Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 17 SUÐURNES Eftir Reyni Sveinsson „ÞETTA er góður félagsskapur og gefandi að setja sér ákveðin mark- mið og vinna síðan að því að vera nógu góður til að takast á við þau,“ segir Helga Jakobsdóttir, starfs- maður Sparisjóðsins í Keflavík og formaður Kvennakórs Suðurnesja. Kórinn tók þátt í alþjóðlegu kóra- móti á Ítalíu og náði ágætum ár- angri. Kórinn hefur oft farið í ferðalög til útlanda og þá sungið á ýmsum op- inberum stöðum. Ætlunin var að fara í stíft söngferðalag að þessu sinni en þá kom upp sú hugmynd að taka þátt í alþjóðlegri keppni áhuga- mannakóra, In ... Canto Sul Garda sem haldin er á vegum Musica Mundi í bænum Riva Del Garda við Gardavatnið á Ítalíu. Keppnin fór fram fyrr í þessum mánuði en und- irbúningur hófst á síðasta vetri. Þurfti kórinn að velja fjögur lög, æfa þau og taka upp til að senda með umsókninni. Það skilaði árangri því kórnum var boðið að koma. Þjóðbúningurinn vakti athygli Um 50 kórar frá átján þjóðlöndum tóku þátt í keppninni og var keppt í ýmsum flokkum. Kórakeppnin hófst með heljarmikilli skrúðgöngu allra þátttökuþjóðanna að aðaltorgi Garda þar sem borgarstjórinn setti mótið. Nokkrar kórkonur klæddust íslenska þjóðbúningnum í göngunni og segir Helga að það hafi vaki at- hygli bæjarbúa enda sé íslenski þjóðbúningurinn svo flottur. Kvennakór Suðurnesja tók þátt í þjóðlagaflokki kvennakóra. Flutti fimm íslensk lög í útsetningum Jóns Ásgeirssonar, Jóns Leifs og Jór- unnar Viðar undir stjórn Dagnýjar Jónsdóttur og við undirleik Geir- þrúðar F. Bogadóttur. Þær voru í góðum hópi norskra og kínverskra kóra. Fjórir dómarar gáfu kórunum einkunnir. Niðurstaðan varð sú að framlag Kvennakórs Suðurnesja fékk tvenn verðlaun í gullflokki og er Helga ánægð með það. Segir að ekki hafi munað miklu að kórinn bætti við sig gullum. „Það var gam- an að etja kappi við þessa frábæru kóra og mér finnst við standa ágæt- lega,“ segir Helga. Sumir kórarnir létu sönginn ekki duga og voru með margskonar list- rænar æfingar við flutning á lögum sínum. Kórinn tók einnig þátt í tónleikum í ferðinni og kórfélagar nutu þess að hlusta á aðra kóra og skoða sig um við Garda-vatnið og víðar á Norður- Ítalíu. Elsti kvennakór landsins Þrjátíu og ein kona tók þátt í þessu verkefni Kvennakórs Suð- urnesja og í ferðinni voru einnig makar þannig að 56 voru í ferðinni. „Þetta er frábær hópur og það gekk allt upp hjá okkur,“ segir Helga. Nú tekur alvaran aftur við. Næsta stóra verkefni er þátttaka í Lands- móti kvennakóra sem haldið verður á Höfn í Hornafirði í apríl. Ýmislegt verður um að vera þangað til, meðal annars verða sungin jólalög á að- ventunni. Þá mun kórinn fagna fjörutíu ára afmæli í febrúar en hann er elsti starfandi kvennakór landsins. Æft er tvisvar í viku og Helga segir að ætlunin sé að fjölga í hópn- um vegna þeirra verkefna sem fram- undan eru. Gaman að etja kappi við frábæra kóra Kvennakór Suðurnesja stóð sig vel á alþjóð- legu kóramóti Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Skrúðgangan undirbúin Víðir Tómasson bar íslenska fánann fyrir Kvennakór Suðurnesja í skrúðgöngunni fyrir setningu kóramótsins. Hér sést hann með hluta kórsins. Þjóðbúningarnir vöktu athygli á götum Garda. LANDIÐ Selfoss | Kálfurinn Babú, svartur og myndarlegur holdanautskálfur, kom í heiminn í fjósinu í Geirakoti nokkr- um mínútum áður en slökkviliðs- stjórar Íslands komu þangað í heim- sókn á ferð sinni um Suðurland sl. laugardag. Hjónunum Ólafi Kristjánssyni bónda og Maríu Hauksdóttur, hús- freyju í Geirakoti, þótti tilvalið að skíra kálfinn strax til heiðurs slökkviliðsstjórunum. Þeir Björn Karlsson brunamálastjóri og Krist- ján Einarsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnesinga, fögnuðu kálfinum innilega í fóðurganginum í fjósinu í Geirakoti. Ekki lögðu þeir þó í að kyssa blautan kálfinn til að feta í fótspor Guðna Ágústssonar, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, þegar hann kyssti Skrautu á Stóra- Ármóti og mynd náðist af þeim við- burði. Það var annars glatt á hjalla í Geirakoti þarna um hádegið en þau hjónin hafa útbúið góða forstofu að fjósinu í tveimur aflögðum súrheys- turnum. Þar eru málaðar myndir sem tengjast landbúnaði á veggjum og Þórður Þorsteinsson, rafvirki frá Selfossi, sat þar á stól og lék á harm- onikku fyrir gesti. Svo vel fórst hon- um þetta að viðstaddir fengu fiðring í fætur og hófu að dansa. Síðan var sungið og trallað um stund, teknar myndir fyrir framan turnana tvo sem fengu auðvitað strax nafnið „Twin Towers of Geirakot.“ Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Guðfeður Björn Karlsson brunamálastjóri og Kristján Einarsson slökkvi- liðsstjóri Brunavarna Árnessýslu voru ánægðir með kálfinn Babú. Skírðu kálfinn Babú til heiðurs slökkviliðsstjórum Stykkishólmur | Það er ekki á hverjum degi sem Hólmurum er boðið upp á tónleika með Megasi. Það gerðist á föstudagskvöldið að Megas mætti með hljóm- sveitina Senuþjófana og hélt tónleika í Vatnasafni Roni Horn. Aðstæður í Vatnasafninu eru sérstakar til tónleika- halds. Tónleikarnir tókust mjög vel og voru góð skemmtun. Það vakti athygli að Megas flutti á tónleik- unum nýtt lag eftir sig og texta í tilefni komunnar í Stykkishólm sem endurspeglaði þau áhrif sem hann upplifði í Vatnasafninu er hann heimsótti það í fyrsta sinn. Lagið heitir Afvötnun. Ragnheiður Óladóttir, umsjónamaður Vatnasafnsins, var mjög ánægð með hversu vel til tókst með tón- leikana í Vatnasafninu. Hún sagðist hafa hitt Megas fyrr í sumar þegar hann var að skoða safnið ásamt vin- um sínum. „Ég spurði Megas hvort það væri möguleiki á að fá hann til að halda tónleika hérna og tók hann því mjög vel. Síðan höfum við verið í sambandi við und- irbúning heimsóknarinnar.“ Tónleikarnir voru vel sóttir og allir fóru ánægðir heim eftir að hafa hlustað á Meg- as í tæpa tvo tíma flytja sín lög, gömul og ný af fullum krafti með hjálp hljómsveitarinnar Senuþjófanna. Megas í Vatnasafn- inu í Stykkishólmi Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Rokk Mikil stemmning var hjá flytjendum og áhorf- endum sem nutu þess að hlusta á Megas flytja lög sín sem voru skemmtilega útsett fyrir öfluga hljómsveit. Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Fyrsta vetrardag héldu Mývetningar hátíðlegan svo sem verið hefur allar götur síðan 1897 og sem að líkum lætur með hefðbundnum hætti. Um miðjan daginn var safnast saman í Skjólbrekku við hlaðið veisluborð. Samkomustjóri var Ásta Lárusdóttir á Skútustöðum en slægjufundarræðu flutti Steinþór Þráinsson. Hann rifjaði upp sögu samkomunnar og þá sem settu svip á hana fyrrum. Unglingar úr tónlistarskólanum fluttu nokkur tónlistaratriði, Edda Sverrisdóttir, söng einsöng við und- irleik Jaan Alavere, séra Örnólfur Ólafsson hafði helgistund en al- mennur söngur var á milli dag- skráratriða. Um kvöldið var svo líflegur dans- leikur í Skjólbrekku í boði sveit- arsjóðs. Samkoman er hverju sinni undirbúin af íbúum ákveðins sveit- arhluta. Að þessu sinni var það heimilisfólk á bæjunum frá Græna- vatni að Kráká sem sá um und- irbúninginn af myndarskap. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Haraldsson Gleðifundir Margir efnilegir hljóðfæraleikarar stigu á svið og skemmtu á Slægjufundi á laugardaginn. Slægjufundur í 110 ár í Mývatnssveit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.