Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 25

Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 25
þeir standast vissulega kröfur um mengun en ekki eyðslu. „Það er einn ókostur en etanólið virkar þannig að minna orkuinnihald er á lítra en í hverjum lítra af bensíni. Til að vera jafn vel settur varðandi kostnað þarf etanólið því að vera 25-30% ódýrara en bensín því bíll- inn eyðir meira.“ Sú er raunin í Svíþjóð þar sem Egill segir að bensínið kosti um 10 sænskar krónur lítrinn en etanólið 7-7,50 kr. „Þegar Svíarnir byrjuðu með þetta var verðið svipað en síðan hefur etanólverðið farið lækkandi. Á síðustu árum hefur olíuverð hækkað á heimsmarkaði á meðan etanólið hefur staðið í stað. Ef eitthvað, þá hefur framleiðslu- og dreifingarkostnaður lækkað,“ segir Egill og bætir við að enn sé ekki komið á hreint hvað E85 eigi eftir að kosta hérlendis en Olís er að reikna verðið út núna fyrir Brim- borg miðað við þær forsendur að innflutningurinn sé í raun meiri en þessir 2.000 lítrar. Egill segir ennfremur áhuga- verða spurningu hvort Íslendingar geti framleitt eigið etanól. Það sé ekki útilokað þegar markaður verði til staðar fyrir það. Meðal annars hafi Íslenska lífmassa- félagið og einnig Háskólinn á Ak- ureyri með Jóhann Örlygsson í fararbroddi unnið að rannsóknum hvað þetta varði. „Með hverjum deginum verð ég bjartsýnni á að svona verkefni gangi upp. Það er að byggjast upp þekking í samfélaginu á etanóli. Þetta er bara spurning um tíma. Svona verkefni er samvinnuverk- efni bílaumboða, olíufélaga og stjórnvalda. Stjórnvöld vilja auka hlut visthæfra bíla, nú þarf að standa við stóru orðin, koma þessu af stað. Það þarf að búa til markað en svo tekur markaðurinn bara við.“ hugsaðupphátt MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 25 Ímjög íslenskri fyndni semskýtur alltaf annað slagiðupp kollinum segir af tveim-ur gáfumönnum sem eru að ræða saman. Umræðuefnið er staða ljóðsins. Maður 1: Ég hef áhyggjur af stöðu ljóðsins. Maður 2: Staða ljóðsins? Ég hélt að Sigurður Pálsson gegndi henni. Með reglulegu millibili verða einhverjir til þess að lýsa djúpum og þungum áhyggjum sínum af stöðu ljóðsins. Þær snúast að- allega um að fólk sé hætt að lesa ljóð og skáld séu hætt að yrkja ljóð að minnsta kosti eins góð ljóð og þau ættu að gera og alls ekki eins góð ljóð eins og þau gerðu í gamla daga meðan ljóð voru ljóð og skáld voru skáld. Ég er aldeilis og gersamlega sannfærður um að það verða fáir feitir af því að yrkja ljóð og gefa þau út í hörðum spjöldum. Þegar ég hugsa málið betur man ég ekki í svipinn eftir feitu skáldi nema kannski einu soldið þybbnu en það telst eiginlega ekki með því það er ekkert sérstaklega gott skáld. En um daginn þegar ég var úti að skokka (sem er afar óskáldlegt) þá fór ég í bríaríi að hugsa um stöðu ljóðsins því það gerist ekki margt þegar maður er úti að skokka og ég hélt smástund að ég væri kom- inn í hóp raunverulegra menning- arvita en svo slokknaði ljósið. Auðvitað er það eins og hver önnur dauðans ekkisen bévuð vit- leysa að staða ljóðsins sé eitthvað bág. Ljóðið er í fínu formi – það iðar og spriklar og ýlfrar og tístir. Ljóðúlfurinn situr um nætur og spangólar að fullu tungli lesand- ans og veldur honum andvökum. Ljóðið hefur sloppið út úr ljóða- bókunum og minningargreinunum, burt frá afmælisávörpunum, skóla- ljóðunum og saknaðarkveðjunum og leikur lausum hala hingað og þangað um samfélagið. Það hopp- ar og dansar í leikhúsunum, sést eins og vofa bakvið heilu kaflana í skáldsögum og lifir góðu lífi í pik- köpplínum á börunum. Samt grípa menn stundum til örþrifaráða þegar áhyggjur af stöðu ljóðsins eru alveg að ríða þeim á slig. Þá efna þeir til sam- keppni um besta ljóðið og skikka sigurvegarann til að ganga í úlpu látins þjóðskálds í heilt ár – eða staulast við fúinn ljóðstaf. Slíkar uppákomur vekja vissulega athygli en ekki alltaf á réttum forsendum eins og nýleg og grátbrosleg dæmi sanna. Þess eru dæmi að góðviljaðir ís- lenskukennarar styrktir af Mjólk- ursamsölunni láti heila árganga grunnskólabarna yrkja ang- urværar náttúrustemningar eða feimnisleg ástarljóð sem síðan eru prentuð aftan á mjólkurfernur fyr- ir þjóðina að stauta yfir kornflex- inu. Þeir eru heppnir lesendurnir sem byrja á fernunni á undan Reykjavíkurbréfinu því þótt mjólk komi ljóðum lítið sem ekkert við – og öfugt auðvitað – þá er gott að fara nestaður ljóðlínum inn í dag- inn – þótt þær séu eftir 13 ára Grafarvogsbúa sem hugsar eins og leikjatölva. En mikið væri skemmtilegt ef einhver myndi snúa út úr þessari stöðnuðu ímyndarherferð Mjólk- ursamsölunnar og uppgötva fleiri staði þar sem mætti ota ljóðum að grunlausum vegfarendum í dags- ins önn. Ímyndum okkur ljóð sem væru prentuð aftan á miðana í bíla- stæðavélunum og dygðu til lesturs þessa örskotsstund sem það tekur að ganga með miðann að bílnum aftur. Eða börn í vinnuskóla sem stæðu með ljóð á flettiskiltum við umferðarljós og harðstrengdir bíl- stjórar gætu rifið í sig eina sonn- ettu eða svo áður en kýklópurinn deplar gulgrænu auganu og rekur þá af stað á ný. Eða ljóð sem væru prentuð á kassamiðana í ÁTVR, 10-11 eða Bónus. Og fyrst við prentum ljóð á mjólkurfernur af hverju ekki utan á brennivínsflöskur, túnfiskdósir, gosdrykkjaflöskur og plastpoka? Hvar eru áfengisljóðin, sykurlausu sonnetturnar, fljótandi ferskeytlur, pakkaður prósi og niðursoðnar vísanir. Skáldið gæti stigið skrefið af einmana síðum bókarinnar og hjúfrað sig djúpt í hálsakot hræddra neytenda sem bíða milli vonar og ótta við kassann í búðinni eftir heimildinni sem kannski rennur út einmitt núna. Enginn þekkir debetsins óvissa tíma, hvenær kallið kemur og hinn langi armur Reiknistofu bankanna seilist í þig. Þá verður gott að hafa huggandi ljóðlínur til að hugsa um þegar maður töltir tómhentur heim. Svona gæti ljóðið læðst að grunlausum viðtakendum og snúið þeim frá villu síns vegar. Eða ekki. Ha. Þú mátt eiga þessa hugmynd, kæri lesandi, og sæktu endilega um stöðu ljóðsins ef hún verður auglýst. Staða ljóðsins? Eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.