Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Selfoss | Nokkrir krakkar sem bú- settuir eru í grónu hverfi á Selfossi tóku sig saman og opnuðu sjoppu um síðustu helgi þegar haldið var götugrill og seldu úr henni ýmsar nauðsynjar sem slíkar samkomur þurfa á að halda, gosdrykki, sælgæti og fleira. Afrakstur þessa framtaks var kr. 50.500 og með þá upphæð fóru þau á stúfana og keyptu gasgrill og ýmsa fylgihluti hjá Bykó sem efldi fram- takið og gaf krökkunum góðan af- slátt. Gasgrillið afhentu þau svo Klúbbnum Stróki þar sem það kem- ur í góðar þarfir og mun nýtast klúbbfélögum. Strókur heldur úti starfsemi fyrir fólk á Suðurlandi með geðraskanir. Á myndinni eru, frá vinstri, í aft- ari röð: Haraldur Gíslason, Guð- mundur Bjarki Sigurðsson, Bjarki Leósson og Konráð Jóhannsson. Neðri röð frá vinstri: Margrét Lea Haraldsdóttir, Anna Kristín Leós- dóttir og Irena Birta Gísladóttir. Á myndina vantar Unni Lilju Gísla- dóttur, Þóru og Sigrúnu Jónsdætur, Margréti og Steinunni Lúðvíks- dætur og Katharínu Jóhannsdóttur. Gáfu gróða af sjoppunni til Stróks Morgunblaðið/Sigurður Jónsson ÁRBORGARSVÆÐIÐ Þorlákshöfn | Vatni úr Ölfusbrunni verður tappað á flöskur í nýrri verksmiðju sem byggð verður í Þor- lákshöfn. Icelandic Water Holdings ehf. byggir átöppunarverksmiðjuna og tók Jón Ólafsson stjórnar- formaður fyrstu skóflustunguna að húsinu í gær. Vatnið er selt undir merkjum Ice- landic Glacial sem þegar hefur hasl- að sér völl á mörkuðum í Evrópu og Norður-Ameríku. Verksmiðjan verður 6600 fer- metrar að stærð og er ráðgert að hún verði tilbúin að ári. Hún mun í fyrsta áfanga anna átöppun hundr- að milljón lítra af vatni á ári, fimm- falt meira en núverandi verksmiðja í Þorlákshöfn, og veita 35-40 manns atvinnu. Áformað er að tvöfalda framleiðslu verksmiðjunnar innan fárra ára. Fram hefur komið að samningar hafa tekist við brugg- húsið Anheuser-Busch um dreifingu vatnsins í Bandaríkjunum og kaup á hlut í félaginu. Vatn Icelandic Glacial kemur úr Ölfusbrunni sem er tær og vatns- mikil uppspretta. Lindin myndaðist í eldsumbrotum fyrir tæplega fimm þúsund árum. Icelandic Water Hold- ings hefur tryggt sér einkarétt á nýtingu hennar og jafnframt hefur bæjarstjórn Þorlákshafnar afmark- að verndarsvæði til að tryggja hreinleika framleiðslunnar. Fram- leiðslan hefur fengið hæstu mögu- legu einkunn frá matvælaeftirlits- stofnuninni National Sanitation Foundation í Bandaríkjunum. Í nýju verksmiðjunni verður háþróað orkustjórnunarkerfi fyrir byggingar til að halda í lágmarki áhrifum á umhverfi og náttúru. Morgunblaðið/Jón H. Sigmundsson Vatn Jón bauð upp á vatn þegar bygging átöppunarverksmiðjunnar hófst. Fimmföld afköst í nýrri verksmiðju Eftir Sigurð Jónsson Hveragerði | „Það er algert leynd- armál hver mun stýra brekkusöngn- um í kvöld í lystigarðinum. Það verð- ur óvænt uppákoma,“ sagði Kristinn G. Harðarson sem er framkvæmda- stjóri Blómstrandi daga í Hvera- gerði. Hápunktur Blómstrandi daga er á