Morgunblaðið - 08.10.2007, Page 42
42 MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Halloween kl. 5:30 - 8 - 10:25 B.i. 16 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Shoot’em Up kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50 - 6
Hairspray kl. 5:30 - 8
Knocked Up kl. 10:20 B.i. 14 ára
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (Síðustu sýn) 300 kr.
Halloween kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
SuperBad kl. 6 - 8 B.i. 12 ára
Chuck and Larry kl. 6 - 10:10 B.i. 12 ára
Sími 564 0000Sími 462 3500
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Sími 551 9000
Halloween kl. 6 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára
The 11th Hour kl. 6 - 8 - 10
Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Brothersom Man kl. 6 - 10
The Edge Of Heaven kl. 8
Frá gaurnum sem færði okkur The 40
Year Old Virgin og Knocked Up
Ver
ð aðeins
600 kr.
Vinsælasta kvikmyndin á íslandi í dag
“Skylduáhorf fyrir alla unglinga”
- Dóri DNA, DV
- J.I.S., FILM.IS
Dómsdagur djöfulsins!
Frá meistara Rob Zombie kemur ein svakalegasta mynd ársins!
Sló í gegn í
Bandaríkjunum
og fór beint á
toppinn
Missið ekki af þessari mögnuðu hryllingsmynd!
Stranglega bönnuð innan 16 ára
“Ferskur og fyndinn smellur”
- T.S.K., Blaðið
- H.J., MBL
Leonardo DiCaprio
kynnir
The 11th Hour
Það er okkar kynslóð sem fær að breyta heiminum.....
að eilífu
Heimildarmynd um vaxandi umhverfisvandamál og hvernig
mögulegt er að leysa þau á skynsamlegann máta.
SAGAN SEM MÁTTI EKKI SEGJA
eeee
- S.V., MBL
eeee
- R.H., FBL
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.G., Rás 2
eeee
- R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
eee
T.V. Kvikmyndir.is
eee
- J.I.S., Film.is
eee
„Skotheld skemmtun“
- T.S.K., Blaðið
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRTSÝÐUSTU
SÝN.
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Ver
ð aðeins
300 kr.
Hasar og adrenalín flæði frá upphafi til enda
Er autt pláss á vegg heima hjáþér? Veistu ekkert hvað þúgetur gert til að bæta úr
því? Ekki örvænta. Þú kaupir þér
bara efni hjá bólstrara, eitthvað
með svona tveggja lita blóma-
munstri og heftar efnið á blind-
ramma. Þetta hengirðu upp á vegg
fyrir ofan hálfrar milljónar króna
leðursófann. Gasalega smart – og
einfalt! Og þetta geturðu gert við
alla veggi heimilisins, heftað efni á
striga, t.d. gömul sængurföt sem þú
ert hætt/ur að nota.
Ég slysast stundum til að sjábrot úr vinsælum, innlendum
lífsstíls- og hönnunarþætti sem
sýndur er á Skjá einum. Þar er m.a.
fylgst með fólki taka heimili sín í
gegn fyrir hundruð þúsunda króna
og beita ýmsum brögðum við þá
endurreisn. Réttu litirnir er fundn-
ir á veggina, húsgögn í stíl, ljós sem
varpa huggulegri birtu á allt sam-
an, rétta parketið, réttu flísarnar,
réttu blöndunartækin, réttu inn-
réttingarnar (allt vandlega auglýst
fyrir viðkomandi verslanir auðvit-
að) og svo allt kórónað með því að
kaupa efni hjá bólstrara (sem er
einnig auglýstur) og hefta það á
striga. Er það myndlist? Er það
skraut? Er það föndur? Ég hélt að
myndlist væri hluti af innbúi flestra
heimila, er fólk ekki með myndir og
málverk á veggjunum hjá sér? Er
fólki alveg sama hvað er á veggjum
heimilisins? Kannski er ég svona
smekklaus, gamaldags og skiln-
ingslaus, kann að vera. Kannski er
þetta rosalega flott og allir vita það
nema ég. Kannski er ég ekki „in“.
