Morgunblaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Það er ekki á hverjum degi
sem fimm gamlir Willys-jeppar
standa saman fínpússaðir og tilbúnir í
jeppaferð. Þetta gerðist nýlega þegar
nokkrir áhugamenn um þessa gerð
bíla komu saman við hús Sverris
Andréssonar fyrrum bílasala á Sel-
fossi áður en þeir lögðu upp í ferð um
Rangárvelli.
Þetta voru Gunnar Bjarnason á
R-3010, Erlingur Ólafsson á L-403,
Hilmar Kristjánsson á D-252 og svo
Sverrir Andrésson sem á tvo Willys-
jeppa, X-16 og X-652. Í ferðinni var
ekið upp Holt og Landsveit, austur
fyrir Rangá við Galtalæk og svo niður
með Rangá um Rangárvelli. Ferðinni
lauk við bústað Jóns Karls Snorra-
sonar flugmanns sem ekur R-2066.
Á myndinni sjást ferðafélagarnir
með fínpússaða fjórhjóladrifna far-
skjóta sína.
Fimm gamlir Willys-
jeppar saman í jeppaferð
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Það er löngu kominn tími á
vel búið fjölnota íþróttahús í Árborg
og fer þörfin vaxandi með fjölgun
íbúa. Staðsetning við Engjaveg er
heppilegust að mati íþróttahreyfing-
arinnar og við viljum setja málið
formlega á dagskrá með þessari til-
lögu og munum fylgja málinu áfram
þar til húsið rís,“ sagði Eyþór Arn-
alds, bæjarfulltrúi og oddviti sjálf-
stæðismanna í minnihluta bæjar-
stjórnar Árborgar, en minnihlutinn
lagði fram tillögu á fundi bæjarstjórn-
ar sl. miðvikudag um byggingu 13.000
fermetra fjölnota íþróttahúss við
Engjaveg á Selfossi sem verði tekið í
notkun fyrir árslok 2008.
Vilja sjálfstæðismenn að farið verði
þegar í stað í að finna samstarfsaðila
sem áhuga hafa á að byggja húsið í
einkaframkvæmd. Framkvæmda-
stjóra framkvæmda- og veitusviðs
verði falið að hefja undirbúning
verksins og skila framkvæmda- og
veitustjórn og bæjarráði fyrstu
áfangaskýrslu um verkið eigi síðar en
15. október 2007.
Stór verkefni framundan
Tillagan var felld á bæjarstjórnar-
fundinum með fimm atkvæðum full-
trúa meirihluta bæjarstjórnar, gegn
fjórum atkvæðum fulltrúa minnihlut-
ans. Í umræðum á fundinum kom
fram að vinnuhópur um uppbyggingu
íþróttamannvirkja muni skila áliti á
næstu vikum og að hópurinn hefði
rætt um byggingu fjölnota íþrótta-
húss á Selfossi.
Ragnheiður Hergeirsdóttir var
spurð um áform meirihluta bæjar-
stjórnar varðandi uppbyggingu
íþróttamannvirkja og byggingu fjöl-
notahúss. „Við munum ráðast í þrjú
stór verkefni í uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja hér á næstu árum og
ákvörðun um leiðir og fyrirkomulag
verður tekin á næstunni út frá áliti
vinnuhóps sem fjallað hefur um málin
og bæjarstjórn allri er kunnugt um.
Um er að ræða endurnýjun íþrótta-
leikvangs fyrir knattspyrnu og frjáls-
ar íþróttir, stórfelldar endurbætur við
Sundhöll Selfoss og/eða nýtt sund-
laugarsvæði og svo fjölnota íþrótta-
hús.
Allt bendir til þess að leikvangur-
inn og sundlaugin komi til fram-
kvæmda á næsta ári. Við viljum að
íþróttaleikvangurinn verði tilbúinn til
notkunar á næsta ári, ekki síst vegna
frábærs árangurs knattspyrnuliðsins
okkar sem nú á mikla möguleika á að
komast í fyrstu deild. Þá bíða íbúar
eftir bættri sundlaugaraðstöðu á Sel-
fossi og því mikilvægt að ráðast í þær
framkvæmdir. Ákvörðun um bygg-
ingu fjölnota íþróttahúss verður tekin
á næstu vikum í samráði við íþrótta-
félögin á svæðinu, íþróttakademíurn-
ar og aðra þá aðila sem málið varðar.
Hvernig staðið verður að uppbygg-
ingu og rekstri ræðst m.a. af kostnaði
við rekstur hússins og stofnkostnaði.
Rætt hefur verið við flesta þá sem
koma til með að nýta sér aðstöðu fjöl-
nota húss og á grundvelli óska þeirra
verður ákvörðun tekin.
Við munum halda landsmót UMFÍ
árið 2012 og fyrir þann tíma þarf að
ráðast í ýmis önnur verkefni stór og
smá. Við erum að ganga frá sam-
komulagi vegna byggingar reiðhallar
hér á Selfossi, áform eru um áfram-
haldandi uppbyggingu á Stokkseyri,
Eyrarbakka og Selfossi, huga þarf að
íþróttagreinum sem krefjast annars
konar aðstöðu en áður er getið og svo
eru göngustígar, reiðstígar og hjól-
reiðastígar einn hluti af heildarmynd-
inni. Þá má geta þess að í byrjun
næsta árs verður tekið í notkun
íþróttahús við Sunnulækjarskóla á
Selfossi þar sem sérstök aðstaða er
fyrir fimleika. Verkefnin eru mörg og
því verður að forgangsraða að vel at-
huguðu máli og að höfðu samráði við
alla hagsmunaaðila í sveitarfélaginu.
