Morgunblaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 29 Samfylkingin slóst í för með lögreglunni síðastliðna helgi og stóð vaktina fram undir morgun, aðfaranætur laugardags og sunnudags. Vettvangsferðin var liður í því að borgarstjórnarflokk- urinn hefur ákveðið að láta löggæslumál, örugga borg og örugg hverfi til sín taka. Auk þess að fá innsýn í viðfangs- efni lögreglunnar og kynnast skemmtanalífi og vandamálum mið- borgarinnar að næturlagi af eigin raun var ómetanlegt að heyra sjónarmið al- mennra lögreglumanna, ekki síður en yfirmanna þeirra, að ógleymdum skoð- unum skemmtanaglaðra borgarbúa frá fyrstu hendi. Viðfangsefnin í miðborginni eru gjörbreytt Þegar „miðborgarvandann“ bar á góma fyrir áratug var átt við hóp- asöfnun ólögráða unglinga sem söfn- uðust þúsundum saman í miðborginni til að drekka og skemmta sér. Ungling- arnir blönduðust gestum veitingastaða sem streymdu út á göturnar þegar öll- um stöðum var lokað á sama tíma, klukkan þrjú. Og við tók margra tíma bið eftir leigubílum. Unglingadrykkja, ofbeldi, sóðaskapur og umfangsmikil eignaspjöll fylltu síður dagblaðanna ár- um og áratugum saman þar til sam- félagið sagði nei. Með sameiginlegu átaki borgaryfirvalda, lögreglu og for- eldra var tekið á þessu. Unglingar hurfu úr skemmtanalífinu því fjöl- skyldur voru látnar sækja börnin sín. Eftirlitsmyndavélar voru settar upp og álagi á leigubíla var dreift með því að gefa opnunartíma veitingahúsa frjáls- an. Síðast nefnda ákvörðunin var end- urskoðuð nokkrum árum síðar til að auðvelda þrif og draga úr árekstrum skemmtanahalds og morgunumferð- arinnar og hámarksopnunartími í mið- borginni var styttur til klukkan 5.30. Ónæði og óþrifnaður og óundirbúið reykingabann Reynslan af ofangreindum aðgerðum og samfélagslega átakinu sem fylgdi, var í meginatriðum góð. Unglinga- vandamálið hvarf úr miðborginni, rannsóknir sýna að áfengisneysla og eiturlyfjafikt í efstu árgöngum reyk- vískra grunnskóla hefur dregist saman um 50% frá árinu 1998 og er nú með því lægsta í Evrópu. Alvarlegum ofbeld- isglæpum hefur fækkað og áhugi á bú- setu, fjárfestingum, rekstri og verslun í miðborginni hefur margfaldast. Í sum- ar hefur þó sigið á ógæfuhliðina í ýms- um efnum. Bruninn í Austurstræti hef- ur fært miðpunkt skemmtanalífsins frá Lækjartorgi á gatnamót Bankastrætis og Ingólfsstrætis sem er mun nær íbúabyggðinni. Aðlögun veitinga- starfseminnar að reykingabanninu sem tók í gildi í sumar var engin. Það ásamt góðu veðri hefur dregið skemmtanalífið í auknum mæli út á göturnar með auknu ónæði og óþrifnaði. Þetta eru mikilvæg úrlausnarefni sem þarf að taka föstum tökum, þar þurfa borg- aryfirvöld og veitingamenn að axla sína ábyrgð, einsog Samfylkingin hefur gert tillögur um. Fleira þarf þó til. Sýnileg löggæsla er lykilatriði Um síðustu helgi var gerð tilraun með að hafa sýnilega gönguhópa lög- reglumanna á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis. Það blasti við að sýnileg löggæsla hefur gríðarlega góð áhrif á brag skemmtanalífsins, gripið var inn í pústra áður en þeir urðu að áflogum og gengið eftir því að flöskur væru ekki brotnar, migið utan í hús og umgengn- in almennileg. Öll þessi atriði eru óþarfir fylgifiskar skemmtanalífsins. Við getum talað okkur hás um ómenn- ingu en eigum að horfast í augu við að meðan við erum að breyta hugarfari og breytni þarf eftirlit og aðhald. Það fæst með sýnilegri löggæslu og