Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 11
FRÉTTIR
GYLFI Magnússon, dósent í við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands, segir að fyrir flesta ís-
lenska launamenn væri væntanlega
ekki mjög hent-
ugt að fá greidd
laun að öllu leyti
í evrum frekar
en íslenskum
krónum, en í
sumum tilfellum
gæti verið skyn-
samlegt að fá
einhvern hluta í
evrum.
Ásgeir Jóns-
son, forstöðumaður greiningar-
deildar Kaupþings, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að það eitt
að íslensk fyrirtæki gerðu upp árs-
reikninga sína í annarri mynt en
íslenskum krónum hefði ekki nein
teljandi áhrif á íslenskt efnahagslíf
eða íslenskan almenning.
Lítill kostnaður fylgir því að
kaupa erlenda mynt, en Gylfi
Magnússon bendir á að taki ein-
staklingur húsnæðislán í erlendri
mynt, til dæmis í evrum, geti verið
skynsamlegt að fá hluta af launum
greiddan í evrum til að standa
undir afborgunum og vöxtum af
láninu án þess að eiga gengis-
áhættu yfir höfði sér. Það væri þá
ákveðinn öryggisventill að vera
með fastar tekjur í erlendu mynt-
inni á móti afborgunum því ef
krónan lækkaði mikið gætu af-
borganirnar orðið þungbærar.
Eins gæti verið heppilegt að fá
hluta launa í erlendri mynt vegna
til dæmis sumarleyfa erlendis.
Hins vegar væru önnur útgjöld
flestra að mestu leyti í krónum og
því frekar langsótt að greiða laun
alfarið í evrum.
Ef fyrirtæki eru með tekjur í
erlendri mynt kemur það þeim
betur að kostnaður, þar með talin
laun, sé í sömu mynt. Gylfi segir
að í slíkum tilfellum geti verið
hagkvæmt bæði fyrir atvinnuveit-
anda og launþega að laun séu að
hluta í erlendu myntinni og auð-
velt ætti að vera að semja um
slíkt.
Einhver dæmi eru um að laun
hérlendis séu greidd að hluta í er-
lendri mynt, að sögn Gylfa, og
þótt þeim eigi sjálfsagt eftir að
fjölga sem kjósa að fá greitt á
þennan hátt segist hann ekki eiga
von á að slíkar launagreiðslur
verði mjög algengar.
Hugsanleg kjara-
bót með evrum
Gylfi Magnússon
Eftir Sigrúnu Birnu Birnisdóttur
sibb@mbl.is
NORÐURLANDARÁÐSÞING
hefst í Ósló í Noregi í dag. Siv Frið-
leifsdóttir, formaður velferðarnefnd-
ar Norðurlandaráðs, og Árni Páll
Árnason, formaður Íslandsdeildar
Norðurlandaráðs, sögðu er þau
kynntu málefni þingsins, að þau teldu
mikilvægi norræns samstarfs vera að
aukast á ný eftir nokkurra ára tímabil
þegar dregið hefði úr mikilvægi þess.
Þetta mætti m.a. rekja til stækkunar
Evrópusambandsins (ESB) og þess
að aukin fjölbreytni innan þess gerði
það að verkum að erfiðara væri fyrir
norrænu þjóðirnar nú en áður að hafa
áhrif á stefnumörkun innan ESB.
Þetta hefði m.a. stuðlað að því að
Norðurlandaráð væri nú að breytast
úr umræðuvettvangi yfir í vettvang
stefnumörkunar á grundvelli nor-
rænna gilda í hnattrænu samhengi.
Það setur töluverðan svip á þingið
að þessu sinni að stór hluti þeirra
dönsku þingmanna, sem boðað höfðu
komu sína á þingið, hætti við þátttöku
eftir að boðað var til kosninga á Dan-
mörku í síðustu viku. Dagfinn Høyb-
aråten, forseti Norðurlandaráðs,
sagði á fundi með blaðamönnum í
Ósló í gær að vissulega væru von-
brigði að svo margir danskir þátttak-
endur hefðu hætt við þátttöku en að
hann teldi það þó ekki til marks um að
Danir legðu lítið upp úr norrænu
samstarfi. Hann teldi að danska rík-
isstjórnin hefði haft sínar ástæður
fyrir því að boða til kosninga einmitt
nú og hann legði ekki dóm á það.
Hann væri þess fullviss að bæði
dönsk yfirvöld og almenningur í Dan-
mörku legði mikið upp úr norrænu
samstarfi þótt svona hefði viljað til
einmitt nú.
Árni Páll Árnason sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins að
hann teldi ekki að dræm þátttaka
Dana í þinginu drægi úr mikilvægi
þess eða vægi umræðna um stöðu
sjálfstjórnarsvæðanna innan nor-
ræns samstarfs. Hann segir að Danir
muni senda þingmannanefnd með
fullt umboð á þingið og það dragi ekki
úr vægi umboðs þeirra að enginn
þeirra dönsku þingmanna sem sækja
þingið að þessu sinni sækist eftir end-
urkjöri í fyrirhuguðum kosningum í
Danmörku. „Danir leggja einmitt
mjög mikið upp úr norrænu samstarfi
og þá ekki síst á stjórnmálasviðinu.
Þeir hafa haft frumkvæði í mörgum
þeirra mála sem fjallað verður um á
þinginu en þeir standa nú frammi fyr-
ir nítján daga kosningabaráttu og
þegar þannig stendur á leggja menn
einfaldlega allt annað til hliðar,“ sagði
hann.
Meginþema þingsins er loftslags-
breytingar, afleiðingar þeirra fyrir
Norðurlönd og hvernig hægt er að
bregðast við þeim. Þá verður rætt um
áhrif hnattvæðingar á mikilvægi nor-
ræns samstarfs og leiðir til samvinnu
Norðurlandanna á alþjóðavettvangi,
m.a. með samvinnu varðandi mark-
aðssetningu, samræmingu heilbrigð-
iskerfa og landamæraeftirlits.
Staða sjálfstjórnarsvæðanna Fær-
eyja, Grænlands og Álandseyja innan
hins norræna samstarfs verður einn-
ig rædd sérstaklega á þinginu og
verður þar m.a. kynnt skýrsla Nor-
rænu ráðherranefndarinnar um
aukna þátttöku sjálfstjórnarsvæð-
anna í Norrænu ráðherranefndinni
og Norðurlandaráði.
Mikilvægið að
aukast að nýju
Stórþingið Þing Norðurlandaráðs hefst í Osló í dag og verða loftslagsbreytingar meðal annars til umræðu.
Forföll Dana á Norðurlandaráðsþingi
ekki talin til marks um áhugaleysi
Villeroy & Boch / kringlunni / 533 1919
Mikið úrval af pottum
og pönnum frá WMF
HVERFISGÖTU 6, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 562 2862
Vetur
2007
Kynningardagar
26. okt. - 3. nóv.
Stærðir 42-54
M
bl
9
21
22
7