Morgunblaðið - 01.09.2007, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 25
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | „Þetta styttir dag-
inn. Svo geng ég líka um svo þetta
er líka heilsubót,“ segir Vilmar Guð-
mundsson sem fékk umhverfisverð-
laun umhverfis- og skipulagssviðs
Reykjanesbæjar fyrir áralanga
tryggð við fuglana á Fitjum.
Vilmar fer nánast daglega að
tjörnunum á Njarðvíkurfitjum til að
gefa fuglunum brauð. Framtak
hans er talið eiga drjúgan þátt í því
hvað margir fuglar eru oft á svæð-
inu.
Bjargaði álft
Vilmar er lærður matreiðslumað-
ur og starfaði lengi sem matsveinn á
fiskiskipum og síðar veitingahúsi.
Hann vann seinna hjá Keflavíkur-
verktökum þar sem hann lærði
húsasmíði. Vilmar býr við Tjarnar-
götu í Keflavík og á þeim árum sem
hann vann hjá Keflavíkurverktök-
um gekk hann oft á laugardögum
eftir Fitjunum og í Stekkjarkot í
Innri Njarðvík. „Eitt skiptið labbaði
ég sandinn og síðan grasið til baka
og sá þá álftir á tjörninni. Ég hélt í
fyrstu að ég væri að verða klikkaður
því ég hafði aldrei orðið var við álft-
ir í Njarðvík,“ segir Vilmar.
Ein álftin var frosin úti á tjörn-
inni. Vilmar flýtti sér heim til að ná í
vöðlur og brauð, óð út í tjörnina en á
henni var bara skæni og rogaðist
með álftina í land. Þegar Vilmar var
að hlú að álftinni sá hann merki á
fæti hennar. Hann lét Ævar Pet-
ersen vita af fuglinum. Álftin hafði
verið merkt á Miklavatni í Fljótum
og var fjögurra ára. Ævar sagði
Vilmari að hún myndi koma árið eft-
ir með unga. Það stóð eins og stafur
á bók, álftin kom með fjóra unga og
fleiri dömur með, eins og Vilmar
tekur til orða.
Vilmar fór að gefa fuglunum
reglulega og álftunum fjölgaði mik-
ið og svo fóru að koma endur, gæsir
og fleiri tegundir sem njóta góðs af
brauðgjöfum Vilmars. Hann fær
brauðið hjá bakaríunum, bæði Sig-
urjóni bakara og Nýja bakaríinu.
Fuglarnir vilja hvíta brauðið og
einnig snúða og annað sætabrauð.
Rúgbrauð og annað gróft brauð sem
er of hart fyrir gogginn á fuglunum
afhendir Vilmar kunningjum sínum
sem eru með hesta þannig að ekkert
fari til spillis.
Heldur tryggð við fuglana
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Góð umgengni Strákústurinn er tákn um viðurkenningu fyrir góða um-
gengni. Árni Sigfússon og Steinþór Jónsson afhentu verðlaunin.
Í HNOTSKURN
»SJ innréttingar, útibúIntrum og Dagdvöl aldr-
aðra fengu viðurkenningu
sem fjölskylduvæn fyrirtæki.
»Vilmar Guðmundsson,Þróunarfélag Keflavík-
urflugvallar, Cabo og Hrein-
gerningamiðstöðin fengu
verðlaun fyrir góða um-
gengni.
Reykjanesbær | Borgarstjórinn í
Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, afhjúpaði listaverk í gær á nýju
Reykjavíkurtorgi í Reykjanesbæ.
Listaverkið Þórshamarinn er eftir
Ásmund Sveinsson. Borgarstjóri
heimsótti Reykjanesbæ af þessu til-
efni.
Reykjavíkurtorg er fyrsta torgið
af fimm sem fyrirhugað er að setja á
nýja aðal innkomu í bæinn, Þjóð-
braut. Næsta torg verður kennt við
Lundúnaborg og Parísartorg kemur
svo.
Listamaðurinn sagði sjálfur að við
gerð þessa verks hefði hann séð fyr-
ir sér að það nyti sín best undir ber-
um himni. Fram kom við athöfnina í
gær að Reykjavíkurborg fæli
Reykjanesbæ að varðveita verkið
um ókomna tíma á þann hátt sem
listamaðurinn hefði haft í huga.
Afhjúpun listaverksins var óbeinn
liður í dagskrá Ljósanætur í Reykja-
nesbæ. Aðalhátíðisdagurinn rennur
upp í dag. Reykjanesmaraþon er
hlaupið, skólaárgangarnir hittast á
Hafnargötunni og hátíðir á útisviði
hefjast kl. 14. Fjölbreyttar sýningar
eru um allan bæinn og tónlistar-
dagskrá. Kvölddagskrá hefst á úti-
sviðinu klukkan 20.15 og lýkur með
því að kveikt verður á lýsingu
Bergsins og flugeldasýningu.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Afhjúpun Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Björk Guðjónsdóttir afhjúpuðu
skjöld við verkið, Árni Sigfússon og Jón Kristinn Snæhólm aðstoðuðu.
Þórshamar Ásmundar á
nýju Reykjavíkurtorgi
Reglur og skil:
● Myndin þarf að þola prentun og stækkun í A4 eða stærra.
● Skila skal mynd á geisladiski auk útprentaðrar myndar.
● Myndir mega vera hvoru tveggja jpg. eða tif., en án layera eða maska.
● Gæði myndanna og frágangur hafa áhrif á mat dómnefndar
● Síðasti skiladagur er 14. September 2007.
Myndin sendist til:
Ljósmyndasamkeppni, Vísindavaka, Rannís, Laugavegi 13 – 101 Reykjavík.
Merkja þarf diskinn og myndina með dulnefni. Umslag þarf að fylgja merkt dulnefni
með upplýsingum um sendanda (nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer).
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir bestu myndina:
Fujifilm Finepix Z5fd frá Ljósmyndavörum ehf, sem var valin (compact) vél ársins 2007 af TIPA.
Frekari upplýsingar veitir Elísabet M. Andrésdóttir hjá alþjóðasviði Rannís, elisabet@rannis.is eða í síma 515 5813
Dómnefnd: Ragnar Th. Sigurðsson, ljósmyndari, Gísli Gestsson, hjá Ljósmyndavörum ehf.
og Rebekka Valsdóttir, sviðsstjóri hjá Rannís.
16 - 23 ára
Í tilefni af Vísindavöku 28. sept. nk. efnir Rannís til ljósmyndasamkeppni meðal ungs fólks
á aldrinum 16-23 ára. Þema keppninnar er „Tilraun í þágu vísinda“ og er ætlast til að ljósmyndarar
fangi vísindatilraun á hvaða sviði vísinda sem er.
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
LJÓSMYNDA
SAMKEPPNI
UNGA
FÓLKSINS
TILRAUN Í ÞÁGU VÍSINDA