Morgunblaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
RÚSSAR OG NÁGRANNAR
Forsætisráðherrar Norður-landanna og Eystrasaltsríkj-anna ræddu samskiptin við
Rússland á fundi í Osló í gærkvöldi.
Þótt ekkert liggi fyrir um niðurstöður
þeirra viðræðna er þó ljóst að fullt til-
efni er til að forráðamenn þessara
ríkja taki samskiptin við Rússland til
umræðu sín í milli enda eiga öll þessi
ríki margvíslegra hagsmuna að gæta
af vinsamlegum og jákvæðum sam-
skiptum við þennan öfluga nágranna í
austri.
Á nokkrum misserum hefur orðið
mikil breyting á stöðu Rússlands á al-
þjóðavettvangi. Rússar hafa komið
fram á sjónarsviðið á ný sem stórveldi,
sem krefst þess að eftir því verði tek-
ið. Þótt ekki sé saman að jafna Rúss-
landi nútímans og Sovétríkjum kalda-
stríðsáranna fer þó ekki á milli mála,
að taka verður tillit til Rússa.
Eystrasaltsríkin eiga mikilla hags-
muna að gæta í samskiptum við
Rússa. Þau geta ekki látið Rússa kúga
sig beint eða óbeint og eru auðvitað í
miklu sterkari stöðu nú en þau voru
fyrr á tíð. En þau hafa líka hagsmuni
af vinsamlegum samskiptum við
Rússa.
Finnar eru komnir út af áhrifasvæði
Rússa en engu að síður eru það hags-
munir þeirra að eiga jákvæð sam-
skipti við þá.
Hið sama á við um aðrar Norður-
landaþjóðir og þá ekki sízt Norðmenn
en sú var tíðin að Rauði herinn og her-
sveitir Norðmanna með stuðningi Atl-
antshafsbandalagsins og Bandaríkj-
anna stóðu gráir fyrir járnum á
landamærum Noregs og Sovétríkj-
anna.
Við Íslendingar höfum líka hags-
muni af góðum samskiptum við Rússa
og deilum með þeim áhuga á því, sem
gerist á Norður-Atlantshafi á milli
Noregs og Íslands.
Spurningin er hins vegar hvernig
Rússar skilja vinsamleg og jákvæð
samskipti við þessar smáþjóðir á
landamærum þeirra. Felast þau sam-
skipti í jafnræði á milli þessara ná-
granna eða freistast Rússar til að
beita því bolmagni, sem þeir hafa, til
þess að leggja óþægilegan þrýsting á
þessar þjóðir.
Af þessum ástæðum er mikilvægt
að forsætisráðherrar Norður-
landanna og Eystrasaltsríkjanna ræði
þessi mál sín í milli. Í höfuðborgum
Eystrasaltsríkjanna og í Helsinki er
mikil þekking til á rússneskum mál-
efnum og tengsl frá fyrri tíð. Það ætti
að auðvelda nágrannaríkjunum að
skilja hvað um er að vera í Moskvu.
Gorbastjov, fyrrum leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins, hafði uppi tölu-
vert sannfærandi málflutning í viðtali
við danska sjónvarpsstöð í fyrrakvöld,
þegar hann varði og skýrði stefnu
Pútíns með því risavaxna verkefni,
sem Pútín hefði staðið frammi fyrir,
þegar hann tók við völdum í Rússlandi
um leið og hann viðurkenndi að ýmis
mistök hefðu verið gerð á síðustu ár-
um.
Skilningur og þekking skiptir
mestu í þessum samskiptum.
FRAMKVÆMDAGLEÐI OG FÚSK
Mikill hraði er í framkvæmdum áÍslandi um þessar mundir og
rísa heil hverfi á nokkrum árum.
Þrátt fyrir aukið framboð á íbúðar-
húsnæði hefur íbúðarverð hækkað
gríðarlega á undanförnum misserum
og mun hraðar en kostnaðurinn við að
reisa hús. Það er því eftir miklu að
slægjast fyrir verktaka.
