Morgunblaðið - 01.09.2007, Side 6
6 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umtalsverð tímamót hafaorðið í landsmálunumundanfarið með lokum 12ára ríkisstjórnarsam-
starfs Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknar í vor og þeirri ákvörðun Sam-
fylkingarinnar að gefa upp á bátinn
þann ásetning sinn að vera höfuðand-
stæðingur Sjálfstæðisflokksins.
Þetta kom fram í framsöguræðu
Steingríms J. Sigfússonar, formanns
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, á flokksráðsfundi, sem
hófst á Flúðum í gær.
Steingrímur ræddi um hlutverk
VG í íslenskum stjórnmálum og sagði
að eins og mál hefðu skipast væri VG
eini flokkurinn sem væri fær um að
taka að sér það margþætta hlutverk
að vera höfuðandstæðingur og mót-
vægi við Sjálfstæðisflokkinn. Sam-
fylkingin hefði gefið sig út við það frá
stofnun að vera höfuðandstæðingur
Sjálfstæðisflokksins en hefði nú af-
salað sér því hlutverki og þessi
ákvörðun markaði tímamót. „Þegar á
átti að herða skorti Samfylkinguna
úthald og kjark til að varðveita þá
stöðu sem flokkur að þau væru hinn
meginvalkosturinn til að leiða ríkis-
stjórnir í íslenskum stjórnmálum og
vera þannig eiginlegt mótvægi við
Sjálfstæðisflokkinn,“ sagði Stein-
grímur. Samfylkingin hefði í ríkum
mæli gengið til stjórnarsamstarfs á
forsendum Sjálfstæðisflokksins sem
sýndi hugmyndafræðilega uppgjöf
flokksins.
Framsókn „tærður upp“
Hann sagði ljóst að aðrir stjórn-
arandstöðuflokkar væru ekki færir
um að berjast af afli gegn Sjálfstæð-
isflokknum og hægristefnu í mál-
efnalegu tilliti. Framsóknarflokkur-
inn væri „tærður upp af sambúðinni
við íhaldið“ og Frjálslyndi flokkurinn
væri hægra megin við miðju fremur
en hitt.
Steingrímur lagði áherslu á það í
ræðu sinni að Samfylkingin væri ekki
höfuðandstæðingur Vinstri grænna.
Þvert á móti væri það Sjálfstæðis-
flokkurinn og hægristefnan sem
flokkurinn aðhylltist. „Sjálfstæðis-
flokknum er að vísu furðu lagið að fá
aðra flokka, nytsama sakleysingja
getum við kallað það, til að fram-
kvæma stefnu sína en stefnan er
hans og hefur verið hans,“ sagði
Steingrímur og bætti við að nóg yrði
að líkindum af átökum innan Sjálf-
stæðisflokksins á næstunni.
Afgerandi staða sem þriðji
stærsti flokkurinn
Steingrímur vék í ræðunni að úr-
slitum alþingiskosninganna í vor og
sveitarstjórnarkosninganna í fyrra.
„Við getum sagt að við höfum unnið
okkur upp um deild á báðum víg-
stöðvum,“ sagði Steingrímur.
Í alþingiskosningunum hefði
flokkurinn tekið sér afgerandi stöðu
sem þriðji stærsti stjórnmálaflokkur
landsins og þá hefði flokkurinn náð
því takmarki að eignast þingmenn í
öllum kjördæmum landsins.
Því væri ekki að leyna að tilfinn-
ingar margra félaga í VG hefðu verið
blendnar eftir kosningarnar. „Það er
skiljanlegt og ekkert feimnisatriði,
allavega af minni hálfu, að ræða það,“
sagði Steingrímur. Vonbrigðin hefðu
stafað af því að flokkurinn hefði ekki
náð því fylgi sem skoðanakannanir
fyrir kosningar höfðu spáð. Þá hefðu
margir gert sér vonir um „að nú yrðu
gagnger umskipti í stjórnmálum
landsins og að þau umskipti myndu
fyrst og fremst tákngerast í því að
við, aðalstjórnarandstöðuaflið, a.m.k.
