Morgunblaðið - 30.10.2007, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
KRAKKAR í fótbolta á Ipanema-baðströndinni í Rio de
Janeiro í Brasilíu. Öruggt má telja að Brasilíumenn fái
að halda heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2014,
engir aðrir hafa lagt fram umsókn. Alþjóða knatt-
spyrnusambandið, FIFA, tekur ákvörðun í málinu á
fundi sínum í dag.
Reuters
Þjálfað fyrir HM 2014
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
CRISTINA Fernandez de Kirchner,
forsetafrú í Argentínu, sigraði í
kosningum á sunnudag og varð fyrst
kvenna til að verða þjóðkjörinn for-
seti landsins.
Fernandez hefur oft verið líkt við
Evu („Evitu“) Peron, forsetafrú
Argentínu á árunum 1946-52, og
Hillary Rodham Clinton, fyrrver-
andi forsetafrú Bandaríkjanna, sem
sækist eftir því að verða fyrst
kvenna til að gegna forsetaembætt-
inu þar í landi. Fernandez hefur látið
í ljós aðdáun á þessum konum en er
að mörgu leyti ólík þeim.
Fernandez er 54 ára, lögfræðing-
ur að mennt eins og Hillary Clinton
og kynntist Nestor Kirchner, fráfar-
andi forseta, í háskóla á áttunda ára-
tugnum. Þau gengu í hjónaband og
stofnuðu lögmannastofu saman í
Santa Cruz-héraði. Fernandez var
fyrst kjörin í öldungadeild þingsins
sem fulltrúi Santa Cruz árið 1995, í
fulltrúadeildina 1997 og aftur í öld-
ungadeildina 2001. Hún er talinn
hafa átt stóran þátt í sigri Kirchners
í forsetakosningum árið 2003 og var
kjörin í öldungadeildina sem fulltrúi
Buenos Aires tveimur árum síðar.
Búast ekki við
miklum breytingum
Fernandez hefur getið sér orð fyr-
ir að vera laginn samningamaður og
ræðuskörungur, ólíkt eiginmannin-
um sem hefur verið lýst sem þung-
búnum baktjaldamakkara auk þess
sem hann þykir stundum vera
klaufalegur þegar hann kemur fram
opinberlega.
Fernandez er vinstrisinnuð eins
og eiginmaður hennar og argent-
ínskir stjórnmálaskýrendur búast
ekki við miklum breytingum á efna-
hagsstefnunni eftir að hún tekur við
forsetaembættinu. Margt er þó á
huldu um stefnu hennar þar sem
helstu forsetaefnin tóku ekki þátt í
neinum kappræðum og Fernandez
veitti aðeins örfá viðtöl nokkrum
dögum fyrir kosningarnar.
Þegar Fernandez er líkt við Evu
Peron, aðra eiginkonu Juans Perons,
er yfirleitt skírskotað til þess að hún
þykir mjög tilhaldssöm í klæðaburði
og eiga auðvelt með að hrífa fólk með
eldheitum ræðum. Þær eiga þó fátt
annað sameiginlegt. Fernandez er
t.a.m. komin af millistéttarfólki en
Eva Peron var af fátækum ættum og
var leikkona þegar hún kynntist eig-
inmanni sínum.
Þriðja eiginkona Perons, Isabel,
varð fyrst kvenna til að gegna for-
setaembættinu en hún var ekki þjóð-
kjörin. Hún var varaforseti og tók
við forsetaembættinu þegar maður
hennar dó árið 1974 en henni var
steypt af stóli í valdaráni tveimur ár-
um síðar.
Forsetafrúin sest
í forsetastólinn
Fyrst kvenna til að verða þjóðkjörinn forseti Argentínu
AP
Sigurvegari Cristina Fernandez de Kirchner fagnar kosningasigri sínum í
höfuðstöðvum flokks síns í Buenos Aires. Hún fékk um 45% atkvæða.
Í HNOTSKURN
» Mikill hagvöxtur var íArgentínu á fjögurra ára
kjörtímabili Nestors Kirch-
ners og atvinnuleysið minnk-
aði um helming.
» Blikur eru þó á lofti ogstjórnmálaskýrendur
segja að Fernandez de Kirch-
ner verði að móta nýja stefnu
vegna minnkandi hagvaxtar,
hættu á óðaverðbólgu og
tregðu erlendra fyrirtækja til
að fjárfesta í landinu.
EHUD Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, skýrði frá því í gær að hann
hefði greinst með krabbamein í
blöðruhálskirtli.
Olmert sagði að sjúkdómurinn
væri á frumstigi og hann kvaðst
ekki ætla að láta af embætti þar
sem læknar hefðu fullvissað hann
um að allar líkur væru á því að
hann næði fullum bata.
Forsætisráðherrann sagði að að-
eins væri þörf á skurðaðgerð, en
ekki efna- eða geislameðferð.
Læknar Olmerts sögðu að for-
sætisráðherrann þyrfti ekki að
hætta við að mæta á ráðstefnu sem
bandarísk stjórnvöld hafa boðað
um Mið-Austurlönd í Annapolis í
Maryland. Búist er við að ráð-
stefnan verði
haldin í næsta
mánuði.