öðru vísi ekki. Þannig er staðið að málum í öllum borgum heimsins þar sem skemmt- analíf er ekki bannað á annað borð. Og þannig þarf það að vera í Reykjavík. Reynslan frá síðustu helgi sýndi hins vegar ekki aðeins fram á kosti sýni- legrar löggæslu. Augljóst var að mannafli lögreglunnar var alltof lítill. Alltof lítill. Ósýnleiki dómsmálaráðherra Samfylkingin hefur ítrekað minnt á það á undanförnum árum að tímabært væri að endurskoða og auka viðveru sýnilegrar löggæslu í miðborginni. Þótt úr henni hafi verið dregið kringum aldamótin með þeim rökum að ástandið hafi batnað frá því sem áður var hafa fjölmargir lýst efasemdum um að það eigi ennþá við. Þegar árið 2001 óskaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þáverandi borgarstjóri eftir því í bréfi til dóms- málaráðherra að þörf fyrir löggæslu í miðborginni og hverfum borgarinnar yrði endurmetin. Þessi ósk hefur verið margítrekuð á formlegum fundum, í ræðu og riti æ síðan. Ennþá hefur dómsmálaráðuneytið ekki orðið við þessu. Í stað áherslu á öryggi og þjón- ustu við venjulega borgara hefur allt kapp verið lagt á eflingu sérsveitar, greiningadeildar og embættis ríkislög- reglustjóra. Nú er nánast einsog við- fangsefnin í miðborginni og starfs- aðstæður lögreglunnar komi dómsmálaráðherra ekki við. Fjarvera hans úr umræðu um miðborgina og aukna og sýnilega löggæslu er með ólíkindum. Tölurnar tala hins vegar sínu máli. Af máli reyndra lögreglu- manna má heyra að fyrir 20 árum hafi yfir 20 lögreglumenn verið á gangi í fjórum til sex hópum á hverju helg- arkvöldi í miðborginni. Undanfarin ár hafa engir gönguhópar verið sýnilegir nema á stórviðburðum einsog Menn- ingarnótt. Þessu þarf að breyta. Kjör lögreglumanna eru tíma- sprengja Eitt af því sem stóð upp úr í vett- vangsferð okkar um síðustu helgi var merkileg innsýn í faglegt og vel skipu- lagt starf þeirra lögreglumanna sem stóðu næturvaktina þrátt fyrir ótrúlega manneklu og oft erfið skilyrði. Vakt- irnar eru þó að umtalsverðum hluta bornar uppi af lögreglunemum í starfs- þjálfun. Þeir standa sig ótrúlega vel miðað við takmarkaða reynslu. Þessi hópur sest hins vegar aftur á skóla- bekk um áramót. Hvað þá? Það hefur ekki borið hátt en á þessu ári hefur varla liðið sú vika að reyndir lög- reglumenn hafi ekki horfið til annarra starfa. Þótt lögreglan geti ekki farið í verkfall þá geta lögreglumenn hætt. Og það gera þeir. Helsta ástæða þess eru kjör lögreglumanna. Þau er tíma- sprengja. Það verður að viðurkenna. Grunnlaun lögreglumanns fyrstu fimm ár hans í starfi eru 176.783 kr. Öruggi á götum úti og árangursrík löggæsla verða fljótt orðin tóm ef ekki verður á þessu tekið. Sýnileg löggæsla hangir því ekki aðeins á vilja okkar til að skipuleggja og auka viðveru lögregl- unnar heldur ekki síður því að yfirvöld vakni áður en í algjört óefni er komið. Þar mun Samfylkingin ekki láta sitt eftir liggja. Örugg borg – sýnileg löggæsla Dagur B. Eggertsson og Oddný Sturludóttir Dagur B. Eggertsson »Reynslan frá síðustuhelgi sýndi ekki aðeins fram á kosti sýnilegrar löggæslu. Augljóst var að mannafli lögreglunnar var alltof lítill. Dagur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og Oddný talsmaður Samfylk- ingarinnar í málefnum miðborgarinnar. Oddný Sturludóttir Auk þess segir Guðni að breytingar á stjórn- arráðinu í vor og fyrirhugaðar breytingar hafi meiri kostnað í för með sér en óbreytt ástand. Vel geti verið að