í málefnalegum skilningi, frá síðustu
tveimur kjörtímabilum, færum inn í
ríkisstjórn með öllu því sem það
stæði fyrir í félagsmálum, umhverf-
ismálum o.s.frv. Og auðvitað eru það
vonbrigði að þessi umskipti í stjórn-
málum landsins náðust ekki fram.“
Steingrímur sagði ýmsa hafa sagt í
kjölfar myndunar stjórnar Samfylk-
ingar og Sjálfstæðisflokks að VG og
ekki síst hann sjálfur hefði klúðrað
því að flokkurinn kæmist í stjórn.
„Jafnvel að tilvist núverandi ríkis-
stjórnar sé einhvers konar afleiðing
af þessu meinta klúðri okkar.“
Kvaðst Steingrímur hins vegar telja
að fyrst ríkisstjórnin féll ekki í kosn-
ingunum, þótt aðeins hársbreidd
munaði, væri ekkert sem VG hefði
getað gert til að breyta því að stjórn
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks
yrði mynduð. Sterk öfl í báðum flokk-
um hafi verið búin að vinna að því öt-
ullega á bak við tjöldin að það stjórn-
arsamstarf yrði að veruleika.
Stefna á fjórðungsfylgi
Styrkur VG að loknum kosningun-
um væri hins vegar ævintýri líkastur,
en við stofnun flokksins árið 1999
hefðu margir spáð því að fylgi hans
yrði á bilinu 5-7%. „Við erum stærst
sambærilegra vinstriflokka á Norð-
urlöndum,“ sagði Steingrímur. Að-
eins systurflokkar VG í Færeyjum
og Grænlandi stæðu flokknum fram-
ar „og það er verðugt verkefni fyrir
okkur að stefna á svipaðar fylgisslóð-
ir og þeir halda sig á, um fjórðungs-
fylgi eða vel það og í fyrsta til öðru
sæti í stærðarröð flokka í viðkomandi
löndum.“
Vinstri græn eina mót-
vægið við hægristefnu
Umtalsverð tímamót
hafa undanfarið orðið
í íslenskum stjórnmálum
með breyttu ríkis-
stjórnarsamstarfi.
Þetta sagði Steingrímur
J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, á
flokksráðsfundi í gær.
Í HNOTSKURN
»Steingrímur sagði að VGmyndi fylgjast vel með að-
gerðum í heilbrigðismálum og
taka til varna ef til stæði að
einkavæða í því að bandarískri
fyrirmynd.
»Þá sýni óróleiki í efna-hagsmálum að ef til vill
væri ekki allt sem skyldi með
góðærið svonefnda. Til að
mynda væru yfirdrátt-
arskuldir heimila gríðarlegar.
»VG myndi áfram vinna aðmálum á borð við sjálf-
bæra þróun og græn gildi, að
gjaldfrjálsum leikskóla,
sænskri leið í vændismálum og
friðarstefnu.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Eina mótvægið Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, og Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins.
ÝMISS konar breytingar á stjórn-
un og skipulagi heilbrigðisþjón-
ustu verða með nýjum lögum um
heilbrigðisþjónustu sem taka gildi
í dag. Lögin voru samþykkt í vor
en eldri lög sem að stofni til voru
frá árinu 1973 þóttu úrelt og óskýr
í ýmsum atriðum. Sumar þeirra
breytinga sem verða með nýju lög-
unum snúa beint að Landspítala,
eins og Landspítali – háskóla-
sjúkrahús heitir framvegis.
Virkt eftirlit með heilbrigð-
isþjónustu verði tryggt
Í tilkynningu frá heilbrigðis-
ráðuneytinu vegna nýju laganna
segir að meginmarkmið þeirra sé
að „í fyrsta lagi að mæla með
skýrum hætti fyrir um grunn-
skipulag hins opinbera heilbrigð-
isþjónustukerfis. Í öðru lagi að
ana sem æðstu yfirmanna hverrar
stofnunar.
Skýrar kveðið á um stöðu
og hlutverk landlæknis
Einnig taka í dag gildi ný lög
um landlækni. Þar er meðal ann-
ars skýrar kveðið á um stöðu og
hlutverk landlæknis sem eftirlits-
og stjórnsýslustofnunar undir yf-
irstjórn heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra.
Síðasti fundur stjórnarnefndar
Landspítala – háskólasjúkrahúss
var haldinn á Eiríksstöðum á
fimmtudag, en samkvæmt nýju
lögunum verður stjórnarnefnd
ekki í stjórnskipulagi Landspítala,
eins og verið hefur á landssjúkra-
húsinu síðan árið 1935. Í stað
hennar kemur 9 manna ráðgjaf-
arnefnd.
setja ráðherra og öðrum heilbrigð-
isyfirvöldum og einstökum heil-
brigðisstofnunum sem reknar eru
af ríkinu skýran lagaramma til að
starfa eftir. Í þriðja lagi að tryggja
virkt eftirlit með heilbrigðisþjón-
ustu og gæðum hennar og í fjórða
lagi að skilgreina nánar stefnu-
mótunarhlutverk ráðherra innan
marka laganna og tryggja að hann
hafi á hverjum tíma fullnægjandi
valdheimildir til að framfylgja
stefnu sinni, m.a. um skipulag heil-
brigðisþjónustu, forgangsröðun
verkefna innan hennar, hvar hún
skuli veitt og af hverjum.“
Meðal helstu breytinga er að
landinu verður skipt upp í heil-
brigðisumdæmi sem ákveðin eru
með reglugerð. Einnig er í lög-
unum skýrt kveðið á um stöðu og
ábyrgð forstjóra heilbrigðisstofn-
Ný heilbrigðislög í gildi
Stefnumótunarhlutverk ráðherra styrkt með nýjum lögum
HÉRAÐSDÓM-
UR Reykjavíkur
hefur úrskurðað
að umbeðnar
dómskvaðningar
matsmanna, af
hálfu Samkeppn-
iseftirlitsins,
skuli fara fram.
Var kröfu Kers
hf., Olíuverslunar
Íslands hf. og
Skeljungs hf., um að hafna mats-
gerðunum, því hafnað.
Til upprifjunar höfðuðu olíufélög-
in mál á hendur Samkeppniseftirlit-
inu og íslenska ríkinu í júlí 2005.
Farið var fram á að felldur yrði úr
gildi úrskurður áfrýjunarnefndar
samkeppnismála, en til vara að felld-
ar verði úr gildi sektir sem félögin
voru dæmd til að greiða eða þær
lækkaðar. Í janúar sl. lögðu félögin
fram hvert sína matsgerð og í mars
lagði lögmaður Samkeppniseftirlits-
ins fram yfirmatsbeiðni og mats-
beiðni. Var þar óskað eftir dóms-
kvaðningu tveggja matsmanna og
hins vegar kvaðningu þriggja yfir-
matsmanna. Því mótmæltu félögin.
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur
m.a. fram að framsetning beiðnanna
sé ekki með þeim hætti að hægt sé að
hafna dómskvaðningunni. Þar að
auki sá dómari ekki hvernig það væri
í andstöðu við ákvæði laga um með-
ferð einkamála að krefjast yfirmats.
Félögin voru dæmd til að greiða
100 þúsund krónur í málskostnað.
Dómskvaðn-
ingar skulu
fara fram
Héraðsdómur
Reykjavíkur
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu hefur upplýst innbrot á heimili í
Garðabæ sem átti sér stað á meðan
heimilisfólkið var í tveggja vikna
ferðalagi erlendis. Hluta af því sem
stolið var hefur verið skilað aftur til
eigenda.
Upp komst um innbrotið síðastliðið
mánudagskvöld og af ummerkjum
mátti sjá að hafst hafði verið við í hús-
inu í einhvern tíma. Eigandi hússins
lýsti aðstæðum þannig að sígarettu-
stubbar hefðu verið um allt hús, m.a. í
rúmum og sófum. Svo virtist sem þeir
sem brutust inn hefðu haft vitneskju
um heimkomu fjölskyldunnar.
Rannsókn lögreglu beindist þegar
að aðilum sem þekkja til sonar eig-
andans, sem er á þrítugsaldri, og kom
upp úr krafsinu að grunur lögreglu
reyndist réttur. Fjórir piltar á tví-
tugsaldri voru handteknir og viður-
kenndu við yfirheyrslur að hafa verið
að verki.
Þekktu til
á heimilinu
♦♦♦
7 vikna söngnámskeið hefst 10. sept. n.k.
Raddbeiting / tækni / tónfræði
Söngtúlkun með píanóundirleik
Hægt er að velja um einkatíma
eða hóptíma að degi eða kvöldi
songskolinn.is
552 7366
Námskeið