Við ætlum okkur stóra hluti á allra
næstu árum og munum vanda til
verka,“ sagði Ragnheiður Hergeirs-
dóttir, bæjarstjóri Árborgar.
Nýr íþróttaleikvangur
og sundlaug á næsta ári
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
annað tveggja á landinu sem veita
mun öðrum spítölum sérhæfða þjón-
ustu.
Halldór segir breytinguna í sjálfu
sér ágæta: „Þetta er þjálla, en auðvit-
að er á vissan hátt eftirsjá að gamla
nafninu. Það er hins vegar engin
ástæða til þess að horfa of mikið til
þess.
Á haustdögum fjöllum við betur um
okkar lógó. Við munum nota FSA
merkið áfram, og þar til önnur
ákvörðun hefur verið tekin. Við erum
engu að síður opin fyrir öllum góðum
hugmyndum að nýrri skammstöfun
fyrir spítalann, sem jafnvel mætti
byggja á gamla lógóinu. Hins vegar
erum við einnig opin fyrir nýju lógói.“
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ á
Akureyri mun í engu breyta starf-
semi sinni þrátt fyrir að nafn þess
verði hér eftir Sjúkrahúsið á Akur-
eyri. Ný lög taka gildi í dag, þar sem
sjúkrahúsið fær þetta nýja nafn, en
þar er sjúkrahúsið jafnframt skil-
greint sem kennslusjúkrahús.
„Það er það sem við höfum verið að
gera,“ segir Halldór Jónsson forstjóri
SA, „við erum og verðum háskóla-
sjúkrahús fyrir HA og veitum þjálfun
og menntun fyrir nema. Það er ein-
faldlega verið að skilgreina og skýra
og setja nokkrar línur um þetta í lögin
og því ekki verið að rýra okkar hlut-
verk nema síður sé. Það er m.a.s.
skýrt kveðið á um að sjúkrahúsið er
Verður FSA að SA eða
jafnvel einhverju öðru?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
FSA Sjúkrahúsið á Akureyri eins og það heitir frá og með deginum í dag.
Í DAG kl. 15 mun Guðbjörg Ring-
sted opna málverkasýningu í Jónas
Viðar Gallery. Á sýningunni sýnir
Guðbjörg málverk í fyrsta skipti, en
hún mun einnig sýna teikningar í
Populus Tremula kl. 14. Guðbjörg
útskrifaðist frá grafíkdeild MHÍ
1982.
Um verkin segir hún: „Þau fjalla
um handverkið – hugmyndirnar,
hönnunina, vinnuna og einlægnina
á bak við hvert verk. Þau eru full af
blómum, laufum og greinum sem
eru þau náttúruform sem eru hvað
mest notuð í ýmiskonar handverk
svo sem útskurð, útsaum, silf-
ursmíði og textílgerð.
Ég vildi sjá þessi form, þessi
munstur í málverkum.“
Sýningin stendur til 16. sept-
ember. Tvær aðrar opnanir verða á
Akureyri í dag og önnur þeirra í
Gilinu. Stefán Jónsson sýnir á Café
Karólínu kl. 14 og Sunna Sigfríð-
ardóttir opnar í DaLí gallerý kl. 17.
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Þrjár opn-
anir í Gilinu
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ Boginn við Þórssvæðið stendur nú autt og mun gera það
næstu vikur á meðan útveggir hússins verða einangraðir.
Engin starfsemi mun fara fram í húsinu meðan á framkvæmdum stendur
að beiðni Eldvarnaeftirlits ríkisins, en áætlað er að þeim ljúki í október.
Eigandi hússins, Akureyrarbær, varð við þessari beiðni eftirlitsins í gær-
morgun.
Boganum lokað fram í október
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hveragerði | Eigendur fegurstu
garða í Hveragerðisbæ voru verð-
launaðir við athöfn sem fram fór í
inngangshúsi hverasvæðisins.
Veittar voru viðurkenningar fyr-
ir fallega og vel hirta garða. Kjarr-
heiði 10, eigendur eru Þórdís
Magnúsdóttir og Eyvindur Bjarna-
son. Borgarheiði 21, eigendur eru
Jóna Guðjónsdóttir og Ásgeir Ás-
geirsson. Heiðarbrún 7, eigendur
eru Guðný Snorradóttir og Guð-
mundur Kolbeinn Vikar.
Fyrirtækjaverðlaunin komu í
hlut Önnu Maríu Eyjólfsdóttur og
Ólafs Reynissonar fyrir miklar end-
urbætur og gott umhverfi veitinga-
staðarins Kjöt og Kúnst.
Veittar viðurkenningar fyrir
fallega og vel hirta garða
BENEDIKT S. Lafleur sjósund-
kappi mun spreyta sig á Drang-
eyjarsundi á mánudag kl. 14. Að-
alfylgdarmaður hans verður Jón
frá Fagranesi, Drangeyjarjarl, en
hann hefur mikla reynslu af fylgd
Drangeyjarfara og sjósundkappa.
Aðeins nokkrir sjósundskappar
hafa synt þetta sund, t.a.m. synti
Grettir Ásmundarson lengri leið-
ina frá eyjunni og munar þar
tæplega 1 km á leiðum. Síðast
synti Kristinn Magnússon, sjó-
sundkappinn mikli, þetta sund, en
hann er eini sjósundmaðurinn
sem hefur synt sundið tvisvar
sinnum.
Drangeyjarsundið er eina sjó-
sundið á Íslandi sem viðurkenn-
ing hefur verið veitt fyrir með
farandbikar en nöfn Drangeyjarf-
ara eru skráð á hann hverju
sinni.
Lafleur reynir við Drangey
Ískaldur Benedikt S. Lafleur