Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, jóga kl. 9, postulínsmálning og útskurður kl. 13-16.30, les- hópur kl. 13.30. Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 8.15-16, opin handa- vinnustofa og smíði/ útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9, botsía kl. 9.45. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, alm. handa- vinna, vefnaður, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, línudans. Leikhúsferð verður farin frá Bólstaðarhlíð kl. 13.10, 1. nóv.: Ævintýri í Iðnó. Miðaverð og kaffiveitingar kr. 2.500. Skráning í s. 535-2760. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt opin. Framsögn. Félagsvist kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13, fé- lagsvist kl. 20, framsögn kl. 17. Árshátíð FEB 2. nóvember kl. 19.30, í sal Ferðafélagsins Mörkinni 6, veislumatseðill, einsöngur, dans, hátíðarræða, leik- þáttur og dansleikur. Síðasti söludagur er í dag. Skráning og uppl. á skrifstofu FEB s. 588-2111, tak- markaður fjöldi. Félag kennara á eftirlaunum | Tölvustarf í Ármúla- skóla hefst kl. 15.15. Hentar öllum og mætingar eft- ir eigin hentugleikum. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55, gler- og postulínsmálun kl. 9.30, handavinna kl. 10, leiðbeinandi við til kl. 17. Jóga kl. 10.50, róleg leik- fimi kl. 13, tréskurður kl. 13, alkort kl. 13.30, stóla- jóga kl. 17 og jóga á dýnum kl. 17.50. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga og myndlist kl. 9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl. 11, há- degisverður kl. 11.40 og bútasaumur kl. 13. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Karlaleikfimi 13, botsía kl. 14, línudans í Kirkjuhvoll kl. 12, tré- smíði kl. 13.30, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, súpa kl. 12.30 og spilað þar kl. 13, vatnsleikfimi kl. 14. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9- 16.30, m.a. glerskurður, dansæfing í samstarfi við FÁÍA kl. 10, m.a. koma danskir gestir í heimsókn, postulínsnámskeið kl. 13. Alla föstudaga kl. 10.30 er fjölbreytt leikfimi í ÍR-heimilinu v/Skógarsel, umsj. Júlíus Arnarsson íþróttakennari. Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Farið verður á Kjarvalsstaði á sýningu Eggerts Péturs- sonar 1. nóvember. Lagt af stað kl. 13 frá Hlaðhömr- um. Skráning og upplýsingar í síma 586-8014 kl. 13-16. Furugerði 1, félagsstarf | Aðstoð við böðun kl. 9, frjáls spilamennska kl. 13. kaffiveitingar kl. 15. Hraunbær 105 | Handavinna, glerskurður, hjúkr- unarfræðingur kl. 9, botsía kl. 10, leikfimi kl. 11, há- degismatur kl. 12, Bónusbíllinn kl. 12.15 og kaffi kl. 15. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9, myndmennt kl, 10, leikfimi kl. 11.30, glerskurður kl. 13, mynd- mennt kl, 13, bridds kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9-13 hjá Sig- rúnu, jóga kl. 9-11, Björg F. Helgistund kl. 14 í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Myndlist kl. 13.30-16.30 hjá Ágústu. Böðun fyrir hádegi. Hársnyrting. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin. Ókeypis tölvuleiðbeiningar o.fl., World Class-hópur. Æv- intýri í Iðnó – Guðrún Ásmundsdóttir 6. nóv. kl. 14. Námskeið í leiðis- og jólapakkaskreytingum. Vín- arhljómleikar 5. jan. nk. kl. 17. Uppl. S. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl. 13.30 verður félagsfundur Koprúlfa á Korpúlfsstöðum. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi vísna- klúbbur kl. 9, botsía kvennaklúbbur kl. 10.15, opið hús, spilað á spil kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30. Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnustofan í hand- mennt opin. Myndlistarnámskeið, þrykk og postu- lín. Leikfimi kl. 10. Sjálfsbjörg – félag fatlaðra á höfuðborgarsvæð- inu | Hátúni 12. Bingó í kvöld í félagsheimilinu. Uno- spil kl. 19.30. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9- 16, myndmennt kl. 9-16, enska kl. 10.15, hádeg- isverður kl. 11.45, leshópur kl. 13.30, spurt og spjall- að /myndbandasýning kl. 13, bútasaumur kl. 13-16, frjáls spil kl. 13-16, kaffiveitingar kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handa- vinnustofan opin með leiðsögn kl. 9-16.30, morg- unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar alla daga, upplestur kl. 12.30, félagsvist kl. 14. uppl. um starfið í síma 411- 9450. Þórðarsveigur 3 | Hjúkrunarfræðingur fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 9. Bænastund kl. 10, Bón- usbíllinn kl. 12 og bókabíll kl. 16.45. Kirkjustarf Árbæjarkirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12. Spjall, fræðsla og samvera. STN (starf með 6-9 ára börn- um) kl. 15-16. TTT (starf með 10-12 ára börnum) kl. 16-17. Áskirkja | Opið hús kl. 10-14, föndur, spjall og tekið í spil, bænastund í umsjá sóknarprests kl. 12. Léttur hádegisverður eftir bænastundina. Elfa Björk Gunnarsdóttir flytur fyrirlestur um heildræna heilsustefnu kl. 13. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 17.30. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11, kirkjustarf aldr- aðra kl. 11.45, léttur málsverður. Helgistund í umsjá Sigfúsar Kristjánssonar. Samvera. KFUM&K fyrir 10-12 ára kl. 17-18.15. Æskulýðsstarf Meme fyrir 9.- 10. bekk kl. 19.30-21.30. (www.digraneskirkja.is) Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Org- elleikur, íhugun og bæn. Súpa og brauð í safn- aðarheimili kirkjunnar. Opið hús eldri borgara kl. 13- 16. Félagar í Kvenfélaginu Fjallkonunum segja frá félaginu. Kaffi og meðlæti. Helgistund í kirkju. Fríkirkjan Kefas | Sigrún Einarsdóttir verður með fræðslu sem nefnist Sigur, líf og kraftur Heilags anda. Kvöldið hefst kl. 19 með léttum kvöldverði og því þarf að skrá sig í síma 564-1124 eða senda póst á bjorg@kefas.is. Enginn aðgangseyrir. Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borgara, kl. 13.30-16. Helgistund, handavinna, spilað og spjall- að, kaffi og veitingar. TTT fyrir börn 10-12 ára kl. 16- 17 í Grafarvogskirkju. TTT fyrir börn 10-12 ára kl. 17- 18 í Borgarholtsskóla. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12-12.30. Léttar veitingar gegn vægu gjaldi kl. 12.30 í safn- aðarheimili. Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11-14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta í umsjón sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar kl. 9.15-10.30. KFUM og KFUK | Enginn fundur er í AD KFUK í kvöld. Sameiginlegur fundur verður með AD KFUM 1. nóvember í Dómkirkjunni í Reykjavík kl. 20. Laugarneskirkja | Kvöldsöngur kl. 20. Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn og sóknarprestur flytur guðsorð og bæn. Kl. 20.30 ganga 12 spora hópar til verka um leið og trúfræðsla sr. Bjarna hefst: „Hvernig les ég Biblíuna?