Alþingi búi enn við það frelsi að þingmenn stjórn- arflokkanna ásamt stjórnarandstöðunni stöðvi þessar ráðgerðir Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Guðni segist ekki hafa áhyggjur af því hvort stjórn- arandstaðan nái saman á Alþingi í vetur. „Ég held að stjórnarandstaðan eigi að geta tekið saman í ákveðnum málum og ég hef miklu meiri áhyggjur af því hvað þingmeirihluti stjórnarflokkanna er gríð- arlega mikill og hve hætt er við að hann misnoti valdið sem því fylgir. Mér fannst örla á því strax á sum- arþinginu að stjórnarflokkarnir myndu sýna minni- hlutanum mikið virðingarleysi, sem er mjög slæmt í lýðræðisríki.“ Uppbygging Framsóknarflokkurinn tapaði miklu fylgi í kosning- unum í vor og Guðni segir að stóra verkefnið sé að byggja flokkinn upp á ný, því hann hafi þá trú að hér verði þrír sterkir flokkar, Sjálfstæðisflokkurinn til hægri, Samfylkingin til vinstri og Framsóknarflokk- urinn á miðjunni með félagshyggju og samhjálp að leiðarljósi. „Þannig vil ég byggja Framsóknarflokkinn upp,“ segir hann. „Við þurfum að takast á við okkar veikleika um leið og við horfum til styrkleika okkar til að efla fylgi okkar á ný. Framsóknarflokkurinn hefur í hinu langa samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og því miður innbyrðis átökum á síðustu árum tapað töluvert miklu af félagslega sinnuðu fólki sem átti erfitt með að sætta sig við langt samstarf til hægri og ýmis verkefni síðustu stjórnar í einkavæðingu og fleiru. Áherslur flokksins breyttust á þessum tíma eins og úrslit kosn- inganna báru með sér. Því er það okkar verkefni að endurmeta og yfirfara stefnu flokksins á öllum svið- um.“ Guðni segir mikilvægt fyrir flokkinn og þjóðina að þróa íbúalýðræði á sviði sveitarstjórna þar sem hinn almenni borgari taki með kjörnum fulltrúum ákvarð- anir með skýrum hætti um framtíð sinna byggðalaga. Heiftúðleg átök um skipulagsmál og verndun bygg- inga, eins og hafi orðið í Kópavogi, Reykjavík, Árborg og víðar, sýni að hér þurfi skýrari leikreglur. Eins þurfi að fara yfir skattamálin og miklu skipti að þjóðin sætti sig við þær miklu breytingar sem hafi orðið í útrásinni. „Það er mikilvægt að marka þá stefnu að allir þegnar þessa lands búi við sem best lífs- kjör,“ segir Guðni. „Við þurfum með markvissum hætti að bæta lífskjör aldraðra og þeirra sem lægri laun hafa á vinnumarkaðnum með því að huga að því að létta skattabyrðum af þessu fólki, ekki síst til að það sætti sig betur við þróun samfélagsins og skapi meiri einingu í landinu.“ Eftir að Guðni tók við formennskunni sagði hann að Framsóknarflokkurinn ætti að stefna að því að verða flokkur með að minnsta kosti 25% fylgi. Hann áréttar þessa skoðun sína nú og segir að horfa þurfi til end- urbóta á markmiðum og stefnu flokksins og komið verði á fót vinnuhópum, sem einbeiti sér að verkefnum tiltekinna ráðuneyta. Kallað verði á framsóknarfólk í samfélaginu til að vinna í þessum hópum. „Aðalatriðið er að aðhald, stefnumörkun og sýn Framsókn- arflokksins á ákvarðanir samtímans komi skýrt fram.