Mér finnst sófaefni á blindramma
uppi á vegg ansi klént, afsakið.
Nú eru stundum innlit í lífsstíls-þættinum fyrrnefnda á staði
sem tengjast myndlist með einum
eða öðrum hætti. Þáttarstjórn-
endur virðast því áhugasamir um
myndlist, vilja miðla henni til áhorf-
enda. Því skýtur það afar skökku
við að hvetja fólk til að hengja sófa-
áklæði upp á vegg hjá sér. Væri
ekki betra að hafa plakat í ramma
af grátandi dreng eftir Bragolin,
svona eins og allar ömmur áttu
hérna einu sinni, eða jafnvel Mónu
Lísu? Eða er þetta kannski „ready-
made“? Svona eins og hlandskálin
hans Duchamp, hlutur sem áður
gegndi nytjahlutverki orðinn að
list. Efast um það.
Breytum aðeins sjónarhorninu.Ímyndum okkur að í þættinum
væri keypt svakalega flott málverk
og sett á fagurlega málaðan stofu-
vegg. Eigandi íbúðarinnar væri í
stökustu vandræðum með autt gólf-
ið fyrir framan vegginn. Ekkert
mál, segði þáttarstjórnandinn, því
væri hægt að kippa í liðinn með
nokkrum trébrettum, gamalli sæng
og nokkrum koddum. Yfir þetta
mætti svo kasta huggulegu efni frá
bólstrara og voilá! Sófi kominn!
Væri það glæsilegt? Væri það sófi?
Getur verið að fólk hengi bara
eitthvað upp á veggi heimilisins, al-
gjörlega laust við öll tilfinningaleg
eða vitsmunaleg tengsl við það? Er
það sem hangir á veggjum ekki eins
mikilvægt og það sem stendur á
gólfi? Nú eru allir í spreng að
kaupa verk gömlu meistaranna á
uppboðum og Eggert Pétursson
selur 100 málverk á sýningu. Þann-
ig að einhverjir líta ekki á myndlist
sem skraut. Einhverjir vilja verja
peningi í myndlistarverk og njóta
þess að horfa á þau á veggjum.
Kannski er sófaáklæði hugvekj-
andi, hvað veit ég svo sem. Per-
sónulega myndi ég aldrei hengja
upp á vegg hjá mér mynd sem mér
finnst ljót. Ekki heldur mynd sem
segir mér ekkert, hefur engin áhrif
á mig, hefur ekkert tilfinningalegt
gildi, verk sem engin sjáanleg hug-
mynd býr að baki. Ég hengi það
upp á vegg sem skiptir mig ein-
hverju máli.
Ég legg það til að lífsstílsþátt-argerðarmenn vendi sínu
kvæði í kross og hætti að hefta só-
faáklæði á blindramma. Nær væri
að fara í leiðangur með eiganda
íbúðarinnar, finna með honum
myndlistarverk sem höfðar til hans
og hann vill hafa uppi á vegg hjá
sér til frambúðar. Á vandræða-
veggnum. Og það væri alveg hægt
að auglýsa um leið, listmunabúðina
eða listamanninn jafnvel. Ekki má
nú sleppa blessuðum auglýsing-
unum. Með þeim hætti yrði meiri
reisn yfir endurreisninni.
Gasalega smart og einfalt
»Ég legg það til aðlífsstílsþáttargerð-
armenn vendi sínu
kvæði í kross og hætti
að hefta sófaáklæði á
blindramma.
Grátandi „Væri ekki betra að hafa
plakat í ramma af grátandi dreng
eftir Bragolin, svona eins og allar
ömmur áttu hérna einu sinni?“
helgisnaer@mbl.is
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
Morgunblaðið/Ásdís
Sófi Væri þetta áklæði flott á stofuveggnum, heftað á blindramma? Væri það myndlist, skraut eða föndur?