Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 18
|þriðjudagur|30. 10. 2007| mbl.is daglegtlíf Mæðgurnar Ásta Þórisdóttir og Lilja Sigrún Jónsdóttir bjóða upp á heildstæðar lausnir fyrir minjagripasölu. »21 vaxtarsprotar Þolendur vilja helst ekki segja frá eineltinu þar sem þeir skammast sín fyrir að hafa orð- ið fyrir því. »20 menntun Ávinnufundi stjórnar í jan-úar síðastliðnum fengumvið ábendingar um fé-lagslega einangrun inn- flytjenda sem væru með ung börn og því oft heimavinnandi. Í fram- haldinu ræddum við hvernig mætti koma þeim í samband við íslenska foreldra í svipaðri stöðu og þetta nýja verkefni varð til,“ segir Garð- ar. Stefnan var tekin á að halda for- eldramorgna og kynnti Rauði krossinn verkefnið á ýmsum tungu- málum í samvinnu við Alþjóðahúsið og heilsugæslustöðvar. Fyrsti foreldramorgunninn var síðan hald- inn 4. október sl. og hittast „alþjóð- legir“ foreldrar í félagsmiðstöðinni Mekka í Hjallaskóla í Kópavogi alla fimmtudaga milli kl. 10.30 og 12. „Foreldramorgnarnir eru þó ekki einungis fyrir fólk sem býr í Kópa- vogi,“ útskýrir Garðar. „Það eru t.d. foreldrar sem koma með börn sín alla leið úr Grafarvogi til að taka þátt í þessu,“ segir hann og telur upp þau þjóðerni sem safnast hafa saman þessa morgna: „Það eru Pólverjar, Litháar og Ítalir auk íslensku foreldranna sem hafa mætt.“ Þennan morgun sem blaða- maður er á ferð er einnig móðir frá Rússlandi í heimsókn með barn sitt. „Þegar flest var, voru saman komnir ellefu foreldrar með ellefu börn,“ segir Garðar og bætir við að mætingin hafi ávallt verið góð þótt hún hafi verið misjöfn. Verkefnið stendur til loka nóvember eða til 29. nóvember þegar síðasti foreldramorgunninn verður hald- inn. Þá verður jólaföndur og ís- lenskir jólasveinar kynntir, en ákveðið þema er hvern morgun og tengist það yfirleitt börnum. Einn- ig fer fram óformleg íslensku- kennsla og er til að mynda dreift blöðum til erlendu þátttakendanna þar sem algeng íslensk orð eru kynnt með myndmáli. Dögg Guðmundsdóttir, verk- efnastjóri Kópavogsdeildar, segir misjafnt hversu lengi þeir erlendu foreldrar sem mæti á foreldra- morgna hafa verið á Íslandi og svo er einnig með íslenskukunnáttu þeirra. „Sumir hafa einungis verið hér nokkra mánuði en aðrir í ár eða lengur,“ segir hún og upplýsir um leið að það séu einungis mæður sem hingað til hafi tekið þátt, bæði af hálfu íslenskra og erlendra for- eldra. „En feðurnir eru einnig vel- komnir,“ segir hún og brosir. Kópavogsdeild Rauða krossins fór af stað með Alþjóðlega foreldra nú í haust. Verkefnið spratt upp úr könnun sem gerð var til að meta þörf fyrir hin ýmsu verkefni í samfélaginu. Garðar H. Guðjónsson, formaður Kópavogsdeildar Rauða krossins, sagði Halldóru Traustadóttur að talsverð félagsleg einangrun ríkti meðal innflytjenda, sérstaklega þeirra sem ekki séu úti á atvinnumarkaðnum. Einangrun rofin á foreldramorgnum www.redcross.is/kopavogur Morgunblaðið/G.Rúnar Foreldramorgnar Þau Edda Guðrún Valdemarsdóttir, Hildur Vaka Bergmann, Vilhjálmur Örn Sævarsson og Elena Alda Árnason voru ánægð með þetta framtak hjá Kópavogsdeild Rauða krossins. Að leik Vilhjálmur Örn Sævarsson, eins árs, virðist kunna vel að meta marglit leikföngin í Félagsmiðstöðinni Mekka. Elena Alda Árnason er frá Rúss- landi og hefur búið á Íslandi í 7 ár. Hún er gift Íslendingi og býr í Garðabæ. „Ég heyrði af verkefninu hjá vinkonu minni sem sá það aug- lýst í fréttablaði Alþjóðahússins,“ segir Elena. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég kem hingað og mér finnst þetta mjög þarft og skemmtilegt fram- tak,“ heldur hún áfram. Á hún eftir að koma aftur? „Ég er að fara að vinna aftur eft- ir nokkra daga og því get ég ekki komið aftur, en hinsvegar er ég að fá rússneska barnfóstru til Íslands og ég mun segja henni frá þessu. Hún á örugglega eftir að koma og það er einnig gaman fyrir son minn að koma og hitta önnur börn hér,“ segir Elena. Skemmtilegt framtak Sigrún Eðvaldsdóttir er ein þeirra íslensku sjálfboðaliða sem taka þátt í verkefninu Alþjóðlegir foreldrar hjá Kópavogsdeild Rauða krossins. Sigrún er í fæðingarorlofi en henn- ar barn er að verða eins árs. „Það stóð til alla meðgönguna að ganga til liðs við Rauða krossinn,“ útskýrir Sigrún. „Fljótlega eftir fæðingu barnsins tók ég síðan þá ákvörðun að skrá mig sem sjálf- boðaliða á netinu og nokkru seinna fór ég í heimsóknaþjónustuna, verkefni sem Kópavogsdeildin stendur einnig fyrir.“ Í því verkefni felst heimsókn til einangraðra aðila og í tilfelli Sigrúnar heimsækir hún eldri konu á hálfs mánaðar fresti. „Þegar ég heyrði síðan af for- eldraverkefninu lá það beint við að taka þátt í því líka.“ Og Sigrún sér ekki eftir því og er full aðdáunar yfir þeim erlendu konum sem hafa mætt og hvernig þeim hefur tekist að gera sig skiljanlegar þrátt fyrir litla íslenskukunnáttu. Þær sýni ís- lenskukennslunni einnig mikinn áhuga og bera vott um vilja við að tengjast íslensku samfélagi og læra íslensku. „Það er greinilegt að það er full þörf fyrir svona verkefni,“ segir Sigrún. Full þörf fyrir verkefni á borð við foreldramorgna Horft á heiminn Hildur Vaka Bergmann, sjö mánaða, horfir forvitin á ljósmyndarann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.