kvöldvökunni í kvöld þegar dag- skránni lýkur með samkomu í lysti- garðinum, varðeldi og söng þar sem allir taka undir. „Samveran í brekkusöngnum í kvöld er hápunkturinn en þá mynd- ast sérstök stemning og samkennd sem ekki er hægt að lýsa og er fólk hvatt til að mæta og upplifa sjálft,“ sagði Kristinn. Margt að skoða „Undirbúningurinn fyrir Blómstr- andi daga miðar að því að efla sam- kennd íbúanna í bænum og að sýna gestum okkar hvað bærinn er frá- bær. Hingað koma margir ferða- menn og við viljum gefa fólki kost á að kynnast sem flestu í bænum og sýna þá hvað mannlífið hér er gott og kraftmikið. Fyrirtæki hér í bænum búa sig undir að hingað komi fólk og starfsmenn bæjarins eru við öllu búnir og taka mikinn þátt í undir- búningnum. Svo erum við með góða gesti hér í Hveragerði, Veraldarvini, sem er 30 manna hópur sem mun skreyta bæinn og skapa listaverk sem eru sýnd á Hótel Örk í dag og síðan verða þeir með lokaatriði Blómstrandi daga á morgun, sunnu- dag, kl. 17 á Hótel Örk þar sem þeir munu sýna sín verk, þar á meðal hljóð- og ljóslistaverk,“ sagði Krist- inn og tók fram að lögð væri áhersla á að skapa sem mest líf í Hveragerði í dag, laugardag. „Það er margt að sjá og skoða í Hveragerði í dag,“ sagði Kristinn Grétar Harðarson, framkvæmda- stjóri Blómstrandi daga. Undirbúningur eflir samkennd íbúanna Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Varðeldur undirbúinn Kristinn G. Harðarson ásamt tveimur starfs- mönnum bæjarins, Birki Svani Árnasyni og Hannesi Pétri Guðmundssyni. Í TILEFNI af Akureyrarvöku er fjöldi spennandi sýninga í dag. Í öll- um galleríum Listagilsins eru opnar vinnustofur eða opnar á sýningum, til að mynda í Listasafninu á Akur- eyri þar sem tilnefningar til sjón- listaverðlaunanna verða kynntar sem og í Ketilhúsinu þar sem sýnd verða verk unnin út frá Jónasi Hall- grímssyni. Í Iðnaðarsafninu er síðasta sýn- ingarhelgi á Valbjarkarhúsgögnun- um, og hefst sýningin í dag kl. 13. Við bílastæðaplanið við Landsbankann verður boðið upp á Ljósmyndasýn- ingu á náttúru Grímseyjar. Í Gamla barnaskólanum er boðið upp á ljós- myndasýningu á milli klukkan 12 og 16 um sögu hússins. Hörður Geirs- son hjá Minjasafninu á Akureyri veitir leiðsögn um svæðið á milli kl. 13 og 15. Spennandi sögusýning- ar í dag Ljósmyndir Boðið verður upp á sýn- ingu í Gamla barnaskólanum í dag. „BANDIÐ ætlar að þessu sinni að ráðast í að gera Leonard Cohen skil,“ segir Sig- urður Heiðar Jónsson, formað- ur menningar- smiðjunnar Populus Tre- mula. Tilefnið er miðnæturtónleikar Húsbandsins í smiðjunni í kvöld sem hefjast að lokinni dagskrá Akureyrarvöku í miðbænum. „Þeir hafa áður flutt nokkur lög eftir sérvalda listamenn, til að mynda Tom Waits og Nick Cave. Þetta byrjaði allt með tón- leikum með tónlist Cornelis Vrees- wijk árið 2002 og hefur farið sífellt stækkandi í kjölfarið og notið æ meiri vinsælda. Á síðustu tónleikum var húsið sneisafullt og færri kom- ust að en vildu.