Morgunblaðið - 03.09.2007, Síða 23

Morgunblaðið - 03.09.2007, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 23 Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Stefán T. Hjal-talín fæddist á Selvöllum í Helga- fellssveit 1. ágúst 1916. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 24. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Torfi Jörgen Illugason Hjaltalín og Ingibjörg Krist- ín Finnsdóttir. Þau bjuggu síðast á Garðsenda í Eyr- arsveit í Grund- arfirði. Þau áttu 12 börn. Eft- irlifandi systkini Stefáns eru Guðrún, Kristján og Unnur. Stefán kvæntist 20.4. 1940 Ingveldi Markúsdóttur, f. á Stokkseyri, 7.9. 1914, d. 5.mars 2000. Foreldrar hennar voru Markús Guðmundsson, f. í Þykkvabæ, Rang., og Sig- urbjörg Jónsdóttir, f. á Stokks- eyri. Börn Stefáns og Ingveldar eru Sigurbjörg, Ingibjörg og Sigurður. Stefán var vörubílstjóri á Þrótti og var mörg sumur með bíl sinn í vegavinnu hjá Vegagerðinni, bæði á Þingvalla- vegi og Suður- landsvegi frá Ell- iðaám að Kambabrún. Hann fór að læra rafvirkjun 42 ára og starfaði síðan við þá iðn. Stefán og Inga eins og hún var alltaf köll- uð voru meðal stofnenda Þjóðdansafélags Reykjavíkur. Þau hjónin dvöld- ust saman á Hrafnistu í Hafn- arfirði þar til hún lést. Stefán var í kór Hrafnistu. Hann keppti oft í boccia og pútti og vann til fjölda verðlauna. Einn- ig var hann virkur í handa- vinnu, leir og málaralist. Sam- býliskona hans seinustu árin var Gerða K. Hammer. Stefán verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í dag, mánudag, kl. 13. Elsku pabbi, nú þegar þú hefur kvatt þetta líf er margs að minn- ast. Mínar góðu minningar voru þegar þú varst í vegavinnunni á Hellisheiðinni. Við fengum okkur lýsi af stút úr flöskunni sem þú varst með í hanskahólfinu í vöru- bílnum. Svo sungum við saman lögin hans Jóns frá Ljárskógum. Það er sjálfsagt þér að kenna að ég er með algjöra bíladellu því okkur leið alltaf svo vel í bíl. Þið mamma voruð alltaf til í að ferðast með okkur. Þið létuð ykkur ekki muna um að fljúga til Ak- ureyrar og vera með okkur í af- mæli sem óvæntir gestir. Oft vor- uð þið hjá okkur í sumarbústaðnum. Einn daginn fóruð þið suður snemma morguns, en voruð komin um hádegi aftur því það var svo gott veður. Það var alltaf ánægju- legt að hafa ykkur í Sumó, ykkur leið svo vel þar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Börnin mín og barnabörn voru heppin að eiga góðan afa og lang- afa sem alltaf var til í allskonar sprell. Við þökkum þér fyrir allar ánægjustundirnar og væntum- þykju í okkar garð. Hvíl í friði. Ingibjörg og Sveinn. Mín fyrsta minning um afa er þegar ég hjúfraði mig í fang hans eftir hádegismatinn á Klappó og hann söng fyrir mig vísuna um Steina. Fang hans hefur alltaf ver- ið útbreitt fyrir okkur afabörnin. Afi hafði ljúft lundarfar og það var stutt í grínið. Hann hafði sterkar skoðanir og stóð fast á sínu. Afi og amma voru alltaf með ef eitthvað var um að vera. Þau voru fyrst á staðinn og síðust heim til þess að missa örugglega ekki af neinu. Afi vann sem vörubílstjóri og fór seint að læra rafvirkjun. „Það var þá sem þú gerðir mig að afa,“ þessa setningu sagði hann oft kíminn á svip og eflaust þótt það spaugilegt að verða afi í 1. bekk í Iðnskólanum. Afi var léttur á fæti og hafði gaman af að leika við okk- ur krakkana. Hann hélt með sínu liði. „Ár- menningar eru bestir,“ sagði hann og hafði gaman af að stríða okkur Vesturbæingunum. Sú minning þegar sá gamli skellti sér í Bláskógahlaupið vekur alltaf hlátur, stoltur en þreyttur skokkaði hann yfir heiðina í mark. Dagurinn eftir var erfiður, það hefði kannski verið betra að und- irbúa sig, en Ármenningurinn var ánægður. Afi og amma dvöldu á Hrafnistu síðustu árin. Þar leið afa vel en heilsu ömmu hrakaði og lést hún árið 2000. Lífið á Hrafnistu átti vel við afa, hann lék pútt, söng í kór og ferð- aðist með félögunum. Þar kynntist hann góðri konu, Gerðu Hammer, sem hann seinna trúlofaðist. Hennar stóra fjöl- skylda tók afa einstaklega vel og við fundum hlýju og umhyggju afa í þeirra garð. Afi og Gerða áttu góð ár saman á Hrafnistu. Það var gaman að geta glatt afa með því að stilla upp hljómsveit fjölskyldunn- ar, Hjaltalínsbörnum, á skemmtun á Hrafnistu fyrir skömmu. „ Þeir voru bestir,“ sagði afi stoltur. Elsku afi, takk fyrir allt. Sigrún. Nú er afi farinn. Skrýtið. Hug- urinn reikar til baka þegar við krakkarnir vorum lítil. Í hjólhýsa- ferðirnar og svo í bústaði í Ölf- usborgum, Svignaskarði eða Húsa- felli. Þar var gleði og glaumur og afi alltaf í essinu sínu. Fleygurinn ekki langt undan og stríðnisglampi í augum. Inga amma og Stefán afi alltaf til í ferðalög og voru ómiss- andi. Og ekki voru spilin langt undan. Ég væri ekki hissa ef þau væru núna að spila við Laugu frænku. Samheldnin er mér minn- isstæð. Alltaf fjölskyldan saman, jafnvel langamma með á meðan hún lifði. Afi var alltaf mjög hraustur, það bara beit ekkert á hann. Jafnvel þegar hann fékk blóðtappa hélt hann ótrauður áfram og komst á undraverðum tíma aftur á fætur með góðri hjálp sambýliskonu sinnar, ömmu Gerði eins og Hera Katrín mín segir. Við eigum Gerðu mikið að þakka, algjör perla. Afi fylgdist vel með alveg til síðasta dags og reifst yfir fréttum ef hann var ekki sammála. Nú get ég ekki lengur kallað „afi“. Skrýtið. Elsku afi, takk fyrir allar góðu minningarnar sem ég geymi og get alltaf sótt. Ég sé ykkur ömmu fyr- ir mér þarna uppi, gantast eins og vanalega. Hvíl í friði. Þín, Harpa. Stefán T. Hjaltalín Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föðurörmum þínum og hvíli sætt þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. Æ tak nú Drottinn föður og móður mína í mildiríka náðarverndan þína og ættlið mitt og ættjörð virstu geyma og engu þínu minnsta barni gleyma. Ó sólarfarið, signdu nú hvert auga en sér í lagi þau sem tárin lauga og sýndu miskunn öllu því sem andar en einkum því sem böl og voði grandar. Þín líknarásján lýsi dimmum heimi, þitt ljósið blessað gef í nótt mig dreymi. Í Jesú nafni við ég væran sofa og vakna snemma þína dýr að lofa. (M. Joch.) Fegurðin er frá þér barst, fullvel þótti sanna, að yndið okkar allra varst engill meðal manna. Sú besta gjöf er gafst þú mér, var gleðisólin bjarta, sem skína skal til heiðurs þér, skært í mínu hjarta. (B.H.) Hvíldu í friði, yndið okkar. Þín elskandi, mamma og systkini Kristín Arna Arnardóttir ✝ Kristín ArnaArnardóttir var fædd í Reykjavík þann 5. desember 1978. Hún lést 19. ágúst sl. Foreldrar Krist- ínar Örnu eru Krist- ín Gunnarsdóttir fædd 18. 12. 1948 og Örn Ármann Sig- urðsson fæddur 12. 11. 1948. Systkini Kristínar Örnu eru Jónína Guðrún Arn- ardóttir fædd 16. 2. 1968 og Benedikt Ármann Arn- arson fæddur 14. 5. 