Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 61

Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 61 ✝ Gróa Kristjáns-dóttir fæddist á Brúsastöðum í Vatnsdal í Austur- Húnavatnssýslu, hinn 12. maí 1915. Hún lést á heimili sínu í þjón- ustuíbúðum við Dal- braut í Reykjavík hinn 22. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Kristján Sigurðsson kennari í Vatnsdal og víðar í Austur- Húnavatnssýslu, f. 1883, d. 1970 og Margrét Sigríður Björnsdóttir Blöndal, f. 1884, d. 1968. Kristján var sonur Sigurðar Pálssonar, er bjó að Pálsgerði í Fnjóskadal, Heiðarhúsum á Flateyjardalsheiði og víðar í Þingeyjarsýslu, og konu hans Kristbjargar Hólmfríðar Árnadóttur, sem ættuð var frá Fellsseli í Kinn. Margrét var dótt- ir Björns Blöndals Benediktssonar frá Hvammi í Vatnsdal og konu hans Guðrúnar Gróu Bjarnadótt- ur frá Stað í Steingrímsfirði. Gróa var elst þriggja systkina. Systkini hennar eru: a) Björn Blöndal kennari, f. 1917, d. 1996, bjó á Húnsstöðum í Austur- Húnavatnssýslu, ekkja hans er María Sigurlauga Þóra Jónsdóttir frá Húnsstöðum, þau eiga þrjú börn. b) Ingibjörg Margrét, f. 1926, bjó lengi á Ytri-Kárastöðum á Vatnsnesi, giftist Guðmundi Eyberg Helgasyni, látinn, þau eiga sjö börn. Ingibjörg hefur undanfarin ár verið í sambúð með Árna Hermannssyni, ætt- uðum úr Aðalvík. Gróa ólst upp á Brúsastöðum í Vatnsdal. Hún sat í Gagnfræðaskól- anum á Akureyri veturinn 1934-5 en nam síðan við Kennaraskólann og lauk þaðan kennaraprófi 1937. Hún réðst fyrst til kennslu í Laxárdalshreppi í Dalasýslu (1937-9), síðan að Borgarhafnarskólahéraði í Aust- ur-Skaftafellssýslu (1939-40), þá á Patreksfirði (1941-42). Eftir þetta stundaði hún skrifstofustörf á Skrifstofu ríkisspítalanna árin 1942-46. Haustið 1946 hóf hún síð- an kennslu við Laugarnesskóla í Reykjavík og kenndi þar allt þar til hún náði 67 ára aldri árið 1982. Um nokkurra ára skeið eftir það var hún í hlutastarfi á skrifstofu Kennaraháskólans. Útför Gróu fór fram frá Laug- arneskirkju fimmtudaginn 30. ágúst, í kyrrþey að hennar eigin ósk. Jarðsett var í Gufuneskirkju- garði. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. (Valdimar Briem.) Takk fyrir allt, elsku systir mín. Ingibjörg Kristjánsdóttir. Elsku Gróa mín. Mig langar með fáum orðum að rifja upp nokkrar minningar um þig. Þau voru ófá skiptin sem þú komst upp í Mosfellssveit og gistir hjá okkur og hjálpaðir okkur fjöl- skyldunni þegar ég var að alast upp. Þá sérstaklega á vorin, fyrir páska og jól og var þá allt tekið í gegn. Oft fékk ég gjöf frá þér fyrir jól og svo aðra í jólagjöf. Man ég þá sérstaklega eftir nýju sænginni minni, koddanum og náttkjólnum sem ég fékk fyrir ein jólin og það var ekkert smá sem ég gladdist yfir því. En þú varst alltaf mjög örlát á gjafir til mín og svo seinna til minna barna. Einhvern tímann á unglings- árunum fórstu með mig í bæjarferð og var ég dressuð upp með fjöldann allan af flíkum og fór ég til Möggu systur og voru teknar myndir af mér í mismunandi samsetningum af fötum líkt og á tískusýningu. Þú varst líka vön að aga mig til eins og þína eigin dóttur og hef ég eflaust komist nálægt því að vera það. Mér er sérlega minnisstætt þegar ég og önnur vinkona mín vildum ekki leika við þá þriðju og þú skammaðir okkur fyrir að skilja útundan og bauðst þeirri þriðju bara inn og fórst að leika við hana inni í mínu herbergi. Þú sagðist bara leika við hana sjálf úr því að við vildum það ekki. Við fylgdumst með úr fjar- lægð og vorum við orðnar mjög spenntar að fylgjast með skemmti- lega leiknum sem þið voruð í og að lokum vorum við komnar með í leik- inn og lékum okkur allar saman en þá laumaðir þú þér fram og við héldum áfram eins og bestu vinkon- ur. Þegar ég var yngri og var eitt- hvað þrjósk og þver gagnvart þér, sem gerðist stundum, þá hló mamma og sagði að það væri ekki skrýtið þótt við þrættum þar sem við værum svo líkar og var ég ekki alltaf sátt við það því ég hélt að það þýddi eitthvað neikvætt. En með árunum og meiri þroska sá ég alltaf betur og betur hvað það var í raun mikil upphefð þar sem þú elsku Gróa varst heilsteyptur einstak- lingur, með mikla réttlætiskennd, sanngjörn, vel gefin, víðlesin og ör- lát. Þú varst líka skemmtilegur og eftirminnilegur karakter, mikill húmoristi og ég held að það sé eng- in vinkona mín fyrr né síðar sem ekki veit hver Gróa frænka er. Einnig varstu oft mjög hreinskilin og tók fólk því misvel en það fékk mann samt til þess að hugsa. Því það sem þú sagðir var oftast satt og ekki sagt til þess að móðga neinn heldur einlægar ábendingar um það sem maður sá ekki sjálfur en var sagt í því skyni að leiðbeina manni til betri vegar eða til umhugsunar. En þó svo að þú værir óánægð með eitthvað sem einhver gerði og þú tjáðir þig um það og manni sárnaði þá varðir þú okkur systkinin í há- stert og afsakaðir hegðun okkar ef einhver annar álasaði okkur ung- unum þínum. Ég er mjög ánægð með það að hafa verið með þér síð- ustu dagana þína hér og ég veit hvað þér þótti vænt um það og notalegt að ég sæti hjá þér og héldi í höndina á þér. Ég er þó leið yfir því að hafa ekki verið hjá þér þegar þú fórst en kannski vildir þú einmitt hafa það þannig. En elsku Gróa mín, ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur fyrir mig gert og óska þér góðrar ferðar. Hvíl í friði. Ég elska þig, þín systurdóttir Nína. Elsku Gróa frænka. Okkur langar að þakka þér sam- fylgdina og yndislegar stundir í fá- einum orðum. Í okkar augum varstu ákaflega heilsteypt og sterkur persónuleiki með skýrar og ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Aldrei kom maður að tómum kof- unum hjá þér, þú fylgdist vel með málefnum líðandi stundar, og alltaf gaman að líta við hjá þér og ræða um heima og geima, eins varst þú afar ættrækin og lést þig varða vel- ferð allra er tengdust þér á einn eða annan hátt. Ætíð tókst þú á móti okkur af hjartahlýju og velvilja og reyndist okkur vel í hvívetna og studdir okk- ur í því sem við tókum okkur fyrir hendur hverju sinni. Það fór ekki fram hjá neinum að þú varst góðum gáfum gædd, og hafðir metnað er skilaði sér áfram til þeirra er umgengust þig. Ég sem greinina skrifa man eftir eftirvæntingunni er vaknaði þegar Gróa frænka var væntanleg í heim- sókn, manni fannst að með henni bærust ferskir menningarvindar úr höfuðborginni. Hún átti það til að króa mann af og hlýða manni yfir eitt og annað sem hún vissi að mað- ur ætti að kunna skil á úr skóla- starfinu. Nú þegar ég lít til baka þykir mér ákaflega vænt um þessar stundir, þó svo að ég hafi á yngri árum stundum svitnað við að reyna að standa mig í þessum fyrirvara- lausu skyndiprófum. Eins notaði hún gjarnan tækifærið og upplýsti mann um margt fróðlegt og sagði sögur af merku fólki. Hún reyndist mér, konu minni og börnum alveg einstök og eigum við henni margt gott að þakka. Margar góðar stundir áttum við saman er við bjuggum á Grettis- götu. Þá leit hún oft inn til okkar, enda stutt frá heimili hennar á Karlagötu. Elsku frænka, við erum þakklát fyrir að hafa átt þig að og fengið að njóta hlýrrar og gjöfullar nærveru þinnar. Guð blessi þig. Faðir þinn Kristján samdi stöku til móður þinnar Margrétar Blön- dal. Okkur langar að láta hana fylgja með sem kveðju frá okkur, frænka góð. Þú hefur hlúð að þeirri list þekkist engin betri. Að gefa öðrum grænan kvist gefið hæst að vetri. Örlygur Atli Guðmundsson, Hólmfríður G. Magnúsdóttir, Tinna Eyberg Örlygsdóttir, Atli Eyberg Örlygsson. Gróa Kristjánsdóttir Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA HALLGRÍMSDÓTTIR, Hlíðarvegi 45, Siglufirði, lést föstudaginn 24. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki á sjúkrahúsi Siglufjarðar og starfsfólki á dvalarheimilinu Skálahlíð. Hrólfur Pétursson, Stefán Ómar Stefánsson, Elín Ósk Wiium, Hallgrímur Stefánsson, Bjarndís Mitchell, Pétur Hrólfsson, Sigurveig Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, VILHELMÍNA HJALTALÍN MÍNA, Garðvangi, áður til heimilis að Framnesvegi 12, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi föstudaginn 31. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Garðvangs fyrir nærgætna umönnun. Sigursteinn Jónsson, Rudolph Bruun Þórison, Áslaug Sturlaugsdóttir, Guðmunda Kristinsdóttir, Ólína Kristinsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Fyrirtækið verður lokað þriðjudaginn 11. september frá kl. 14.00 vegna útfarar ANDRÉSAR REYNIS KRISTJÁNSSONAR. MYNDBANDAVINNSLAN & HLJÓÐRITI Hátúni 6a, Reykjavík. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN JÓNSDÓTTIR, Framnesvegi 15, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, mánudaginn 3. september. Útför verður frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 11. september kl. 14.00. Eiríkur Eyfjörð, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Fyrirtækið verður lokað þriðjudaginn 11. september frá kl. 14.00 vegna útfarar ANDRÉSAR REYNIS KRISTJÁNSSONAR fyrrverandi forstjóra. FÖNIX ehf Hátúni 6a, Reykjavík. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa, STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR skipstjóra, Skála, Seltjarnarnesi, síðast til heimilis að Skólabraut 3. Guðrún Kristjánsdóttir Elísabet Stefánsdóttir, Kristján Jóhannsson, Kristjana Stefánsdóttir, Guðmundur Þorkelsson, Anna Stefánsdóttir, Reynir Hólm Jónsson, Unnur Vigfúsdóttir Duck, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.