Morgunblaðið - 09.09.2007, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 09.09.2007, Qupperneq 37
málað Maríumynd í Stykkishólms- kirkju og verk úr steindu gleri eftir Leif Breiðfjörð eru bæði í Grens- áskirkju og Fella- og Hólakirkju. Á síðari hluta aldarinnar fékk Benedikt Gunnarsson einnig það tækifæri að vinna stóra altaristöflu í Háteigs- kirkju, sem líklega er hans stærsta verk, og stórt glerlistaverk eftir Eirík Smith setur afgerandi svip á kirkjuna á Grundarfirði. Halldór Pétursson málaði altaristöflu, Kristsmynd, í Garðakirkju í Görðum á Álftanesi og síðast en ekki sízt ber að nefna skúlp- túr Steinunnar Þórarinsdóttur í kór Kópavogskirkju, sem er í rauninni altaristafla. En bæði á höfuðborgar- svæðinu og víðsvegar um lands- byggðina hafa verið byggðar kirkjur án þess að listamenn kæmu þar við sögu. Ein af fegurri kirkjum höfuðstað- arins er Laugarneskirkja Guðjóns Samúelssonar, sem hefur nýlega fengið krossmark í kór í stað alt- aristöflu, sem flutt var á annan stað. Eftirtektarvert er að beztu kirkju- listaverk þeirra Kjarvals og Ásgríms voru unnin fyrir litlar kirkjur í dreif- býlinu; mynd Kjarvals fyrir kirkjuna á Borgarfirði eystra og mynd Ás- gríms fyrir Stóranúpskirkju í Gnúp- verjahreppi. Raunar var Kjarval beð- inn um að mála altaristöflu fyrir kirkjuna að Ríp í Hegranesi í Skaga- firði, en mönnum hugnaðist hún ekki norður þar og var hún endursend, og hafnaði um síðir í litlu en markverðu safni Halldórs Laxness. Altaristafla eftir finnskan málara, Lennart Segerstråle, er í Hallgríms- kirkju í Saurbæ og í Skálholtskirkju er ein hrifmesta altaristafla eftir ís- lenzkan listamann frá síðustu öld, Kristsmynd Nínu Tryggvadóttur, og er hún útfærð í mósaík. Því má svo bæta við að fyrir tveim- ur árum fékk ég það fágæta tækifæri að mála Maríumynd í Úthlíðarkirkju, en flestir samtímalistamenn fengu annaðhvort ekki tækifæri til þess, eða þáðu það ekki. Fleiri íslenzkir málarar eiga listaverk í litlum kirkjum úti á landi; Barbara Árnason og Jóhann Briem þeirra á meðal. Fyrir þessa myndlistarfátækt í kirkjum fá kirkjufeður ekki háa ein- kunn. Annaðhvort hafa þeir ráðið þessu eða arkitektar kirknanna talið að myndlist skyggði á þeirra eigin snilld. Þriðji möguleikinn er sá að söfnuðir hafi verið alfarið á móti myndlist. En því trúi ég ekki. Fyrst og fremst er þetta ákveðin tíska sem verður til og þá hafa ekki allir þor til að rísa gegn henni. Myndlistin og rýmið Augljóst er að myndir í ramma – eða jafnvel án ramma – taka aðeins brot af því rými sem skúlptúrar geta gert, að ekki sé nú talað um ýmis önnur fyrirbæri úr nútímamyndlist, svo sem innsetningar. Af þeirri ástæðu hafa málverk frekar komið til álita þegar listaverk eru keypt. Á skrifstofum ríkis og borgar má oft sjá í sjónvarpsviðtölum að mál- verk eru á veggjum og vekur athygli að þar er næstum ævinlega um að ræða myndir frá fyrri hluta síðustu aldar. Þessar myndir munu oftast vera að láni frá Listasafni Íslands og ræður þá líklega smekkur þeirra sem nota húsrýmið því hvað verður fyrir valinu. Sá smekkur virðist þá vera af- ar íhaldssamur og eru landslags- myndir í stórum meirihluta. Þjóðarbókhlaðan og Háskóli Íslands Eðlilegt er að markverð myndlist sé höfð til að skreyta hinar helztu menningarstofnanir okkar. Í Þjóð- arbókhlöðunni hefur það tekizt með prýði. Mest ber þar á stóru veggteppi eftir norsku listakonuna Sunneve An- ker Aurdal, sem heitir Orðin og víð- áttan. Þó að myndin sé að mestu ab- strakt ásamt með letri þar sem vísað er í þekkta texta, liggur í augum uppi að þetta er túlkun listakonunnar á ís- lenzkri náttúru. Sú túlkun er frábær og þessi þjóðargjöf Norðmanna frá árinu 1974 sómir sér vel í Þjóð- arbókhlöðunni. Þar eru einnig hríf- » Á skrifstofum ríkis og borgar má oft sjá í sjónvarpsviðtölum að málverk eru á veggjum og vekur athygli að þar er næstum ævinlega um að ræða myndir frá fyrri hluta síðustu aldar. Kennaraháskólinn Mósaíkmynd frá gólfi til lofts eftir Valtý Pétursson. VÍS Eitt af stórfyrirtækum sem nýta myndlists til sýnilegs ávinnings er VÍS við Ármúla. Þar er þessi kröftuga mynd eftir Jón Engilberts. Hótel Holt Í forsal eru þessi glæsilegu listaverk, stórt olíumálverk af konum við fiskþvott eftir Gunnlaug Blöndal og ennþá stærra olíumálverk eftir nafna hans Scheving þar sem sjást vel þekkt yrkisefni hans, móðirin og kýrin. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 37 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 20. nóvember í 14 nætur og 4. desember í 15 nætur á frábæru sértilboði. Bjóðum frábært sértilboð á Dorotea, einum allra vinsælasta gististað okkar á Kanarí. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað við góðan aðbúnað. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2-5 í búð á Dorotea 20. nóv. í 14 nætur eða 4. des. í 15 nætur. Kanarí 20. nóv. og 4. des. frá kr. 49.990 20. nóv. - 14 nætur 4. des. - 15 nætur Sértilboð á Dorotea - frábær staðsetning!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.