Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 42

Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 42
42 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ljós og sjón eru meginþættir og und-irstaða málaralistarinnar eins ogflestir mega skilja, þótt þessar stað-reyndir hafi farið afvega í list- umræðu dagsins. Ekki hyggst ég vekja upp deilur um það hér, en það má einneginn vera ljóst, að það sem er innan þessara marka hefur nokkuð annað gildi en aðrir geirar myndlistar sem falla ekki á sama hátt að birtingarmynd lita, lína, forma, ljóss og skugga og skal því að- greint, eins og til að mynda lágmynd frá högg- mynd. Og þegar hvorki ljós né sjón er und- irstaða myndlistaverks, en eyrað í aðalhlutverki fer málið að vandast, einkum ef skynfæri viðkomandi eru ekki stillt inn á þessa hluti. Þessu má líkja við að bjóða heyrn- arlausum að hlusta á tónlist eða blindum að horfa á látbragðsleik. Í seinna tilvikinu treysti ég mér ekki til að segja málverk, sökum þess að samkvæmt síðustu dagskipan núfræðinga eru öll fyrirbæri málverk, sem enginn fær mig til að samþykkja bókstaflega, hvað sem öllum marxískum strúktúralisma og heimspeki líð- ur… Það er í grunni myndlistar, að hún virðist geta stöðvað tímann, vera í bland við eilífðina, ekki einungis vegna þess að viðföng hennar voru lengstum í takt við almættið, heldur og öðru fremur að tíminn virðist standa kyrr í mörgum verkum löngu liðinnar fortíðar. Lík- ast sem þau holdgeri afstæði og búi að auki yf- ir leyndardómum handan alls sem er og má hér draga fram mörg dæmi eins og til að mynda málverk Leonardos af Monu Lísu sem allir þekkja nema kannski nemendur listaskóla sem eru bólusettir gegn gærdeginum og for- tíðinni um leið. Ekki held ég að gerendunum hafi veriðmeð fullu ljóst að þeir voru að stöðvatímann, að myndverk þeirra yrðu að tímalausu núi, því engir viðurkenndir staðlar voru til um hvernig þeir ættu að bera sig að, einungis hefðir sem vísuðu veginn til óskil- greindra dulmagna. Það voru þannig myndlistarmenn sem stöðvuðu tímann, án þess að vera sér þess að fullu meðvitaðir þótt öðrum þræði væru mynd- verk þeirra í bland við eilífðina… Svo er það ljósið sem er birtugjafi alls, án þess væri auðvitað ekkert málverk, og iðk- endur hafa eðlilega verið uppteknir af ljósstig- anum frá því sögur hófust, leikurinn við dul- armátt þess kemur einkar vel fram í myndum La Tour, Caravaggios og Rembrandts. Mál- ararnir gátu glímt við og leikið sér með ljósið, og hagnýtt í ótal myndum en enginn stöðvað það né tamið nema ef vera skyldi birting- armynd þess á fletinum. Engum vísindamanni hafði tekist það, þótt fræðilega kunni menn að hafa séð hilla undir það, fyrr en hin danska Lena Vestergaard Hau kom til sögunnar. Hún hefur numið og starfað í amerískum háskólum í 17 ár. Fyrst á Rowland-stofnuninni frá 1989 og þarnæst Harvard-háskóla, hvar hún vakti rosalega athygli þegar henni, fyrstri í heim- inum, tókst að bremsa ljósið. Það er að segja frá hinum fasta ógnarhraða sem er 299.792,458 kílómetrar á sekúndu (!), í 17 metra á sekúndu, eða hjólreiðamannshraða eins og hún orðar það sjálf iðulega. Þetta er ekki meira en lítið heillandi í ljósi þess að ekkert í alheiminum fer hraðar en ljósið og frábært að henni skyldi takast að beisla fyrirbærið og setja niður í skala hvar mönnum er fært að hantéra það. „Þegar ljósið stendur kyrrt í atómskýinu sem við bremsum það í, geta menn eygt