Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 1
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 577 1170
www.boconcept.is
EF ÞÚ FINNUR EKKI
RÉTTU STÖÐINA
EKKI KENNA OKKUR UM
X
E
IN
N
IX
0
7
10
0
22
STOFNAÐ 1913 296. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
SKEMMTILEGT
ALÞJÓÐLEGIR FORELDRAMORGNAR
Í KÓPAVOGI GERA GÓÐA LUKKU >> 21
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson og Ómar Friðriksson
UM 2.500 einkaþotur lentu á
Reykjavíkurflugvelli á síðasta ári, en
mikill vöxtur hefur verið í þessu flugi
á síðustu tveimur árum. Hrafnhildur
Brynja Stefánsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Flugstoða, segir að aukningin
sé fyrst og fremst vegna viðskipta-
flugs. Ekki sé óvenjulegt að sjö einka-
þotur lendi á vellinum á dag. Íslend-
ingar fara því ekki varhluta af
stóraukinni notkun viðskiptaþotna í
heiminum. Ekki liggja fyrir upplýs-
ingar um hversu margar einkaþotur
eru í eigu Íslendinga en í úttekt
Morgunblaðsins sl. sumar kom fram
að ætla megi að íslensk fyrirtæki og
einstaklingar eigi a.m.k. átta einka-
þotur, sem skráðar eru erlendis.
Umfang tolleftirlits á Reykjavíkur-
flugvelli með flugvélum sem koma frá
útlöndum hefur aukist jafnt og þétt.
Að sögn Karenar Bragadóttur, for-
stöðumanns tollheimtusviðs Toll-
stjórans í Reykjavík, eru allar vélarn-
ar afgreiddar af tollinum og ekkert
slegið af kröfum við tollskoðun og eft-
irlit þeirra. „Þetta hefur verið að
aukast ár frá ári.“
Flugmaðurinn ber ábyrgð
Hrafnhildur Brynja segir að toll-
gæslan skoði þær vélar sem komi úr
millilandaflugi og lendi á Reykjavík-
urflugvelli. „En það er ekki talin
ástæða til vopnaleitar. Reglurnar eru
þannig að flugmaður á að bera ábyrgð
á sinni vél og ef hann er öruggur með
vélina þá treystum við honum fyrir
þessu. Í áætlunarflugi er hins vegar
farið fram á vopnaleit.“ Eftirlit með
vélunum fer fram á sérstöku svæði á
vellinum sem aðrir hafa ekki aðgang
að og í samræmi við kröfur ESB. Ut-
anríkisráðherra hefur sagt að skoða
verði hvort leita þurfi í vélum sem
grunur leikur á að flytji fanga með
ólögmætum hætti. Hrafnhildur sagði
að frumkvæði um aukið eftirlit, t.d.
vegna gruns um flug með fanga, yrði
að koma frá stjórnvöldum. Slík beiðni
hefði ekki borist. Þeir sem sæju um
eftirlit með einkaþotum fengju á
næstunni nýjan bíl sem væri sérstak-
lega útbúinn til leitar.
Morgunblaðið/Golli
Fjölgar Um 2.500 einkaþotur lentu
á Reykjavíkurflugvelli á sl. ári.
Sjö einka-
þotur dag
hvern
Viðskiptaflug stór-
eykst um Reykjavík
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
ANDSTÆÐINGAR fyrirhugaðrar jarðgufuvirkjunar á
Hengilssvæðinu í landi sveitarfélagsins Ölfuss hafa sett á
laggirnar heimasíðu þar sem almenningur er hvattur til
að gera athugasemdir við virkjunaráætlanirnar. Um er
að ræða 135 MWe virkjun Orkuveitu Reykjavíkur við
Bitru, rétt vestan við Ölkelduháls. Frummatsskýrsla
vegna framkvæmdanna er nú til athugunar hjá Skipu-
lagsstofnun og rennur frestur til að gera athugasemdir
við framkvæmdirnar út 9. nóvember. Petra Mazetti, leið-
sögumaður og forsprakki síðunnar, segir að tilgangurinn
með opnun hennar sé fyrst og fremst sá að vekja athygli
almennings á því að til standi að spilla ómetanlegri nátt-
úruperlu í næsta nágrenni við höfuðborgarsvæðið með
jarðgufuvirkjun. „Við vildum ekki vera of sein með at-
hugasemdirnar í þetta skiptið,“ segir Petra og bendir á
að margir séu nú að mótmæla virkjunaráætlunum við
Þjórsá, en umhverfismat fyrir svæðið hafi legið fyrir í
talsvert langan tíma.