“ Öllum er frjáls þátttaka. Njarðvíkurkirkja | Spilakvöld, húsið opnað kl. 19.30. Byrjað að spila kl. 20. Umsjón hafa konur í Systrafélagi Njarðvíkurkirkju. Óháði söfnuðurinn | Alfa námskeið 1 kl. 19-22. Vídalínskirkja Garðasókn | Opið hús fyrir alla hefst með kyrrðastund kl. 12, tónlist og ritning- artextar lesnir frá kl. 12.10. Súpa og brauð kl. 12.30, 400 kr. Spilað kl. 13-16, vist, bridds o.fl. Púttgræjur á staðnum. Kaffi kl. 14.45. Akstur fyrir þá sem vilja. Uppl. í síma 895-0169. Ytri-Njarðvíkurkirkja | Foreldramorgunn kl. 10.30, umsjón hefur Þorbjörg Kristín Þorgrímsdóttir. 50 ára afmæli. Í dag, 30.október, er fimmtugur Sigurður Aðalsteinsson frá Vaðbrekku, veiðimeistari og bóndi á Borg í Skriðdal. Sig- urður er á fjöllum í dag. Brúðkaup | Rafá Arap- inowicz og Jóhanna Bjarndís Arapinowicz voru gefin sam- an í Breiðholtskirkju 7. júlí sl. af séra Bryndísi Möllu Elí- dóttur. dagbók Í dag er þriðjudagur 30. október, 303. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14,20.) Einar Kárason rithöfundurkennir námskeiðið Leið-arvísir að Sturlungu semEndurmenntunarstofnun Háskóla Íslands býður upp á 20. og 22. nóvember. Torsótt lesning Námskeiðið er nú haldið í fyrsta sinn: „Sjálfur hafði ég gert nokkrar til- raunir til að lesa Sturlungu, en hún hef- ur reynst mörgum torsótt lesning ef ekki er beitt réttu aðferðunum,“ segir Einar af kynnum sínum af verkinu: „Flestir bókhneigðir Íslendingar hafa lesið helstu Íslendingasögurnar, eins og Njálu, Grettissögu og Egilssögu, en aðeins brot af þeim hefur komist í gegnum Sturlungu. En meðal þeirra sem tekst það eru svo sumir sem hafa gert að vana sínum að lesa Sturlungu einu sinni á ári og eru í hvert sinn að uppgötva eitthvað nýtt í verkinu.“ Einar segir ekki hafa mátt við svo búið standa að vera ólæs á Sturl- ungasögu og leitaði hann heimilda víða til að gera sér verkið aðgengilegra: „Það var töluverð fyrirhöfn en þegar upp var staðið varð lesning Sturlungu einhver mesta lestrarupplifun sem ég hef átt,“ segir hann, og bætir við að þegar hann hafi sagt vinum og kunn- ingjum frá glímunni við verkið hafi sumir þeirra farið að leita ráða og fá lestrarleiðbeiningar. Kviknaði í fram- haldinu sú hugmynd að efna til nám- skeiðsins. Hagnýt hollráð Kennt verður tvö kvöld og er nám- skeiðið aðgengilegt öllum bókmennta- unnendum: „Til að koma fólki á bragðið verða sagðar nokkrar sögur úr verkinu og helstu sögupersónur skoðaðar. Má nefna að meðal hollráða sem nemendur á námskeiðinu fá í fararnesti er að byrja að lesa verkið á blaðsíðu 180, í fyrstu atrennu, en í nýjustu útgáfu Sturlungu byrjar á þeirri blaðsíðu sú saga sem er veigamesti þáttur bók- arinnar.“ Finna má nánari upplýsingar um námskeiðið Leiðarvísir að Sturlungu á heimasíðu Endurmenntunarstofnunar HÍ á slóðinni www.endurmenntun.is Er vakin athygli á að mörg stétt- arfélög og fyrirtæki veita styrki vegna námskostnaðar. Bókmenntir | Endurmenntun með spennandi námskeið í mánaðarlok Leiðarvísir að Sturlungu  Einar Kárason fæddist í Reykja- vík 1955, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1975 og lagði stund á al- menna bókmennta- fræði við HÍ. Á tæplega 30 ára ferli sem rithöf- undur hefur hann látið frá sér fjölda verka, sem gefin hafa verið út í 12 löndum. Einar er kvæntur Hildi Bald- ursdóttur bókasafnsfræðingi og eiga þau fjórar dætur. Mannfagnaður Húnvetningafélagið í Reykjavík | Árlegur kirkju- og kaffi- söludagur Húnvetningafélagsins verður 4. nóv. Messa í Kópavogskirkju kl. 14, séra Gísli