Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 23
garðsmenn. Yfirráð karla á mark-
aðanum er eins og einokunarsam-
tök, sem útiloka hæfileikaríkar
konur frá bestu stöðunum. Að með-
altali eru launin, sem konur fá í
vasann, helmingur þess, sem karlar
fá.
Konur í hlutastörfum
en karlar ekki
En evrópskar konur geta einnig
sjálfum sér um kennt. Í Evrópu-
löndum á borð við Þýskaland og
Holland kjósa konur með háskóla-
menntun oft að vera heima þegar
þær verða mæður eða vera í hluta-
starfi. Aðeins ein af hverjum 10
konum með börn í sérfræðistöðu
vinnur fulla vinnu í Hollandi, en
hlutfallið meðal feðra í sömu stöðu
er níu af hverjum 10. Það ætti því
ekki að koma á óvart að atvinnu-
rekendur taki konur ekki alvarlega.
Framlag kvenna til hollensks
efnahags er um 27%. Lauslegt mat
sýnir að myndu konur vinna aðeins
meira utan heimilisins og auka
þannig framlag sitt til hollenska
hagkerfisins í, segjum, 35%, myndi
það gefa af sér 11% hagvöxt til við-
bótar, sem þýddi um 60 milljarða
evra á ári. Konur myndu enn að-
eins vera hálfdrættingar á við karla
í vinnu utan heimilisins, en með
þeim viðbótarpeningum, sem konur
myndu skaffa, gæti ríkisstjórnin
séð um aldraða og samt haft millj-
arða aflögu til að verja til skóla-
mála og umönnunar barna.
Það, sem á við í Hollandi og Evr-
ópu, á við um allan heim: Það er
ekki bara spurning um réttlæti að
draga úr ójöfnuðinum milli karla og
kvenna, það er einnig efnahagslega
skynsamlegt.
st nýta sér krafta
rnum fyrirtækja
Höfundur er hagfræðingur og lög-
maður og býr í New York.
©Project Syndicate.
Andreas Isakssons. Og Schmeichel
hefur gripið tækifærið. Óhætt er
að fullyrða að fáir leikmenn hafi
vakið jafn mikla athygli í úrvals-
deildinni í fyrstu umferðunum. Í
fyrstu þremur leikjunum hélt hann
hreinu, m.a. gegn Manchester
United, og það var ekki fyrr en
Cesc Fàbregas spilaði út trompi
undir lok leiksins á Emirates-
leikvanginum að hann var sigr-
aður. Þá fékk hann á sig annað
mark gegn Blackburn um síðustu
helgi.
En tvö mörk í fimm leikjum er
ekki amalegur árangur og það sem
meira er, Schmeichel hefur á köfl-
um sýnt frábær tilþrif. Hann er
bersýnilega magnaður skotstopp-
ari og keppnismaður fram í fing-
urgóma. Hversu marga tvítuga
markmenn hafa menn séð bregða
sér fram í hornspyrnu á lokamín-
útunum – og ná skalla að marki?
Enska landsliðið hefur líka
rennt hýru auga til hans. En það
verður ekki. Kasper er Dani og
mun berjast á þeim vettvangi –
rétt eins og Hamlet forðum.
Sápa á tuðrunni?
Ekki hefur haustið þó verið sam-
felldur dans á rósum. Schmeichel
hefur líka orðið á í messunni.
Tuðran hefur á stundum brugðið
sér í sápulíki í höndunum á honum,
einkum eftir fyrirgjafir.
Það hefur þó undantekning-
arlaust bjargast. Þar segir
reynsluleysið til sín og kannski
ekki síður hæðarskorturinn.
Schmeichel er aðeins 183 sm á hæð
sem þykir ekki ýkja merkilegt
þegar markvörður á í hlut. Faðir
hans er t.a.m. tíu sm hærri.
Það er vitaskuld alltof snemmt
að segja fyrir um það hvort Ka-
sper Schmeichel verður föðurbetr-
ungur en hann á án efa eftir að
setja sterkan svip á ensku úrvals-
deildina um langa framtíð. Með
eða án vindils.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 23
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
»Ég hefði ekki gert þetta enmér finnst þetta ekki skipta
höfuðmáli.
Geir H. Haarde forsætisráðherra um þá
ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur utanríkisráðherra að kalla íslenskan
friðargæsluliða heim frá Írak.
»Við viljum ekki hafa fólk ofbjartsýnt núna af því að
bjartsýnin er tengd kaupgleð-
inni.
Ásgeir Jónsson, hagfræðingur við grein-
ingardeild Kaupþings banka, um hrær-
ingar á mörkuðum, sem lítil sem engin
áhrif virðast hafa á neyslu Íslendinga.
Greiðslukortavelta Íslendinga innanlands
jókst um tæp 15% í sumar.
» Sumir starfsmennirnirþekkja ekkert nema góðærið
sem hér hefur ríkt.
Lars Jensen, aðstoðarbankastjóri Spare-
kassen Sjælland, sem tekinn er að senda
þjónustufulltrúa sína á námskeið til að
kenna þeim að segja nei við óraunsæja við-
skiptavini er sækjast eftir lánum. Eftir
langvarandi þenslu er fasteignaverð tekið
að lækka og vinna danskar lánastofnanir
nú að því að laga sig að þeim umskiptum.
» Það hefur verið vanrækt aðmínu viti að standa fyrir upp-
lýstri umræðu um málið. Nú ætl-
um við að reyna að bæta úr því.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanrík-
isráðherra um framboð Íslands til setu í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Heild-
arkostnaður við framboðið er áætlaður um
320 milljónir króna.
» Það má segja að það séófremdarástand hvað þetta
lyf varðar.
Aðalsteinn Aðalsteinsson rannsóknarlög-
reglumaður um lyfið Rivotril, sem skráð
er sem flogaveikilyf en mjög algengt er að
síbrotamenn misnoti. Lyfið tengist fjölda
afbrota og ódæðisverka sem framin hafa
verið hér á landi.
»Hér ber allt að sama brunni:Um er að ræða meiriháttar
tækifæri fyrir Íslendinga.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
um þann möguleika að hafinn verði stór-
felldur rekstur netþjónabúa, sem er ákaf-
lega orkufrekur, hér á landi. Risafyr-
irtækið Microsoft er á meðal þeirra sem
kanna fýsileika þess að hefja slíka starf-
semi.
» Þeim finnst það mjög sér-stakt að það sé einn maður í
flestum hlutverkum hér.
Þorleifur Hjalti Alfreðsson um útlendinga
sem sækja Grímsey heim. Þorleifur Hjalti
sinnti ellefu störfum í Grímsey á meðan
flestir fullorðnir eyjarskeggjar voru í
leyfi á Spáni.
Ummæli vikunnar
REUTERS
Klukkuvörður Mike McCann klífur
þrepin 292 upp í Big Ben í London.
Nú er verið að gera við klukkuna.