Framkvæmdahraðinn á sér dökkar
hliðar og þær hafa komið fram í
Morgunblaðinu á undanförnum dög-
um. Í haustrigningunum „rignir
gallamálum“ hjá Húseigendafélag-
inu, svo vitnað sé til orða Sigurðar
Helga Guðjónssonar, formanns fé-
lagsins, í Morgunblaðinu fyrir helgi.
Í frétt blaðsins segir Gylfi Gísla-
son, framkvæmdastjóri JÁ verks
ehf., að menn séu almennt sammála
um að byggingarhraðinn sé orðinn
óraunhæfur: „Það er alltaf verið að
ganga út á ystu nöf með að steypa sé
orðin nógu hörð þegar hitt eða þetta
er gert.“
Ef húsnæði er reist svo hratt að
ekki vinnst tími til þess að ganga al-
mennilega frá er komið í óefni. Það er
segin saga að mál af þessu tagi bitna
verst á neytandanum. Eigendur hús-
næðis eiga sérlega erfitt með að
sækja rétt sinn og það getur kostað
mikinn tíma og peninga að fá gert við
húsnæði eða tjón bætt þegar eitthvað
fer úrskeiðis. Eigendur eru líka í sér-
lega slæmri stöðu vegna þess að með
því að kvarta og sækja rétt sinn geta
þeir einfaldlega verið að rýra verð-
mæti húsnæðis, sem keypt hefur ver-
ið dýrum dómum.
Það er vitaskuld slæmt ef verk-
kaupar og verktakar þurfa ekki að
gjalda fyrir slæleg vinnubrögð. Ef
ábyrgðin er ekki skýr og afleiðing-
arnar afgerandi verður freistandi að
stytta sér leið.
Eftirlit með framkvæmdum þarf að
vera í lagi. Í Morgunblaðinu á laug-
ardag kom fram að iðulega slepptu
menn lögbundinni lokaúttekt, sem
gera skal á húsum með tilliti til ör-
yggis og heilsu fólks. Oft sé hún ekki
gerð fyrr en kvartanir taki að berast.
Það er óþolandi fyrir einstaklinga,
sem rétt hafa lagt í mestu fjárfest-
ingu ævinnar, að uppgötva að nýja
húsnæðið heldur ekki vatni. Það kost-
ar ekki bara ergelsi, heldur tíma og
peninga. Þá er sá tími, sem sparaðist
við að hraða framkvæmdum, fljótur
að hverfa. Spurningin er hins vegar
hvernig best er að veita þeim, sem
standa í og bera ábyrgð á fram-
kvæmdum, viðunandi aðhald. Verður
það gert með sektum? Hvernig á að
tryggja að fúskararnir haldi ekki
áfram að byggja og vinnubrögð
þeirra bitni ekki á fleirum? Í liðinni
viku var tilkynnt að skera ætti upp
herör í þágu neytenda. Þeir þurfa
einnig vernd á húnæðismarkaði og
tryggingu fyrir því að réttur þeirra
sé ekki bara orð á blaði heldur raun-
verulegur og auðsóttur.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Ó
skir Verne Holding,
sem sýnt hefur ein-
dreginn vilja til að
setja hér upp net-
þjónabú, vógu þyngst
í þeirri ákvörðun Farice að leggja
frekar Danice-fjarskiptastrenginn
en að semja við Hibernia Atlantic
um afnot af fjarskiptastreng þeirra
sem ætlunin er að leggja til Ír-
lands. Þetta segir Steinn Logi
Björnsson, en hann er bæði stjórn-
arformaður Eignarhaldsfélagsins
Farice (E-Farice) og Farice. Fyr-
irtækið á nú fjarskiptastreng sem
liggur frá Seyðisfirði, um Fær-
eyjar, og til Danmerkur. Farice er
í 80% eigu Íslendinga og 20% eru í
eigu Færeyinga. Þrír stærstu ís-
lensku hluthafarnir, þ.e. íslenska
ríkið, Síminn og Vodafone, hafa
stofnað E-Farice um sinn hlut. Ís-
lenska ríkið er stærst og á yfir
helming, Síminn á rúman þriðjung
og Vodafone töluvert minna í E-
Farice.
