Morgunblaðið - 09.09.2007, Qupperneq 66
66 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Á mánu-daginn tók Síminn
form-lega í notkun
farsíma-kerfi fyrir þriðju
kyn-slóð far-síma (3G). Hún
getur flutt mun meira af
gögnum en eldri kyn-slóðirnar
tvær. M.a. er hægt að horfa á
við-mælendur sína um leið og
þeir tala saman, sem nýtist
heyrnar-lausum mjög vel. Nú
geta þeir átt sím-töl á sínu
móður-máli, tákn-máli.
Síminn og Félag
heyrnar-lausra hafa gert með
sér samstarfs-samning sem
felur í sér að allir með-limir
félagsins auk heyrnar-lausra
grunn-skóla-barna á
höfuðborgar-svæðinu fá 3G
far-síma sér að
kostnaðar-lausu.
Auglýsinga-herferð Símans
vegna 3G-símans skartar
Jesú og Júdasi í
aðal-hlutverkum, og hefur hún
vakið mikil við-brögð og heitar
um-ræður í net-heimum.
Síminn býður upp á 3G far-síma
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nú geta heyrnar-lausir talað tákn-mál í far-síma.
Ítalski tenór-söngvarinn Luciano
Pavarotti er látinn. Pavarotti var 71
árs og lést á heimili sínu í Modena af
völdum krabba-meins í bris-kirtli.
Hann var lagður á sjúkra-hús í byrjun
ágúst, en út-skrifaður 2 vikum síðar.
Þetta kemur fram á frétta-vef BBC.
Pavarotti söng síðast opin-berlega í
upp-hafi síðasta árs er hann kom
fram á opnunar-hátíð
Vetrar-ólympíu-leikanna í Tórínó á
Ítalíu. Hann gekkst undir upp-skurð
vegna krabba-meins í júlí á síðasta
ári og hefur ekki sungið opinber-lega
síðan.
Pavarotti
er látinn
REUTERS
Luciano Pavarotti
Fyrsti inn-flytjandinn sest á þing hér á
landi á næsta ári. Katrín
Jakobsdóttir, vara-formaður og
þing-maður Vinstri grænna, fer í
fæðingar-orlof um ára-mót og í
hennar stað koma tveir nýir
þing-menn VG á þing. Fyrst Steinunn
Þóra Árnadóttir og síðan Paul
Nikolov. Paul sem er fæddur í
Banda-ríkjunum árið 1971 en hefur
verið bú-settur hér á landi frá árinu
1999. „Ég hef lagt hart að mér við að
móta inn-flytjenda-stefnu flokksins
og ég ætla að gera mitt besta til að
koma þeim málum áleiðis í þinginu.“ Paul Nikolov
Inn-flytjandi
á þing
Tölvu-fyrirtækið Microsoft
segir Ísland vera eitt af
þremur löndum sem koma til
greina undir net-þjóna-bú og
um leið þróunar-deild. Ólafur
Ragnar Grímsson, for-seti
Íslands, stað-festi þetta á
ráð-stefnu um orku-mál sem
Glitnir stóð fyrir í New York á
miðviku-daginn.
Ólafur Ragnar hitti Bill
Gates að máli á
leiðtoga-ráðstefnu Microsoft í
Skot-landi fyrr á árinu og
segir Ólafur Ragnar að hann
hafi bent Gates á mögu-leika
Íslands vegna þeirrar hreinu
orku sem landið hefur upp á
að bjóða. Eftir það setti
Microsoft Ísland meðal þeirra
9 landa sem fyrir-tækið mat
sem væn-lega staði fyrir
öfl-uga starf-semi, bæði á
sviði upp-setningar net-þjóna
og hugsan-lega þróunar- og
rann-sóknar-seturs.
Í loka-vali
Microsofts
Íslenska kvik-myndin Veðra-mót í leik-stjórn Guðnýjar
Halldórsdóttur var frum-sýnd um land allt á föstudags-kvöld.
Myndinni var víðast vel tekið, en hún fjallar um 3
byltingar-sinna sem taka að sér stjórn vist-heimilis fyrir
vandræða-unglinga. Með aðal-hlutverk fara þau Hilmir Snær
Guðnason, Tinna Hrafnsdóttir, Atli Rafn Sigurðsson og
Jörundur Ragnarsson.
Atli Rafn, Hilmir Snær og Tinna í hlut-verkum sínum.
Veðra-mót frum-sýnd
Hryðju-verkum af-stýrt
Danska lög-reglan kom í
veg fyrir hryðju-verk á
þriðju-daginn með því að
hand-taka 8 menn sem talið
er að tengist al-Qaeda. Þeir
höfðu safnað
hættu-legu
sprengi-efni í
þétt-býlu
íbúðar-hverfi.
Mennirnir 8 eru frá
Afganistan, Pakistan,
Sómalíu og Tyrklandi.
Þeir hafa allir búið
lengi í Danmörku og
urðu þar rót-tækir íslamistar.
Daginn eftir af-stýrðu þýsk
yfir-völd hryðju-verkum með
því að hand-taka 3 íslamska
öfga-menn sem undir-bjuggu
árásir á flug-velli og
skemmti-staði sem eru
vin-sælir meðal
Banda-ríkjamanna.
Lofa að hætta vopna-smíði
Bandaríkja-menn náðu um
síðustu helgi samkomu-lagi
við Norður-Kóreumenn um
að hinir síðar-nefndu myndu
hætta allri smíði
kjarnorku-vopna fyrir
árs-lok.
Norður-Kóreu-menn
fá í staðinn
efnahags-lega
að-stoð, en
efnahags-ástandið í
landinu er mjög
slæmt. Þeir fá líka
loforð um að öryggi ríkisins
verði ekki ógnað.
Banda-ríski
samninga-maðurinn
Christopher Hill sagði að
endan-lega yrði gengið frá
samkomu-laginu í lok
september.
Er-lent og stutt
Christopher Hill
Ísland vann Austur-ríki
Á miðvikudags-kvöld keppti
Ísland á móti Austur-ríki í
B-deild Evrópu-móts
lands-liða í körfu-knatt-leik.
Ísland vann 91:77, og endaði
því í 3. sæti riðilsins. Þetta
var loka-leikur liðanna í
keppninni, en Ísland hefur
unnið 3 leiki í röð og er þetta
4 sigur liðsins í riðlinum.
Fjölnir vann Fylki
Fjölnir úr Grafar-vogi kom á
óvart í þegar liðið sigraði
Fylki, 2:1, í fram-lengdum leik
í undan-úrslitum
bikar-keppninnar í
knatt-spyrnu á
Laugardals-vellinum. Fjölnir
eru í 3. sæti í 1. deild en
Fylkir í 4. sæti úrvals-deildar.
Fjölnir mætir því
Íslands-meisturum FH í
úrslita-leik keppninnar.
Íþróttir
Netfang: auefni@mbl.is