði. Með þessu móti
skapist eftirspurn eftir húsnæði
sem leysi af sjálfu sér það mark-
mið félagsins að koma mannvirkj-
unum í borgaraleg not.
Lögð hefur verið áhersla á að
sækjast eftir starfsemi á svæðið
sem skapar virðisauka og hefur
margfeldisáhrif, svo sem þekking-
ariðnaði og rannsóknarstarfsemi.
Starfsemi Keilis er mikilvægur
liður í því. Einnig er lögð áhersla
á tækifæri tengd alþjóðaflugvell-
inum og nýtingu umhverfisvænn-
ar orku á svæðinu.
Kjartan segir að komist hafi á
samband við bæði innlenda og er-
lenda aðila um að koma þar upp
fyrirtækjum af þessu tagi. Komið
hefur fram að netþjónabú komi til
greina en Kjartan segir að ekki
hafi verið gengið frá neinum
samningum um það. Fleira sé í
gangi.
„Við höfum öll heimsins tæki-
færi til uppbyggingar. Það þarf
bara að grípa þau,“ segir Kjartan.
Líf er aftur komið á fyrrverandi varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli
Á annað hundrað ný störf
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Uppbygging Kjartan Þór Eiríksson stýrir uppbyggingunni á Vellinum
sem framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco.
Leikskólinn Börnin geta nú nýtt
leikaðstöðuna á Vellinum.
Keflavíkurflugvöllur | Gengið hefur ver-
ið frá sölu 22 bygginga á iðnaðarsvæð-
inu á Keflavíkurflugvelli til Eignar-
haldsfélagsins Base ehf. Söluverðið er
715 milljónir kr. og skuldbindur kaup-
andinn sig til að leggja fé í endurbætur
og uppbyggingu á svæðinu. Þróun-
arfélagið auglýsti umræddar eignir til
sölu í byrjun ársins og fékk fjölda til-
boða. Ákveðið var að selja Base ehf.
eignirnar vegna þess að hugmyndir fyr-
irtækisins samræmdust markmiðum
Þróunarfélagsins um uppbyggingu á
svæðinu, að sögn Kjartans Eiríkssonar
framkvæmdastjóra.
Að Base ehf. standa nokkur fyrirtæki
sem eru með starfsemi á svæðinu eða
hyggjast koma þar upp starfsemi og
fyrirtæki í Reykjanesbæ. Tilgangur
þeirra er að koma þarna upp svo-
nefndum Tæknivöllum þar sem fjöl-
breyttur iðnaður og þekkingarfyrirtæki
geta fengið aðstöðu.
Ríkharður Ibsen framkvæmdastjóri
Lykilráðgjafar, sem unnið hefur að
verkefninu fyrir Base, segir að nú þeg-
ar sé mikil eftirspurn eftir þessu hús-
næði og ekki muni líða langur tími þar
til þar verði komin mikil starfsemi. Rík-
harður segir að framundan sé vinna við
að samræma útlit mannvirkjanna og
lagfæra það sem þörf er á.
Kaupa húsnæði
fyrir Tæknivelli
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Strætó er farinn að
aka um helgar í Reykjanesbæ og
næstkomandi mánudag hefjast dag-
legar strætóferðir til Reykjavíkur
undir merkjum Reykjaness Ex-
press.
„Óskir um strætóferðir um helgar
hafa komið fram á íbúafundum und-
anfarin tvö ár og nú er verið að koma
til móts við þessar óskir. Mörg börn
eru í íþróttum um helgar og þau fara
í bíó svo þörfin er til staðar. Ég veit
að skotferðum foreldra hefur fækk-
að stórlega eftir að Reykjanesbær
ákvað að bjóða ókeypis strætóferðir í
bænum,“ sagði Árni Sigfússon bæj-
arstjóri. Ólafur Guðbergsson skrif-
stofustjóri SBK, sem bærinn kaupir
þjónustuna af, segir að nýtingin
fyrstu helgina hafi verið góð.
Reykjanesbær hefur stækkað
mikið að undanförnu og bæjarbúum
fjölgað í takt við þá þróun. Samfara
aukinni þjónustu með strætóferðum
um helgar hefur þurft að tengja leið-
arkerfið við ný hverfi. Um er að ræða
Vallarsvæðið, þar sem eru bæði há-
skólavellir og tæknivellir með vax-
andi fjölda íbúa, og ný hverfi í Innri-
Njarðvík.
Nýjasta viðbótin er Reykjanes
Express, hraðferð frá samgöngu-
miðstöð við Grænás og til miðbæjar
Reykjavíkur með viðkomu við há-
skóla höfuðborgarinnar. Í upphafi
verða átta ferðir á dag með tengingu
niður í sveitarfélagið. Ferðirnar
verða niðurgreiddar fyrir náms-
menn sem stunda framhaldsnám á
höfuðborgarsvæðinu. Gjald þeirra er
innifalið í leigu íbúðanna á Keflavík-
urflugvelli. „Við viljum bjóða öðrum
sveitarfélögum á Suðurnesjum að
koma inn í þetta kerfi með sama til-
boði til nemenda,“ sagði Árni Sigfús-
son og benti á að Reykjanes Express
ætti eftir að stytta ferðatímann til
miðbæjar Reykjavíkur, enda er
markmiðið að hækka þjónustustigið.
Strætó um helgar
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir