Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 18

Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 18
18 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Á grundvelli kostnaðaráætlunar og útboðs-lýsingar Navis-Fengs buðu Ríkiskaupverkefnið við endurbætur og viðgerðir á Oileáin Árann út á Evrópska efnahagssvæðinu í desember 2005 og janúar 2006, eins og lög gera ráð fyrir. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins óskaði verkfræðistofan eftir mun rýmri tíma til að leysa verkefnið en hún fékk á endanum. Af einhverjum ástæðum virðist hafa legið á því að bjóða verkið út en sem kunnugt er rennur undanþága Sæfara ekki út fyrr en 1. júlí 2009. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að töluverðrar óánægju hafi gætt meðal inn- lendra hagsmunaaðila, þ.á m. hjá Félagi járn- iðnaðarmanna, með tiltekin skilyrði útboðslýs- ingar. „Þau skilyrði sem fundið var að lutu að verktryggingu, gæðavottun á viðgerðaraðstöðu og einum lið í matslíkani útboðsins. Félag járn- iðnaðarmanna sendi alþingismönnum m.a. bréf, þar sem því var haldið fram að í útboðsgögn- unum væru sett skilyrði sem gerðu íslenskum skipasmíðastöðvum erfitt fyrir að bjóða í og jafnvel ómögulegt að fá verkið. Af þessu tilefni fór fjármálaráðuneytið þess á leit að Ríkiskaup tækju til skoðunar hvort bregðast mætti við ábendingum félagsins. Ríkiskaup brugðust við ábendingum frá fjármálaráðuneytinu með því að slaka nokkuð á umræddum kröfum og breyttu útboðslýsingunni í samræmi við það,“ segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þar segir ennfremur: „Í svari sínu frá 30. jan- úar 2006 við erindi fjarmálaráðuneytisins tóku Ríkiskaup engu að síður fram að upphaflegar kröfur, skilmálar og matslíkan útboðsins hefðu endurspeglað markmið kaupanda með útboð- inu. Með því að breyta þeim hefðu líkur minnk- að á því að þessi markmið næðust með útboð- inu.“ Aðeins eitt tilboð gilt Sex tilboð bárust (sjá töflu), tvö innlend og fjögur erlend. Aðeins eitt þeirra reyndist gilt, frá litháísku skipasmíðastöðinni JSC Western Shiprepair, og var það jafnframt lægst. Lithá- arnir féllu hins vegar frá tilboðinu þar sem ljóst var að þeim höfðu orðið á mistök við frágang á því. Af ástæðum sem fjallað er um í samtali við Júlíus S. Ólafsson, forstjóra Ríkiskaupa, var að lokum gengið til samninga við Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf. í Hafnarfirði (VOOV) en hún átti næstlægsta tilboðið. Samningurinn var upp á 1,3 milljónir evra eða tæpar 116 m.kr. miðað við gengið á þeim tíma. Menn sem þekkja til og Morgunblaðið hefur rætt við eru sammála um að tilboðin hafi á heildina litið verið lág. Sem dæmi um það var nefnt að svo mikinn áhuga hafi Slippurinn á Ak- ureyri haft á verkefninu að hann hafi nánast farið niður í kostnaðarverð – eigi að síður átti Slippurinn hæsta tilboðið. Það er mat heimildarmanna Morgunblaðsins, sem þekkja vel til málsins, að auðveldlega hefði mátt ná samkomulagi við Litháana ef vilji hefði verið fyrir hendi. Mistök þeirra við tilboðsgerð- ina hafi verið óveruleg. Þeir hafi ekki gert ráð fyrir málningu. Ekki vilja menn fullyrða um það hver heildarkostnaðurinn við endurbæturnar hefði orðið þar eystra en eru þó á einu máli um að hann hefði orðið mun lægri en í Hafnarfirði. Sömu heimildarmenn eru sammála um að ekki hafi átt að semja við VOOV um verkið, þar sem fyrirtækið hafi ekki faglegar forsendur til að leysa svona viðamikið verkefni af hendi. Það hafi komið á daginn. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var hart lagt að forsvarsmönnum VOOV að fara utan og skoða skipið en það töldu þeir ekki nauðsynlegt þar sem nægjanlegar upplýsingar um ástand þess lægju fyrir í formi verklýs- ingar, teikninga af skipinu og ljósmyndum til að þeir gætu fullyrt að ekkert þyrfti að koma þeim á óvart sem hefði áhrif á tilboð þeirra og það sem þar er innifalið. Munu þeir hafa undirritað skjal þessa efnis. Verkinu stýrt til Íslands Heimildarmenn Morgunblaðsins segja það ekkert vafamál að verkinu hafi verið stýrt hing- að heim til að gæta hagsmuna íslensks skipa- iðnaðar. Skýr pólitískur vilji hafi verið fyrir því að verkið yrði unnið hér heima. Það sjáist best á því að útboðslýsingu var breytt til að koma til móts við VOOV. Enginn heimildarmanna Morgunblaðsins treysti sér þó til að segja til um hvaðan þessi „pólitíski vilji“ væri sprottinn. Það lægi þó fyrir að það var fjármálaráðuneytið sem beitti sér fyrir því að slakað var á útboðs- kröfum. Vegagerðin fór þess á leit við Navis að stofan annaðist eftirlit með framkvæmdinni. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er sagt að sú ákvörðun að ráða eftirlitsaðila til verksins hafi verið eðlileg en valið á eftirlitsaðila umdeilanlegt í ljósi þess að sama aðila og vann útboðslýsingu var einnig falið að annast eftirlit með verkinu. „Þetta hef- ur valdið töluverðum erfiðleikum í samskiptum VOOV, eftirlitsaðilans og Vegagerðarinnar. Verksalinn hefur m.a. haldið því fram í tengslum við ágreining sem hefur komið upp um túlkun tiltekinna ákvæða samningsins að eftirlitsaðilinn væri í þeirri stöðu að þurfa að verja ónákvæma útboðslýsingu sem hann sjálf- ur samdi.“ Þetta mun eigi að síður vera algengt fyr- irkomulag hér á landi. Sáu snemma fram á erfiðleika Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að Navis hafi tiltölulega snemma talið sig sjá fram á erfiðleika VOOV við að ljúka við samninginn eins og stefnt væri að en verklok samkvæmt samningi áttu að vera 31. október 2006. Er talið að það hafi m.a. stafað af því að vélsmiðjan hafi séð fram á erfiðleika við að standa við samning- inn fjárhagslega. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins bendir þetta einnig til þess að þessi vandi hafi að einhverju leyti haft bein áhrif á mikinn fjölda og hátt verðlag aukaverka. Ágreiningur kom upp varðandi karma og umgjarðir lokunar- og lestunarbúnaðar sem verkkaupi sá um að útvega frá framleiðanda í Noregi. Á tveimur fundum um mánaðamótin júlí-ágúst 2006 varð niðurstaðan sú að vísa ágreiningi þessum til Héraðsdóms Reykjavík- ur, eins og samningur kvað á um í tilvikum sem þessum, en ekki var frekar aðhafst í málinu. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að rætt hafi verið alvarlega um að nota heimild í samningi til að rifta honum þegar á þessum tímapunkti en frá því var horfið. Mun þessi um- ræða bæði hafa farið fram hjá Navis og Vega- gerðinni. Í framhaldi af þessu skilaði VOOV nýrri verkáætlun í byrjun október 2006, eða mánuði seinna en farið hafði verið fram á, og gerði þá ráð fyrir verklokum 1. mars 2007 sem þýddi fjögurra mánaða töf á verkinu. Heldur þótti eftirlitsaðila verkinu miða hægt og eftir fund, sem Vegagerðin boðaði í byrjun janúar á þessu ári, var VOOV sent harðort bréf um miðjan þann mánuð. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins svaraði lögfræðingur VOOV því bréfi fullum hálsi tveimur dögum síðar. Ný verkáætlun var svo móttekin 19. janúar, þar sem gert er ráð fyrir verklokum 25. maí 2007. 18. desember 2006 var vélsmiðjunni tilkynnt að hún þyrfti að gera skriflega grein fyrir stöðu mála varðandi framvindu samningsverks og aukaverka sem ekki var á hreinu. Greiðslur höfðu fram að því farið fram samkvæmt mati eftirlitsmanns í samráði við VOOV eins og gert var ráð fyrir í samningum. Þegar hér er komið sögu var aftur á móti komin upp sú staða að að- ilar voru ekki sammála um framvinduna og var því ofangreind krafa sett fram skriflega. Mun það hafa verið gert munnlega nokkru áður. Umbeðin greinargerð frá VOOV barst nokkru síðar, eða 22. mars 2007. Ágreiningur um aukaverk Ágreiningur verkkaupa og VOOV hefur að mestu snúist um aukaverk. Samkvæmt samn- ingi átti samþykktarferli aukaverka að vera eins og venja er í slíkum samningum. Fá átti skrifleg tilboð sem skriflega voru svo samþykkt eða hafnað. Í sumum tilvikum þurfti ekki á því að halda, þar sem ganga mátti út frá eining- arverðum. Um þennan þátt málsins segir í greinargerð Ríkisendurskoðunar: „VOOV hefur nær aldrei skilað formlegum tilboðum í aukaverk þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir eftirlitsaðila til að fá slík tilboð. Verkin hafa þrátt fyrir það verið unnin og Vegagerðin greitt fyrir þau, þó að henni hafi nær undantekningarlaust þótt þau mjög dýr og jafnvel þótt formlegir reikningar hafi ekki borist. Það er alkunna að því umfangs- meiri sem aukaverk eru í þessari iðngrein og því formlausari sem þau eru þeim mun veikari verður staða verkkaupans.“ Ennfremur segir í greinargerðinni: „Þessi staða einkennir að nokkru leyti stöðu aðila í þessu máli. Ástæða er til að nefna að í útboðs- gögnum var krafa um að bjóðendur skyldu upp- fylla kröfur um ISO-vottað gæðakerfi eða sam- bærilegt innra gæðakerfi. VOOV uppfyllti ekki þær kröfur og því var í upphafi óvíst hvernig gæðamálum var háttað innan fyrirtækisins.“ Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að þetta fyrirkomulag hafi haldið áfram eftir að ákveðið hafði verið að vísa ágreiningi verk- kaupa og verksala til Héraðsdóms Reykjavíkur, þ.e. VOOV hélt áfram að byrja á verkum sem vélsmiðjan taldi til aukaverka en fulltrúi verk- kaupa ekki og krafðist svo greiðslu fyrir. Verkstjórn losaraleg Að mati Ríkisendurskoðunar má gera ýmsar athugasemdir við hvernig verksalinn hefur staðið að verkinu. „Þar má í fyrsta lagi nefna að allt formlegt utanumhald um verkið og verk- stjórn þess virðist hafa verið nokkuð losaralegt. Kröfum verkkaupa um verkáætlanir eða upp- færslu þeirra var ekki sinnt fyrr en seint og um síðir þrátt fyrir ítrekaðar kröfur og aðvaranir. Langtímum samanvirðist ekki hafa verið unnið af fullum krafti við verkið. Þó að aukaverk hafi verið mun meiri en gert var ráð fyrir í upphafi skýra þau alls ekki þá miklu töf sem hefur orðið á verkinu,“ segir í greinargerðinni. Þess má geta að tafabætur eru löngu hættar að skipta máli. Samkvæmt samningi eru þær 0,5% af samningsverði á dag, en að hámarki 10% af samningsverði, þ.e. 130.000 evrur eða tæplega hálf tólfta milljón króna. Þar til nú nýlega var lítið sem ekkert unnið við ferjuna frá því snemma í júní og hefur verk- taki gefið þá skýringu að töf hafi orðið á greiðslum til sín. Nú er gert ráð fyrir verklok- um 28. nóvember nk. Hvort sú áætlun heldur verður að koma í ljós en flestir heimildarmenn Morgunblaðsins draga það í efa. Standist áætl- unin ekki kemur, að því er Morgunblaðinu skilst, til álita að rifta samningnum við VOOV en menn telja þó ólíklegt að það verði gert fyrr en í fulla hnefana. Þá mun það vera VOOV í hag að ólíklegt er að ferjan verði tekin í notkun fyrr en sumaráætlun gengur í garð 1. júní á næsta ári. Svo er að sjá hvort það verður gerlegt. Leitað var til Eiríks Orms Víglundssonar, forstjóra VOOV, við vinnslu þessarar úttektar en hann hafnaði því að ræða við blaðið. Vísaði þess í stað til fyrri orða sinna í fjölmiðlum, við þau væri engu að bæta. Í samtali við Morg- unblaðið 15. ágúst sl. sagði Eiríkur m.a.: „Vandamálið er ekki verktakanum að kenna heldur ráðgjöfunum.“ Línur teknar að skýrast varðandi heildarkostnað Áætlun Navis gerði ráð fyrir að heildarkostn- aður við endurbætur á Oileáin Árann yrði frá 127 til 157 milljónir króna. Línur eru nú teknar að skýrast varðandi endanlegan kostnað. Eins og fyrr segir er kostnaður vegna samningsins við VOOV 1,3 milljónir evra, eða 99 m.kr. Verk sem ekki voru innifalin í útboði skiptast í fjóra flokka:  Kostnaður vegna óska Grímseyinga um við- bótarverk eftir að verkið hófst er 395.000 evrur. Þar í er innifalinn afleiddur aukakostnaður vegna nýsmíða, viðbóta og vökvaknúins lúgu- búnaðar sem ekki var hægt að sjá fyrir við út- boð vegna skorts á nægjanlega greinagóðum upplýsingum um búnaðinn á þeim tíma.  Kostnaður við öryggiskröfur er 95.000 evrur. Innifalið er ýringarkerfi, sem innifalið var í út- boði, en fellt út í samningaviðræðum við VOOV til að greiða fyrir því að samningar tækjust.  Kostnaður við óvænta galla er 715.000 evrur. Hér munar mest um bolviðgerðir sem farið var fram á á seinni stigum af flokkunarfélagi skips- ins, Lloyds Register. Flokkast þær undir óvænta galla þar sem búið var að skoða skipið. Að áliti sérfræðinga sem Morgunblaðið ræddi við eru þessar viðgerðir fyrst og fremst gerðar á forsendum útlits en ekki öryggis.  Kostnaður við aðrar kröfur er 780.000 evrur. Hér ræðir að miklu leyti um atriði sem verk- kaupi hefur orðið að gangast við til að ná sáttum við verktaka en hefur talið vera innifalin í samn- ingi. Samtals eru þetta 3.286.000 evra eða um 260 milljónir króna. Það er 162% hærri fjárhæð en samið var um við VOOV og um 333% hærri en ríkisstjórnin samþykkti í apríl 2005. Þá er ótal- inn annar kostnaður Vegagerðarinnar vegna eftirlits og annarra atriða, auk þess sem enn er nokkuð af aukaverkum eftir. Í ljósi þessa er gert ráð fyrir því í greinargerð Ríkisendurskoð- unar að heildarkostnaðurinn vegna ferjunnar verði a.m.k. 500 milljónir króna. Hálfgerður bastarður? Meðal sérfræðinga sem Morgunblaðið leitaði til eru skiptar skoðanir um það hversu vel hafi tekist til við endurbæturnar á Oileáin Árann. Flestir eru sammála um að ekki hefði þurft að breyta skipinu svona mikið og sumir telja meira að segja að allar þessar breytingar verði ekki skipinu til góðs. „Skipið er að verða hálfgerður bastarður,“ sagði einn viðmælenda blaðsins. Sami aðili er sannfærður um að Grímseyingar muni eftir allt sem á undan er gengið aldrei fella sig við skipið, þrátt fyrir að þeir hafi haft veruleg áhrif á gang mála á endurbótaferlinu, og skipið muni aldrei sigla á Grímseyjarsundi. „Grímseyingar vilja ekki sjá skipið og besti kosturinn í stöðunni er að klára endurbæturnar og selja skipið úr landi. Þá eru menn að vísu aft- ur komnir á byrjunarreit en það er eigi að síður skásti kosturinn í stöðunni,“ segir hann. Að- spurður um hugsanlegt söluverð nefndi hann án ábyrgðar töluna 300 milljónir. Þetta verður að teljast býsna langsótt nið- urstaða, alltént hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að afar líklegt þyki að Grímseyingar muni á endanum sætta sig við hið nýja skip að loknum endurbótum enda þótt þeim þyki málið allt hið leiðinlegasta og byggðarlaginu síst til framdráttar. Þá eru flestir heimildarmenn blaðsins á því að skipið verði á endanum býsna gott og muni duga vel og lengi til Grímseyjarsiglinga – „þeg- ar það loksins kemst í notkun“. Eftir að skýrsla Ríkisendurskoðunar birtist fól Kristján L. Möller samgönguráðherra Vega- gerðinni að mynda þegar sérstakan verk- efnahóp sem hefur það að markmiði að ljúka verkinu og gæta hagsmuna ríkissjóðs. Morgunblaðið/ÞÖK Aukaverk Verkkaupi og verksali hafa túlkað samninginn um endurbæturnar á ferjunni með afar ólíkum hætti. NÚNINGUR VERKSALA OG VERKKAUPA Morgunblaðið/ÞÖK Nýja ferjan Ljóst er að verkinu mun í fyrsta lagi ljúka rúmu ári á eftir upphaflegri áætlun.        !" #$%&'() *  +, -./* 0    !! "  # $ %                   !   "#$$    %&  '      ("! ) & '(  ))*+    * ,  ,  -   .   /  * 0 12/2  ') 3 2  2 '  "#!!"4  5 ""4!4 %4 /  1     2  #"1 6  !! .  $#12$#3&4 $#%$%#%2' $#54&#''3 $#5&$#%33 $#422#5$' $#(4(#41& 7 61 8  2 2   !!54954"   **+,-+*.* **-/-.-*0 *1*,.2-** *1+/-,2-1 *+*-,.0., *+-31-.,,  8 Endurbætur á ferjunni NÝ GRÍMSEYJARFERJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.