Morgunblaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 43
90ára afmæli. Ragnheið-ur Elíasdóttir, nú til heimilis á Hrafnistu í Hafnar- firði, verður níræð mánudag- inn 3. september nk. Af því tilefni tekur hún á móti ætt- ingjum og vinum í veislusal á 5. hæð Dvalarheimilisins sunnudaginn 2. september kl. 15 til 18. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 43 aldarminning dagbok@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Postulínsnámskeiðin hefjast 4. og 5. september nk. Myndlistarnámskeið hefst fimmtudaginn 6. september. Útskurðarnámskeið hefst fimmtudaginn 6. september. Skráning í Afla- granda 40 og í síma 411-2700. Félag eldri borgara í Kópavogi, ferðanefnd | Farið verður í berjaferð fimmtud. 6. sept. Brottför frá Gullsmára kl. 13 og Gjábakka kl. 13.15. Leitað verður berja í Hvalfirði og nágr. Eigið nesti. Verði veður óhagstætt til berjatínslu verður farið í óvissuferð „út í bláinn“. Skráning í félagsmiðstöðvunum. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Kirkjustarf Aðventkirkjan í Reykjavík | Sérstök fjölskyldu- guðsþjónusta í Aðventkirkjunni í Reykjavík kl. 11. Ræðumaður: Halldór Örn Engilbertsson. Aðventkirkjan í Reykjavík | Biblíurannsókn fyrir börn og fullorðna kl. 10. Einnig er boðið upp á um- ræðuhóp á ensku. Bústaðakirkja | Barnamessa kl. 11. Samvera fyrir alla fjölskylduna með fræðslu og léttum söngvum. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur, sr. Pálmi Matthíasson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Renata Ivan. Molasopi eftir messu. Loftsalurinn, Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Guðþjónusta og biblíurannsókn kl. 11 í Loftsalnum. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga kl. 9- 16.30 er fjölbreytt dagskrá, unnið er að gerð haust- og vetrardagskrár, óskir og ábendingar óskast. Glerskurður byrjar þriðjud. 4. sept. og myndlist fimmtud. 6. sept. Postulínsnámskeið byrja 10. og 11. sept. Hæðargarður 31 | Opið öllum! M.a. skrautskrift, magadans, skapandi skrif, tölvuleiðbeiningar, fram- sagnarhópur, vöðvauppbygging 50 ára + (einstakt tilboð) Mullersæfingar. Kíkið við! s. 568-3132 asdis.skuladottir@reykjavik.is SÁÁ, félagsstarf | Félagsvist og dans verður í Von, Efstaleiti 7, laugardaginn 1. september. Vistin hefst kl. 20, dans að vistinni lokinni. Danshljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi. Gróa Jónsdóttir – Aldarminning | Gróa Jónsdóttir fæddist 8. september 1907 að Króki í Ölfusi. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guðrún Gottskálksdóttir og Jón Björnsson. Á öðru aldursári var henni komið í fóstur hjá Ástríði Magn- úsdóttur og Guðmundi Daníelssyni að Nýjabæ í sömu sveit. Þar ólst hún upp til fullorðinsára. Árið 1930 giftist hún Gottskálki Gizurarsyni og bjuggu þau að Hvoli í Ölfusi hálfan fjórða áratug, þar til Gottskálk lést 1964. Síðustu árin bjó Gróa í Hveragerði. Þau eignuðust sex börn og eru fjögur á lífi. Afkomendur þeirra eru nú orðnir 62 og munu minnast þessara tímamóta í Ing- ólfsskálanum/Básnum í Ölfusi afmæl- isdaginn 8. september næstkomandi kl. 15. Þar verða seldar veitingar. Allir ætt- ingjar og vinir hjartanlega velkomnir. Vinsamlega tilkynnið komu ykkar í síma: 482-1726 (Ásta Gottskálksd.) eða 659-2285 (Nína Vilhelmsd.) fyrir mánudaginn 3. september. Afkom- endur. Brúðkaup | Sigrún Heiða Pétursdóttir Seastrand og Hrannar Freyr Gíslason giftu sig hinn 21. júlí 2007 í Sauðárkrókskirkju. Brúðkaup | Nýlega voru gef- in saman í Saltstraumen Kirke, Bodø í Noregi, Rakel Björnsdóttir og Hans Kristian Braaten. dagbók Í dag er laugardagur 1. september, 244. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Enginn er þinn líki, Drottinn! Mikill ert þú og mikið er nafn þitt sakir máttar þíns. (Jeramía 10, 6.) Börn og unglingar um allt landskunda um þessar mundir ískóla eftir sumarfrí. Meðalviðfangsefna vetrarins hjá flestum er að ná góðu valdi á réttritun. Vefurinn Réttritun.is getur þar komið að góðu gagni, eins og Anton Karl Ingason, einn höfunda vefjarins segir frá: „Réttritun.is er verkfæri til að auð- velda íslenskukennslu og -nám. Vefur- inn er öllum opinn og getur almenn- ingur notað vefinn ókeypis,“ segir Anton. „Við könnumst öll við hefð- bundna stafsetningarkennslu þar sem kennarinn les og nemendur skrifa mis- hratt eftir, og fá síðan leiðréttingar síð- ar þegar kennaranum hefur gefist tími til að fara yfir verkefnin. Á Réttritun.is fer þetta ferli fram í forriti sem leyfir hverjum og einum að læra á hraða sem honum hentar. Forritið, sem við köll- um Ref Þorleifsson bónda, fer yfir æfingarnar á augabragði og auk þess að sýna villur sem gerðar hafa verið bendir á reglur sem útskýra réttan rit- hátt.“ Skólar geta gerst áskrifendur að for- ritinu til kennslu: „Það veitir kennar- anum meðal annars aðgang að gagna- grunni sem sýnir tölfræði árangurs hjá hverjum nemanda, bekk og árgangi, sem síðan gerir kennaranum kleift að koma með auðveldum hætti auga á at- riði sem þarfnast sérstakrar áherslu.“ Vefurinn var opnaður á degi ís- lenskrar tungu, 16. nóvember, 2006, og hefur notið mikilla vinsælda: „Á þeim tíma sem liðið hefur frá opnun vefj- arins hefur Refur bóndi farið yfir þús- undir stafsetningaræfinga og fáum við oft bréf frá ánægðum einstaklingum sem hafa nýtt sér forritið til að bæta stafsetningarkunnáttu sína,“ segir Anton. „Vefurinn hefur sérstaklega verið nýttur til kennslu fyrir lesblinda, og býður vefsíðan upp á stillingar til að auðvelda lestur, s.s. stækkað letur, breiðara línubil og breytingu á bak- grunnslit. Einnig hefur Rettritun.is gefist vel við íslenskukennslu barna sem eiga annað mál en íslensku að móðurmáli. Þar kemur sérstaklega að gagni að forritið býður upp á að skýra helstu málfræðihugtök sem upp koma á einfaldan hátt, á ensku, pólsku, taí- lensku og fleiri tungumálum.“ Sjá nánar á www.réttritun.is Menntun | Réttritun.is býður upp á ókeypis og aðgengilega kennslu Réttritun lærð á Netinu  Anton Karl Ingason fæddist í Reykjavík 1980. Hann lauk stúd- entsprófi frá Verslunarskóla Ís- lands 2000 og legg- ur nú stund á BA- nám í íslenskum fræðum við Há- skóla Íslands. Anton starfaði við hug- búnaðarþróun hjá ýmsum fyrir- tækjum. Hann starfar nú hjá Íslenskri þekkingarleit, m.a. við umsjón verk- efnisins Réttritun.is. Anton er trúlof- aður Hjördísi Stefánsdóttur nema. Tónlist Babalú | Það verður stemning á babalú laugardaginn 1. sept. kl. 14. Etv. mun Varði leika nokkur lög á kassagítar. Jómfrúin | Egill Benedikt Hreins- son og félagar leika lög eftir Wayne Shorter, John Coltrane, McCoy Tyner og frumsamið efni í sumarbúðum íslenska jazzins. Steinar Sigurðarson, sax, Erik Qvick, trommur, Andri Ólafsson, bassi, Egill Benedikt Hreinsson, píanó. Kirkjuhvoll | Rannveig Fríða Bragadóttir og Gerrit Schuil eru með ljóðatónleika í Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju í Garðabæ kl. 17- 18.30. Þetta eru fyrstu tónleik- arnir af fimm á tónlistarhátíðinni „Ljóðatónleikar á hausti“. Nasa | Sammi í Jagúar er gest- gjafi lokakvölds Jazzhátíðar Reykjavíkur þetta árið. Hann hef- ur boðið til sín finnskum starfs- bróður og trúfélaga, Jimi Tenor, sem mun leika með stórsveit Samma. Auk þess kemur fram hin ótrúlega skemmtilega 13 manna afróbítsveit Antibalas frá New York. Myndlist Listasafn ASÍ | Opnaðar verða tvær sýningar í Listasafni ASÍ í dag. Í Ásmundarsal verður opnuð sýning með myndverkum Kjart- ans Ólasonar. Í Gryfju og Arin- stofu verður opnuð sýning Hildar Bjarnadóttur, innifalið. Listasalur Mosfellsbæjar | Vel- komin á opnun Jóhannesar 1. sept kl. 14-17 í Listasal Mosfellsbæjar. Viðfangsefnið er sótt í texta og samhengi þeirra. Í verkunum rign- ir bæði orðum og punktum. Lista- salur Mosfellsbæjar, Kjarna, Þver- holti 2, opinn virka daga kl. 12-19 og laugardaga 12-15, er í Bóka- safni Mosfellsbæjar. Aðgangur ókeypis Sveinssafn, Krísuvík | (bláa hús- ið). Sýning á verkum Sveins Björnssonar sem ber heitið Sigl- ingin mín, en auk þess eru sýnd verk eftir fjölmargra aðra lista- menn. Opið sunnudaginn 2.9. frá kl. 13 til 17. Dans Hótel Borg | Tangóhelgi í Reykja- vík mun enda með Milongu (Tangóballi) á Hótel Borg. Dansað verður frá kl. 20 og síðar um kvöldið munu Mette og Martin frá Danmörku, Helen og Martin frá Argentínu og íslensku dansaranir Bryndís og Hany sýna tangó. Nánari upplýsingar um tangóhelgi á www.tango.is Mannfagnaður Málaskólinn LINGVA | Í dag laug- ardag. 