Morgunblaðið - 30.10.2007, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÍSLANDSPÓSTUR hefur hætt
dreifingu á límmiðum með þeim
skilaboðum að fjölpóstur sé afþakk-
aður og er nú unnið að nýrri lausn
fyrir neytendur – með aðild Póst-
og fjarskiptastofnunar (PFS) og
annarra hagsmunaðila. Enginn
tímarammi er settur á þá vinnu, en
að sögn upplýsingafulltrúa Íslands-
pósts verður vonandi hægt að finna
viðunandi lausn sem fyrst.
Í september sl. sendi PFS bréf til
helstu hagsmunaðila vegna máls-
ins, en meðal þeirra eru Árvakur,
Pósthúsið, Neytendasamtökin og
Íslandspóstur. Í bréfinu er bent á
að Íslandspóstur hafi hætt dreif-
ingu á límmiðunum, en ein ástæða
þess er að töluvert hafði borið á
kvörtunum til fyrirtækisins vegna
fjölpósts sem barst þrátt fyrir að
slíkir límmiðar væru við bréfalúg-
ur. Oftar en ekki var þá um að ræða
annan dreifingaraðila.
Þá hefur orðið nokkur aukning á
fyrirspurnum til PFS vegna fjöl-
pósts, um það hvað viðtakendur
eigi til bragðs að taka – enda papp-
írsúrgangur gríðarlegur á hverju
heimili. Friðrik Pétursson, lög-
fræðingur hjá PFS, hefur haft um-
sjón með verkefninu. „Þetta geng-
ur út á að flokka þetta í tvennt,
fríblöðin og svo fjölpóstinn. Einnig
eru markatilvik sem við erum að
ræða hvernig eigi að fara með,“
segir Friðrik og tekur fram að
vinnan hafi gengið vel. Hins vegar
er óljóst hvenær henni verður lokið.
Áhersla var lögð á að fá sem
flesta hagsmunaaðila til viðræðna
vegna málsins og segir í bréfi PFS
að ef ekki náist samkomulag á milli
aðila muni stofnunin væntanlega
rita bréf til samgönguráðuneytis
um nauðsyn þess að setja lög þar
sem réttur neytenda til að afþakka
fjölpóst verði tryggður, hvort sem
um er að ræða auglýsingapóst eða
fríblöð.
Unnið að viðunandi lausn
vegna dreifingar fjölpósts
Morgunblaðið/Þorkell
Flokkun Gríðarlegu magni af fjöl-
pósti er dreift á hvert heimili.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÉG VERÐ að segja alveg eins og er, að þetta kom
mér á óvart,“ sagði Svandís Svavarsdóttir um þá
kröfu lögmanna Orkuveitu Reykjavíkur að vísa
máli hennar frá dómi en tekur fram að málið verði
að hafa sinn gang hjá dómstólum. Ragnar Hall, lög-
maður Svandísar, segir frávísunarkröfuna endur-
spegla það viðhorf stjórnenda OR, að engum komi
við hvað þeir gera.
Svandís höfðaði mál gegn OR til að fá úr því skor-
ið hvort eigendafundur sem haldinn var 3. október
væri ólögmætur. Á þeim fundi var samruni Reykja-
vík Energy Invest og Geysir Green Energy sam-
þykktur. Svandís heldur því m.a. fram að til fund-
arins hafi verið boðað með ólögmætum hætti –
miðað við samþykktir. Verjendur OR kröfðust þá
frávísunar á þeim forsendum að Svandís hefði ekki
lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, m.a. vegna
þess að hún væri ekki í stjórn.
„Þegar þeir halda því fram að stjórnarmenn í
Orkuveitunni hafi enga lögvarða hagsmuni af því að
leita dóms um hvort ákvarðanir sem teknar eru á
fundum séu lögmætar eða ekki, þá finnst mér menn
vera að reka eitthvað annað en opinbert fyrirtæki,“
segir Ragnar og bætir við að engu skipti þótt Svandís
sé ekki í stjórn núna. „Málið var höfðað á meðan hún
var í stjórn og þó svo að atvik hafi hagað því þannig
að aðrir eru komnir í stjórnina gerir það ákvörðunina
ekkert lögmætari. Svandís hefur jafnmikla lögvarða
hagsmuni af því að vita hvort réttur var brotinn þeg-
ar þessi fundur var haldinn.“
Stýrihópurinn fundar á hverjum degi
Svandís fer fyrir stýrihópnum sem m.a. rannsakar
lögmæti eigendafundarins auk þess að vera í meiri-
hluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Hún segist hafa
gengið erinda almennings í þeirri kröfu að fá skorið
úr um lögmæti fundarins og það hafi ekki breyst.