Verne Holding
kemur til sögunnar
Steinn Logi kvaðst hafa komið
að stjórn Farice í byrjun þessa árs.
Þá var hafinn undirbúningur að
lagningu annars sæstrengsins í
eigu félagsins. Steinn Logi sagði
það hafa legið fyrir frá því að fyrsti
strengurinn var lagður að leggja
þyrfti annan streng, m.a. vegna
rekstraröryggis. Þegar undirbún-
ingur hófst að lagningu nýja
strengsins voru framtíðarhorfur
og þarfir íslenska fjarskiptamark-
aðarins lagðar til grundvallar. Á
liðnu vori var síðan byrjað að ræða
um möguleika á rekstri netþjóna-
búa hér á landi. Sagði Steinn Logi
að m.a. hefðu komið hingað menn
til viðræðna og verið haldnir fundir
um þau mál. Hann sagði að þá
hefði orðið ljóst að kröfurnar sem
gerðar höfðu verið varðandi nýja
sæstrenginn myndu breytast.
Margir hefðu sýnt því áhuga að
tekið yrði tillit til þessara breyttu
þarfa til þess að hægt yrði að þjóna
þörfum mögulegra netþjónabúa.
Steinn Logi sagði að í þessu ferli
hefði m.a. verið skoðað samstarf
við Hibernia Atlantic um afnot af
sæstreng sem þeir ráðgera að
leggja milli Íslands og Írlands og
látið reyna á hvort það gæti geng-
ið. Hann sagði að þeir hefðu verið
verið komnar langt. Hann sag
staðið hefði á fimm milljón do
tryggingu Hibernia fyrir lagn
strengs, sem Farice setti skil
um til að tryggja það að af lag
ingu strengsins yrði, og að hú
hefði ekki enn verið komin þe
ákveðið var að hætta viðræðu
Hitt skilyrði Farice var að str
urinn myndi fullnægja þörfum
þjónabúanna. Það hefði ráðið
miklu að Verne Holding tók þ
ákveðnu afstöðu að vilja mikl
frekar Danice-strenginn og þ
hefðu sagt að Hibernia-stren
urinn myndi ekki fullnægja þ
þeirra. „Þetta eru mennirnir
eru tilbúnir að fjárfesta í þess
þeir segja það þá hljóta penin
arnir þeirra að tala,“ sagði St
Logi.
Þegar greint var frá ákvör
ríkisstjórnarinnar, sem fer m
stærsta eignarhlutinn í Faric
lagningu sæstrengs milli Ísla
og Danmerkur nú í byrjun ok
kom fram að nýi strengurinn
myndi kosta um fimm milljar
króna. Þá var jafnframt grein
því að framlag ríkisins væri u
milljónir en Landsvirkjun, Or
veita Reykjavíkur og Hitavei
Suðurnesja hefðu lýst áhuga
koma að fjármögnuninni. Me
myndu þau eignast meirihlut
Farice ehf. sem rekur Farice
strenginn. Báðir strengirnir,
komnir „nokk-
uð langt í því
ferli“ með
Bjarna Þor-
varðarsyni, for-
stjóra Hib-
ernia. Þá hefði
komið til sög-
unnar fyr-
irtækið Verne
Holding, sem
er í eigu Nova-
tors og bandaríska áhættufjárfest-
isins General Catalyst, og þeir lýst
eindregnum áhuga á að setja hér
upp netþjónabú. Steinn Logi sagði
að vissulega hefðu ýmsir lýst
áhuga á netþjónabúskap hér á
landi og jafnvel hefðu þekkt vöru-
merki verið nefnd í því sambandi
en Verne Holding væri sá aðili sem
hefði viljað ganga lengst allra í
þessu og væri tilbúinn til þess að
koma með fé og fjárfesta í þetta.
