Morgunblaðið - 09.09.2007, Qupperneq 31
hann ætlaði að opna botnlokurnar og
sökkva bátnum. Báturinn var síðan
keyrður upp í sandinn í Meðalfells-
fjöru en það reyndist óþarfi því skip-
stjórinn hafði ekki opnað botnlok-
urnar. Hann hafði greinilega ætlað
sér að eyðileggja eitthvað annað,
einhverjar dýrmætar upplýsingar.
Síðar var bátnum siglt upp í Hval-
fjörð þar sem gert var við hann áður
en honum var siglt til Hull. Áhöfnin
var tekin haldi, þar á meðal skip-
stjórinn sem var dæmdur og settur í
fangelsi. Hann var einnig dæmdur í
Þýskalandi fyrir hugleysi. „Hann
vildi að sjálfsögðu hreinsa nafn sitt
af því og náði að strjúka úr fangels-
inu í Hull, þar sem báturinn lá, en
var skotinn á leiðinni niður á bryggju
þar sem hann ætlaði greinilega að
sökkva bátnum.“
Leiðangur flugsveitarinnar til
Skotlands, sem hleypti þessari æv-
intýralegu atburðarás af stað, átti
sér aðra skýringu en kom fram op-
inberlega. „Ástæðan fyrir því að
hurðarnar sem varpa átti sprengj-
unum út um voru blokkeraðar var sú
að þeir höfðu náð sér í bjór og nokk-
ur mótorhjól og gátu auðvitað ekki
hugsað sér að henda þeim verðmæt-
um út fyrir Þjóðverjana,“ segir Arn-
grímur og brosir.
Geta Þjóðverja vanmetin
Í gegnum árin hefur Arngrímur
reglulega ræktað tengslin við Kon-
unglega breska flugherinn. „Ein-
hverju sinni þegar þeir voru að gera
vel við mig þarna úti spurði einn af
þeim mig hvernig stæði á því að við
minntumst 269. herdeildarinnar sér-
staklega. Ég sagði að við myndum að
sjálfsögðu láta grafa í stein fyrir hina
líka. Síðan vatt þetta upp á sig og við
minnumst nú allra flughersveita sem
voru á Íslandi á stríðsárunum, frá
Breska flughernum, Strandgæsl-
unni, og herjum Bandaríkjanna,
Kanada og Noregs.“
Minnisvarðinn, sem afhjúpaður
verður 12. september, m.a. að við-
stöddum Ólafi Ragnari Grímssyni,
forseta Íslands, og hertoganum af
Kent, ber áletrun með nafni sveit-
anna og minningartexta. Bæði fyrr-
verandi og núverandi yfirhershöfð-
ingjar flughersins verða einnig
viðstaddir og líklega tveir úr 269.
herdeildinni sem hingað komu um
árið.
Ragnar Ragnarsson, forveri Arn-
gríms sem forseti Flugmálafélags-
ins, hefur komið kröftuglega að mál-
um og Þór Whitehead sagn-
fræðingur hefur miðlað ómetanlega
af sínum viskubrunni, en hann hefur
safnað gríðarlegum heimildum um
styrjaldarárin. Þá hefur Alp
Mehmet, sendiherra Bretlands á Ís-
landi og hans fólk, komið veglega að
undirbúningi athafnarinnar.
Vegna afhjúpunar minnisvarðans
hefur Þór Whitehead m.a. tekið sam-
an fróðlegan útdrátt úr óútkominni
bók sem hann vinnur að um Ísland í
seinni heimsstyrjöldinni. Þar kemur
m.a. fram hversu menn vanmátu
getu Þjóðverja á Norðurhöfum.
Menn héldu í fyrstu að hægt væri að
hafa stjórn á málum frá Norður-
Skotlandi og Noregi en eftir að Nor-
egur féll var sýnt að þýski herinn gat
leikið lausum hala í Norðurhöfum.
Sagan í sífelldri skoðun
En hefur hermönnum sem hérna
þjónuðu verið nógu mikill sómi sýnd-
ur?
„Nei, ég held ekki. Það eru auðvit-
að legsteinar og grafir á nokkrum
stöðum á landinu og minnisvarðar
um einstaka sveitir, en það má gera
svo miklu betur,“ segir Arngrímur
sem ætlar ekki að láta staðar numið í
varðveislu sögunnar hvað þetta
varðar. „Þór Whitehead er manna
fróðastur um þessa sögu og ég veit
að hann er sífellt að grafa upp eitt-
hvað nýtt.“
Flugmálafélag Íslands stendur að
því að reisa minnisvarðann en Arn-
grímur hefur óneitanlega átt frum-
kvæðið. „Við höfum notið dyggrar
aðstoðar góðra manna,“ segir hann
og bætir við að hann hafi einungis
haft ánægju af öllu tilstandinu.
