Morgunblaðið - 25.08.2007, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Kær bróðir og vinur er látinn.
Hann lést á sjúkrahúsinu á Egils-
stöðum eftir langvarandi veikindi
og sjúkrahúsvist. Óli, eins og hann
var gjarnan nefndur var fæddur á
Hrauni í Bakkagerði en flutti með
foreldrum okkar að Tungu 1931,
síðan að Ósi 1935 þar sem fjöl-
skyldan bjó síðan.
Óli ólst upp í stórum og glöðum
systkinahópi við leik og störf. Við
urðum samtals 14 systkinin en 12
náðu fullorðinsaldri. Fjölskyldan
bjó lengst af við lítil efni og varð
✝ Hannes Óli Jó-hannsson fædd-
ist á Borgarfirði
eystra 3. mars 1927.
Hann lést á sjúkra-
húsinu á Egils-
stöðum 26. júlí.
Útför Hannesar
Óla var gerð frá
Bakkagerðiskirkju
31. júlí sl.
Afar slæm mistök
urðu í blaðinu í gær
þar sem sagt var að
Hannes Óli yrði jað-
settur þann dag og
bætt var um betur með því að
birta ranga mynd með greininni
sem við birtum hér með aftur.
Hér birtum við einnig rétta mynd
af Hannesi Óla Jóhannssyni og
biðjum aðstandendur og lesendur
velvirðingar á þessum mistökum.
hvert og eitt okkar
að sjá sér farborða
svo fljótt sem verða
mátti. Óli hlaut þá
barnafræðslu sem
stóð til boða á Borg-
arfirði á þessum
tíma, en fór síðan í
Gagnfræðaskólann á
Akureyri og lauk
þaðan prófi. Hann
sótti einnig námskeið
og aflaði sér réttinda
sem fiskmatsmaður.
Eftir að hann afl-
aði sér réttinda sem
fiskmatsmaður vann hann við það
hjá frystihúsinu og einnig sem
verkstjóri. Hann varð síðar stöðv-
arstjóri Pósts og síma og starfaði
við það í 30 ár, eða á meðan starfs-
aldur leyfði.
Óli var mikill félagsmálamaður
og starfaði mikið í Ungmenna-
félaginu um langt árabil. Síðar tók
hann virkan þátt í sveitarstjórn-
armálum, sat í hreppsnefnd og var
hreppsstjóri til fjölda ára. Þá tók
hann mjög virkan þátt í félagslífi
eldri borgara og var fremstur í
flokki við að byggja upp starf
þeirra. Hann var aðaldriffjöðrin í
því að byggja upp mjög sérstakt
og fallegt félagsheimili þeirra,
Vinaminni, sem byggt var að veru-
legu leiti fyrir erfðafé frá Gyðu
Árnadóttur móðursystur okkar og
Gesti syni hennar.
Óli hóf sambúð með Erlu Sig-
urðardóttur árið 1951. Hún er
fædd á Borgarfirði 7. júlí 1932.
Erla og Óli eignuðust 11 börn og
eru barnabörn þeirra orðin 24 og
barnabarnabörnin 5. Óli var ein-
stakur heimilisfaðir og unni fjöl-
skyldu sinni heitt. Erla og hann
stóðu sig einstaklega vel í uppeldi
þessa stóra barnahóps og lögðu sig
fram um að velferð þeirra og síðar
fjölskyldna þeirra væri sem best
tryggð. og má telja það ganga
kraftaverki næst hvernig þeim
tókst að koma öllum hópnum vel
til manns og mennta miðað við
þær aðstæður sem umhverfið bjó
þeim. Þau bjuggu lengst af í Mel-
gerði í Bakkagerðisþorpi þar
bjuggu þau stóra hópnum sínum
vandað og vistlegt heimili. Það var
sérstök upplifun að koma í eldhús-
ið með stóra borðkróknum þar
sem við matborðið voru a.m.k. sæti
fyrir 12. Þar mataðist stóri hóp-
urinn vandræðalaust í sátt og sam-
lyndi, enda alltaf nóg á borðum
fyrir alla.
Nú er Óli bróðir allur og horfinn
af sjónarsviðinu. Á bak við fátæk-
legan búning þessara kveðjuorða
dyljast hugsanir og tilfinningar
sem fléttaðar eru úr mörgum þátt-
um, sem ekki er auðvelt að setja á
blað, en sá sterkasti er tengdur
persónulegum samskiptum okkar
fyrr og síðar. Að leiðarlokum kveð
ég kæran bróður og vin og bið öll-
um afkomendum hans blessunar.
Við Bryndís, börnin okkar og fjöl-
skyldur þeirra biðjum góðan guð
að blessa Erlu eiginkonu hans og
afkomendur og veita þeim styrk
og huggun í þeirra miklu sorg.
Jón Þór Jóhannsson.
Hannes Óli
Jóhannsson
Elsku mamma mín.
