Morgunblaðið - 09.09.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.09.2007, Blaðsíða 15
aldrei áður hafði verið gert ráð fyrir. Þar með fór kostnaðaráætlun úr 150 m.kr. upp í 250 m.kr. Ekki þótti ástæða til að upplýsa ríkisstjórnina um þessa þróun mála. Í ljósi fyrirvara um kaupin var Oi- leáin Árann skoðað ytra þann 23. september 2005 af fulltrúum Sigl- ingastofnunar annars vegar og Garðari Ólasyni og Óttari Jóhanns- syni fulltrúum Grímseyjarhrepps og Kristjáni Ólafssyni fulltrúa Samskip hf og Vegagerðarinnar hins vegar. Garðari og Óttari mun hafa litist afar illa á skipið og talið það mun lak- ara en Sæfara. Var það skoðun þeirra að breyta þyrfti skipinu verulega til að það yrði raunhæfur kostur. Hrörlegt en áhugaverður kostur Í skýrslu Ólafs J. Briem sérfræð- ings Siglingastofnunar, sem unnin var í kjölfarið, kemur m.a. fram að ástand ferjunnar hafi verið „hrörlegt sökum vanhirðu og skorts á viðhaldi“ og blasti þetta við hvert sem litið væri. Jafnframt var bent á að skortur á viðhaldi og ófullnægjandi verkvönd- un við smíði ferjunnar gæfi tilefni til að ætla að annað ástand hennar og búnaðar, sem ekki væri mögulegt að kanna án frárifa og upptektar, gæti verið talsvert lakara en aldur ferj- unnar gæfi tilefni til að ætla. Af þess- um sökum mætti búast við að end- urbætur og viðgerðir gætu orðið mun meiri en ef ferjan hefði fengið eðlilegt viðhald. Í niðurstöðum sínum segir Ólafur: „Sé ástand „Oileáin Árann“ með þeim hætti að kaupverð að viðbættum kostnaði við endurbætur á því verði lægri en 240 milljónir kr, þykir líklegt að um sé að ræða mjög áhugaverðan valkost samanborið við smíði á nýju skipi. Smíði á mjög sérhæfðu nýju skipi hljóti að teljast afar áhættu- samur valkostur í ljósi mikilla breyt- inga í efnahagslífi í nútíma sam- félagi.“ Ólafur segir ennfremur: „Áður en gengið er frá kaupum á „Oileáin Árann“ er mjög brýnt að fram fari ítarlegri skoðun á skipinu og að fyrir liggi könnun á því hvort skipið raunverulega fullnægi kröfum tilskipunar EB 98/18 sem farþega- skip í flokki B. Þá er lagt til að gerðar verði ráð- stafanir til þess að gera miklu ít- arlegri úttekt á ástandi skipsins, bæði með það að markmiði að draga úr hættu á óþægilegum uppákomum við endurbætur á skipinu eftir kaup á því og einnig í þeim tilgangi að undirbúa sem best útboð og samningagerð við skipasmíðastöð um endurbætur á skipinu, ef ákvörðun verður tekin um kaup á því. Lagt er til að óskað verði frestunar á undirritun kaupsamnings þar til frekari skoðun er lokið.“ Í matsskýrslunni er jafnframt áætlun sem gerði ráð fyrir að kostn- aður við nauðsynlegar endurbætur gæti a.m.k. orðið á bilinu 100 til 140 m.kr. Skýrsluhöfundur slær þann varnagla að mun lengri tíma hefði þurft til að vinna matsgerðina á full- nægjandi hátt. Mælt með frekari skoðunum Vegagerðin brást við umræddri skýrslu með því að senda tvo starfs- menn Siglingastofnunar til Galway til að skoða Oileáin Árann betur. Í skýrslu þeirra kemur fram að afar skammur tími hafi gefist til und- irbúnings og mæltu þeir með að frek- ari skoðanir færu fram, þá einkum á bol og rafmagnskerfi. Í greinargerð sinni gagnrýnir Rík- isendurskoðun að ekki hafi verið tek- ið meira tillit til matsskýrslu Sigl- ingastofnunar og kostnaðaráætlun uppfærð á grundvelli hennar. „Á síð- ari stigum kom í ljós að mat Sigl- ingastofnunar á nauðsynlegum end- urbótum á ferjunni og kostnaði við þær var mun raunhæfara en önnur möt sem fóru fram fyrir kaupin. Jafn- framt er rétt að vekja athygli á þeirri áherslu sem skýrsluhöfundur leggur á gildi þess að kanna eins ítarlega og kostur er ástand skips við kaup og reyna þannig að girða fyrir aukaverk á síðari stigum. Hlutur aukaverka við endurbætur á nýju ferjunni verður að teljast óverjandi og hefði eflaust mátt draga mjög úr þörf fyrir þau ef und- irbúningur hefði verið betri,“ segir í greinargerð Ríkisendurskoðunar. Yfir þröskuldinn Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að á þessu stigi málsins hefði tvennt getað komið í veg fyrir kaup ríkisins á Oileáin Árann. Annars vegar hefðu Grímseyingar hafnað skipinu. Það gerðu þeir ekki, heldur samþykktu kaupin á hrepps- nefndarfundi 3. nóvember 2005. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins munu þeir þá hafa verið búnir að gefa upp alla von um að nýtt skip yrði smíðað. Þeir sáu m.ö.o. sæng sína uppreidda. Hins vegar hefði verið hætt við kaupin ef Siglingastofnun hefði ráðið frá þeim. Það gerði hún ekki, þrátt fyrir umtalsverðar athugasemdir. Farið var fram á ítrekaða fresti við seljendur umfram fyrri fresti, um endanlega ákvörðun á kaupum í ljósi fyrirvara fram til 21. október 2005, sem var veittur og frekari frestir voru veittir kaupanda fram til 14. nóv- ember 2005. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að eigendum skips- ins hafi á þessum tímapunkti verið farið að leiðast þófið – þótt kaupferlið taka heldur langan tíma. Í ljósi athugasemda í ofangreindri skýrslu Siglingastofnunar um ann-  MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 15 Morgunblaðið/RAX Ráðherrar Kristján L. Möller og Sturla Böðvarsson voru ekki á einu máli. semi sem það á að vera í, þ.e. þjóna Grímseyingum og ferðafólki vel í framtíðinni.“ Ennfremur sagði Kristján: „Mér finnst full ástæða til að skoða þetta mál miklu betur. Eins og hér hefur komið fram eru þessi ferjumál á sviði Vegagerðarinnar. Þar vinnur vafalaust ágætisfólk. En ég hef verið að velta því fyrir mér hvort þar skorti fagþekkingu á ferjum og skip- um.“ Sturla svaraði því til að það væri auðvitað ekki gott þegar verk fara fram úr áætlun. Varðandi skort á verkþekkingu hjá Vegagerðinni sagði hann: „Ég vil upplýsa að sú þekking er öll keypt frá ráðgjöfum. Vegagerðin hefur ekki starfsmenn sem eru sérfræðingar í skipasmíði. En sú þekking er, eins og alsiða er, sótt til sjálfstætt starfandi ráðgjafa. Ég vænti þess að það ágæta fólk sem í því verkefni er hafi sinnt því eftir bestu getu og bestu yfirsýn. Ég hef engar efasemdir um annað en að þeir ágætu menn hafi lagt sig fram um að vinna verk sitt vel.“ Kristján L. Möller er núverandi samgönguráðherra. 17:00 www.hi.is/ams Rannsóknasetur um smáríki Fjallað verður um hvernig smáríki í Evrópu hafa breyst úr fátækum kotríkjum í auðug borgríki. Áhersla verður lögð á að skýra hvernig smáríkjum eins og Íslandi og Írlandi hefur tekist að byggja upp auð og hefja útrás til stærri og voldugri ríkja. The Source of Wealth in Small States Opin ráðstefna föstudaginn 14. september frá kl. 9:00 til 17:00 í hátíðarsal Háskóla Íslands á vegum Rannsóknaseturs um smáríki Uppspretta auðæfa í smáríkjum Ireland's Experience Small States an Financial Centres Hádegisverðarhlé frá 11:45 til 13:00 Kaffiveitingar milli 14:30 og 14:45 13:00 Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands Björn Rúnar Guðmundsson forstöðumaður í greiningadeild Landsbankans Liechtenstein's Ongoing Economic Success Georges Baur, Deputy Head of Mission, Mission of Liechtenstein to the EU The Celtic Tiger: Tax Cuts and Economic Reforms Brendan Walsh, Professor Emeritus, University College Dublin The Icelandic Economic Miracle, 1991-2007 Hannes H. Gissurarson, Professor of Political Science, University of Iceland Reynir Harðarson listrænn stjórnandi, CCP Games Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastjóri Vesturports Hilmar Sigurðsson framkvæmdastjóri Caoz Sóley Stefánsdóttir grafískur hönnuður Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra Ireland: The Road to Globalisation Alan Dukes, Director General, Institute for European Affairs The Internationalisation of the Irish Economy Frank Barry, Professor of International Business and Development, Trinity College Dublin Ireland's Celtic Tiger: The Social Impact of Economic Growth Paedar Kirby, Professor of International Politics and Public Policy at the University of Limerick, Ireland Fundarstjóri: Baldur Þórhallsson formaður stjórnar Rannsóknaseturs um smáríki Commentator: Katrín Ólafsdóttir Associate Professor, Reykjavík University Málstofustjóri: Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands Dagskrá: Opnunarávörp09:00 Sköpunargleði í útrás Samantekt og ráðstefnuslit Útrás Promens14:45 Móttaka Ráðstefnan hefst stundvíslega kl. 9:00 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Húsið verður opnað kl. 8:30 og er kaffi og meðlæti í boði fyrir opnun. Fyrri hluti ráðstefnunnar, frá 9:00 til 14:30, fer fram á ensku en eftir það á íslensku. Kristín Ingólfsdóttir rektor HÍ Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands Björn Rúnar Guðmundsson forstöðumaður Georges Baur, Dep. Head of Mission, Liechtenstein to the EU Hannes H. Gissurarson, Prof. of Political Science Brendan Walsh, Prof. Emeritus Reynir Harðarson, listrænn stjórnandi, CCP Games Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Caoz Sóley Stefánsdóttir, grafískur hönnuður Rakel Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Vesturports Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens Alan Dukes, Director General, Institute for European Affairs Frank Barry, Prof. of International Business and Development Paedar Kirby, Prof. of International Politics and Public Policy Baldur Þórhallsson form. stjórnar Rannsóknaseturs Katrín Ólafsdóttir, Associate Professor, Reykjavík University Frú Vigdís Finnbogadóttir fv. forseti Íslands Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra Commentator XXX Landsbankinn styrkir ráðstefnuhaldið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.