“ Hafrannsóknastofnun, fá verkfræðilega úttekt á rall- inu og úttekt á líffræðilega ástandinu í sjónum. Niðurskurðurinn bitni stórlega á byggðarlögum allt í kringum landið og leggi jafnvel byggðarlög í rúst. Flótti verði úr röðum sjómanna og því verði ekki auð- velt eftir nokkur ár að fá reynda sjómenn þegar á þeim þurfi að halda. Mótvægisaðgerðir ríkisstjórn- arinnar þurfi að fara að líta dagsins ljós. Það sé ekki nóg að kalla alla eðlilega framþróun mótvæg- isaðgerðir eins og gert hafi verið fram að þessu. Sök- um aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar hafi sveit- arstjórnarmenn því neyðst til að gera tillögur um hvað geti gagnast þeirra byggð við þessar aðstæður en ekk- ert heyrist frá ríkisstjórninni nema hvað flýta eigi ein- hverjum vegaframkvæmdum á næstu 5 árum. Það hafi ekkert að segja í þessum efnum. „Minn ágæti vin- ur Össur Skarphéðinsson byggðamálaráðherra kemst ekki upp með að tala digurbarkalega og sýna ekki á spilin hvað framundan er gagnvart þessum byggðum sem eiga um sárt að binda út af þessum ákvörðunum um kvótann.“ Slæmar breytingar á stjórnarráðinu Að sögn Guðna eru á kreiki sögusagnir um tilfærslur á verkefnum innan stjórnarráðsins. „Ég gagnrýni for- sætisráðherra harðlega fyrir það hvernig hann hefur látið Ingibjörgu Sólrúnu ráða gríðarlega miklum breytingum sem liggja í loftinu á stjórnarráðinu og enn hafa ekki verið kynntar. Ég held að þær geti haft mjög alvarleg áhrif ef af þeim verður.“ Guðni segir að þegar landbúnaðarháskólarnir, land- græðslan og skógræktin verði farin til annarra ráðu- neyta verði nánast allir vísindamenn landbúnaðarins farnir frá landbúnaðarráðuneytinu. Þess vegna leggi hann til að landbúnaðarháskólarnir verði sjálfseign- arstofnanir með stjórnarmönnum sem tengist íslensk- um landbúnaði og atvinnulífi, því það gangi ekki upp að menntamálaráðherra verði æðstur á tilraunastöðv- um landbúnaðarins. Hreinir ríkisháskólar munu eiga erfitt í samkeppni framtíðarinnar, sérstaklega ef þeir verði litlir sérhæfðir skólar. Þá leggur Guðni áherslu á að hugað verði að háskólakeðju um allt land. „Talað er um að Íbúðalánasjóður, sem er fé- lagslegur sjóður um húsbyggingar ungs fólks, eigi að fara undir fjármálaráðuneytið, sem væri ein fáránleg- asta ákvörðunin í viðbót og þýddi fyrst og fremst að hann yrði lagður niður og seldur eins og öll slík rík- isfyrirtæki sem fjármálaráðuneytið nær höndum um,“ segir Guðni. Hann telur mikilvægt að verja Íbúðalána- sjóðinn, sem sé félagslegt tæki fólksins og eigi að vera undir félagsmálaráðuneytinu alveg eins og sveit- arfélögin. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að for- sætisráðherra skýri frá því hvað fram fór í þessum undarlegu samtölum hans og ákvörðunum með Ingi- björgu Sólrúnu á Þingvöllum. Við eigum pólitískan rétt á því, hvort sem við erum í stjórn eða stjórn- arandstöðu, og ég finn það að þingmenn stjórn- arflokkanna hafa ekki hugmynd um þetta ráðabrall. Það er náttúrlega mjög alvarlegur hlutur ef menn sniðganga lýðræðið og Alþingi með þessum hætti. Svo var það auðvitað grín og taktlaust að stinga tveimur ráðherrum inn í minnsta ráðuneytið, iðnaðar- og við- skipta, og gegn öllu því sem Sjálfstæðisflokkurinn vildi á fyrri stigum. En ráðherrar Samfylkingarinnar þurftu auðvitað stóla.“ enn ands orku lltaf í ð- óð- n í það kja i sem gn- t- ðni - ing m st tek- ngi yrir ra Varð- r- end- og gi í n- tu a op- æp- ilu ngis eins ara randi áð- hafi ni, g am- Ég a í áðs- era r að ið og öl við um- ð ein- a á ntur til fulls knarflokksins gagnrýnir stjórnvöld fyrir aðgerðaleysi og ann óttast átök á vinnumarkaði vegna mikillar þenslu Morgunblaðið/G.Rúnar ti orðið þjóðinni mjög hættuleg en ríkisstjórnin fari sér hægt og láti fljóta meðan ekki sökkvi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.