Morgunblaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR RÁÐAMENN Máls og menningar – Heimskringlu og JPV útgáfu hafa undirritað viljayfirlýsingu um að vinna að því að bókadeild Eddu út- gáfu, sem MM-H hefur ákveðið að kaupa, og JPV útgáfa verði samein- uð í einu útgáfufyrirtæki. Ákveðið hefur verið að nýja félagið hljóti nafnið Forlagið, að því er segir í fréttatilkynningu. Jóhann Páll Valdimarsson verður útgefandi fé- lagsins, Egill Örn Jóhannsson fram- kvæmdastjóri og Halldór Guð- mundsson stjórnarformaður. Stefnt er að því að gefa áfram út bækur undir merkjum JPV útgáfu, Máls og menningar, Heimskringlu, Iðunnar og Vöku-Helgafells, og að lykilstarfsfólki félaganna bjóðist áfram hliðstæð störf hjá hinu nýja félagi. Árni Einarsson mun láta af störfum sem forstjóri Eddu en taka sæti í stjórn hins sameinaða félags. Í fréttatilkynningunni kemur fram að staðið verður við skuldbind- ingar forlaganna vegna útgáfuáætl- unar haustsins og stefnt að glæsi- legri jólabókaútgáfu. Eignarhlutföll verða jöfn Viljayfirlýsingin er undirrituð með fyrirvara um að kaup MM-H á bókahluta Eddu gangi eftir og að hluthafafundur fyrrnefnda fyrirtæk- isins samþykki það. Í yfirlýsingu félaganna segir að markmiðið sé að mynda öflugt fyr- irtæki á sviði bókaútgáfu og að aðilar séu sammála um að eignarhlutföll hluthafahópa verði jöfn í hinu nýja félagi. „Undanfarin ár hafa um margt verið erfið í íslenskri bókaútgáfu, sum fyrirtæki hafa tapað stórum fjárhæðum og erfitt hefur reynst að reka öfluga starfsemi á þessum vett- vangi,“ segir í yfirlýsingunni. „Með samkomulaginu hyggjast félögin stefna að aukinni hagræðingu og betri nýtingu bæði bókalagers og út- gáfuréttinda, neytendum og höfund- um til hagsbóta. Slík hagræðing gæti fengist þegar öflugt markaðsstarf JPV útgáfu, sem byggst hefur á vaxandi og metn- aðarfullri útgáfu, og sterkur bóka- listi MM-H yrðu tengd saman og um leið styrktur grundvöllur á sviði er- lendrar réttindasölu. Hið nýja fyr- irtæki mun því búa yfir miklum styrk á lykilsviðum bókaútgáfunnar, auk þess að sameina innan sinna vé- banda útgáfuréttinn á mörgum helstu verkum íslenskra bókmennta, skáldverka sem fræðirita.“ Hyggjast stofna öflugt bókaforlag Þrjú stór forlög eiga að renna saman í eitt Árni Einarsson Jóhann Páll Valdimarsson BETUR fór en á horfðist þegar lítil stúlka stökk upp á færiband við innritunarborð í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar um fimmleytið á fimmtu- dagsmorgun. Stúlkan fór í gegnum farangurslúgu sem leiðir inn í flokkunarsal og varð m.a. fyrir röntgengeislum gegnumlýsing- artækis. „Fólki varð auðvitað mjög brugð- ið, og það var mikil mildi að það varð ekki stórslys þarna,“ sagði Arngrímur Guðmundsson, deild- arstjóra öryggissviðs flugstöðv- arinnar, í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. Aðspurður segir hann ljóst að það sé ekki hollt fyrir fólk að verða fyrir röntgengeislun en að hún hafi verið það lítil að hún hafi ekki reynst stúlkunni skaðleg. Enginn var að vinna við innrit- unarborðið þar sem stúlkan var á ferðinni að sögn Arngríms. Færi- bandið, sem er við hliðina á borð- inu, var ekki á hreyfingu, en færi- bandið fyrir aftan borðið var hinsvegar í gangi. „Menn verða eig- inlega ekki varir við stúlkuna fyrr en hún er kominn inn í salinn. Þetta gerðist allt mjög hratt.“ Aðeins liðu nokkrar sekúndur frá því stúlkan klifraði upp á bandið og þar til hún fór í gegnum lúguna. Mörg færibönd eru inni í flokk- unarsalnum og var helsta hættan sú að stúlkan myndi festa höndina á milli færibanda. Það gerðist þó sem betur fer ekki og komu flugvall- arstarfsmenn stúlkunni til hjálpar eftir að færiböndin voru stöðvuð. Starfsmenn frá Vinnueftirlitinu mættu í kjölfarið á vettvang til þess að athuga að allur búnaður væri í lagi. Mildi að ekki varð stórslys í Leifsstöð Innritun Stúkan komst bakvið inn- ritunarborð og upp á færibandið. Fór upp á færiband við innritunarborð Í JÚLÍ stöðvaði lögreglan alls 81 ökumann sem mælingar hennar sýndu að væru undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ekkert lát er því á fjölgun þessara brota en hafa verður í huga að á þessu ári tók lögregla í notkun nýjan búnað sem gerir það