Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 72

Morgunblaðið - 09.09.2007, Page 72
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Breska hljómsveitinJethro Tull heldurtvenna tónleika íHáskólabíói, 14. og 15. september næstkomandi, en sveitin er ein sú sögu- frægasta í breskri rokksögu. Hún hefur starfað óslitið í fjóra áratugi undir styrkri stjórn leiðtoga síns og stofn- anda, Ian Anderson, sem er ekki síst frægur fyrir magnaðan flautuleik. Þó sveitin sé að koma hingað í annað sinn, kom fyrst 1992, er þetta þriðja heimsókn Andersons, enda hélt hann tónleika í Laugardalshöll í maí 2006. Ian Anderson er afslappaður að vanda þegar ég hringi í hann til Bretlands og við rifjum upp matarboð í sveitinni vestur af Lond- on fyrir nokkr- um ár- um. Hann segir sveitina vera í stuttri pásu um það leyti sem við spjöllum saman, en Jethro Tull er búin að vera á ferðinni frá því í mars sl. „Við höfum þó tekið þetta af skynsemi, spilum á tvennum til þrennum tónleikum í viku fram til jóla og ætlum að taka frí í októ- ber.“ Rokkið rokkar Sem fyrr segir hefur sveitin verið að í fjöru- tíu ár, kom fyrst saman undir nafninu Jethro Tull fyrir fjórum áratugum, en hún sló fyrst í gegn 1969 og oft eftir það; hún hefur fallið í gleymsku um stund en ævinlega risið upp að nýju. Í mars sl. kom út safnplatan The Best of Acoustic Jethro Tull, 24 laga safn af órafmögnuðum lögum af plötum sveitarinnar og eins tónleikalög. Aðspurður um hvort enn sé jafn gaman að spila og forð- um segir Ian Anderson að rokkið sé betra en önnur störf, þó vitanlega geti það verið þreytandi stundum. „Það er eins og með alla vinnu, maður verður þreyttur á því sem maður er að gera árum saman, hvort sem það er að vinna í banka eða vera kvensjúkdómalæknir. Það er þó á hreinu að það starf sem ég stunda í dag er það besta sem ég get hugsað mér. Víst er það erfitt, maður þarf að vera í 100% formi á hverjum tónleikum, vera einbeittur og leggja sig allan í það sem maður er að gera. Vera eins og Schumacher á hverjum tónleikum, það dugir ekki minna, til að halda stemmningunni í þá tvo tíma sem við erum á sviðinu,“ segir hann og bætir við að í þau fjörutíu ár sem hann hafi verið í rokkinu hafi hann að- eins þurft að sleppa úr fimm tónleikum, sem verði að teljast harla gott. Jethro Tull er ein þeirra hljómsveita sem láta sér ekki nægja að lifa á fornri frægð og merkilegt er til að líta hvað sveitin hefur náð eyrum fólks hvað eftir annað í þá áratugi sem hún hefur starfað. Ian Andreson lætur og engan bilbug á sér finna og segir þá félaga vera með nýja breiðskífu í smíðum meðfram því sem þeir spila á tónleikum. Eins og getið er sendi hún frá sér breiðskífu í vor, safnplötu af óraf- mögnuðum upptökum, en sú skífa sem nú er í smíðum er með meira rafmagni, „en ég spila alltaf á órafmagnað hljóð- færi, það má ekki gleyma því“, segir hann og vísar til flaut- unnar sem hefur verið eitt hans helsta einkenni í gegnum ár- in. „Við erum búnir að setja saman átta lög og stefnum að því að ljúka við plötuna á næsta ári, ætli það verði ekki í jan- úar eða febrúar.“ Straumar og stefnur Aðspurður um hvernig tónlist verði á skífunni segir hann að það komi væntanlega fáum á óvart sem þekkja sveitina. „Ég hef gaman af að blanda saman stílum, smá djass, smá klassík, smá þjóðlagatónlist og smá rokki, eiginlega öllu nema blús, enda er hann ekkert fyrir mig, ég er ekki svartur Bandaríkjamaður,“ segir hann og hlær við. „Við blöndum líka smá arabískum og indverskum áhrifum í þetta býst ég við, það er erfitt að setja á tónlistina merkimiða og það finnst mér alltaf gott.“ Að þessu sögðu kemur ekki á óvart þegar Anderson segist aðallega hlusta á þjóðlega tónlist um þessar mundir. Þjóðlega tónlist frá Norður-Evrópu, Arabíuskaga, Indlandi, Írlandi, Finnlandi og Rússlandi telur hann upp og bætir síðan við eft- ir smá þögn að hann hlusti eiginlega á alla þjóðlega tónlist um þessar mundir, nema tónlist úr Karíbahafi, frá Hawaii og Suður-Ameríku að ógleymdri norður-amerískri kántrýtónlist sem hann velur ekki góð orð um. Ekki rokksveit Mér finnst gaman þegar fólk er að steypa saman gamalli hefð og nýrri, spila þjóðlega tónlist á nútímalegan hátt, en það hefur alltaf verið litið hornauga hér í Bretlandi. Um þessar mundir eru að koma fram á sjónarsviðið ungir tónlist- armenn sem oftar en ekki eru börn þeirra sem ruddu braut- ina í þjóðlegri tónlist á árum áður. Menn breyta ekki nótum eftir Mozart og Beethoven, en þjóðlegu tónlistina er hægt að endurnýja og endurvekja eins og hentar hverjum tíma.“ Þó vel megi taka undir það að tónlist Jethro Tull hafi verið fjölbreytt í gegnum árin hefur sveitin nú tekið spretti í rokk- inu líka. Anderson játar því, þó hann segist aldrei hafa verið sérstaklega hrifinn af rokkinu, en vissulega hafi sveitin notað rokkfrasa í mörgum lögum sem hún hafi tekið upp og gerir enn. „Við erum þó ekki rokksveit og höfum aldrei verið, en það er þáttur í því sem við erum að gera.“ Blanda af gömlu og nýju Jethro Tull er að koma hingað öðru sinni en þetta verða þriðju tónleikarnir sem Ian Anderson heldur hér á landi, að sólótónleikum meðtöldum. Hann segir að tónleikadagskrá sveitarinnar að þessu sinni verði blanda af gömlum og nýjum lögum. „Við spilum lög í öllum okkar stílum, en ekki af öllum plötunum,“ segir hann og bætir við að dagskráin sé breytileg og oft ákveðin á sviðinu. „Við spilum gömul og góð lög, enda finnst okkur það gaman, en svo er líka gaman að spila eitt- hvað sem fólk hefur ekki heyrt eins oft. Ég er nú einu sinni í þessu til að skemmta sjálfum mér fyrst og fremst, enda skemmtir maður ekki öðrum annars. Mér finnst að maður eigi ekki að vera eins og glymskratti sem spilar bara fyrir peningana og gefur ekkert af sér til áheyrenda. Það er ekki gaman að standa á sviðinu nema maður sé að taka smá áhættu, komi fólki á óvart og geri kröfur til sjálfs sín,“ segir Anderson og greinilegt er að þetta er honum hjartans mál. Sem áður er getið kemur Ian Anderson hingað í þriðja sinn. Hann ætlaði upphaflega að koma með konu sína með sér, enda segist hann vera búinn að lýsa landinu vel fyrir henni, en þegar á reyndi komst hún ekki með. „Ég kem með hana með mér í næstu ferð til Íslands, enda er ég búinn að lýsa því fyrir henni hvað landið sé magnað, það er enginn staður því líkur í heiminum og menningin einstök. Ég verð að fá hana hingað til að sanna mál mitt. Það tekst næst.“ Breski tónlistarmaðurinn Ian Anderson kemur hingað með hljóm- sveit sinni, Jethro Tull, í næstu viku og leikur á tvennum tónleikum. Hann er að koma hingað í fjórða sinn og lofar Ísland og íslenska menningu. Litríkur Ian Anderson, leiðtogi Jethro Tull. Gaman að taka smá áhættu Eins og Springsteen hefði hljómað ef hann hefði alist upp í krakkbæli … 76 » reykjavíkreykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.