fingraför þess, jafnvel snert það. Það er næstum „cool“,“ lætur Hau hafa eftir sér. Hér er frjálslega gripið niður í viðtal viðhina 47 ára gömlu Lenu VestergaardHau, er birtist í vísindakálfi Week- endavisen 4. apríl. Hún er orðin stjörnuvís- indamaður á heimsmælikvarða, sem eins og segir mun ekki alltof algengt meðal Dana, að Niels Bohr ógleymdum. Konan hefur jafn- framt mikla ást á skammtaaflsfræði, kvante- mekanik. Sambland, sem hefur að vísu virkað ögrandi á einn og annan gróinn vísindamann á þessu karlkennda rannsóknarsviði. Átti vafa- lítið nokkurn þátt í að þeir hristu margir höf- uðið og lyftu vantrúaðir vísifingrinum er hún hófst handa með tilraunir sínar 1997. „Þegar við hófum að gera tilraunir með að senda laserljósgeisla inn í ský af ofurköldum atómum, héldu sumir að við værum ekki með réttu ráði, sögðu að það myndi ekki aðeins til- gangslaust, heldur líka hættulegt. Laserljósið myndi virka sem fíll í postulínsbúð, blása skýin upp og hverfa. En það var nú einmitt það sem gerði þetta spennandi, nefnilega að starfa á ystu nöf þess mögulega,“ segir Lena Hau og heldur áfram: „Þegar við opinberuðum árang- urinn fengum við yfirmáta jákvæð viðbrögð. Einn nefndi þetta „kick ass“-tilraun, og annar hélt að þessir 17 metrar á sekúndu væru orða- leikur.“ Í lofttæmdu rými er atómský sem grípurljósið, einnig nefnt Bose-Einstein-þéttir,og er tvímælalaust kaldasti staður í al- heiminum, hitastigið allt niður í nokkra millj- arða gráða yfir hinum algilda núllpunkti – 273,15 gráður – fræðilega lægsta mögulega hitastig, þar sem allt stendur kyrrt. Bendir á stálhólf í svörtum kassa u.þ.b. mitt í hinum mikla vélbúnaði í rannsóknarrými sínu, Hau Lab, í hinni nafnkenndu Lyman-rannsókn- arstöð við Harvard hvar nafnspjöldin á dyr- unum vísa annars allar til karlkyns prófessora. Gufuþéttirinn, sem mun lykillinn að töfra- brögðunum, er efnafasi sem Einstein og hinn indverski efnafræðingur Satyendra Nath Bose greindu frá í sjálfstæðum og óháðum stærð- fræðiskrifum sínum 1925. Efnafasinn verður til, þegar maður kælir atómský niður í 500 milljarðasta hluta af einni gráðu. Þarmeð nær maður sérstöku efnafræðilegu ástandi hvar milljónir atóma hreyfa sig í takt og fara þar með að hegða sér sem heild. Það var þó fyrst árið 1995 að tilraunirnar til að ná fram hrein- um Bose-Einstein-gufuþétti í rannsóknarstofu báru árangur. Sjálf bjó Hau sinn fyrsta þétti til á skömmum tíma í júní 1997 – þótt upp- skriftin lægi ekki fyrir, svona nokkru eftir að fyrsti þéttirinn hafði litið dagsins ljós við há- skólann í Colorado, og hún yrði að byrja á botninum og strax á eftir hóf hún að senda leysigeisla inn í gufuþéttinn. Ekki annað hægt að segja en að kerla hefi verið snögg og slegið karlpeningnum við! Í framhaldinu tókst henni svo að stöðvatímann alveg, jafnvel færa hann úr einumstað í annan. Hér komin hliðstæða blekk- inganna í ævintýrinu um David Copperfield, hins vegar um raunveruleika að ræða. Sjálfri finnst Lone Hau þetta allt undarlegt, því hér er stærðfræðin ekki einhlít þar sem hvort tveggja þarf huglæg skynjun að koma til sem og hreinar tilviljanir. Og hún er ekki að leyna því að ótrúleg taugaspenna fylgir því að vera í fremstu röð grunnrannsókna á toppnum. Að- spurð hvernig menn fengu þá hugmynd að mögulegt væri að bremsa ljósið og nota gufu- þétti til þess segir hún: „Ó, það er býsna erfitt að svara því. Það er nú þannig með hug- myndir, að iðulega geta