Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 6

Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 6
„TÍU þúsund!“ æpti stúlka í lög- reglubílnum sem hafði verið hand- tekin fyrir að kasta kókdós og pítsubréfi á götuna. „Fokk! Og ég vissi ekki einu sinni að það væri sektað fyrir að henda dósum.“ Hún hugsaði sig um eitt augna- blik og bætti svo við í umkvört- unartón: „En þetta er miðbærinn!“ Braut óvart flösku á vegg Það var einmitt í miðborginni sem lögreglan var með mikinn við- búnað aðfaranótt laugardags og sunnudags. Fólk sem braut gegn lögreglusamþykkt var nánast flutt á færibandi upp á lögreglustöð, þar sem útfyllt var skýrsla og fólk var sektað. Sumir brugðust ókvæða við og margir urðu steinhissa. Einn spurði hvort unnið væri að tökum á bíómynd. Ungur maður var handtekinn fyrir að míga við vegg á mótum Bankastrætis og Ingólfsstrætis. Annar var handtekinn fyrir að brjóta flösku „óvart“ á vegg og sagðist ekki hafa ætlað „að meiða neinn“. Hann hringdi strax í pabba sinn og lofaði að koma beint heim af stöðinni. Um tuttugu voru færðir upp á stöð aðfaranótt laugardags, flestir fyrir að brjóta glas eða flösku á al- mannafæri eða valda ónæði og tor- velda störf lögreglu. Sektir á færibandi Áhersla hefur verið lögð á það í sumar að handtaka og sekta fólk fyrir brot á lögreglusamþykkt, en undir það falla uppþot, áflog, óspektir eða önnur brotleg háttsemi á almannafæri. Fyrir vikið hafa 79 verið sektaðir fyrir brot á lögreglu- samþykkt í miðborginni í júní, júlí og ágúst, en til samanburðar voru 13 sektaðir fyrstu fimm mánuði árs- ins. Það sem af er árinu hafa 229 verið sektaðir, en alls voru 79 sekt- aðir árin 2005 og 2006. „Færibandið“ virkar þannig að eftir að fólk hefur verið handtekið er eyðublað fyllt út með einföldum hætti af lögreglu. Fólk er flutt upp á lögreglustöð, þar sem lögfræð- ingur fer með því yfir vettvangs- skýrsluna. Hann býður ein- staklingum að ljúka málinu með sektargerð, sem getur tekið hálf- tíma ef fólk er nægilega allsgáð. Ef viðkomandi er ekki tilbúinn að gangast undir sektargerðina, þá verður hann einfaldlega ákærður og dreginn fyrir dóm. Sú afgreiðsla lendir á sakaskrá. „Ef það er óþrifnaður á götum, mikið af glösum og rusli, þá ýtir það undir frekari óþrifnað og alls- kyns aðra ólögmæta starfsemi, of- beldi og skemmdarverk,“ segir Stefán. „Ef umhverfið er í lagi, þá batnar hins vegar ástandið mikið hvað varðar hreinlæti, ofbeldi og glæpi.“ „Veitingamenn taka undir þetta,“ segir Hörður Jóhannesson, aðstoð- arlögreglustjóri. „Þeir hafa rekist á það að ef þeir sjá til þess að þrifa- legt sé inni á stöðunum, verður hegðun fólks betri. Það má yfirfæra það á borgina sjálfa, Kvosina. Eins og einn sagði: „Þetta er einn alls- herjar skemmtistaður.“ Þeir eru sammála um að allir þurfi að leggjast á eitt við að halda borginni hreinni, ekki aðeins lög- reglan heldur einnig borgaryfirvöld, vínveitingahúsin og þeir sem selji mat út á göturnar. Það vanti t.d. fleiri ruslatunnur og þrif í miðborg- inni þurfi að hefjast fyrr á kvöldin, þá haldist ástandið betra og þrifin verði léttari því fólk kasti rusli síð- ur frá sér. Heimild til að loka stöðum Einnig var áberandi að brotið væri gegn áfengislögum á mörgum vínveitingastöðum í miðborginni, en víða fékk fólk að taka áfengi með sér út af stöðunum. Oft hafði svæði á gangstéttinni verið afmarkað til þess að fólk gæti reykt þar og drukkið. Lögregla fór á staðina og lét vita af því að stöðunum yrði lok- að ef ekki yrði tekið fyrir þetta. Með nýjum lögum sem tóku gildi 1. júlí hefur lögreglan víðtækari heimildir til að grípa inn í ef ekki er farið að lögum á vínveitingastöðum. „Við höfum heimild til að gefa staðnum viðvörun og eftir ítrekuð brot sömu helgi eða helgi eftir helgi, þá getum við lokað staðnum,“ segir Stefán. „Ef fólki leyfist ítrek- að að fara með vín út af sama staðnum, þá verður staðnum lokað.“ Allsherjar skemmtistaður? „Við erum að taka á miðborgar- vandanum með öllum tiltækum ráð- um,“ segir Stefán. „Götueftirlit fíkniefnadeildarinnar mun til dæmis láta til sín taka og hundadeildin líka, bæði til fíkniefnaleitar og mannfjöldastjórnunar, og eftirlits- deild með vínveitingastöðum kemur auðvitað að málum. Við erum einnig í samstarfi við nokkra skemmtistaði í miðborginni, þannig að dyraverð- irnir eru með talstöðvar, og við hyggjumst koma á fót aðstöðu í miðborginni í samvinnu við slökkvi- liðið og Reykjavíkurborg fyrir fólk sem er hjálparlaust vegna ölvunar eða hefur orðið fyrir minniháttar óhöppum.“ Hann segir umræðu í gangi í Noregi um að stytta opnunartíma veitingastaða úr klukkan 3 til klukkan 2, en í miðborg Reykjavík- ur loki þeir ekki fyrr en undir morgun. „Þetta skapar árekstra milli íbúa, vínveitingahúsa og ann- arrar atvinnustarfsemi. Þessir árekstrar eru svo miklir að það er alveg ljóst að einhver tegund af mannlífi í miðborginni mun láta undan.“ Viðbúnaður lögreglu í miðborg- inni er raunar orðinn í líkingu við það sem tíðkast á útihátíðum, að sögn Harðar Jóhannessonar: „Það er svo annarra að meta hvort það sé æskileg þróun að fólk í Reykja- vík geti ekki skemmt sér án lög- regluverndar. Það vantar fulltrúa fólksins í þá umræðu.“ Morgunblaðið/Júlíus Lögreglustjórarnir Það kom til átaka eftir að maður reyndi að stela einkennishúfu af Herði Jóhannessyni. Í biðröðinni Enginn kannast við að hafa hent bjórdós. Handtaka Um 20 manns voru handteknir á föstudagsnótt. Viðbúnaður Sérþjálfaðir óeirðalögreglumenn í miðborginni. Handtökur á færibandi Í kringum tuttugu voru handteknir aðfaranótt laugardags fyrir brot gegn lögreglusamþykkt Lögbrot Ungur maður handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt. Viðbúnaður lögreglu var mikill í miðborginni í nótt og tekið hart á slæmri umgengni og óspektum. Pétur Blöndal blaðamaður og Júlíus Sigurjónsson ljósmyndari slógust í för með lögreglunni. 6 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.