Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KRISTÍN S. Kvaran,
kaupmaður og fyrrv.
alþingismaður, er lát-
in. Kristín fæddist í
Reykjavík 5. janúar
1946. Foreldrar henn-
ar voru Stefán Guð-
mundsson og Guðrún
Benediktsdóttir.
Fyrri maður Kristín-
ar er Ólafur Engil-
bertsson. Þau skildu.
Eftirlifandi eiginmað-
ur Kristínar er Einar
B. Kvaran.
Kristín stundaði
nám í Fósturskóla Íslands 1973–1976
og fluttist síðan til Noregs með fjöl-
skyldu sína til að nema við Barne-
vernsakademiet í Osló á árunum
1977–1978. Kristín átti sæti í stjórn
Fóstrufélags Íslands frá 1978 og var
formaður þess um skeið. Hún var for-
stöðumaður dagvistarheimila hjá
Reykjavíkurborg 1976–1977 og 1980–
1981 og hjá Hafnarfjarðarbæ 1982–
1983. Hún var einnig um tíma kennari
í hagnýtri uppeldisfræði við Fóstur-
skóla Íslands. Kristín sat
á Alþingi fyrir Bandalag
jafnaðarmanna og síðar
Sjálfstæðisflokkinn á ár-
unum 1983–1987. Hún
var formaður Neytenda-
félags Reykjavíkur og
nágrennis árin 1986—
1988. Kristín stofnaði og
gaf út bæjarblað í Garða-
bæ 1987–1990, Blaðið
okkar, og var ritstjóri
þess. Hún vann einnig við
Ríkissjónvarpið og Stöð 2
að sjónvarpsþáttum um
neytendamál og um-
ræðuþáttum á árunum 1988–1990.
Hún sat í stjórn Norræna félagsins í
Garðabæ frá 1987–1999, var formað-
ur Norræna félagsins 1997–1999 og
formaður sambands Norrænu félag-
anna á Norðurlöndum 1998–1999.
Kristín gerðist kaupmaður og heild-
sali árið 1990 ásamt Einari manni sín-
um. Þau stofnuðu árið 2002 kvenfata-
verslunina Feminin Fashion sem er í
Bæjarlind í Kópavogi. Kristín lætur
eftir sig þrjár dætur.
Andlát
Kristín S. Kvaran
Innrettingar
Dalvegi 10-14 • 200 Kópavogur
Sími 577 1170 • Fax 577 1172 • www.innx.is
Þinn
draumur
...okkar veruleiki
X
E
IN
N
IX
0
7
10
0
23
Í TILEFNI af alþjóðadegi psoriasissjúklinga í gær
efndu SPOEX, Samtök psoriasis- og exemsjúklinga, til
baráttugöngu frá Hlemmi og niður að Lækjatorgi.
Þótt kalt hafi verið í veðri skiptist göngufólk á um að
ganga í stuttermabol til þess að undirstrika að það væri
sýnilegt þrátt fyrir útbrotin á húðinni, að því er segir í
tilkynningu.
Með göngunni vakti það einnig athygli á Rannsókn-
arsjóði SPOEX en ætlunin er að safna í hann fimm
milljónum króna. Á Íslandi eru 6–9 þúsund manns með
psoriasis og enn fleiri með exem. Að sögn Valgerðar
Auðunsdóttur, formanns SPOEX, þurfa samtökin enn
að berjast gegn fordómum gagnvart fólki með húð-
sjúkdóma. Valgerður sést lengst til vinstri á myndinni.
Morgunblaðið/Ómar
Baráttuganga á psoriasisdegi
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ELEA Network, sem er íslenskt hugbúnaðarfyr-
irtæki, er að íhuga hvort það muni stefna ís-
lenska ríkinu fyrir brot á samkeppnislögum en
fyrirtækið telur að þróun Hagstofunnar og
Seðlabanka Íslands á tölvukerfum, sem eru sam-
bærileg við það kerfi sem Elea hefur lokið við,
feli í sér brot á samkeppnislögum.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Valdimar
Kristjánsson, tæknistjóri Elea Network, að ríkið
stundaði gríðarlega umfangsmikla hugbúnað-
arþróun sem færi fram í ýmsum ríkisstofnunum
og ríkisfyrirtækjum. Þessi ríkisrekni hugbúnað-
ariðnaður væri umfangsmeiri en sá einkarekni.
