Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 47
Ásgeir E.
Gunnarsson
löggiltur
fasteignasali
Páll Kolka
löggiltur
fasteignasali
Skúli Sigurðarson
löggiltur
fasteignasali
Andrés
Kolbeinsson
löggiltur
fasteignasali
BORGARTÚNI 29
105 REYKJAVÍK
SÍMI 530 7200
FAX 530 7207
HUSANAUST.IS
Erum með í einkasölu einbýlishús, 298,5
fm, í byggingu á góðum stað á Álftanesi,
Lyngholt 1,3 og 5. Búið er að steypa
húsið upp svo og loftplötu, veggir innan-
húss eru slípaðir, gluggar og hurðaföls
eru komin í. Þak verður frágengið að
fullu, með þakgluggum og flasningum, 10 ára ábyrgð á frágangi þaks.
Lóð verður grófjöfnuð. Nánari lýsing skv. teikningu: Björt stór stofa,
sem opin er inn í arinstofu og stórt eldhús, mikil lofthæð. Hjónaher-
bergi er með fataherbergi og sérbaðherbergi, þrjú svefnherbergi og
stórt sjónvarpshol. Rúmgott baðherbergi auk gestasalernis. Bílskúr er
40 fm og er gert ráð fyrir þremur bílastæðum framan við hann. Loft-
hæð hússins er um 3,10 metrar.
Teikningar og allar nánari upplýsingar
á skrifstofu Húsanausts, Borgartúni 29.
Fallegt, þriggja hæða parhús í suð-
urhlíðum Úlfarsfells. Útsýni er yfir
Úlfarsárdal í suðri og Grafarvog í vestri. Húsið verður afhent fokhelt
að innan en fullbúið að utan, með gleri og hurðum. Hægt er að semja
við byggingameistarann um afhendingu á seinni byggingarstigum,
t.d. tilbúið undir tréverk, etc. Auðveldlega má útbúa tveggja her-
bergja séríbúð á neðstu hæðinni.
Teikningar og nánari upplýsingar
á skrifstofu Húsanausts, Borgartúni 29.
LYNGHOLT - ÁLFTANESI ÚLFARSBRAUT - ÚLFARSDAL
Til sölu er einbýlishús á Seltjarnarnesi með einstæðu útsýni til Akrafjalls,
Skarðsheiðar, Esju, Hengils, Vífilfells og Bláfjalla. Húsið er við sjávarsíðuna,
20 metra frá sjó, nálægt miðbæ Reykjavíkur, 4 mínútur frá Lækjartorgi. Húsið
er 255 fm og byggt árið 1972 og stendur það á 1.100 fm eignarlóð. Húsið
skiptist í forstofu, tvö baðherbergi, sex svefnherbergi, borðstofu, sjónvarps-
stofu, arinstofu og útsýnisstofu. Hús, innréttingar og lóð, er allt hannað af
arkitektunum Helga og Vilhjálmi Hjálmarssonum. Verð 110 millj.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Fornaströnd – einstakt hús
Fjölnisvegur 16
Opið hús í dag kl. 16:00-16:45
184,2 fm hæð, kjallari og bílskúr auk óskráðs rýmis í kjallara, sem er 47,6
fm, alls 232 fm. Efri hæð: forstofa, hol, gangur, herbergi, þrjár samligg-
jandi stofur og eldhús. Frá borðstofu er útgangur í garð sem vísar í
suður. Neðri hæð: hol, þrjú svefnherbergi, stofa, tvö baðherbergi.
Sérinngangur er á neðri hæðina. Bílskúrinn er einnig útbúinn sem íbúð.
Verið velkomin í opið hús í dag þar sem sölumenn Stakfells sýna
eignina. Verð kr. 79 millj.
Þorlákur Ó. Einarsson
lögg. fasteignasali
Gsm 820 2399
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fasteignasali
Stakfell
535 1000
Fasteignasala • Lágmúli 7 • 108 Rvk
www.stakfell.is
UMRÆÐA um rafbíla er að
aukast. Lengi vel var þá aðeins átt
við bíla sem ganga alfarið fyrir raf-
magni sem geymt er á rafhlöðum í
bílunum. Þróun í gerð rafhlaðna í
því skyni hefur þó ekki verið sem
skyldi; rafhlöðurnar hafa ekki get-
að geymt nægilegt rafmagn til að
akstursvegalengd á milli endur-
hleðslna væri viðunandi. En með
gerð svokallaðra tvinnbíla hafa
skapast ný viðhorf. Á útlensku kall-
ast þeir „hýbrid-bílar“, en það eru
bílar sem ganga í raun fyrir bens-
íni eða olíu, en nota jafnframt raf-
hreyfil og rafhlöðu til að auka nýtni
eldsneytisins. Talsverður fjöldi
slíkra bíla er þegar á götum hér á
landi. En nú er skammt í næsta
þrep í þessari þróun. Rafhlaðan í
tvinnbílunum verður stækkuð
þannig að hún nægi fyrir akstri á
rafmagninu einu nokkra tugi kíló-
metra. Og það sem meira er,
geymana má endurhlaða með raf-
magni úr almenna rafkerfinu.
Notkunarmunstur venjulegra
einkabíla hérlendis er þannig að
ætla má að tvinnbílar af þessari
gerð geti gengið að þremur fjórðu
hlutum fyrir innlendu rafmagni, en
aðeins um fjórðungur orkunnar
þurfi að koma úr innfluttu elds-
neyti.
Í Morgunblaðinu og Blaðinu 7.
sept. sl. eru fróðlegar frásagnir af
þessum væntanlegu bílum. En þar
eru þeir kallaðir „tengitvinnbílar“.
Enska heitið á þessum bílum,
„Plug-in Hybrids“, vísar til þess
mikilvæga eiginleika þeirra að ork-
an í þá, rafmagnið, kemur í gegn-
um venjulega raftengla. Við á
Orkustofnun höfum um nokkurt
árabil fylgst með þessari þróun og
fyrir tæpu ári var skrifuð skýrsla
m.a. um slíka bíla. Áður en skýrsl-
an var birt veltu málhagir menn á
stofnuninni fyrir sér heiti á þessa
gerð bíla og niðurstaðan var sú að
kalla þá „tengiltvinnbíla“, þ.e.a.s.
vísa skýrt til raftengilsins í heitinu.
Án l-sins í nafninu þótti hætta á að
heitið yrði tengt við annað orð sem
hefur hlotið sess, „tengivagn“, og
sá misskilningur kynni jafnvel að
komast á kreik að rafhlöðurnar
væru hangandi aftan í bílunum á
e.k. tengivögnum!
Við mælum því með „tengiltvinn-
bílum“ þar til hugmynd um enn
þjálla orð kemur upp.
ÞORKELL HELGASON
orkumálastjóri.
Tengiltvinnbílar skulu þeir heita
Frá Þorkeli Helgasyni