Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 64
64 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
A
ga- og virðingarleysið
er að verða algjört í
íslensku samfélagi og
er kannski orðið það
fyrir löngu. Og það
eru ekki bara ungmennin sem
vaða uppi með hnefann á lofti eða
sparkandi í allt og alla, nei, það er
aldursskalinn upp úr, eins og hann
leggur sig. Sumt af ofbeldinu er þó
falið, að hluta til a.m.k., einkum í
röðum hinna eldri, í von um að það
sjáist ekki, enda er þeim ljóst að
enginn sómi er að þvílíkri hegðun.
Og ef það kynni að uppgötvast er
búið svo um hnútana að auðvelt sé
að draga slíkar ásakanir í efa, og
ekki er verra ef í sömu andrá er
hægt að kasta rýrð á uppljóstrar-
ann með einhverjum hætti, gera
lítið úr honum.
Nýjasta auglýsing Símans, um
Jesú Krist og lærisveinana við síð-
ustu kvöldmáltíðina, er af þessum
toga. Eins og að var stefnt olli hún
uppnámi víða og fékk þannig
mikla umfjöllun. Þar með var til-
ganginum líka náð. Skítt með að
þarna er verið að skopast með at-
burði í helgustu viku kristindóms-
ins, þar sem litlu síðar maður tók
eigið líf af skömm og fyrirlitningu
og annar var deyddur saklaus með
grimmilegustu aðferð sem þá tíðk-
aðist, krossfestingu. Það skiptir
engu. Aðalatriðið er að þetta selur.
Eða á að gera það. Sagan um gull-
kálfinn kemur óneitanlega upp í
hugann í þessu sambandi. Og voru
þeir reyndar fleiri en einn. Og orð
meistarans um perlur og svín ger-
ast líka áleitin; þau er að finna í 7.
kafla Matteusarguðspjalls.
Það er einkum tvennt sem opin-
berast í þessu tiltekna máli. Ann-
ars vegar það, að ekkert fær að
vera heilagt lengur, og svo hitt, að
gróðavonin skal vera eina miðið á
lífsgöngunni. Og það merkilega er,
að notuð er hin gamla regla, að
níðast á þeim sem ólíklegastur er
til að koma með andsvar, en láta
hina eiga sig. Ekki er nú kjark-
urinn mikill, verð ég að segja, ekki
beint reisn yfir þessum löðrungi.
Sr. Gunnar Jóhannesson sóknar-
prestur á Hofsósi kemur inn á
þetta atriði í bréfi, sem hann ritaði
á lokuðum umræðuvef Presta-
félags Íslands á fimmtudaginn var
og sem mig langar að birta hér
orðrétt úr, enda með leyfi hans til
þess. En hann segir:
Egill Helgason minnti eitt sinn
á það með sannri dæmisögu
hversu mjög kirkjan á í vök að
verjast. Í verslunarmiðstöð einni í
Bretlandi var tekið upp á því að
selja boli sem voru áletraðir með
eftirfarandi setningu: „Jesus is a
fuck.“ Biskup þess umdæmis sem
verslunarmiðstöðin tilheyrði frétti
af þessu ásamt prestum og því
fólki sem misboðið var vegna
þessa. Biskupinn hafði samband
við forsvarsmenn verslunarmið-
stöðvarinnar og þá verslun sem
seldi bolina. Málið var rætt svo að
segja hávaðalaust með fundi og
nokkrum símtölum og verslunin
tók til sín umkvartanir biskupsins
og tók bolina úr sölu. En litlu síðar
lak málið út í fjölmiðla og slík há-
vaðaalda reis í samfélaginu sem
hneykslaðist sáran yfir því að
kirkjan dirfðist að skipta sér af því
sem henni kom alls ekki við. Versl-
unin setti bolina aftur í sölu. Egill
Helgason klykkti út með því að
spyrja hvort versluninni hefði
dottið í hug að áletra bolina með
setningunni: „Mohammed is a
fuck.“
Þannig blása sumsé vindar nú á
tímum að því er virðist. Nái þeir
að styrkjast enn frekar mun það
enda með ósköpum. Það er ekkert
flóknara en svo. En það eru bara
ekki allir sem átta sig á því. Eða
eru menn virkilega að sækjast eft-
ir einhverju því hingað, sem er að
gerast í kringum okkur? O, ætli
það. En ef ekki, þá er rétti tíminn
núna að fara að hugsa í stað þess
að æða áfram stjórnlaust, með
krónuglampann í augum, blind-
andi alla heilbrigða sýn.