„Ef þeir ætla að stunda hugbúnaðarþróun þá
ættu þeir að sjálfsögðu að stofna hugbúnað-
arþróunarráðuneyti og setja á laggirnar stofnun
sem gerði ekkert annað,“ sagði Valdimar. Í stað-
inn færi þróunin fram vítt og breitt innan op-
inbera kerfisins með tilheyrandi óhagræði. Kerf-
ið sem Elea Networks hefur hannað er sérhæft
fyrir hagstofur og seðlabanka. Um þrjú ár eru
síðan kerfið var tilbúið en enn hefur hvorki Hag-
stofan né Seðlabankinn fest á því kaup. Valdimar
sagði engan vafa leika á því að kerfi Elea hefði
yfirburði yfir innanhússkerfi þessara stofnana.
Þá væri það í hæsta máta óeðlilegt að eftir kynn-
ingarfundi með Elea hefðu þessar stofnanir
ítrekað auglýst eftir forriturum til að vinna að
smíði sambærilegra tölvukerfa.
Spurður um hugsanlegar ástæður fyrir því að
ríkið vildi frekar smíða sín eigin kerfi, sagði
Valdimar að það væri ódýrara, til skemmri tíma
litið. Ríkið slyppi við að greiða virðisaukaskatt af
tölvukerfunum auk þess sem ríkið greiddi lægri
laun en einkageirinn. Það væri á hinn bóginn
ljóst að tölvukerfi ríkisins væru lakari og ríkið
gæti ekki selt tölvukerfin sem það smíðaði á
frjálsum markaði. Framlegðin af vinnunni við
kerfin væri því mun lægri en hjá einkafyrirtækj-
um sem gætu haldið áfram að þróa sín tölvukerfi,
selt þau á frjálsum markaði innanlands sem utan
og þar með skapað meiri tekjur og fleiri störf. Þá
væru stjórnendur hjá ríkinu almennt vankunn-
andi í tölvumálum. Þeir yrðu því að treysta á
tæknimenn sína en tæknimennirnir hefðu sjálfir
hagsmuni af því að verkin væru unnin innanhúss.
Hugbúnaðarráðuneyti?
Elea Network gagnrýnir harðlega umfangsmikla hugbúnaðargerð ríkisstofnana
Íhugar að kæra Hagstofuna og Seðlabankann til Samkeppniseftirlitsins
Í HNOTSKURN
» Elea Network hefur hannað hugbúnaðsem er sérhæfður fyrir hagstofur og
seðlabanka.
» Tæknistjóri Elea gagnrýnir HagstofuÍslands harkalega fyrir að leggja fé í að
hanna eigin hugbúnað enda sé hugbún-
aðargerð ekki í verkahring hennar.
» Ríkið eigi ekki að framleiða hugbúnaðí samkeppni við einkageirann.
TVEGGJA ára barn var í framsæti
bíls sem lögreglan stöðvaði í Kópa-
vogi um helgina. Barnið var í ör-
yggisbelti en barnabílstóll eða
ámóta öryggisbúnaður var hvergi
sjáanlegur. Í tilkynningu frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu seg-
ir að þetta hugsunarleysi öku-
mannsins, þrítugs karlmanns, sé
með ólíkindum.
51 umferðaróhapp
Um helgina var ellefu ökumönn-
um á höfuðborgarsvæðinu gert að
hætta akstri en þeir höfðu ýmist
verið sviptir ökuleyfi eða aldrei öðl-
ast ökuréttindi. Tveir þeirra reyndu
að villa á sér heimildir. Annar gaf
upp nafn bróður síns en lögreglan
sá við þessum lygum.
Fimmtíu og eitt umferðaróhapp
var tilkynnt um helgina. Sjö þeirra
má rekja til ölvunaraksturs og eitt
til aksturs undir áhrifum fíkniefna.