“ Að sögn Sigurðar verður pró- grammið að þessu sinni styttra en venjulega eða rúmlega þrjú korter, þar sem þeir byrja seint. Ókeypis verður á tónleikana, líkt og venjan hefur verið. Cohen í Popul- us Tremula Sigurður Heiðar Jónsson AÐ HÖMRUM verður haldinn markaður á húsgögnum og nytja- munum í dag og á morgun undir yf- irskriftinni Gerum eitthvað gott – gerum það saman! Allur ágóði af sölunni rennur til uppbyggingar skóla í þorpinu Lamego í Mósamb- ík. Einnig verður skátatívolí á staðnum auk fjölda skemmtiatriða. Söfnunin er að frumkvæði þeirra Margrétar Þóru Einarsdóttur og Guðrúnar Blöndal en í fyrra söfn- uðust 1.150 þúsund krónur sem sendar voru til Mósambík. „Gerum eitt- hvað gott“ Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson hsb@mbl.is MIKIL virkni hefur verið í hinu unga DaLí-galleríi frá því það tók til starfa 16. júní fyrir rúmu ári síð- an. Nafn gallerísins er dregið af fyrstu stöfunum í nöfnum eig- endanna, Dagrúnar Matthíasdóttur og Sigurlínar (Línu) M. Grét- arsdóttur. Á fimmtudagskvöld opnaði þar sýningin Stóll á mann, en um er að ræða samsýningu í umsjá Ragnhild- ar Ragnarsdóttur og Sigrúnar Sig- valdadóttur sem báðar eru grafískir hönnuðir. Á sýningunni eru til sýnis 30 stólar, unnir af jafnmörgum listamönnum á öllum aldri, allt frá 9 ára og upp úr. Sýningin verður að- eins í galleríinu þessa einu helgi. Í kvöld kl. 20 verður haldinn sér- stakur súpugjörningur í tengslum við sýninguna. „Upphaflega átti að nota stólana á súpuveitingastað í Þingholtsstræti,“ segir Sigrún, um- sjónarmaður sýningarinnar, „en ekkert varð af honum. Þá fengu ýmsir aðilar frjálsar hendur með að skreyta stólana á ýmsan hátt. Súpu- gjörningurinn tengist veit- ingastaðnum sem þeir áttu að fara á, og í honum felst einfaldlega að fólki verður boðið upp á eina af súp- um Snorra Birgis Snorrasonar, en uppskriftir að þeim verða síðan gefnar út á bók með myndum af stólunum.“ Fleiri opnanir í kvöld Í kvöld verður verk Þorsteins Gíslasonar, Fiskisögur, sýnt í sér- rýminu Kom Inn, en það er líklega um 1,9 metrar á hæð, 1 metri á breidd og 10 sentímetrar á dýptina. „Þorsteinn mun sýna bókverk,“ segir Dagrún, annar eigandi DaLí, „í því sem við teljum minnsta sýn- ingarrými landsins. Kom Inn er í raun óformlegt gallerí, og fyrir okkur að hafa gaman að því.“ „Svo er það áskorun fyrir gesti okkar að vinna verk fyrir rýmið,“ segir Lína, hinn eigandi gallerísins. Fyrir utan súpugjörninginn og fiskisögurnar, sem eflaust eiga eftir að kitla eða klípa bragðlauka ein- hverra, mun Margeir Sigurðsson nota tækifærið og „graffa“ fyrir galleríið í tilefni Akureyrarvök- unnar. Hann mun vinna verkið yfir daginn og geta gestir fylgst með til- urð þess. Fiskisögur og súpu- gjörningur í DaLí Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Virkar Dagrún og Lína á stólum eftir málarana Helga Þorgils (vinstra megin) og Tolla, en þeir eru hluti sýningarinnar í DaLí-galleríi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.