Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 28

Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 28
málvísindi 28 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík Sími: 591 9000 · www.terranova.is Akureyri sími: 461 1099 Hafnarfjörður sími: 510 9500 Vilnius í október frá kr. 19.990 Terra Nova býður beint flug til Vilnius í Litháen í október. Vilnius er ein fegursta borg Evrópu, þar sem rómantísk stemmning liðinna tíma hefur varðveist og einstakt er að njóta dulúðar fyrri alda. Borgin býður allt sem ferðafólk leitar eftir í borgarferð; fagrar byggingar, litríkt mannlíf og menningu, glæsilega gististaði og verslanir í úrvali. Góð hótel í hjarta Vilnius og spennandi kynnisferðir í boði. Verð kr. 19.990 Flugsæti báðar leiðir með sköttum, út 14. eða 22. okt. og heim 19. eða 26. október. Netverð á mann. Ath. takmarkaður fjöldi sæta í boði á þessu tilboðsverði. Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi á Hotel Europa City með morgunmat, 14. okt. í 5 nætur eða 22. okt. í 4 nætur . Verð kr. 49.990 - helgarferð Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í helgarferð 10. okt. í 4 nætur eða 19. okt. í 3 nætur á Hotel Europa City með morgunmat. Ein fe gu rst a b org Ev róp u Beint flug 10. okt. - 23 sæti laus 14. okt. - laus sæti 19. okt. - 14 sæti laus 22. okt. - laus sæti Á dögunum var haldin málvísindaráðstefna við Mývatn á vegum „Scandinavian Dialect Syntax“, sem er sam- vinnuverkefni um rannsóknir á setn- ingagerð í norrænum málum og mál- lýskum. Málvísindastofnun Háskóla Íslands á aðild að þessari samvinnu í gegnum öndvegisverkefnið „Tilbrigði í íslenskri setningagerð“ sem nýtur styrks frá Rannsóknasjóði (RANN- ÍS). Til ráðstefnunnar var boðið nokkrum heimskunnum málvís- indamönnum. Þeirra kunnastur er áreiðanlega enski málvísindamað- urinn David Lightfoot. Lightfoot hef- ur ritað fjölda bóka um þróun tungu- mála og máltöku barna og sett fram byltingarkenndar hugmyndir á því sviði. Máltakan – dularfull sérgáfa mannsins Lightfoot er frá Cornwall á Eng- landi. Hann er prófessor við George- town-háskólann í Washington og um leið einn forstöðumanna National Science Foundation sem er helsti rannsóknasjóður Bandaríkjanna. Lightfoot kveðst hafa afráðið á yngri árum að gefa sér 10 ár í að sinna mál- vísindum en gerast síðan atvinnu- ljósmyndari. Af þeim vistaskiptum hefur ekki orðið enn, enda hafa inn- viðir tungumálsins átt hug hans allan, jafnt athuganir á þróun einstakra tungumála sem hið leyndardómsfulla fyrirbrigði hvernig börn nema málið í fyrsta sinn. En Lightfoot telur ein- mitt máltöku barna helsta áhrifaþátt- inn í þróun ólíkra tungumála. Það er strax ljóst af stuttum kynn- um við Lightfoot að málvísindi eru honum lifandi fræði. Hann talar um þau af áratuga yfirsýn og síkvikri for- vitni. Hann kveðst hafa orðið snort- inn af ráðstefnunni í Mývatnssveit; þar hafi komið saman um 60 mál- fræðingar, flestir norrænir, í því skyni að skoða tilbrigði í hinum skyldu norrænum málum og mál- lýskum. Hann kveðst ekki vita til sambærilegs framtaks við rannsóknir á neinni annarri málaætt. En hver er uppruni hans sjálfs í þessu fagi? „Áhugi minn beindist upphaflega að því hvernig mál breyttust og þró- uðust,“ segir Lightfoot. „Það var það sem dró mig að þessu sviði. Og til að skilja hvernig tungumál breytast þarf að skilja hvernig máltaka fer fram.“ – Og þar komum við að börnunum? „Einmitt. Svo við tökum einfalt dæmi þá eru tilteknar sagnir í ensku sem má stytta í framburði. Við getum sagt John is tall (Jón er hár) eða John’s tall. Það er auðvelt fyrir barn að læra þetta, stundum heyrir það John is tall, stundum John’s tall, svo það getur sér til um það að sögnin is geti styst. Þetta er einfalt og blátt áfram og hægt að læra það. En síðan koma setningar eins og John is taller than Sam is. (Jón er hærri en Sam er). Og þá er síðari sögnin aldrei stytt. Enginn, sér í lagi ekki ung börn, segir John’s taller than Sam’s. En það er eitthvað sem ekki lærist. Því það er enginn sem segir barni að það eigi ekki að stytta sögnina is í þessu tiltekna samhengi. Svo ein- hvern veginn læra börn það en það er ekki byggt á ytri reynslu.“ – Og þá er kannski komið að því sem þú segir í bók þinni The Develop- ment of Language: „Helsta ráðgátan er sú hvernig börn fara að því að nema svo miklu meira en reynsla þeirra segir til um.“ „Einmitt, þetta er dæmi um það.“ Á ráðstefnunni í Mývatnssveit ræddi Lightfoot um kenningar sínar sem snúa að því sem nefna mætti vís- bendingaháða máltöku (cue-based ac- quisition). Í stuttu máli telur Light- foot að börn nemi tungumál með því að henda á lofti og tileinka sér ákveðnar vísbendingar um eðli þess máls sem þau alast upp við. Þau „skanni“ það sem þau heyra í kring- um sig í leit að nýjum upplýsingum um málið. Þessar upplýsingar geta verið einstakar orðmyndir eða setn- ingabrot sem gera börnunum kleift að átta sig á málumhverfinu og gera það skiljanlegt þannig að þau geti byggt upp sitt eigið tungumál. „Grunnhugmyndin er sú að mann- anna börn séu af náttúrunnar hendi útbúin til að þróa með sér tungu- málafærni, að það sé eiginleiki eða hæfni sem meðlimir þessarar teg- undar hafi sem skilji hana frá öðrum tegundum og að við munum smám saman verða þess vísari í hverju þess- ir erfðaeiginleikar felast.“ – En hver er þá þáttur umhverf- isins? „Þetta er augljóslega gagnvirkt. Gagnvirknin er mjög mikilvægur þáttur í þroska hvers barns. Við sjáum það bara í afleiðingum þeirra fáu afbrigðilegu tilfella þar sem börn njóta ekki eðlilegra tjáskipta. En þessi tjáskipti eru augljóslega ekki valin af þeim sjálfum, börn velja t.d. ekki sjálf að tala íslensku. Þau fæðast inn í tiltekið málsamfélag og mál- færni þeirra eykst eðlilega og ósjálf- rátt. En síðar þegar barn þroskast þá getur það orðið meðvitaðra um mál- kerfið umhverfis sig og fólk getur breytt málfari sínu og kýs stundum að gera það. En ég tel ekki að slíkt gerist á fyrstu æviárunum. Það er nokkuð sem kemur miklu síðar.“ Málvísindin sem líffræði Ein bóka Lightfoots sem út kom árið 1982 nefnist: Tungumálahapp- drættið – í átt að líffræði tungumáls- ins. Orðið tungumálahappdrætti vís- ar þar til þess sem Lightfoot nefndi hér að ofan, en undirtitill bókarinnar vísar til hins sem hefur einkennt mál- vísindi æ meir á síðari tímum, sem eru æ nánari tengsl þeirra við líffræð- ina. Og þar hljóta menn að hnjóta fljótt um nafn Bandaríkjamannsins Noams Chomsky. Chomsky snerist á sínum tíma öndverður gegn svokall- aðri atferlisfræði (behaviourism) í faginu sem gekk út á að færni eins og tungumálafærni væri öll lærð utan í frá. Þess í stað tók hann að vinna út frá þeirri kenningu að öllu mannfólki væri sameiginleg tiltekin arfgeng grundvallarfærni, burtséð frá því hvaða málsamfélagi það tilheyrði, sem gerði því kleift að greina og skilja tungumál. Þetta fyrirbæri hef- ur verið nefnt „allsherjarmálfræði“ á íslensku (e. Universal Grammar). Hversu þýðingarmikinn telur Light- foot Chomsky vera fyrir nútíma mál- vísindi? Er greinin í núverandi mynd einfaldlega óhugsandi án hans? „Hann er risavaxinn. Já, og greinin væri vissulega óhugsandi án hans. Hann einfaldlega gerbreytti faginu og gerði í raun málvísindi að hluta líf- fræðinnar. Hann gerði það fyrir 50 árum og hann hefur verið ráðandi á þessu sviði síðan og gefið út mörg helstu fræði- og aðferðafræðilegu rit í greininni á þessum tíma. Svo þýðing hans fyrir fagið verður einfaldega ekki ofmetin.“ – En er almenn sátt um það innan fræðanna að til sé einhvers konar allsherjarmálfræði? „Ef þú segir „einhvers konar alls- herjarmálfræði“ þá er svarið já. Ég held að flestir myndu fallast á það. En það eru mjög deildar meiningar um það hvað felist í erfðaeiginleikum sem varða tungumálið. Sumir segja að þeir séu afar almennir, snúist um vissa innbyggða tilhneigingu, en aðr- ir, og ég þar á meðal, telja að í því fel- ist mjög sértækar upplýsingar og þess vegna sé það sambærilegt við hinar sértæku upplýsingar sem gagnast okkur sjónrænt, við að nema og meta það sem við sjáum umhverfis okkur – og raunar líka þær sértæku upplýsingar sem mynda ónæmiskerfi hvers og eins.“ Í bók þinni Þróun tungumálsins vísarðu í tilraunir á 7. áratugnum sem fólust í að sýna fram á að ef nýfædd- um kettlingi væri komið fyrir fyrstu ævidagana í geymi þar sem voru eng- ar láréttar línur þá væri hann upp frá því ófær um að nema láréttar línur þar sem sú hlið skynjunarinnar hefði ekki verið örvuð. Telurðu þá að eitt- hvað svipað geti átt við þegar tungu- mál er numið í bernsku? „Ég held að þetta sé a.m.k. góð leið til að skoða málkerfið. Við vitum að viss tímaskeið á mannsævinni eru sérlega mikilsverð, við vitum að börn soga mjög auðveldlega í sig tungu- Erfðalyklar tungumálsins Enski málvísindamaðurinn David Lightfoot hefur sett fram byltingarkenndar hugmyndir um þróun tungumála og máltöku barna. Hallgrímur Helgi Helgason ræddi m.a. við hann um hið leyndar- dómsfulla fyrirbrigði hvernig börn nema málið í fyrsta sinn. »Mörgum indíánum hefur því verið bann- að þar að nota eigið tungumál. Það var stefna skólayfirvalda að allir ættu að tala ensku á skólalóðinni. Slík op- inber stefna hefur mikil áhrif. Þetta snýst allt um völd og sjálfsvitund. Og stundum velur fólk sér tungumál A fremur en B vegna þess að í því felast beinir fjárhags- legir hagsmunir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.