Ég er ekki tilbúin að sætta mig við
það að ég þurfi að vera til án þín.
Aldrei hefði mér dottið það í hug að
ég þyrfti að skrifa neitt þessu líkt
svona fljótt. Að þurfa að kveðja þig
svona snöggt er eitthvað sem
hvorki ég né þú vorum tilbúnar að
gera og verðum aldrei. Þú ert og
verður alltaf ljósið mitt, hetjan mín
og stærsta fyrirmyndin. Þetta
skarð verður aldrei fyllt og eru
skörðin orðin mörg. Verð ég að
byrja enn á ný nýtt líf en litla
kraftaverkið okkar hann Jón Aðal
yngri heldur mér við að vilja og
verða að vera sterk og það skal ég
sko vera.
Ég veit að þú ert alltaf hjá okkur
og það hlýjar mér að hafa þig alltaf
hér en það er svo sárt að segja þér
hvað ég elska þig en fá ekki til baka
„ég elska þig líka mest skottan
mín“. Þótt ég sé að nálgast 30 ára
aldurinn þá er ég alltaf skottan
hennar mömmu sinnar og engilinn
hans Nonna bróður sem vantaði
bara vængina á eins og hann sagði
alltaf og segir örugglega enn.
Ég á eftir að gera svo margt og
ég þarfnast þín svo mikið til að vera
með mér. Það er kannski mikil eig-
ingirni að segja að minningin sé
ekki nóg fyrir mig, ég þarfnast þín
svo.
Þó ég eigi fallegustu minningar
um bestu mömmu í heimi, því þú
gerðir heiminn svo fallegan hvern
dag, er heimurinn svo fátækur án
þín. Ég vil þakka þér fyrir að vera
besta vínkona mín og þakka þér af
öllu mínu hjarta fyrir að vera alltaf
til staðar þegar ég var ein, ráðlaus
✝ Birna ÞórunnAðalsteinsdóttir
fæddist á Borg-
arfirði eystra 25.
ágúst 1940. Hún lést
á heimili sínu Sig-
túni á Borgarfirði
eystra hinn 16. jan-
úar síðastliðinn.
Útför Birnu var
gerð frá Bakka-
gerðiskirkju í Borg-
arfirði eystra 27.
janúar sl.
og lífið var erfitt, þá
varst það þú sem
komst mér á rétta
braut með faðminn
þinn. Ég vona, elsku
mamma, að ég hafi
gefið þér líka það sem
þú þurftir. Veit ég að
það hefur örugglega
oft verið erfitt að vera
mamma mín en það
spáðir þú aldrei í.
Þegar ég var að af-
saka mig þá sagðir þú
alltaf að litlar skottur
ættu að láta hafa fyrir
sér.
Ég hélt fast í að vera litla skotta
þegar Nonni bróðir var kallaður til
Guðs en þá hætti ég að vera litla
systir í orðsins fyrstu merkingu,
vera sú sem alltaf var dáð, og haldið
fast utan um.
Enginn hefði geta rofið eða kom-
ist á milli systkinaástar okkar, og
núna missi ég móðurástina þetta
ung.
Það eina sem gleður mitt litla
hjarta er að Guð einn veit að ég trúi
á annað líf og veit ég að nú eruð þið
besti bróðir saman. Aldrei náðir þú
þér elsku mamma eftir að hafa
misst barnið þitt sem ég skil svo
vel. Ég gleymi því aldrei þegar ég
tilkynnti þér nafnið á Nonna mín-
um, það sem þú grést og alltaf frá
byrjun og til enda þá sagðirðu mér
það oft hvað þú værir farin að finna
hamingjuna aftur að fá lítinn
Nonna og hvað ég hefði gefið þér
mikið, enda hefur örugglega ekkert
barn fengið jafnmikla ást og hlýju
frá neinni ömmu. Mun ég þann tíma
sem ég á eftir hér í þessu lífi reyna
að standa mig og gera ykkur bróð-
ur stolt áfram af mér.
Þið eruð í hjarta mínu hvern dag,
hverja nótt, hvar og hvert sem ég
fer.
Til hamingju með afmælið elsku
mamma og í stað þess að kveðja þig
hinstu kveðju þá vil ég frekar segja
„sjáumst seinna“.
Takk fyrir allt það góða sem þú
gafst mér.
Ég elska þig meira en orð fá lýst.
Þín litla skotta,
Ragnhildur (Ragga) Sveina.
Lítill drengur lófa strýkur
létt um vota móðurkinn,
– augun spyrja eins og myrkvuð
ótta og grun í fyrsta sinn:
Hvar er amma, hvar er amma,
hún sem gaf mér brosið sitt
yndislega og alltaf skildi
ófullkomna hjalið mitt?
Lítill sveinn á leyndardómum
lífs og dauða kann ei skil:
hann vill bara eins og áður
ömmu sinnar komast til,
hann vill fá að hjúfra sig að
hennar brjósti sætt og rótt.