að verkum að mun auð- veldara og ódýrara er að kanna hvort ökumenn hafi neytt fíkni- efna. Samkvæmt yfirliti frá ríkislög- reglustjóra voru 16 slík brot skráð í janúar, fjöldinn rauk síðan upp í 55 í apríl, í júní var 61 ökumaður tekinn undir áhrifum fíkniefna og 20 fleiri í júlí, eins og fyrr segir. Refsing fyrir að aka bifreið und- ir áhrifum fíkniefna er að lágmarki þriggja mánaða ökuleyfissvipting en harðasta refsingin er tveggja ára svipting leyfis. Refsingarnar þyngjast ef um ítrekuð brot er að ræða. 81 ók und- ir áhrifum fíkniefna Þessum brotum fjölgar stöðugt Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is FANGAR á Litla-Hrauni eru ósáttir við ástand brunavarna í fangelsinu og telja að öryggi sitt sé ekki tryggt komi upp eldsvoði. Greint var frá því í Morgunblaðinu þann 29. ágúst að fangelsisyfirvöld teldu brunavarnir í góðum farvegi. „Það er allt annað en það sem blas- ir við okkur sem búum hér árum saman,“ segir Magnús Einarsson talsmaður Afstöðu, félags fanga. „Við höfum barist fyrir þessu í nokkur ár og þó sérstaklega núna upp á síðkastið, en okkur er sagt að verið sé að athuga málið og heyrum svo ekki meir. Við erum bara að benda á atriði sem geta skipt sköpum við björgun manns- lífa og viljum að þessu sé kippt í liðinn.“ Að sögn Magnúsar er ástandið sérstaklega slæmt í húsi 3, þar sem eru 22 klefar og allir læstir með slagbrandi og hengilás að utan á kvöldin. „Við erum læstir inni í klefa í 14 klukkustundir á sólar- hring. Ef það kviknaði í að degi til værum við nokkuð vel settir því þá eru fleiri fangaverðir á vakt til að opna fyrir okkur, en ef það gerðist að nóttu efast ég um að mannskap- urinn réði við það á nægilega stutt- um tíma.“ Eins gagnrýna fangar að neyðarop á húsi þrjú séu læst að utan með hengilás og flokkist því tæpast sem fullnægjandi flóttaleið- ir skv. byggingareglugerð. Magnús segir einnig, að þótt klefar í húsi 4 eigi að kallast brunahólf uppfylli þeir ekki skilyrði til þess lengur, því sóplistar sem eiga að hindra reyk í að komast í gegn séu nú allir ónýtir. Ekki hefur verið hægt að skipta um þá, þar sem hurðir eru soðnar fastar við lamirnar. „Það er eins og ekki sé hægt að byrgja brunninn fyrr en barnið er dottið í hann. Það á ekki eitthvað að þurfa að koma upp til að menn fari að hugsa sig um,“ segir Magn- ús. Fangar á Litla-Hrauni ekki öruggir í eldsvoða Spurningar um eldvarnir vakna eftir brunann á Stuðlum PRENTSMIÐJA Morgunblaðsins hefur verið gerð að sjálfstæðu fé- lagi í fullri eigu Árvakurs hf. og heitir nýja félagið Landsprent ehf. Starfsmenn Landsprents eru um fjörutíu og framkvæmdastjóri verð- ur Guðbrandur Magnússon, sem áð- ur var framleiðslustjóri Árvakurs. Hjá Landsprenti eru prentuð flestöll dagblöð landsins, Morg- unblaðið, Blaðið, DV og Við- skiptablaðið. Auk þess eru prentuð þar fjöldamörg önnur blöð og má þar nefna Bændablaðið, nánast öll bæjar- og hverfisblöð á höfuðborg- arsvæðinu og ýmis auglýsinga- og kynningarblöð. Blaðaprentvél Landsprents er sú afkastamesta og fullkomnasta á landinu. Þar er hægt að prenta jafnt stór sem lítil blöð í fullum lit- gæðum og stóru upplagi á miklum hraða, ásamt ýmiss konar full- vinnslu. Landsprent er í Hádeg- ismóum við Rauðavatn. Þar er einn- ig blaðadreifing Árvakurs og áskriftarþjónusta. Í fréttatilkynningu segir að starf- semi Landsprents byggist á öruggri þjónustu, vandaðri prentun og ábyrgri umhverfisstefnu, sem er vottuð skv. alþjóðlegum staðli. Landsprent með flest dagblöðin Morgunblaðið/Frikki Örugg þjónusta Guðbrandur Magnússon, framkvæmdastjóri Landsprents ehf., í prentsmiðjunni í Hádegismóum. Framundan eru fjölbreytt og spennandi verkefni: Garðar Cortes Ásrúnu Davíðsdóttur Ingibjörgu Ólafsdóttur Kórinn æfir á mánudags- og miðvikudagskvöldum og stjórnandi er Garðar Cortes Áhugasamir hafi samband við í síma 892 2497, í síma 699 3497 og í síma 660 5132 Missa Solemnis (Beethoven) með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Askenazy Frumflutningur á óperu og nýjum kórverkum Tónleikaferð til Bandaríkjanna - sungið í Carnegie Hall Jólatónleikar Óperukórinn í Reykjavík getur bætt við söngfólki Góðir hálsar!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.