Kolbeins þjónar fyrir altari, Karl Helgason frá Blönduósi flytur stólræðu, kirkjukór Skagastrandar flytur gospeltónlist. Frá kl. 15 er kaffihlað- borð o.fl. í Húnabúð, Skeifunni 11. Fyrirlestrar og fundir Íslenska bútasaumsfélagið | Félagsfundur kl. 20 í safn- aðarheimili Fella- og Hólakirkju. Forvörður Þjóðminjasafns- ins fræðir félagsmenn um forvörslu á textílverkum. Búta- saumskonur segja frá verkum sínum. Norræna húsið | Alþjóðamálastofnun HÍ stendur fyrir opn- um fyrirlestri kl. 12-13, um þróun frjálsrar viðskiptastefnu í Kína. Ísland er fyrst evrópskra ríkja að gera fríversl- unarsamninga við Kína. Fyrirlesarinn, Marc Lanteigne, kennir alþjóðasamskipti við St. Andrews-háskóla í Skot- landi. HERÞOTUR sýna listir sínar yfir Ankara, höfuðborg Tyrklands í gær. Þjóðhátíðardagur Tyrkja var haldinn hátíðlegur í gær, 29. októ- ber, og voru mikil hátíðarhöld að því tilefni um land allt. Dansað í háloftunum FRÉTTIR NÆSTU fjögur ár munu Soroptim- istar hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti. Þetta var m.a. til umræðu á haustfundi So- roptimistasambands Íslands sem var haldinn að Reykjum í Hrúta- firði. Á fundinum voru fluttar frétt- ir frá Alþjóðaþingi Soroptimista sem haldið var í byrjun ágústmán- aðar sl. Ákveðið hefur verið að verkefni íslenskra Soroptimista næstu miss- erin beinist einkum að því að berj- ast gegn mansali og verður unnið að því máli í samvinnu við Sorop- timista á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum. Nýtt 4 ára alþjóðaverkefni er hafið en það er stuðningur við einstæðar mæður og börn sem búa ein í Sierra Leone í Vestur-Afríku. Stuðningur ís- lenskra Soroptimista er m.a. árlegt fjárframlag allra félaganna. Á fundinum var formlega opn- aður nýr vefur samtakanna www.soroptimist.is. Soroptim- istar berjast gegn mansali FLUGFÉLAG Íslands skrifaði á dögunum undir samning við Vega- gerðina um flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Í framhaldi af útboði sem haldið var sl. sumar ákvað samgönguráðherra að fela Vegagerðinni að semja við Flug- félag Íslands um flug á þessari leið. Nýr samningur tekur gildi hinn 1. nóvember nk. og gildir til loka ársins 2009 en möguleiki er að framlengja samninginn um tvö ár til viðbótar eða til loka ársins 2011, segir í fréttatilkynningu. Flognar verða 15 ferðir í viku á veturna, tvær ferðir alla daga nema föstudaga, þá verða þrjár ferðir farnar. Yfir sumartímann verða 3 ferðir í boði alla daga nema miðvikudaga og laugardaga en þá verða 2 ferðir í boði. Flugfélag Íslands sem- ur um flug til Eyja REYKJAVÍKURBORG hefur gefið út límmiða sem á er ritað: Ryklaus Reykjavík. Í fréttatilkynningu segir að lím- miðinn sé liður í víðtækum aðgerð- um borgarinnar til að draga úr svif- ryksmengun. Hann er ætlaður bifreiðum sem aka um á góðum naglalausum vetrardekkjum. Sex atriði vinnast við það að draga úr notkun nagladekkja í borginni: Minna slit á götum, minni svifryksmengun, lægri kostnaður við hreinsun gatna og niðurfalla, minni eyðsla eldsneytis, minni um- ferðarhávaði og færri innlagnir þeirra sem eru með astma eða við- kvæm öndunarfæri. Límmiðanum verður m.a. dreift á dekkjaverk- stæði og í bílaumboð. Ökumönnum stendur til boða úrval af góðum vetrardekkjum sem ekki eru negld, t.d. loftbóludekkjum, harðkorna- dekkjum, harðskeljadekkjum og heilsársdekkjum. Miði um ryklausa Reykjavík ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.