Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 71

Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 71 Krossgáta Lárétt | 1 skjóta af byssu, 4 sigrar, 7 talaði um, 8 dulu, 9 spil, 11 duglega, 13 syrgi, 14 brotlegur, 15 vinna, 17 spil, 20 geymir, 22 yfirhafnir, 23 mæti, 24 rás, 25 deila. Lóðrétt | 1 viðburðarás, 2 fornritið, 3 lengdarein- ing, 4 höggva, 5 fuglar, 6 rödd, 10 núningshljóð, 12 ílát, 13 illgjörn, 15 þýð- gengur, 16 niðurgang- urinn, 18 skerðum, 19 ráfa, 20 þroska, 21 hljóm- ur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skýrleiki, 8 totum, 9 rokið, 10 ann, 11 forað, 13 ausur, 15 moska, 18 sinna, 21 tóm, 22 græða, 23 andar, 24 aumingjar. Lóðrétt: 2 kætir, 3 rómað, 4 eyrna, 5 kokks, 6 stef, 7 úðar, 12 auk, 14 uxi, 15 magi, 16 skæru, 17 ataði, 18 smaug, 19 nudda, 20 aurs. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Mannleg reynslusaga hefur áhrif á þig. Þig langar til að hjálpa öðrum til að ná markmiðum sínum, sérstaklega ef þau eru skemmtileg. (20. apríl - 20. maí)  Naut Allir eru að gera það sem þeir halda að þeir eigi að gera. Þ.e.a.s. allir nema þú. Þú gerir bara það sem þig langar til. Ekki af því að þú heldur að það sé eitthvert vit í því, þú ræður bara ekki við þig. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þér er umhugað um stöðu vissr- ar manneskju í lífi þínu. Hún er á uppleið eða niðurleið, jafnvel hvort tveggja, en eitthvað þarf að breytast. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Bíddu í 10 sekúndur með að svara munnlega, skriflega, rafrænt. Þú gætir séð eftir því sem þú segir, en ekki því sem þú segir ekki. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nærðu sköpunargáfuna með því að gefa henni rými til að anda. Hugmyndir þurfa að þroskast áður en þú dæmir þær góðar eða slæmar. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert tískutýpan, til í að gleypa við helstu tískustraumum. En þú gerir það ekki alltaf umhugsunarlaust og það á við í dag. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Gjöf þín frá himnunum er lækn- ingakraftur. Þess vegna tekur þú eftir öllu sem fer úrskeiðis í heiminum. Kannski þarfnast slæmar aðstæður bara ástar þinnar? (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það eru galdrar í góðu til- finningunum þínum, því þú deilir þeim og þannig margfaldast þær. Ást þín á einni manneskju gerir þig t.d. elskulegri við alla aðra. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Til að komast inn í takt dags- ins skaltu hægja á þér um helming. Ekki gera tíu hluti heldur þrjá – í afslöppuðum gír – og árangurinn verður betri. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú þekkir gullið andartak þeg- ar þú sérð það. Og hvenær er það? Þegar þú ert ekki að horfa. Það er í lagi. Það er nóg að trúa því að það sé þar. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Samskipti eru leyndarmál vel- gengni þinnar núna. En þeim mun meiri sem velgengnin er, þeim mun minna skipta orðin máli. Framkoman og tónninn segja allt. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ef þú ert sífellt að greina allar að- stæður missir þú af kraftaverkinu. Og ef þú ert of bókstaflegur missir þú af brand- aranum. En á það nokkuð við um þig? stjörnuspá Holiday Mathis 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rd7 5. Rf3 Rgf6 6. Rxf6+ Rxf6 7. Be3 Rd5 8. Bd2 c5 9. dxc5 Bxc5 10. Bd3 Dc7 11. De2 O-O 12. O-O-O Rf4 13. Bxf4 Dxf4+ 14. Kb1 f6 15. Bc4 Kh8 16. Bxe6 Bxe6 17. Dxe6 Bxf2 18. Hhf1 Had8 19. Hd7 Hfe8 Staðan kom upp á hollenska meistaramótinu sem fór fram í Hil- versum í sumar. Stórmeistarinn Friso Nijboer (2606) hafði hvítt gegn alþjóðlega meistaranum Mar- tijn Dambacher (2466). 20. De7! og svartur gafst upp enda fátt til varn- ar þar sem drottning hvíts og hrók- ur eru friðhelg vegna mátsins upp í borði. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Baráttan um spaðann. Norður ♠Á543 ♥G ♦K10 ♣KD9854 Vestur Austur ♠D96 ♠K72 ♥D92 ♥Á8753 ♦DG943 ♦8752 ♣G2 ♣10 Suður ♠G108 ♥K1064 ♦Á7 ♣Á763 Suður spilar 5♣. Þetta spil snýst um spaðalitinn – ef sagnhafi þarf að opna spaðann gefur hann tvo slagi á litinn, en aðeins einn ef vörnin neyðist til að hreyfa litinn fyrst. Frönsku bræðurnir Olivier og Thomas Bessis voru í AV og vörðust fimlega. Olivier kom út með tígul- drottningu, sem sagnhafi drap heima, tók tvisvar tromp og tígulkóng. Spilaði síðan hjartagosa úr borði. Thomas dúkkaði hiklaust og sagnhafi lét gos- ann fara. Olivier fékk slaginn á drottn- inguna og spilaði hjartaníu til baka. Sagnhafi henti spaða úr borði, tilbú- inn til að gefa slag á hjartaás og fría K10 í leiðinni. En Thomas lét það ekki viðgangast; hann lét aftur smátt hjarta og gaf suðri ódýran slag á hjartatíuna! Sá slagur kom tvöfaldur til baka þegar sagnhafi neyddist til að opna spaðann. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Þekktur listamaður hefur opnað yfirlitssýningu í SanFrancisco. Hvað heitir hann? 2 Kynning Símans á 3. kynslóð farsíma hefur vakiðmikla athygli. Hvað heitir forstjóri fyrirtækisins? 3 Hverjir áttu vinningstillöguna í samkeppni um end-urbyggingu í Kvosinni í kjölfar brunans þar? 4 Kvikmyndin Veðramót var frumsýnd um þessa helgi.Hvað heitir leikstjóri myndarinnar? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Verslunarhelgin reyndist ekki vera mesta ferðahelgin í ár. Hvaða helgi var það? Svar: Blíðviðr- ishelgin 22.-24. júní. 2. Yfirhershöfðingi NATO heimsótti Ís- land. Hvað heitir hann? Svar: John Craddock. 3. Haldið var upp á 20 ára af- mæli Háskólans á Akureyri. Hver er rektor HA? Svar: Þorsteinn Gunnarsson. 4. Nýr íslenskur kvikmynda- og leikhúsþáttur er að hefja göngu sína í Sjónvarpinu. Hver stýrir honum? Svar: Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Spurter… ritstjorn@mbl.is dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR ALÞJÓÐLEGT stigamót fór fram á veg- um tyrkneska dansíþróttasambandsins (TDSF) í samstarfi við Hið Alþjóða Áhugamannasamband í dansi (IDSF) 30. ágúst síðastliðinn. Mótið var haldið í Antalya í suðurhluta Tyrklands. Antalya er fallegur staður og sólríkur. Tuttugu pörum var boðin þátt- taka í mótinu, hverju fyrir sitt land, einu pari frá Íslandi var boðið að taka þátt í því, Íslandsmeisturum Ungmenna F, þeim Aðalsteini Kjartanssyni & Rakel Guðmundsdóttur frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Með þeim Aðalsteini og Rakel ferðuðust hjónin Jónas Dalberg, varaformaður Dansíþróttasambands Ís- lands, og Ásrún Kristjánsdóttir dans- kennari. Mikill hiti var í Tyrklandi og voru því aðstæður gjörólíkar því sem íslenska íþróttafólkið þekkir. Þrátt fyrir það voru þau tilbúin í keppni eftir nokkurra tíma undirbúning daginn sem keppnin fór fram. Ólíkt íslenskum danskeppnum fór keppnin fram um kvöld og lauk henni í raun ekki fyrr en klukkan 3 eftir mið- nætti. Keppnisstaðurinn var hvort tveggja óvenjulegur og mjög skemmti- legur, en keppnin fór fram í glerpýramída gaman þeim þætti að horfa á þau dansa. Þessi stuðningur hafði góð áhrif og komust fulltrúar Íslands í úrslit og end- uðu þar í 6. sæti eftir harða keppni við parið í 5. sæti, þau Andrei Vavilov & Terje Piho frá Eistlandi. Pörin sem dönsuðu bæði í úrslitum og undan- úrslitum eru pör sem eru meðal þeirra bestu í sínu heimalandi og jafnvel heim- inum öllum. Aðalsteinn og Rakel komust upp fyrir t.d. Jonathan Naslund & Kristina Havatova frá Svíþjóð (10. sæti) og Alexander Lars & Elena Bokoreva frá Noregi (11. sæti) og voru því með bestan árangur af keppendum af Norð- urlöndunum. Sigurvegararnir, Dmitry Pugachev & Uliana Fomenko, eru frá Rússlandi og er talað um að þau séu par númer 4 þar í landi. Þau eru einnig heimsmeistarar Ungmenna í 10 dönsum (Youth 10 Dance). Annað sætið fór til Litháens, það þriðja til Þýskalands og það fjórða til Moldavíu. Taldi þetta mót til stiga á stigalista IDSF og hækkuðu Aðalsteinn og Rakel sig um rúm 2.500 sæti á þeim lista. og því var það himinninn sem skreytti loftið fyrir ofan dansgólfið. Að sögn Að- alsteins og Rakelar var aðstaða fyrir keppendur ágæt og góður andi í hópi keppenda. Mörg sterk pör voru mætt til keppni og voru 3 af 24 sterkustu pörunum á stigalista IDSF mætt til leiks. Dansaðar voru 5 umferðir, auk milliriðils eftir fyrstu umferðina, fyrir þau pör sem ekki komust strax inn í aðra umferð. Flest pörin voru tyrknesk en þetta var fyrsta alþjóðlega mótið sem haldið er í Tyrk- landi. Tyrkneska dansíþróttasambandið var stofnað árið 2004 og er dansíþróttin í Tyrklandi því mjög ung. Flest tyrknesku pörin duttu út snemma í keppninni. Þegar komið var nær úrslitum og líða tók á kvöldið var farið að fækka mjög í keppendahópnum og tíndust pörin út í áhorfendasalinn til að horfa á og styðja þau sem eftir voru. Mörg þeirra para sem ekki komust inn í 12 para undanúrslit studdu íslenska parið af miklum móð og má segja að íslenska parið hafi verið einna vinsælasta parið hjá áhorfendum. Margir keppendur og áhorfendur komu á milli umferða á keppendasvæðið til þess eins að segja Aðalsteini og Rakel hversu Aðalsteinn og Rakel dönsuðu til úrslita Morgunblaðið/Jón Svavarsson Dansparið Aðalsteinn Kjartansson og Rakel Guð- mundsdóttir.Eftir Jóhann Gunnar Arnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.