Hann sagði að Verne Holding hefði
lagt fram mjög ákveðna ósk um
það, m.a. við ríkisstjórn Íslands og
Farice, að nýi strengurinn yrði
lagður til Danmerkur. Því hefði
verið ákveðið að fara Danice-
leiðina.
Orkufyrirtækin að koma inn
Steinn Logi sagði það rétt hjá
Bjarna Þorvarðarsyni að alvar-
legar viðræður hefðu farið fram á
milli Farice og Hibernia og þær
Stjórnarformenn Farice og Verne Holding telja sæstre
ekki jafngóðan kost og fyrirhugaðan Danice-streng frá
Óskir væntanlegs
skiptavinar vógu þ
!
"#$
%&
*
&
&
Steinn Logi
Björnsson
Verne Holding ehf. hyggstsetja upp netþjónabú, eðagagnaver, hér á landi að
sögn Vilhjálms Þorsteinssonar
stjórnarformanns. Hann sagði að
eigendur Verne Holding ehf.,
Novator og General Catalyst,
væru meðal stærstu hluthafa í
CCP þar sem Vilhjálmur er einn-
ig stjórnarformaður.
„Segja má að þessir aðilar hafi
kynnst í CCP og að kynni Banda-
ríkjamannanna í General Cata-
lyst af íslenska markaðnum og
tækifærum hér hafi orðið til þess
að Verne Holding var stofnað,“
sagði Vilhjálmur.
Undirbúningur að uppsetningu
gagnavers hér á landi er kominn
nokkuð á veg. Vilhjálmur sagði
að samningur um sæstreng sem
unnið er að sé stærsti áfanginn í
verkefninu hingað til. Vonaðist
Vilhjálmur til að gengið yrði frá
samningnum mjög fljótlega.
er stærsta internet-miðstöð
ópu. Næst stærsta internet-
miðstöð Evrópu er Amsterd
Við teljum mun seljanlegra
fara beint til Amsterdam me
annan streng,“ sagði Vilhjál
Meðal ástæðna nefnir hann
anleika, flutningshraða og a
gang að meginlandsmörk-
uðunum. Hann sagði einnig
óttast að ef eitthvað kæmi fy
London eða þar í kring væru
varaleiðir takmarkaðar.
Bjarni Þorvarðarson, fors
Hibernia, sagði í Morgunbla
gær að þeir hefðu rætt við ý
þekkt tölvufyrirtæki sem te
að Hibernia-strengurinn my
þjóna þeim vel, ef þau kysu
setja upp netþjónabú hér á l
„Við höfum t.d. einnig ræ
bæði við Microsoft og Yahoo
höfum fengið önnur skilabo
hann,“ sagði Vilhjálmur. „Þ
töldu ótvírætt betra að fara
Hann sagði að
málið hefði
verið til ít-
arlegrar skoð-
unar frá því
fyrr á þessu ári
og hefur m.a.
verið rætt við
hugsanlega
viðskiptavini
gagnaversins.
Vilhjálmur
sagði að valkostir varðandi sæ-
strengi hefðu verið skoðaðir
mjög vel.
„Við vissum að Hibernia var
með hugmyndir um að fara til Ír-
lands með streng og tengjast þar
streng sem þeir eiga og liggur
frá Dublin til Boston. Þegar við
skoðuðum málið ofan í kjölinn
sáum við að það var mun eft-
irsóknarverðara að fara beint til
meginlandsins. Við erum með
Farice 1 sem fer til London sem
Telja Danice betri kost en
Vilhjálmur
Þorsteinsson