Petra segir jafnframt að mikilvægi Hengilssvæðisins
sem útivistarsvæðis hafi aukist á undanförnum árum
með stöðugri þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu og
vaxandi þörf íbúa þéttbýlisins fyrir óspillta náttúru. Þá
færist sífellt í aukana að ferðamenn sæki svæðið heim,
ýmist fótgangandi eða á hesti. „Ég hef oft komið á svæðið
með útlendingum og þetta er alltaf það sem stendur upp
úr hjá þeim,“ segir Petra.
Þá gera Petra og andstæðingar virkjunarinnar at-
hugasemdir við það fyrirkomulag að framkvæmdaraðili
virkjunarinnar, Orkuveita Reykjavíkur, hafi jafnframt
látið gera umhverfismat. Fyrirtækið hafi því í raun verið
dómari í eigin sök og eðlilegra væri að óvilhallir aðilar
sæju algjörlega um mat á umhverfisáhrifum sem ís-
lenska ríkið bæri kostnað af.
Telja að virkjun muni spilla
ómetanlegri náttúruperlu
Í HNOTSKURN
»OR hyggst reisa tvær jarð-gufuvirkjanir á Heng-
ilssvæðinu, nánar tiltekið á Bitru
og í Hverahlíð.
»Fyrirætlanir OR hafa vakiðhörð viðbrögð og hefur hóp-
ur virkjunarandstæðinga komið
á fót heimasíðu til þess að vekja
almenning til umhugsunar.
»Petra Mazetti, leiðsögumað-ur og forsprakki síðunnar,
segir að svæðið sé ein helsta
náttúruperla í nágrenni höf-
uðborgarsvæðisins.
SNJÓRINN sem féll á höfuðborgarsvæðinu um helgina
var ekki ýkja djúpur en fyrir þá sem höfðu dug og ein-
beittan vilja nægði hann fullkomlega til snjóþotuferða.
Í brekku í Breiðholti nutu þessar stúlkur veðurblíð-
unnar og aðstoðar hvor annarrar við að þoka sleðanum
áfram.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Grípa gæsina meðan hún gefst
Snjóþoturnar dregnar fram í dagsljósið
STJÓRNARFORMAÐUR Verne
Holding ehf., sem vill setja upp net-
þjónabú hér á landi, segir að Danice-
sæstrengurinn sé mun eftirsóknar-
verðari kostur en strengurinn sem
Hibernia hyggst leggja frá Íslandi til
Írlands. Danice sé dýrari en hann sé
einnig vandaðri en strengur Hibernia
sem byggist á tækni í eigu kínversks
fyrirtækis og nýjung sé að nota hana í
neðansjávarstrengjum. „Við erum til-
búnir að borga hærra verð fyrir Dan-
ice en kapal til Írlands – teljum Dan-
ice sölulegri og erum tilbúnir að
greiða fyrir það,“ segir Vilhjálmur
Þorsteinsson sem er stjórnarformað-
ur Verne Holding.
Meginlandið betra
„Við vissum að Hibernia var með
hugmyndir um að fara til Írlands með
streng og tengjast þar streng sem
þeir eiga og liggur frá Dublin til Bost-
on. Þegar við skoðuðum málið ofan í
kjölinn sáum við að það var mun eft-
irsóknarverðara að fara beint til meg-
inlandsins,“ segir hann. | 12, miðopna
Danice
vandaðri
„VIÐ vitum að bremsuskilyrðin á síðasta þriðjungi flugbrautarinnar fóru
versnandi um nóttina vegna veðurs. Hins vegar eru þetta alltaf samverkandi
þættir sem við þurfum að fara nákvæmlega ofan í,“ segir Bragi Baldursson
hjá rannsóknarnefnd flugslysa (RNF) og stjórnandi rannsóknar á flugatviki
sem varð á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt sunnudags þegar vél hlekktist á við
lendingu í hálku.
Samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu JetX ehf. ákvað flugstjórinn
m.t.t. til upplýsinga frá flugturni og í samræmi við almennar verklagsreglur í
flugi að beita harðri lendingu. Sú ráðstöfun er samkvæmt leiðbeiningum frá
framleiðanda, í samræmi við hönnun flugvélarinnar og er ætlað að auka
bremsuhæfni við aðstæður eins og þær sem voru á flugbrautinni. Samkvæmt
upplýsingum frá RNF fékk áhöfn vélarinnar þær upplýsingar frá Keflavík að
bremsuskilyrði væru góð en ís á stöku stað. | 8
Bremsuskilyrðin
fóru versnandi
Leikhúsin í landinu
Góðir gestir... kíktu
í leikhúsið. >> 37