Um helgina hafði lögregla afskipti
af 29 körlum og einni konu fyrir
brot gegn lögreglusamþykkt
Reykjavíkur. Langflestir voru á
milli 20 og 30 ára gamlir.
Tveggja
ára barn í
framsætinu
30 teknir fyrir brot
gegn samþykkt
ICELANDAIR hefur ákveðið að
hefja beint áætlunarflug milli Ís-
lands og Toronto í Kanada 2. maí
2008 og flug til Halifax hefst á ný
21. apríl. Icelandair skoðaði
möguleika á að fljúga jafnframt
til annarra kanadískra borga en
ekki verður af því á næsta ári, að
sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Icelandair.
Flugið milli Íslands og Toronto
verður allt árið. Yfir sumarmán-
uðina verður flogið fimm sinnum
í viku eða alla daga nema
fimmtudaga og laugardaga, en
færri flug verða yfir vetrartím-
ann. Flugið til Halifax verður
sem fyrr þrisvar í viku yfir sum-
artímann.
Icelandair hefur skoðað mögu-
leika á flugi til kanadísku borg-
anna Montreal, Winnipeg, Ottawa
og St. John’s á Nýfundnalandi, en
Guðjón segir að ekki verði flogið
til þeirra á næsta ári.
Hefja flug til
Toronto í
byrjun maí
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
farbannsúrskurð Héraðsdóms
Austurlands yfir manni sem teng-
ist starfsmannaleigunni NCL og
GT verktökum. Hann sæti far-
banni til 6. nóvember nk.
Í greinargerð ríkislög-
reglustjóra kemur fram að mað-
urinn sé m.a. grunaður um að
hafa boðið starfsmönnum fyr-
irtækjanna fé ef þeir færu úr
landi og gæfu ekki skýrslur hjá
lögreglu. Einnig segir að rök-
studdur grunur sé fyrir því að
manninn eigi að senda úr landi,
en félagi hans hafi áður yfirgefið
landið í flýti – daginn eftir að
kæra vegna meintra hótana barst
lögreglu.
Maðurinn sá m.a. um að af-
henda starfsmönnum laun og láta
þá kvitta fyrir móttöku þeirra.
Í farbanni til
6. nóvember
LÖGREGLAN á höfuðborg-
arsvæðinu stöðvaði 14 ökumenn
fyrir ölvunarakstur. Þrír voru
stöðvaðir á föstudagskvöld, fimm
á laugardag og sex á sunnudag.
Ellefu voru teknir í Reykjavík og
einn í Kópavogi, Hafnarfirði og
Garðabæ. Þetta voru ellefu karl-
ar á aldrinum 20-45 ára og þrjár
konur.
Þá voru þrír karlar, 19, 28 og
33 ára, teknir fyrir að aka undir
áhrifum fíkniefna. Tveir þeirra
voru stöðvaðir í Reykjavík og
einn í Mosfellsbæ en í bíl þess
yngsta og á honum sjálfum fund-
ust ætluð fíkniefni, að því er seg-
ir í tilkynningu frá lögreglunni.
Um helgina hafði lögregla af-
skipti af 29 körlum og einni konu
fyrir brot gegn lögreglusamþykkt
Reykjavíkur. Langflestir voru á
milli 20 og 30 ára gamlir.
Tóku 14 ölv-
aða ökumenn
ÖKUMAÐUR sem lögreglan á
Seyðisfirði stöðvaði fyrir of hrað-
an akstur á þjóðvegi 1 aðfaranótt
laugardags sló hraðamet, sam-
kvæmt upplýsingum frá embætt-
inu. Bifreið mannsins mældist á
186 km hraða sem er mesti öku-
hraði sem mælst hefur hjá emb-
ættinu, en sá mesti fram að því
var 159 km og mældist fyrir
nokkrum árum.
Ökumaðurinn var sviptur öku-
réttindum til þriggja mánaða á
staðnum og má búast við sekt.
Slá hraðamet
á Seyðisfirði