menn ekki rakið upp- haf þeirra. Þær geta verið afrakstur rök- ræðna, atvika á rannsóknarstofunni og einhvers sem maður hefur látið sér detta í hug fyrir löngu síðan. Hugmyndir verða aldrei til í tómarúmi, heldur samspili með rannsókn- arhópi. Það furðulega við þetta er að margir, líka námsmenn, ímynda sér að rannsókn- armaðurinn sitji helst aleinn og gruflandi á rannsóknarstofu sinni. Hæga ljósið getur allt eins orðið kímiðað nýjum skammtatölvum og eld-fljótra optískra tölva sem byggjast á ljósinu. Í andstöðu við tölvur nútímans sem byggjast á elektrónum.“ Spurningunni hvort búast megi við nýjum landvinningum í tækni- heiminum svarar Lena Hau svo: „Ég nefni hér Charles Towes, sem á sínum tíma var með í að uppgötva leysinn. Þegar hann fékk sömu spurninguna, klóraði hann sér í höfðinu og gat aðeins látið sér detta eitt í hug; að ef menn settu leysi ofan á ritvél, myndi hann geta greint hugsanlegar ritvillur. Niðurstaðan verður, að hér geta menn einungis stuðst við getspekina.“ Og hver er svo niðurstaðan af þessu skrifi! Trúlega, að ekkert er óyggjandi í alheimi, og allur rétttrúnaður fellur um sig sjálfan, hvar sem borið er niður. Til gaumgæfilegrar um- hugsunar og þá ekki síst fyrir myndlist- armenn. Ljósið tamið Ljós á lérefti Málverkið af Monu Lisu getur allt eins tákngert eilífðina. Í nær 500 ár hefur hún horfst í augu við skoðendur sína eins og hún vilji segja „sé þig“. Sendir þeim um leið dulmagnað bros sem engum hefur enn tekist að ráða í. Frekar en tímann og allífið. Ljósið fært Hin snjalla danska vísindakona Lena Vestergaard Hau sem ekki einasta tókst að bremsa ljósið, sem æðir áfram á ógn- arhraða, heldur einnig færa úr stað, sem hingað til hefur einungis verið mögulegt í ævintýraheiminum. Bragi Ásgeirsson sjónspegill Ég hef hugsað dálítið umeyrað á van Gogh und-anfarið. Í löngu fríi hef égstundað flatlend- isgönguferðir, stundum með skemmtilegu fólki og stundum ein míns liðs. Þegar maður gengur einn hugsar maður meira en ella og skoð- ar vandlegar það sem fyrir augu ber. Ég hef tekið eftir að sólblóm eru orð- in talsvert vinsæl í íslenskum görð- um. Listmálarinn van Gogh málaði mikið af sólblómum og gerði það svo vel að hann hlaut heimsfrægð fyrir, ásamt auðvitað fjölmörgu öðru myndefni. En sú frægð féll honum ekki í skaut í lifanda lífi. Eftir að hafa rifjað upp það sem ég mundi um sólblómin og van Gogh þá hélt ég áfram að hugsa um lífsferil þessa listmálara sem svo margir kennarar og listfræðingar hafa fjallað um í ræðu og riti. Þar kom að það rifj- uðust upp fyrir mér sögusagnir um að van Gogh hefði lagt hug á stúlku eina sem hafnaði honum. Af þeim or- sökum á hann að hafa skorið af sér eyrað og sent ástinni sinni. Mér býð- ur í grun að stúlkan hafi enn síður haft áhuga á frekari kynnum við van Gogh eftir þessa blóðugu sendingu. Ég get varla ímyndað mér neitt sem síður er fallið til að vekja áhuga stúlku á manni en að hann sendi henni í bréfi afskorið og blóðugt eyra sitt. En þetta er samt ekki það sem mér fannst áhugaverðast við þessa upprifjun, sem ég tek raunar ekki ábyrgð á að sé rétt heldur hefur „komið svona til mín“. Ég fór að hugsa um hvernig um Vincent van Gogh hefur verið fjallað. Mér hefur fundist eins og í þeirri umfjöllun örli stundum á undirtóni, tóni sem gefur óljóst í skyn að ef stúlkan hefði ekki hafnað van Gogh hefði hann ekki neyðst til að skera af sér eyrað. Sem sagt; gefið er í skyn að sök liggi hjá konu fyrir ákvörðun sem karlmaður tekur, jafnvel þótt hann sé sjúkur. Slíkt er hreint ekki nýtt í verald- arsögunni. Ég er persónulega alveg viss um að umrædd stúlka hefur aldrei svo mikið sem ýjað að því við listamanninn að hann skæri af sér eyrað og sendi henni. Þessi af- drifaríka ákvörðun mannsins sýnist mér algjörlega á hans ábyrgð og sjúkdóms hans. Van Gogh lét sem kunnugt er sjálfur leggja sig inn á geðsjúkrahús og tók síðar líf sitt árið 1890, eftir að hafa skapað á þessu tímabili mjög áhrifarík listaverk. En aftur að meginviðfangsefninu; það er einhvern veginn svo að í alltof mörgum tilvikum hefur karlmönnum haldist uppi að kenna konum um ófarir sínar eða að minnsta kosti gefa slíkt í skyn og umhverfið hefur of gjarnan gleypt við slíkri sögu- skýringu eða jafnvel fundið hana upp sjálft. Ég veit ekki hvað margir menn hafa verið taldir hafa orðið vit- skertir vegna kvennamála eða gerst einsetumenn vegna höfnunar konu. Þeim er vorkennt en sökinni varpað á konuna, jafnvel þó óbeint sé. Raun- ar finnst mér athyglisvert hve um- hverfið er að mínu mati miklu treg- ara til að afsaka gerðir kvenna með þessum hætti þótt þær lendi í hremmingum í ástamálum. Þá er gjarnan viðkvæðið að þær geti sjálf- um sér um kennt, þær hafi ekki verið nógu góðar, sætar, ljúfar eða skemmtilegar. Þetta með sólblómin, eyrað, stúlkuna og van Gogh er svo sem ekki stórfenglegt innlegg í lista- söguna, það veit ég vel. En ef til vill segir það okkur eitthvað um hvernig kona upplifir í ýmsum söguskýr- ingum að verið sé beint og óbeint að koma sektarkennd inn hjá henni og vafalaust öðrum konum vegna ótrú- legustu atburða. Á Indlandi gengu menn lengi vel hreint til verks og grófu ekkjur með látnum eiginmönnum. Á Vest- urlöndum er frjálslyndið vissulega meira en samt eru of oft fyrir hendi vissir tilburðir í umhverfinu til að „grafa“ konur með mönnum sínum. Samfélagið hefur tilhneigingu til að lofa það fremur en hitt ef kona giftist ekki aftur eftir lát eiginmanns og best af öllu er ef hún er aldrei við karlmann kennd eftir eiginmanns- missinn. Það er eitthvað svo róm- antískt. Giftist konur á ný og taki gleði sína samgleðst umhverfið vissulega oft í orði – en með nokkrum semingi og lætur á stundum skína í viðhorf sem á að smeygja inn sektarkennd hjá hinni fyrrverandi ekkju og jafn- vel líka hjá fráskildum konum. Hvernig geta þær leyft sér að gleðj- ast eftir að hafa misst eiginmann vegna dauðsfalls eða skilnaðar? Mér finnst karlmanni í slíkri stöðu mun fremur samfagnað ef hann tekur gleði sína á ný. En svona er lífið, – fólk ætti að hafa hugfast að það er hægara um að tala en í að komast. Og hvað van Gogh viðvíkur þá er ég þess fullviss að hann skar af sér eyr- að af því að hann var geðveikur en ekki af því að stúlka sem hann er sagður hafa lagt hug á vildi hann ekki. Sem betur fer veit títtnefnd stúlka varla mikið um hinn undarlega und- irtón sem mér finnst að greina hafi mátt í eftirmælum sumra um per- sónu hennar í máli og ritum. Öllu verra er þegar fólk þarf að sitja und- ir grunnhyggnum sleggjudómum í lifandi lífi um málefni og atburði sem hinir sjálfskipuðu „dómarar“ um- hverfisins hafa kannski ekki fyrr en löngu síðar á lífsleiðinni forsendur til að skilja – og sumir jafnvel aldrei. Eyrað á van Gogh! eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Þjóðlífsþankar | Var stúlkan sek?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.