Morgunblaðið - 09.09.2007, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 55
en skólaganga stúlkna og kvenna
á þar á brattann að sækja. Konur
í Bandaríkjunum hafa almennt séð
tekið þá afstöðu til vændis að
tryggja eigi frjálsan vilja kvenna
og yfirráð yfir eigin líkama. Konur
í Evrópu hafa hinsvegar fremur
hallast að þeirri afstöðu að skil-
greina eigi vændi sem kynbundið
ofbeldi sem hafi ekkert með frjálst
val að gera. Marit Kvamme var
ein þeirra frummælenda sem
kynntu þetta sjónarmið. Hún
greindi t.d. frá því að rannsóknir
sem gerðar hafa verið í Noregi
bendi mjög eindregið til þess að
vændiskonur séu annaðhvort fórn-
arlömb mansals, enda eru um 80%
vændiskvenna í Noregi af erlendu
bergi brotnar, eða fórnarlömb
kynferðislegs ofbeldis. Ágúst Ólaf-
ur Ágústsson var einnig hliðhollur
þessari skilgreiningu vændis og
talaði fyrir því að stjórnvöld, þ.e.
ríkisstjórnin, ættu að beita sér
fyrir setningu laga sem bannaði
vændi og gerði kaup á vændi
refsiverð, líkt og gert hefur verið í
Svíþjóð. Að mati Ágústs væru
stjórnvöld með því að gefa út
ákveðna siðferðislega yfirlýsingu
sem fordæmdi bæði kaup og sölu
á vændi. Rachael Johnstone bætti
því við að með banni á vændi væri
verið að gera tilraun til að breyta
menningarlegum venjum sem væri
áhugaverð leið til að kalla fram
viðhorfsbreytingu meðal almenn-
ings. Rachael skoðaði marga fleti
vændis. Hún taldi að orsakir
vændis mætti rekja til ójafnréttis
kynjanna sem og efnahagslegs
misréttis. Um það voru frummæl-
endur sammála; að fátækt væri
helsta ástæða þess að konur leidd-
ust út í vændi. Rachael velti því
einnig fyrir sér hvort í kjölfar
banns á vændi og útrýmingar þess
myndaðist sjálfkrafa jafnrétt-
isþjóðfélag? Eða öfugt, ef við
byggjum í raunverulegu jafnrétt-
isþjóðfélagi, myndi vændi þá
hverfa af sjálfu sér? Áhugaverðar
vangaveltur sem ómögulegt er að
segja til um hver útkoman yrði
þar sem samfélag af því tagi hefur
enn ekki fyrirfundist. En væri
ekki vert að láta reyna á það?
Allir fummmælendur voru sam-
mála um svarið við þeirri grund-
vallarspurningu sem ráðstefnan
fjallaði um að vændi og virðing
færi ekki saman í jafnréttisþjóð-
félagi. Einnig mætti leiða að því
líkum að vændi væri jafnréttisbar-
áttunni til trafala. Var þetta helsta
niðurstaða ráðstefnunnar auk þess
að undirstrika að ekki megi slá
slöku við í frekari umræðu um
eðli, orsök og afleiðingar vændis.
Erindi frummælenda má lesa í
heild sinni á slóðinni:
http://www.krfi.is/krfi/content/
view/68/1/
»KvenréttindafélagÍslands hélt al-
þjóðlega ráðstefnu í
sumar þar sem vændi og
jafnrétti kynjanna var
rætt. Í greininni eru
helstu niðurstöður
kynntar.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Kvenréttindafélags Íslands.
Fr
u
m
Frábært tækifæri!
Til sölu hótel í blómlegum rekstri.
Hótelið er á Eyjafjarðasvæðinu.
Allar nánari upplýsingar veitir
Þórarinn, á skrifstofu Draumahúsa
í síma 530 1811.
www.klettur.is
Skoðið vefinn asakor.com
OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 14:00 - 16:00
ALLIR VELKOMNIR, SÖLUMENN KLETTS Á STAÐNUM
glæsilegar íbúðir tilbúnar til afhendingar strax.
Um er að ræða 3ja-5 herbergja íbúðir í sex hæða lyftuhúsi með tveimur stigagöngum. Með sumum íbúðum fylgir sér-
bílskúr. Alls eru 31 íbúð í húsinu og 12 bílskúrar, allar íbúðir skilast fullbúnar en án gólfefna, þó er flísalagt á baði og
þvottahúsi, sjá skilalýsingu.
Stærð íbúða:
3ja herbergja íbúðir frá 118 fm.
4ra herbergja íbúðir frá 132,5 fm – 158 fm.
5 herbergja íbúðir frá 154 fm – 157,5 fm.
Sölumenn Kletts verða á staðnum og veita upplýsingar um eignina og sýna hana.
Ásakór 9-11
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Opið hús í dag milli kl. 13.00 og 16.00
Sérlega fallegur bústaður á þessum frábæra útsýnisstað í landi Munaðarness. Húsið
er 57,3 fm og skiptist þannig: forstofa, 3 svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og
verönd með heitum potti. Gróið land. Glæsilegt útsýni. Heitt og kalt vatn. Fallegur bú-
staður sem vert er að skoða.
Skarphéðinn býður ykkur velkomin, sími 897 7155.
Sumarhús - Munaðarnes (Selásar)
Jón Hólm Stefánsson
Lögg. fasteigna-, fyr-
irtækja- og skipasali
www.gljufurfasteign.is
Til sölu rúmlega 2 hektara frístundalóð rétt við Flúðir. Vegur, heitt og kalt
vatn við lóðarmörk. Afgirt land með fallegu útsýni. Verð 6,6 milljónir.
Flúðir - stór frístundalóð
Til sölu fallegar eignarlóðir úr landi jarðarinnar Leynis í Bláskógabyggð,
nærri Brúará. Vegur, heitt og kalt vatn við lóðarmörk.
Nánari upplýsingar hjá fasteignasala í síma 896-4761
Leynir Laugardal - fallegar eignarlóðir