Morgunblaðið - 09.09.2007, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 13
það er“ ástandi og að viðbættum kr.
60 milljónum í endurbætur, eða að
heildarverði kr. 140 milljónir, er því
mjög vænlegur kostur í ljósi áður
nefnds áætlaðs nýsmíðaverðs, eða
innan við fjórðungur af því. [...]
Í ljósi ofangreindra niðurstaðna
og fyrri áætlana fyrir „Sæfara“ þá
telur undirritaður „Oileáin Árann“
vænlegan valkost til Grímseyjarsigl-
inga, með fyrirvara um að skipið fáist
keypt á áður nefndu verði. Mjög ólík-
legt verður að teljast að annar hent-
ugur skipakostur til umræddra sigl-
inga verði falur á næstu misserum,
enda mjög fá skip til af stærð og gerð
sem henta til siglinganna. Ekki er þó
aðkallandi að ganga til samninga um
kaup „Oileáin Árann“ á þessu stigi
málsins og nægjanlegt svigrúm að
bíða þess tíma að eigendur „Oileáin
Árann“ verði raunhæfari í verðlagn-
ingu skipsins, ef þeir á annað borð
verða það.“
Einar og Kristján voru sammála
um að uppsett verð, 1,5 milljónir
sterlingspunda, væri alltof hátt vegna
ástands skipsins. „Þar sem eigendur
spurðu, þá var þeim tjáð af undirrit-
uðum að að skipið væri ekki meira en
GBP 650.000/kr. 80 milljóna virði fyr-
ir okkur, miðað við allt það sem yrði
að gera skipinu til góða,“ segir Einar í
skýrslunni.
Það næsta sem gerist í málinu er
að ákveðið er að afla nákvæmari stað-
festingar á áætluðum viðgerðakostn-
aði á skipinu. Viðeigandi hlutar skoð-
unarskýrslu voru þýddir á ensku og
gerð ítarlegri útboðslýsing á fyrri
kostnaðaráætlun á ensku.
Miklir fjármunir í
þessu samhengi
Vegagerðin kynnti ferjuna fyrir
samgönguráðherra í desember 2004.
Í minnisblaði Vegagerðarinnar frá
5. apríl 2005, sem kynnt var á rík-
isstjórnarfundi 12. apríl 2005, var
heildarkostnaður við kaup og end-
urbætur á ferjunni áætlaður 150 m.kr
og tekið fram að þar með yrði ferjan
komin í fyrsta flokks ástand. Ferjan
var þá sögð föl á 80 til 100 m.kr. og
kostnaður vegna endurbóta áætlaður
um 60 m.kr. Í minnisblaði samgöngu-
ráðherra til ríkisstjórnarinnar, sem
lagt var fram á sama fundi, segir
m.a.: „Fyrir liggur að ráðast þarf í
endurbætur á Sæfara á næstu mán-
uðum fyrir 10 mkr og síðan fyrir
a.m.k. 50 mkr. fyrir 2010 eigi það að
standast nýjar reglur. Það er talið
óraunhæft fyrir 28 ára gamalt skip.
Einnig virðist ljóst að nýtt skip myndi
kosta 600-700 mkr. sem eru miklir
fjármunir í þessu samhengi.“
Ríkisstjórnin veitti heimild til
kaupanna á grundvelli þessara áætl-
ana. Jafnframt var samþykkt að Sæ-
fari yrði seldur.
Næsta skref var að fulltrúum
skipasmíðastöðva í Austur-Evrópu
var boðið að skoða Oileáin Árann í Ír-
landi og gera tilboð í viðgerðir, án þó
allra skuldbindinga um hverjir
myndu hljóta verkið en það mun vera
algeng aðferðafræði í skiparekstri.
Fulltrúar Nauta SY í Póllandi og
Western SY í Litháen skoðuðu skipið
í Galway 22. og 23. apríl 2005.
Nauta SY sendi tilboð í viðgerð-
irnar sem nam að heildarupphæð 79
milljónir króna, en þar af voru 23
m.kr. fyrir alupptektir véla sem ein-
ungis voru áætlaðar 7 m.kr. í upp-
haflegu tilboði.
Einnig var leitað til vestur-
evrópskrar stöðvar um tilboð í verkið,
Scheepswerf Visser BV í Hollandi og
skiluðu þeir inn tilboði sem nam 68
m.kr., en inn í það tilboð vantaði ýmsa
þætti.
„Að teknu tilliti til umskráningar,
færslu til skipasmíðastöðvar, heim-
siglingar og eftirlitskostnaðar þá er
ljóst að grófáætlun í skoðunarskýrslu
skeikaði um a.m.k. ISK 25 milljónir
og hefði átt að vera nær ISK 80 millj-
ónum,“ segir Einar Hermannsson í
bréfi til Vegagerðarinnar, þar sem
hann rekur aðkomu sína að málinu,
24. maí 2007.
Ríkisendurskoðun staldrar líka við
þetta í greinargerð sinni. „Strax á
þessum tímapunkti voru því teikn á
lofti um að verkið færi a.m.k. 10-15%
fram úr fyrirliggjandi áætlun. Sam-
gönguráðuneytið var upplýst um um-
rædd tilboð en ekki ríkisstjórnin,“
segir í greinargerðinni.
Tvö tilboð bárust
Að fengnum staðfestingum var
ákveðið að huga að kaupum á skipinu,
ef það fengist fyrir viðunandi verð.
Samkvæmt reglum ríkisfyrirtækja
ber Vegagerðinni að bjóða út kaup á
skipi og var það gert með útboði Rík-
iskaupa nr. 13875 í maí 2005.
Þegar hér er komið sögu var Oileá-
in Árann ekki lengur í rekstri, leyfi
eigenda ferjunnar til siglinga á leið-
inni hafði runnið út 31. desember
2004 og annar aðili tekið við að und-
angengu útboði. Ferjan var bundin
við bryggju og þar sem ekki lágu fyr-
ir ný verkefni má ætla að áhugi eig-
enda á því að selja hana hafi aukist.
Tvö tilboð bárust í útboð Rík-
iskaupa:
1. „Oileáin Árann“ frá O’Brien
Shipping Ltd. á Írlandi sem nam
GBP 1.000.000.- fyrir skipið „as is /
where is“ í Galway, Írlandi.
2. Óformlegt tilboð frá J. Gran &
Co. a/s í Noregi með skipinu „Utsira“
á verðbilinu USD 900.000.-
Þar sem talið var að „Oileáin Ár-
ann“ væri falt á lægra verði en til-
boðið hljóðaði upp á var ákveðið að
hafna tilboðinu sem barst of seint og
ekki fylgdu því öll tilskilin gögn sem
krafist var í útboðslýsingu.
Síðara skipið „Utsira“ uppfyllti
engan veginn útboðslýsingu, enda
einungis um óformlegt tilboð að
ræða.
Í kjölfar ofangreindrar niðurstöðu
úr útboði Ríkiskaupa var ákveðið að
gera bjóðendum „Oileáin Árann“
gagntilboð í kaup á skipinu með fyr-
irvörum. Eftir nokkrar samn-Um borð Þessi mynd var tekin í farþegarými Oileáin Árann í Galway.