Tekin voru
vefsýni úr Ol-
mert 19. þessa
mánaðar og
skurðaðgerðin
getur ekki farið
fram fyrr en að
minnsta kosti sex
vikum síðar. Gert er ráð fyrir því að
forsætisráðherrann verði í þrjá
daga á sjúkrahúsi.
Olmert er 62 ára og varð for-
sætisráðherra í janúar á síðasta ári
eftir að forveri hans, Ariel Sharon,
fékk heilablóðfall. Sharon er enn í
dái.
Olmert greindist með
krabbamein í blöðruhálskirtli
Ehud Olmert
STJÓRNVÖLD í Tsjad sögðu í gær
að sex starfsmenn franskrar hjálp-
arstofnunar yrðu líklega ákærðir
fyrir að ræna börnum eftir að þeir
reyndu að flytja 103 börn með flug-
vél til Frakklands. Hjálparstofn-
unin hefur neitað því að hún hafi
ætlað að selja börnin til ættleið-
ingar. Hún kvaðst hafa verið full-
vissuð um að börnin væru öll mun-
aðarlaus og frá Darfur-héraði í
Súdan. Embættismenn Barnahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna ræddu við
börnin og sögðu að flest þeirra virt-
ust vera frá Tsjad og ekkert benti
til þess að þau væru munaðarlaus.
Frönsk hjálparstofnun sökuð
um að ræna börnum í Tsjad
Munaðarlaus? Nokkur af börn-
unum 103 í Tsjad.
Reuters
SVÆÐI þar sem ræktuð eru erfða-
breytt matvæli hafa stækkað um
77% í Evrópu síðan í fyrra, að sögn
breska útvarpsins, BBC. Á þessu ári
er maís ræktaður á um þúsund fer-
kílómetrum, m.a. á Spáni, í Frakk-
landi, Þýskalandi og Tékklandi, en
eingöngu í skepnufóður. Margir
Evrópumenn eru tortryggnir á
erfðabreytt matvæli og telja að þau
geti valdið umhverfistjóni. Forseti
Frakklands, Nicolas Sarkozy, hefur
frestað allri fyrirhugaðri sáningu á
erfðabreyttum fræjum fram á
næsta ár. Alls eru matvæli af þessu
tagi nú ræktuð á um milljón ferkíló-
metra svæði í heiminum.
Erfðabreytt
matvæli í sókn
AP
LEIÐTOGI breska Íhaldsflokksins,
David Cameron, vill að sett verði
þak á fjölda fólks sem flyst til Bret-
lands frá öðrum ríkjum Evrópu.
Segir hann strauminn af innflytj-
endum vera of mikla byrði á vel-
ferðarkerfi landsmanna.
Færri fái að koma
ABDULLAH, konungur Sádi-
Arabíu, sagði í gær að þarlend yfir-
völd hefðu veitt breskum yfirvöld-
um upplýsingar, sem hefðu getað
afstýrt hryðjuverkum sem kostuðu
52 manns lífið í London árið 2005,
en þær hefðu verið hunsaðar.
Gögnin hunsuð?
NICOLAS Sark-
ozy, forseti
Frakklands, sleit
skyndilega við-
tali, sem hann
veitti banda-
rískri sjónvarps-
stöð, þegar hann
var spurður um
skilnað hans og
eiginkonu hans,
Ceciliu.
Áður hafði forsetinn kallað fjöl-
miðlafulltrúa sinn „fávita“ fyrir að
samþykkja viðtalið við þáttinn „60
mínútur“ hjá CBS-sjónvarpinu.
Sarkozy skýrði frá skilnaðinum
18. þessa mánaðar og hefur neitað
að ræða einkalíf sitt opinberlega.
„Hefði ég eitthvað að segja um
Ceciliu myndi ég örugglega ekki
segja það hér,“ sagði Sarkozy í við-
talinu við sjónvarpskonuna Leslie
Stahl.
Neitaði að ræða
skilnaðinn
Nicolas Sarkozy
SJÓRÆNINGJAR frá Sómalíu hafa
rænt japönsku tankskipi á Aden-
flóa, líklega á sunnudag. Ekki er
enn vitað hve hás lausnargjalds
verður krafist fyrir áhöfnina sem
er frá Búrma, Filippseyjum og Suð-
ur-Kóreu.
Rændu tankskipi
KANSLARI Þýskalands, Angela Merkel, vill að gripið verði til harðari að-
gerða gegn þvinguðum hjónaböndum. „Ég er algerlega sammála því að
refsa beri fyrir þvinguð hjónabönd eins og um glæp sé að ræða,“ sagði hún
um helgina. Erfitt er að meta nákvæmlega hve algeng þvinguð hjónabönd
eru en íhaldsamir foreldrar úr röðum múslíma vilja oft hindra að börnin
taki upp vestræna hætti eins og stefnumót og kynlíf fyrir hjónaband. Þykir
þeim tryggast að finna maka handa barninu þegar á unglingsaldri. Sem
stendur er það sjaldgæft að saksóknarar í Þýskalandi ákæri vegna slíkra
mála þótt þetta hátterni rekist augljóslega á lög um réttindi einstaklinga.
Merkel gegn þvingunum