„Þessi málsókn snýst ekki um hvort ég er í meirihluta
eða ekki, heldur um að ég telji að þarna hafi ekki ver-
ið farið að lögum.“
Spurð út í vinnu stýrihópsins segir Svandís hana
gríðarlega. Fundað sé á hverjum degi og gögn máls-
ins séu í kílóavís. Ekki sé hægt að segja til um hve-
nær fyrsta áfanga verði náð, en miklu máli skipti fyr-
ir alla aðila málsins að það verði eins fljótt og auðið er.
Fundurinn enn ólögmætur
þótt Svandís sé ekki í stjórn
Í HNOTSKURN
»Svandís segir ýmislegt óvænt geta kom-ið upp þegar fyrsta áfanga rannsóknar
stýrihópsins lýkur. Hún segist hins vegar
ekki geta sagt til um hvenær það verður.
»Frávísunarkrafa lögmanna OrkuveituReykjavíkur verður tekin fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur klukkan 13.15 á
mánudag eftir viku.
Lögmaður Svandísar segir hana eiga lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins
Svandís
Svavarsdóttir
Ragnar
Hall
FYRIRTAKA var í máli Svandísar
Svavarsdóttur gegn Orkuveitu
Reykjavíkur í gærmorgun. Dóm-
þingið tók fljótt af eða eftir einar
tíu mínútur og á þeim tíma lögðu
verjendur Orkuveitunnar fram
fundargerð eigendafundarins 3.
október sl., ítarlega greinargerð og
tölvubréf frá 8. október. Engin
gögn voru lögð fram af lögmanni
Svandísar.
Í greinargerðinni koma fram að-
al- og varakrafa Orkuveitunnar.
Farið er fram á að málinu verði vís-
að frá dómi en annars að OR verði
sýknuð. Forsendur frávísunarinnar
eru m.a. að Svandís sitji ekki leng-
ur í stjórn OR og hafi því ekki lög-
varða hagsmuni í málinu, hún eigi
ekki hlut í OR og hafi því ekki fjár-
hagslega né persónulega hagsmuni.
Þá er einnig komið inn á að í mál-
inu sé aðeins talað um eigendafund,
en fundurinn hafi einnig verið hlut-
hafafundur.
Helgi Jóhannesson hæstaréttar-
lögmaður átti upphaflega að flytja
málið, en þar sem hann gæti komið
fyrir dóminn sem vitni hefur verið
ákveðið að Þórunn Guðmundsdóttir
muni taka við málinu.
OR fer fram
á frávísun
HÁLKUEYÐING hjá Reykjavík-
urborg var ekki rekin með fullum
afköstum í gærmorgun vegna bil-
ana í nærri helmingi bílaflotans
sem notaður er í þessi verkefni.
Þrír saltbílar af sjö voru bilaðir í
gær, en um helgina var byrjað var
að salta götur í fyrsta skipti á ný-
komnum vetri. Guðni Hannesson
yfirverkstjóri hjá Framkvæmda-
sviði Reykjavíkurborgar bendir á
að reglulegar hálkueyðingarvaktir
verktaka, sem borgin skiptir við,
hefjist ekki fyrr en 15. nóvember og
þá séu 8–9 bílar notaðir við störfin.
Fram að þeim tíma sé unnt að
bregðast við ef hálka gerir vart við
sig. Því voru þeir fjórir bílar sem
tiltækir voru settir á göturnar um
helgina og frétti Guðni ekki af
vandræðaástandi vegna hálku. Þó
mun, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, hafa gætt nokkurrar
óánægju hjá úthverfabúum.
Hálkueyð-
ing minni
Skörð höggvin í saltbílaflotann vegna bilana
Morgunblaðið/Golli
Hálkubanar Í gær voru fjórir saltbílar til ráðstöfunar en verða 8–9 þegar vaktir hefjast 15. nóvember nk.
ÞRÍR karlmenn sæta nú gæsluvarð-
haldi fram á fimmtudag vegna
nauðgunarmáls sem er til rannsókn-
ar hjá lögreglunni á Selfossi. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar
hefur kona á ótilgreindum aldri lagt
fram kæru vegna meintrar nauðg-
unar, jafnframt því sem hún var flutt
til skoðunar á neyðarmóttöku Land-
spítalans.
Lögreglan á Selfossi tjáir sig ekki
um gang rannsóknarinnar að svo
stöddu, en tilgreinir þó að hinir
grunuðu hafi verið settir í gæslu-
varðhald á grundvelli rannsóknar-
hagsmuna. Ekki hafa fengist upplýs-
ingar um aldur þeirra eða konunnar,
eða atvikalýsing. Þá hefur ekki verið
upplýst hvort hinir grunuðu hafi
komið við sögu lögreglu áður vegna
annarra sakamála. Tekin verður af-
staða til þess á fimmtudag hvort
krafist verði lengra varðhalds
þeirra.
Fjölmargir hafa verið yfirheyrðir
vegna rannsóknar málsins.
Í gæslu vegna
rannsóknar-
hagsmuna