1980. Útför hennar fór fram í kyrr- þey þann 24. ágúst sl. frá Garða- kirkju. Elsku hjartans fal- lega frænka mín. Enn skil ég ekki að þú sért farin. Eflaust mun ég aldr- ei geta sætt mig við það. Núna eru stundirnar sem við áttum saman svo dýrmætar. Alveg eins og litlir demantar sem að ég mun aldrei sleppa hendinni af. Þegar við vorum litl- ar og lékum okkur saman. Endalaust gátum við fundið upp á einhverju sniðugu til þess að bralla. Leyndarmál sem við hvísluðum að hvor annarri í myrkrinu þegar við átt- um að vera sofnaðar. Og svo þegar unglingsárin komu urðu leyndarmálin dýpri og alvarlegri en alltaf gátum við hvíslað þeim hvor að annarri og ég mun geyma þau þar til við hittumst aftur, elsku frænka. Þó að við höfum fjarlægst hvor aðra síðustu árin var alltaf eins og við hefðum heyrst í gær þegar síminn var loksins tekinn upp. Og mikið er ég þakklát fyrir að samband okkar skuli alltaf hafa hald- ist svo sérstakt að við gátum talað um allt. Sorgir og gleði, hlegið eins og bján- ar og hughreyst hvor aðra. Elsku Kristín mín, minning um fallega, yndislega og einstaklega blíða stúlku mun lifa í hjarta mínu að eilífu. Ég er alveg viss um að þú ert kom- in á betri stað þar sem þú munt blómstra og finna þá hamingju sem oft reynist erfitt að finna hérna meg- in. Elsku hjartans Sissa, Örn, Benni og Nína og fjölskylda. Missir ykkar er mikill og engin orð geta grætt sárin. En ég bið Guð að vaka yfir ykkur og gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Hugur minn víkur ekki frá ykkur. Guðrún Lilja og fjölskylda. Þegar ég verð stór ætla ég að verða svona sniðug og góð eins og Jórunn frænka. Einhvern veginn svona hugsaði ég sem barn, og enn í dag á þessi hugsun mín við. Jórunn hafði einstakt lag á því að finna sniðuga hluti til að gleðja þá sem í kringum hana voru, oft litla hluti sem gefnir voru án tilefnis. Gjafir hennar eru eft- irminnilegar, töng til að klípa af jarðarberjum, marsípangrís, naglaklippur líkt og fallöxi, gesta- þrautir. Með gjöfunum fylgdi væntumþykja og gleði, þau skila- boð að hún hugsaði til manns. Jórunn var einnig opin fyrir nýjungum. Þannig var það Jórunn sem gaf fjölskyldunni fyrst að smakka hamborgara og keypti tölvuspil handa okkur systrunum í Ameríku þegar þau voru að koma á markað. Reyndar fannst mér alltaf að ég fengi að upplifa ögn af Ameríku í gegnum fjölskylduna í Hvassaleiti. Eftirminnilegar eru þykku amerísku pönnukökurnar sem við systur fengum á sunnu- dagsmorgnunum eftir að hafa gist í Hvassaleiti og sykurpúðarnir í waldorfsalatinu um áramótin. En Jórunn og fjölskylda buðu stór- fjölskyldunni til sín um hver ára- mót af miklum myndarskap. Gísli mun aldrei gleyma því þeg- ar hann hitti Jórunni fyrst. Það var í byrjun desember, við vorum nýlega byrjuð saman. Hann var einn heima þegar bankað var upp á og úti stóð þessi góðlega bros- andi kona með aðventukerti í hendinni og kynnti sig sem Jór- unni frænku. Honum, sem aldrei hefur verið mjög mannglöggur, varð mjög brugðið enda mundi hann ómögulega eftir því að eiga einhverja Jórunni frænku, en hann átti það upp frá þessu. Að- ventukertin sem Jórunn færði fjöl- skyldu og vinum á hverri aðventu eru lýsandi fyrir þá umhyggju sem hún sýndi fólki. Elsku Höskuldur, Magga Jóna, Baldur Búi og fjölskyldur. Góður Guð styrki ykkur og veri með ykk- ur. Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir. „Nú þegar endalokin nálgast múrarnir hrynja og tjöldin falla segi ég hreint út: Eg hef lifað und- ir fullu tungli ferðast um him- inhvolf og undirdjúp. Eg hef elsk- að, ég hef grátið og nú þegar tárin streyma er allt svo gaman, segi ég: Eg gerði það á mínn hátt“ (Englar alheimsins eftir Einar Má.) Hin veraldlegu tjöld eru fallin hjá vinkonu okkar Magdalenu Jór- unni Búadóttur eftir aðeins 73 ár. Kynni okkar hófust þegar við Magga vorum herbergisfélagar Magdalena Jórunn Búadóttir ✝ Magdalena Jór-unn Búadóttir fæddist í Hvera- gerði 19. mars 1934. Hún lést á Landspít- ala, Landakoti, 14. ágúst síðastliðinn. Útför Magdalenu Jórunnar Búadóttur var gerð frá Grens- áskirkju 23. ágúst sl. ásamt Jóhönnu A. Lúðvígsdóttur í 10 mánuði við nám í Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1952- 1953 ásamt 37 öðrum stúlkum víðsvegar af landinu. Oft var glatt á hjalla og hefur þessi vinskapur hald- ist æ síðan. Hinn 23. ágúst sl. var Magga Búa eins og við kölluðum hana borin til hinstu hvíld- ar en hún lést á Landakotsspítala hinn 14. ágúst sl. Magga lifði undir fullu tungli og ferðaðist um himinhvolf jafnt sem undirdjúp ef hún taldi að það gæti orðið til gagns, til að líkna ein- hverjum eða hjálpa. Hún elskaði óeigingjarnt þá sem henni voru næstir, eiginmann sinn, börn sín og marga fleiri, bara þá sem þurftu þess með. Á heimili okkar hér á Akranesi var Magga aufúsugestur, dætur okkar voru mjög hrifnar af Möggu en hún lék við þær, kenndi þeim og dansaði við þær. Þeim fannst vera hátíð þegar hún kom í heim- sókn. Venjulega kom Magga með eitthvað til að gefa dætrum okkar. Vorið 1963 sagði Magga okkur að hún væri á förum til Ameríku og ætlaði að vinna þar um hríð. Við mátum þessar fréttir á þann hátt að Magga væri trúlofuð og þegar þangað kæmi mundi hún sennilega gifta sig og búa með væntanlegum eiginmanni erlendis. Þegar við bárum þessa ágiskun okkar upp við Möggu þá ljómaði hún og spurði undrandi: „Hvernig vissuð þið þetta?“ Það er okkar trú að Magga hafi ávallt verið hamingjusöm kona, ævifélaginn Höskuldur Baldursson bar mikla virðingu fyrir konu sinni, fyrir starfi hennar og lífs- skoðun, sem ekki var ólík hans eigin. Það er mikil gæfa að hafa fengið tækifæri til að kynnast Magdalenu Jórunni, það var líka gæfa fyrir börnin okkar, þau litu upp til hennar og hún var þeim fyrir- mynd í ýmsu, m.a. fór önnur dóttir okkar í nám í hjúkrun sem Magga fylgdist með af áhuga og mikilli ánægju. Hún var heilsteypt, laus við allt yfirlæti, en umfram allt sönn manneskja, enda efniviðurinn góður. Magga var glæsileg hvar sem á var litið. Við gætum trúað að Magdalena Jórunn hafi hugsað líkt og skáldið, þegar húmið tók að færast yfir: „Er ekki gaman að eiga þess kost að orka þar nokkru í haginn, og mega svo rólegur kveðja að kvöldi, með kærri þökk fyrir daginn. (Sig. Einarsson.) Það hefði verið að hætti hinnar. hógværu konu að kveðja á þennan hátt. Kvöldið var komið hjá Möggu, því miður. Tjöldin voru fallin. Við þökkum Möggu samveruna, og sendum hlýjar kveðjur til eig- inmanns, barna þeirra og barna- barna og biðjum þeim blessunar hins hæsta höfuðsmiðs himins og jarðar, Ragnheiður Ólafsdóttir og fjölskylda. Rangt fæðingarár Ranglega var farið með fæðingarár Særúnar Birtu Valsdóttur í æviá- gripi sem fylgdi minningargreinum um Þormóð Ísfeld Pálsson og birtist í blaðinu í gær. Hið rétta er að Særún Birta er fædd 7. ágúst árið 2000. Morgunblaðið biður hlutaðeigandi velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.