Amma er dáin – amma finnur
augasteininn sinn í nótt.
Lítill drengur leggst á koddann
– lokar sinni þreyttu brá,
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir – amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
Breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Elsku amma mín besta.
Ég sakna þín svo mikið og á
hverju kvöldi stend ég upp úr rúm-
inu, litli búturinn, eins og þið afi
kölluðu mig og kyssi myndina af
þér við rúmið mitt og segi: „Elska
þig“. Mamma segir mér alltaf að
amma og nafni séu hjá mér alla
daga og elski mig. Eftir á ég falleg-
asta afann, besta frænda minn
Dötta og okkar mömmu nánustu
sem eiga eftir að hjálpa mömmu að
gefa mér allt sem ég þarf og veita
mér alla þá ást og hlýju sem barn
þarf, því lofar hún þér. Auk þess á
ég bestu og fallegustu verndarengl-
ana.
Þú ert og verður alltaf besta
amma mín. Við mamma biðjum Guð
á hverju kvöldi að passa ykkur
nafna og við skulum passa vel hann
afa minn, sem er svo duglegur að
hann gefur okkur styrk á hverjum
degi með dugnaði.
Til hamingju með daginn, elsku
amma mín. Mamma ætlar að baka
kökur í eldhúsinu þínu handa okkur
og þú átt þá örugglega eftir að
brosa þínu blíðasta. Takk fyrir allt
sem þú gafst mér, alla ástina og
hlýjuna sem ég mun bera í hjarta
mínu alla mína tíð.
Ég elska þig „mestast mest“ eins
og þú sagðir alltaf við mig og skal
alltaf vera bestur fyrir þig og
nafna.
Þinn litli ömmustrákur.
Birna Þórunn
Aðalsteinsdóttir
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
VILBORG GUÐJÓNSDÓTTIR
fyrrum húsfreyja
í Eystra-Fróðholti,
Borgarsandi 1,
Hellu,
sem lést fimmtudaginn 16. ágúst sl., verður jarð-
sungin frá Oddakirkju á Rangárvöllum laugardaginn 25. ágúst kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta hjúkrunarheimilið Lund
njóta þess.
Guðmundur Óli Sigurgeirsson, Ester Anna Ingólfsdóttir,
Sigurborg Ýr Óladóttir, Oddsteinn Heiðar Árnason,
Bergrún Arna Óladóttir,
Sara Arndís Thorarensen,
Árni Dagur Oddsteinsson,
Ester Glóey Oddsteinsdóttir.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÓLAFAR SVEINBJARGAR ÖRNÓLFSDÓTTUR
frá Austari-Hóli
í Fljótum
sem lést mánudaginn 6. ágúst og jarðsett var
laugardaginn 18. ágúst.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar.
Ásmundur Frímannsson,
Frímann Ásmundsson, Aud Hole Ásmundsson,
Þórir Jón Ásmundsson, Margrét Hjaltadóttir,
Þórey Ásmundsdóttir, Hörður Jósefsson,
Guðrún Hjördís Ásmundsdóttir, Kristinn Jóhannesson,
Þórhallur Ásmundsson, Halla Kjartansdóttir,
Örnólfur Ásmundsson, Ásdís Magnúsdóttir,
Kristinn Brynjar Ásmundsson, Sigrún Ósk Snorradóttir,
Jóesep Smári Ásmundsson, Rebekka Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts eiginkonu minnar, móður, dóttur,
systur og frænku,
INGIBJARGAR KÁRADÓTTUR,
Bídalite,
Svíþjóð.
Kent Eriksson,
Óskar Vigert Eriksson,
Jenny Eriksson,
Kári Þorsteinsson, Sólborg Björnsdóttir,
Þorsteinn Kárason, Hrefna Þórarinsdóttir,
Sigurður Kárason, Kristín Jónsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Innilegar kveðjur og þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
SIGFÚSAR A. JÓHANNSSONAR
bónda,
Gunnarsstöðum,
Þistilfirði.
Lifið heil.
Sigríður Jóhannesdóttir,
Kristín Sigfúsdóttir, Ólafur H. Oddsson,
Jóhannes Sigfússon, Fjóla Runólfsdóttir,
Steingrímur J. Sigfússon, Bergný Marvinsdóttir,
Árni Sigfússon, Hanne Matre,
Ragnar Már Sigfússon, Ásta Laufey Þórarinsdóttir,
Aðalbjörg Þuríður Sigfúsdóttir, Jón Hallur Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir minn, afi, bróðir og mágur,
ELÍAS JÚLÍUSSON,
Keldulandi 21,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánu-
daginn 20. ágúst.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn
29. ágúst kl. 13.00.
Sigríður Drífa Elíasdóttir,
Steindór Snær Ólason, Kári Vilberg Atlason,
Ragnar Elíasson, Olga Steingrímsdóttir,
Bjarney Runólfsdóttir
og aðrir aðstandendur.