1. sept. verður Málaskólinn LINGVA ehf. með opið hús í Odda, HÍ, milli 13-16. Léttar veitingar, vínsmökkun. www.lingva.is, s: 561-0315 Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða | Laugardaginn 1. sept- ember stendur Samtaka í Mið- borg og Hlíðum fyrir hverfishátíð. Hún verður haldin á Miklatúni frá kl.14-16. Í boði er fjölbreytt dag- skrá og eru allir velkomnir. Hægt að sjá dagskrá á heimasíðu Reykjavíkurborgar. www.reykja- vik.is Fyrirlestrar og fundir Maður lifandi | Fyrsti fyrirlestur vetrarins um hláturjóga fer fram á vegum Hláturkætiklúbbsins í heilsumiðstöðinni Maður lifandi á laugardag kl. 10.30. Allir velkomn- ir. Verð 1000 kr. f. fullorðna. Ásta og Kristján sjá um að leiðbeina. Fréttir og tilkynningar Kringlukráin | París félag þeirra sem eru einir. Septemberfundur félagsins verðu laugardaginn 1. september kl. 11.30 í Kringlu- kránni. Nýir félagar velkomnir. Lít- ið inn og kynnist góður félags- skap. MAÐUR stígur línudans í fjallaþorpinu Tsovkra, sem er í um 3.000 metra hæð í Kákasus- fjöllunum í Dagestan-héraði í Rússlandi. Flest börn í héraðinu læra línudans snemma á lífs- leiðinni og hafa þau gert það lengur en elstu menn muna. Lífið er línudans Reuters Árnað heilla dagbok@mbl.is FRÉTTIR IKEA-vöru- listinn 2008 er kominn út. Hann er 284 blaðsíður að þessu sinni og vöruverð í list- anum gildir til 15. ágúst 2008. „IKEA-vörulistinn er fullur af hugmyndum til að skapa notalegt heimili, þar sem áhersla er lögð á að skapa sveigjanlegra, þægilegra og hagkvæmara rými,“ segir í fréttatilkynningu. IKEA-vörulistinn er gefinn út í rúmlega 175 milljón eintökum um allan heim. Hann kemur nú út í 33 löndum og á 27 tungumálum. Vörulistanum er dreift á öll heimili landsins sem samþykkja fjölpóst dagana 29. ágúst til 31. ágúst en einnig er hægt að skoða hann á heimasíðu IKEA á vefslóð- inni www.IKEA.is Vörulisti IKEA komin út MÁLASKÓLINN Lingva býður gestum og gangandi í heimsókn í húsakynni sín í ODDA, Háskóla Ís- lands í dag, laugardag, kl. 13-16. Kennarar kynna námskeið haust- annar, sem eru að hefjast, og heitt verður á könnunni. Dominique Pledel verður með vínsmökkum á frönskum eðalvínum og dregið verður í ferðahappdrætti kl. 16. Allir velkomnir. www.lingva.is Opið hús hjá mála- skólanum Lingva FÉLAGSKAPURINN Samtaka stendur fyrir hverfishátíð í Mið- borg og Hlíðum í dag, laugar- daginn 1. september. Hún verður haldin á Miklatúni frá kl. 14.00– 16.00. Í boði er fjölbreytt dagskrá og eru allir velkomnir. Þeir sem koma að hátíðinni eru: Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Háteigsskóli, Hlíðaskóli, Austurbæjarskóli, Félagsmiðstöð Miðborgar og Hlíða, Háteigskirkja, Hallgrímskirkja, Dómkirkjan, skátafélagið Landnemar, Íþrótta- félagið Valur, Kramhúsið, Mynd- listarskóli Reykjavíkur, Dansskóli Jóns Péturs og Köru, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Íbúa- samtök 3. hverfis. Boðið verður upp á margvíslega og fjölbreytta dagskrá og Þorleifur Finnsson harmonikkuleikari leikur gömul dægurlög í veitingatjaldi. Samtaka er félag með áherslu á forvarnir. Upphaf félagsins má rekja til umræðna um forvarnir haustið 1997 í Austurbæjarskól- anum. Félagið var endurvakið af Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða haustið 2005 en stjórnandi fé- lagsins er Guðbjörg Magnúsdóttir frístundaráðgjafi en sömu aðilar standa enn að félaginu. Samtaka á Miklatúni í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.