Fögnum því sem við eigum og
höfum, byggðu á orðum og verk-
um meistarans frá Betlehem og
Nasaret – friðnum í þessu landi
okkar, hinni innri ró, örygginu,
óttaleysinu – og gerum okkur far
um að hlúa að því og blessa, í stað
þess að klæmast með það í nafni
hins taumlausa frelsis, þar sem
allt er leyfilegt. Eða skyldum við
eiga von á annarri nauðgun af
svipuðu tagi? Og hverju svo?
Hið grátbroslega er, að fjöldi
vísindamanna hefur komist að
þeirri niðurstöðu eftir ítrekaðar
rannsóknir að rafmengun frá gsm-
símum sé einhver mesti ógnvaldur
heilsu fólks á 21. öldinni. En ekki
var minnst á þetta við langborðið
af skiljanlegum ástæðum.
Sigurður Þór Guðjónsson á
lokaorðið í þessum pistli mínum,
en á bloggsíðu sinni ritar hann
eftirfarandi:
Hvort sem menn eru trúaðir
eða ekki þá gera flestir sér ljóst að
hér á vesturlöndum, svo við ein-
beitum okkur nú bara að því
svæði, er píslarsagan kjarni þeirra
trúarbragða sem við aðhyllumst,
sumir kannski ekki nema að nafn-
inu til reyndar. Sú trú fjallar um
guð og eilíft líf, sálarheill manna,
æðstu verðmæti sem hægt er að
hugsa sér í augum hinna trúuðu og
flestir vantrúaðir eða trúleys-
ingjar, sem eru sæmilega að sér
og réttsýnir, eru meðvitaðir um
það að þetta er ein af stóru stund-
unum í sögu vestrænna manna frá
hugmyndalegu og menningarlegu
sjónarmiði. Að hafa slíkt í flimt-
ingum í auglýsingu sem eingöngu
er til þess að selja vöru, sem auk
þess er afskaplega ómerkileg í
sjálfu sér að mínum dómi, finnst
mér bera vitni um bæði menning-
arleysi og áttavillu um verðmæti
yfirleitt. Tómhyggju af hárri
gráðu …
Áttavilla
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
„Frelsið er yndislegt, ég
geri það sem ég vil,“
hljómaði á útvarps-
stöðvunum um árið. Eitt
gleymdist að syngja um
í þeim texta: að allar
gjörðir okkar hafa af-
leiðingar. Sigurður
Ægisson leggur hér orð
í belg um nýjasta útspil
dýrkenda mammons
gamla.
FélagslífFéla slíf
Vitnisburðarsamkoma kl. 20
í umsjá Ragnars B. Björnssonar.
Lofgjörð og tónlistarkonan Jeni
Varnadeau kemur í heimsókn.
Kaffi og samvera eftir samkomu.
Allir velkomnir!
Fríkirkjan Kefas
Fagraþingi 2a v/ Vatnsendaveg
www.kefas.is
Sálarrannsóknarfélag
Íslands,
stofnað 1918,
sími 551 8130,
Garðastræti 8, Reykjavík.
Huglæknarnir:
Hafsteinn Guðbjörnsson,
Ólafur Ólafsson,
Kristín Karlsdóttir.
Miðlarnir:
Anne Pehrsson,
Guðrún Hjörleifsdóttir,
Sigríður Erna Sverrisdóttir,
Skúli Lórenzson og
Þórunn Maggý Guðmundsdóttir
starfa hjá félaginu og bjóða upp
á einkatíma.
Hópastarf - Bæna- og þróunar-
hringir eru á vegum félagsins.
Uppl., fyrirbænir og bókanir í
síma 551 8130. Opið mán. frá kl.
9.30-14.00, þri. frá 13.00-18.00,
mið.-fös. frá kl. 9.30-14.00.
www.srfi.is
srfi@srfi.is
SRFÍ.
Samkomur
Föstudaga kl. 19.30.
Laugardaga unglingastarf
kl. 20.00.
Sunnudaga kl. 11.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Samkoma í dag kl. 16.30
í safnaðarheimili Grensáskirkju.
Thomas Jan Stankiewics predik-
ar. Mikil lofgjörð, vitnisburðir og
fyrirbænir.
Kynnt verður námskeið sem
haldið verður dagana 12.-14. okt.
á vegum Toronto Airport Christ-
ian Fellowship um ,,Að dvelja í
nærveru Drottins”.
Öll samkoman fer fram á
íslensku og ensku. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
SALT
Kristið samfélag
Háaleitisbraut 58-60, 3 hæð.
Samkoma í dag kl. 17.
Ræðumaður Bill Jessup, söngur
Jeni Varnadeau.
Alfa hefst þriðjud. 11. sept. kl. 19.
Allir velkomnir.
Kl. 11:00 Samkoma.
Kennsla fyrir alla aldurshópa.
Högni Valsson kennir, lofgjörð
og fyrirbæn. Létt máltið að sam-
komu lokinni.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kl. 18:30 Bænastund.
Kl. 19:00 Samkoma.
Björg Davíðsdóttir segir okkur
frá dvöl sinni í Kenýa. Söng-
konan Jeni Varnadeau heim-
sækir okkur og tekur lagið.
Lofgjörð, fyrirbænir og sam-
félag í kaffisal á eftir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Skráning hafin á Lækningardaga
www.vegurinn.is
Íslenska Kristkirkjan,
Fossaleyni 14
Barnastarfið hefst að nýju
kl.11 með fjölbreyttri dagskrá.
Einnig er fræðsla fyrir fullorðna.
Samkoma kl. 20 með mikilli
lofgjörð og fyrirbænum. Friðrik
Schram predikar.
Samkoma á Eyjólfsstöðum á
Héraði kl.20.
Þriðjudagur: Kynning á Alfa
námskeiðinu vinsæla kl. 20.
Ókeypis kaffiveitingar.
Miðvikudagur: Bænastund
kl. 20.
Fimmtudagur: Bænastund
kl.16 fyrir innsendum
bænaefnum.
Föstudagur: Samkoma fyrir
ungt fólk kl. 20.
www.kristur.is.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
Gleðilega páskahátíð!
Samkoma í dag kl. 20.
Umsjón: Ester Daníelsdóttir og
Wouter van Gooswilligen.
Heimilasamband fyrir konur
mánudag kl. 15.
Fatabúðin í Garðastræti 6
er opin alla virka daga kl. 13-18.
Mikið úrval af góðum fatnaði.
English service at 12:30pm.
Entrance from the main door.
Everyone Welcome.
Almenn samkoma kl. 16:30.
Ræðum. Hafliði Kristinsson,
fjölskyldu og hjónaráðgjafi.
Gospelkór Fíladelfíu leiðir
lofgjörð. Barnakirkja fyrir 1-13
ára. Allir eru hjartanlega
velkomnir. Bein úts. á Lindinni
og www.gospel.is. Samkoma á
Omega frá Fíladelfíu kl. 20:00.
filadelfia@gospel.is
Samkomur í dag kl. 16.30.
Gunnar Þorsteinsson predikar.
Þriðjud. Samkoma kl. 20.00.
Miðvikud. Bænastund kl. 20.00.
Fimmtud. Unglingar kl. 20.00.
Laugard. Samkoma kl. 20.30.
www.krossinn.is
HUGVEKJAFRÉTTIR
FEMÍNISTAFÉLAG Íslands
heldur fyrsta Hitt vetrarins þriðju-
daginn 11. september næstkomandi
kl. 20 á Bertelstofu Thorvaldsen
bars.
Þar munu Jóhanna Sigurðardótt-
ir félagsmálaráðherra og Kristín
Ástgeirsdóttir, nýskipuð fram-
kvæmdastýra Jafnréttisstofu, halda
stutt erindi. Að framsöguerindum
loknum er opnað fyrir umræður, en
dagskráin stendur í tvo tíma.
Fundarstýra er Auður Magndís
Leiknisdóttir, talskona Femínista-
félags Íslands.
Í fréttatilkynningu segir að á
Hittinu verði ráðherra jafnréttis-
mála og framkvæmdastýra Jafn-
réttisstofu boðnar velkomnar til
starfa en verði um leið spurðar
hvernig þær hyggist vinna að jafn-
rétti kynjanna, hvaða verkefni þær
vilja setja í forgang og hvert þær
sæki innblástur í starfi sínu að
jafnrétti kynjanna.
Hitt Femínistafélags Íslands eru
haldin mánaðarlega yfir vetrartím-
ann. Þau eru vettvangur fyrir fem-
ínista af báðum kynjum til að
skiptast á skoðunum og ræða það
sem er á döfinni hverju sinni.
Hitt Fem-
ínistafélags
Íslands
Fréttir í tölvupósti