Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 53

Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 53
aðar breytingar og æskilegt að slíkar breytingar séu unnar í sam- ráði meirihluta og minnihluta á þingi enda hlýtur markmiðið með þeim að vera það að Stjórnarráðið í heild sinni verði skilvirkara, hag- kvæmara og endurspegli betur þróun íslensks samfélags. Um slík atriði eiga fyrirhugaðar breyt- ingar að snúast en ekki ráðherra- stóla eða það hvorum stjórn- arflokknum fleiri stofnanir tilheyri. Hér skal áréttað að Framsóknarflokkurinn hefur lýst sig reiðubúinn til samstarfs um endurskoðun á Stjórnarráðinu og verkaskiptingu þess. Í þessu efni hef ég rifjað upp viðhorf Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi for- sætisráðherra, sem taldi fyrir 50 árum að allir flokkar ættu að koma að vinnu við breytingu á Stjórnarráðinu. Það sem liggur í loftinu er að Stjórnarráðinu verði skipt upp eft- ir duttlungum stjórnarflokkanna en ekki með heildarsýn framtíð- arinnar að leiðarljósi. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á dögunum í Grímseyjarferjumálinu að líklega ættu siglingamál ekki heima hjá Vegagerðinni. Þetta er hárrétt hjá forsætisráðherra. Ef litið er til eðlilegrar verkaskipt- ingar má spyrja sig sömuleiðis að því hvers vegna sveitarstjórn- armál ættu þá að færast frá fé- lagsmálaráðuneytinu í samgöngu- ráðuneytið. Hvers vegna ætti hluti af málum sem snerta beinlínis heilbrigðismál að færast frá heil- brigðisráðuneyti til félagsmála- ráðuneytisins? Hvers vegna ættu landbúnaðarmál eins og skógrækt og landgræðsla að færast til um- hverfisráðuneytis? Hvernig ætlar ríkisstjórnin að verja það að færa þannig hér um bil alla vís- indamenn landbúnaðarins yfir til annarra ráðuneyta? Hvað myndi sjávarútvegsráðherra segja væri verið að færa vísindamenn stofn- ana sjávarútvegsráðuneytisins, t.d. Hafrannsóknastofnunar, undir menntamálaráðuneytið, líkt og Össur Skarphéðinsson lagði raun- ar til í sumar? Samræðustjórnmál fyrir bí Það var vegna sögusagna sem þessara sem ég ritaði bréf mitt til forsætisráðherra til að fá skýr- ingar á því hvort þær væru réttar. Svar forsætisráðherra var hins vegar dularfullt eins og andatrúin, en skemmst er þó frá að segja að þar er öllu samstarfi við stjórn- arandstöðuna hafnað. Jafnframt er tilkynnt að greint verði síðar frá öllum breytingum og þing- mönnum gefist færi á að tjá sig um breytingarnar þegar þing kemur saman. Sést hér í verki all- ur vilji nýrrar ríkisstjórnar til að ástunda „samræðustjórnmál“ þar sem leitast er við að vinna að framgangi mála í sátt og sam- lyndi. Samræðustjórnmálunum hefur greinilega verið sturtað nið- ur þegar Samfylkingin gekk til samstarfs við höfuðandstæðinginn. Formanni Samfylkingarinnar til hróss ber þó að taka fram að í við- tali við hana í útvarpi nýlega kom hreinskilnislega fram að ekkert hafi verið ákveðið varðandi verka- skiptingu Stjórnarráðsins ennþá. Formenn stjórnarflokkanna virð- ast því samkvæmt því enn vera í samningaviðræðum um þessar stóru breytingar á Stjórnarráðinu og breytingar á lögunum í vor hafa því fyrst og fremst snúist um skiptingu ráðherrastóla. Á móti því kemur að úr ráðuneytunum berast fregnir þess efnis að þar sé verið að undirbúa tilflutning verk- efna sem Alþingi á eftir að fjalla um. Hvað er hið rétta í málinu? Það er ekki laust við að þessi svör formanna stjórnarflokkanna veki ugg í brjósti mér. Alþingi er veikt og forystumenn stjórn- arflokkanna telja þingið í sinni hendi. Jafnframt álíta þeir greini- lega að með þennan mikla meiri- hluta séu allar breytingar einka- mál forystumanna ríkisstjórnarinnar. Höfundur er formaður Framsókn- arflokksins. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 53 Fréttir í tölvupósti Verslunar- og/eða geymsluhúsnæði til leigu Dunhagi 18-20 í Reykjavík Til leigu er ca 600 fm húsnæði í vesturbæ Reykjavíkur við Dunhaga 18-20. Rýmið er á jarðhæð og í kjallara en lengi hefur verið verslunarrekstur í húsinu. Hagstæð leiga í boði og möguleiki á að leigja smærri parta. Guðrún Árnadóttir, löggiltur fasteignasali. Stangarhyl 5, sími 567 0765 Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á www.motas.is www.motas.is Sími 565 5522 | www.fasteignastofan.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /M O T 38 56 3 08 /0 7 Söluaðili: • Innangengt úr bílageymslu í lyftu. • Einstakt útsýni. • Granít á borðum og sólbekkjum. • Ísskápur og uppþvottavél fylgja. • Örstutt á golfvöll. • Íbúðir með sérinngang af svölum, ekki gengið framhjá svefnherbergi. Flottar • fullbúnar íbúðir Afhending nóv. 2007 Hvaleyrarholti Skipalón 25 - 27N ýtt í sö lu Dæmi um verð. 3ja herb. 101,6 m2.Verð frá 26.000.000 kr. Með stæði í bílageymslu. Granít í borðum og sólbekkjum. Ísskápur og innbyggð uppþvottavél fylgja. 4ra herb. 121,3 m2.Verð frá 29.000.000 kr. Með stæði í bílageymslu. Granít í borðum og sólbekkjum. Amerískur ísskápur og innbyggð uppþvottavél fylgja. 5 herb. 135,2 m2.Verð frá 33.000.000 kr. Með stæði í bílageymslu. Granít í borðum og sólbekkjum. Amerískur ísskápur og innbyggð uppþvottavél fylgja. Berðu saman verð og gæði á nýbyggingum á markaðnum. Eignir í hærri gæðaflokki geta verið á betra verði! > Yfir 20 ára reynsla > Traustur byggingaraðili

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.