„Menn hafa verið að gera mikið úr
mínum þætti en hann hefur aðallega
verið fólginn í því að koma fólki sam-
an. Það merkilega er að þetta skuli
ekki hafa verið gert fyrr.“
Edward prins, hertogi af Kent,
sem verður viðstaddur afhjúpun
minnisvarðans, er jafnframt vernd-
ari Konunglega breska flughersins.
Edward fæddist árið 1935 og var að-
eins sjö ára þegar faðir hans, hertog-
inn, fórst með Sunderland-vél, fjög-
urra hreyfla sjóflugvél, á leið til
Íslands. Hann var á leið hingað til
lands að heilsa upp á bresku sveit-
irnar. Koma Edwards hertoga hefur
því persónulega þýðingu fyrir hann.
„Hann sagði mér sjálfur frá þessum
afdrifum föður síns og ég veit að
þetta snertir hann.“
Þakklátir Arngrími
og Íslendingum
Vinum Arngríms úr 269. herdeild-
inni fer fækkandi. Þeir hafa hist
reglulega í gegnum tíðina en héldu
sinn síðasta endurfund fyrir tæpum
hálfum mánuði. „Þegar ég hitti þá
síðast fyrir tveimur árum höfðu þeir
á orði við mig að margir þeirra væru
farnir að gleyma. Ég var einmitt svo
þakklátur fyrir það sem þeir sögðu
við mig; að vissulega væri búið að
setja upp minnisvarða um þá um all-
an heim og þeir hefðu yfirleitt staðið
í því sjálfir að minnast félaga sinna.
En það væri einungis ein undantekn-
ing á því hvað frumkvæðið varðar, og
hún væri hérna á Íslandi. Ég hef því
svo sannarlega fundið að þeir kunna
að meta það sem gert er fyrir þá.“
Ertu að sjá merkilega hluti flug-
sögunnar fara í súginn?
„Já. Við, sem erum af veikum
mætti að reyna að byggja upp Flug-
safnið á Akureyri í stóru flugskýli,
skynjum það vel. Landhelgisgæslu-
flugvélar og fleiri flugvélar sem
komu virkilega við sögu þjóðarinnar
liggja í norður-suðurbrautinni í
Reykjavík. Það var kveikt í vélum,
þær grafnar og þeim hent. Framtak
Egils á Hnjóti var virðingarvert og
því vil ég ekki róta. Þar hélt hann
ýmsu saman og það safn þarf að
standa og ég vil að það verði áfram í
minningu hans þótt við byggjum
áfram upp safnið á Akureyri.“
Arngrímur horfir með tilhlökkun
til athafnarinnar á miðvikudag.
„Auðvitað var stríðið skelfilegt en
við getum ekki neitað því að það er
hluti af sögu okkar. Að sama skapi
finnst mér oft gleymast að sagan er
ekki bara að gerast í gær, hún er að
gerast í dag. Þess vegna megum við
ekki bara einblína á það sem er gam-
alt, heldur halda því líka til haga sem
er merkilegt í dag.“
Morgunblaðið/Kristinn
Sprengivélar á flugi Hudson sprengiflugvélar á flugi suður af Íslandi. Vél-
arnar áttu stóran þátt í sigrum bandamanna og Arngrímur rifjar m.a. upp
þegar áhöfn Hudson-vélar náði þýskum kafbáti suður af Íslandi árið 1941.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 31
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
Firma Consulting leggur áherslu á persónulega
og faglega þjónustu með áherslu á gæði, trúnað
og traust í vinnubrögðum sínum.
Firma Consulting veitir m.a. eftirtalda þjónustu:
• Aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja á Íslandi.
• Aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja erlendis
í samstarfi við sérhæfð fyrirtæki á því sviði.
• Aðstoð við sameiningu fyrirtækja.
• Aðstoð við verðmat á fyrirtækjum.
• Aðstoð við gerð kaupsamninga.
• Rekstrarráðgjöf.
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskipta-
fræðingur og löggiltur fyrirtækja-,
fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endur-
skoðunarstörfum, sem rekstrar-
ráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali,
útgefandi, fasteignarekandi,
„land-developer“ í Smárahvammi
og starfandi stjórnarformaður í
nokkrum fyrirtækjum. Magnús er
aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Við finnum
kaupendur og
seljendur að
fyrirtækjum
Morgunblaðið/Kristinn
Fylgd skipalesta Áhöfn á Sunderland sjóflugvél í Reykjavík árið 1941 en faðir hertogans af Kent, sem verður við-
staddur afhjúpun minnisvarðans í Fossvogskirkjugarði fórst með slíkri vél á leið til Íslands. Sunderland-vélarnar
voru notaðar til að fylgja skipalestum yfir Atlantshafið.
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn