Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 28
tíska
28 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
Hausttískan í vetur muneinkennast af svörtumog brúnum litum, meðfjólubláum tónum og
jafnvel bleiku. Hausttískan mun
þannig kannski verða í þyngri kant-
inum hvað liti varðar en í efnisvali
mun léttleikinn ráða og verður mikið
um náttúruleg efni, ull, kasmír, bóm-
ull og bryddingar og skraut með feld
eða skinni. Þannig verða buxur og
peysur fremur þunnar en úr hlýjum
efnum, en víður fatnaður og þykkur
virðist vera á útleið.
Til að sjá nánar hvað væri á boð-
stólum í dömutískunni tók Daglegt
líf hús á þremur tískuverslunum í
Reykjavík, Tískuvali á Laugavegi
53, Guðrúnu Tískuverslun á Rauð-
arárstíg 1 og Hjá Hrafnhildi á
Engjateigi 5.
Mikið í gráu og áhersla á snið
Ingunn Ragnarsdóttir verslunar-
stjóri hjá Tískuvali segir að vörulína
verslunarinnar hafi verið einfölduð
og verða þrjú þekkt merki aðallega
boði í vetur, frá Betty Barclay, Gil
Brett og Vera Mont. „Það er komin
ein sending af nýjum haustvörum og
önnur á leiðinni en við ætlum að
leggja áherslu á jakka, pils, peysur
og vesti í vetur. Við munum einnig
hafa mikið úrval af flottum yfirhöfn-
um sem þola þá snjó og rigningu en
samt með góðu sniði,“ segir Ingunn.
„Í litum verður mikið af gráu, aðeins
brúnt og smá litir með eins og fjólu-
blátt. Svo er reyndar mikið af svörtu
líka en það er nánast alltaf með.“
Ingunn segir Tískuval hafa fjöl-
breytt úrval af buxum, enda ekki
henti ekki öllum að vera í mjaðm-
abuxunum sem hafa verið svo mikið í
tísku undanfarin ár.
Tvær ólíkar stefnur
Hjá Hrafnhildi er að finnafjölda
vörumerkja og þar sem fjöldi nýrra
flíka var komin í hús var og Jóna
Þórdís Magnúsdóttir verslunarkona
ekki í neinum vandræðum með að
sýna hausttískuna.
„Grátt er mjög mikið núna, ull,
kasmír, hnébuxur og mynstruð pils
en grár litur er sem sagt mjög
ríkjandi. Svart og bleikt fylgir svo
með enda er það fallegt með gráu.
Það er líka mikið um síðar jakka-
peysur og þá frekar þröngar en víð-
ar,“ segir Jóna. „Peysurnar verða
dálítið skrautlegar í vetur, efnið
liggur sitt á hvað og margar efn-
isgerðir verða í hverri flík.“ Blúndur
og brúnir litir munu þó líklega líka
verða vinsælir í vetur og má því
segja að tvenns konar stefnur séu í
Þyngri litir en léttari
efni verða ráðandi í
dömuhausttískunni
Klassísk Franska
leikonan Catherine
Deneuve vekur oft
athygli fyrir glæsi-
legan klæðnað.
Fréttir
í tölvupósti
Heilsu-sauna með
IR hitameðferð.
Vinnur á gigt,
vöðvabólgu og cellulite.
Styrkir einnig
ofnæmiskerfið.
Allar nánari upplýsingar i
Síma 892-5577 eða senda
e-mail á www.gxsauna.is
Til hamingju Valsmenn
Eftirlit: