Morgunblaðið - 08.10.2007, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu sætunum í helgar-
ferð til Prag 11. október. Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslend-
inga sem fara þangað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum.
Gríptu þetta einstaka tækifæri því haustið er frábær tími til að
heimsækja borgina. Gisting einnig í boði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Prag
11. október
frá kr. 19.990
Helgarferð - allra síðustu sæti
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð, út 11. okt. og
heim 14. okt.
JÓHANNES Gijsen, biskup kaþ-
ólskra á Íslandi, messaði í Dóm-
kirkju Krists konungs á Landa-
kotshæð í gær. Guðsþjónustan
markaði formleg endalok 12 ára
embættissetu biskupsins hér í
Reykjavík, en hann var skipaður í
embættið 24. maí 1996. Hann lætur
nú af störfum fyrir aldurs sakir.
Að messunni lokinni, um hádegis-
bilið í gær, fór fram móttaka í
safnaðarheimilinu í Landakoti þar
sem starfsmenn kirkjunnar og
safnaðarmeðlimir kvöddu biskup-
inn.
Að sögn Jürgens Jamin sóknar-
prests er enn óvíst hver tekur við
embættinu en beðið er eftir yfir-
lýsingu þess efnis frá Vatíkaninu
sem vænta má á næstu dögum.
Í viðtali við októberútgáfu kaþ-
ólska kirkjublaðsins segir Gijsen
að árin sín tólf á Íslandi hafi verið
þau gleðilegustu í lífi sínu. Þar
kemur fram að hann hyggist nú
flytja aftur á fæðingarstað sinn í
Hollandi og dvelja þar í húsi sem
tilheyrir reglu Karmelsystra, sem
einnig starfa á Akureyri, en
biskupinn heldur út á fimmtudag.
Jóhannes
Gijsen lætur
af störfum
Vatíkanið tilkynnir bráðlega um skipan nýs Reykjavíkurbiskups
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Guðsmenn Prestarnir Ágústínus Georg, Jürgen Jamin, sóknarprestur í Kristskirkju, Húbert Óremus og Jakob
Rolland, kanslari biskupsdæmisins, voru í móttökunni í gær. Jóhannes Gijsen er þriðji frá vinstri á myndinni.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
LÖGREGLUMENN á Suðurnesjum urðu að
grípa til úðavopna í gærmorgun þegar hópslags-
mál brutust út í porti við Tjarnargötu, rétt við
Hafnargötu, í Reykjanesbæ. Allajafna reynir lög-
regla að komast hjá því að grípa til slíkra aðgerða
en þar sem um óstýrilátan 35-40 manna hóp var
að ræða varð ekki hjá því komist. Allmargir
þurftu að leita aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja, aðallega til að láta skola úðann úr
augum.
Í fjölmiðlum er oft sagt að lögregla noti tára-
gas í slíkum aðgerðum en það segir Jón Bjart-
marz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra,
rangt. Ekki er um gas að ræða heldur piparúða
og er honum yfirleitt dreift í formi vökva, dufts
eða reyks. „Við notum úðabrúsa og þeir eru not-
aðir á einstaklinga. Það er hins vegar ekki verið
að „gasa“ einhver svæði,“ segir Jón og bætir við
að úðavopn hafi verið í notkun hjá lögregluemb-
ættum á Íslandi í rúman áratug. Ákveðnar vald-
beitingarreglur gilda um hvenær lögreglu eru
heimilað að nota úðavopn og réttlætanleg ástæða
þarf að liggja fyrir.
Ljóst þykir að nægileg ástæða var fyrir hendi í
Reykjanesbæ þegar lögregla var kölluð út vegna
hópslagsmála á sjötta tímanum í gærmorgun. Þar
sem lögreglumenn voru uppteknir við önnur störf
í bænum voru fáir til að skakka leikinn og dróg-
ust þeir fljótlega inn í atburðarásina. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum var
slegist á nokkrum stöðum, fólk á öllum aldri og
bæði Íslendingar og útlendingar. Vel gekk að
leysa slagsmálin upp eftir að úðanum var beitt og
tók aðgerðin aðeins um hálftíma.
Jón segir úðavopn afar áhrifarík, sá er fyrir úð-
anum verður finnur fyrst og fremst fyrir miklum
óþægindum og er þannig gerður óvirkur. Hins
vegar eru það ekki aðeins brotamennirnir sem
verða fyrir úðanum því lögreglumenn lenda oftar
en ekki í því einnig og þurfa þá að láta skola úð-
ann úr augum í kjölfarið.
Hjá ríkislögreglustjóra er til skoðunar að taka
upp notkun svonefndra rafbyssa. Með þeim er
rafpílum skotið í brotamanninn sem lamast tíma-
bundið. Jón Bjartmarz segist hins vegar ekkert
geta sagt til um hvort rafbyssur komi til með að
leysa úðavopn af hendi. Ekki sé tímabært að
ræða notkun rafbyssa hér á landi.
Fyrst og fremst óþægindi
Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að grípa til úðavopna til að leysa upp hópslags-
mál í gærmorgun Slík vopn hafa verið í notkun hjá lögreglu í rúman áratug
Í HNOTSKURN
»Á milli 35 og 40 manns slógust í Reykja-nesbæ snemma á sunnudagsmorgun.
Að sögn lögreglu var mikill hiti í mönnum
en tildrög slagsmálanna eru ókunn.
»Engin var handtekinn vegna slagsmál-anna en í þeim tóku bæði þátt Íslend-
ingar og útlendingar, á öllum aldri.
»Engin slasaðist alvarlega en nokkrirþurftu þó að leita sér aðhlynningar.
AÐALSTJÓRN Íþróttabandalags
Akraness, þ.e. formenn allra aðild-
arfélaga bandalagsins og fram-
kvæmdastjórn þess, hefur ákveðið
að kæra háttsemi gjaldkera banda-
lagsins til lögreglunnar á Akranesi.
Stjórnin vill að sögn senda skýr
skilaboð út um að það sé algjörlega
óviðunandi að einstaklingur í laun-
uðu starfi eða í sjálfboðavinnu fyrir
íþróttahreyfinguna freistist til að
nýta almannafé til eigin nota. Rétt
er að taka fram að ekki er um að
ræða gjaldkera Knattspyrnufélags
ÍA, sem er aðeins eitt aðildarfélaga
þess.
Hefur greitt féð til baka
Fram kemur í yfirlýsingu að
gjaldkerinn hafi fyrir skömmu
upplýst formann bandalagsins um
að hann hafi tekið fjármuni frá
bandalaginu ófrjálsri hendi við
störf sín. Hann hefur nú greitt
bandalaginu til baka þá fjármuni
sem talið er að um sé að ræða. Í yf-
irlýsingunni segir enn fremur að
þetta sé mikið áfall fyrir sam-
starfsmenn gjaldkerans og íþrótta-
hreyfinguna. Annars hafi samstarf-
ið verið farsælt á annan áratug, en
starf í íþróttahreyfingunni sé sjálf-
boðastarf sem verði að byggjast á
trausti á milli manna.
Löggilt endurskoðunarfyrirtæki
mun á næstu dögum yfirfara öll
fjármál bandalagsins.
Gjaldkeri ÍA
kærður fyrir
fjárdrátt
Stjórnin vill senda
út skýr skilaboð
FÆKKA hefur þurft starfsfólki hjá
vinnumiðlun Vinnumálastofnunar á
höfuðborgarsvæðinu (VMST) vegna
hins góða ástands sem er á vinnu-
markaði, að sögn Hugrúnar Jó-
hannesdóttur, forstöðumanns hjá
VMST. Atvinnuleysi er í algjöru
lágmarki og um þessar mundir eru
um 700 manns á skrá hjá vinnu-
miðluninni. Hugrún segir að venju-
lega séu á bilinu 3.000-4.000 manns
á skrá þar, en starfsmenn eru um
30 talsins.
Hugrún segir að undanfarið hafi
þar verið gripið til hagræðingar og
meðal annars hafi ekki verið ráðið í
stöður þeirra sem hafi hætt.
Fækka vegna
góðs atvinnu-
ástands
♦♦♦
ÞÝSKI fjárhundurinn Gildewangen’s Istan var valinn
besti hundurinn á sýningu Hundaræktarfélags Íslands í
Reiðhöllinni í Víðidal um helgina. Hér hampa honum
Kenneth Edth dómari, Gunnlaugur Valtýsson, Elín
Þóra Eiríksdóttir, Hjördís Ágústsdóttir og Jóna Th.
Viðarsdóttir, formaður HRFÍ.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þýskur fjárhundur skaraði fram úr