Morgunblaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, tengda- sonur, bróðir og vinur, ARI ÞÓRÐARSON, Rósarima 2, varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn 23. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 30. nóvember kl. 13.00. Eva Björk Elíasdóttir, Aníta Líf Aradóttir, Rut Aradóttir og Andri Már Magnússon, Þórður Eydal Magnússon, Kristín Guðbergsdóttir, Halla Ólöf Kristmundsdóttir, Magnús Þórðarson, Björn Eydal Magnússon og aðrir aðstandendur. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR SVEINSSON húsasmiður, Skógargerði 7, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 24. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 4. desember kl. 13.00. Ásdís Aðalsteinsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Halldór Baldursson, Hermína Dóra Ólafsdóttir, Aðalsteinn Ólafsson og barnabörn. ✝ Bróðir okkar, ÓLAFUR SIGURÐSSON, Bergstaðastræti 34 B, Reykjavík, lést þann 4. nóvember að Vífilsstöðum. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til starfsfólks hjartadeildar LHS og Hrafnistu, Vífilstöðum. Ásgeir Sigurðsson, Þorsteinn Sigurðsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Háaleitisbraut 20, andaðist mánudaginn 26. nóvember á Hrafnistu í Hafnarfirði. Jarðarförin auglýst síðar. Börn hinnar látnu og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskuleg eiginkona min, móðir og amma, ÞURÍÐUR HELGADÓTTIR , Hólagötu 44, Vestmannaeyjum, lést aðfaranótt þriðjudagsins 20. nóvember Útförin fer fram frá Landakirkju, Vestmanna- eyjum, laugardaginn 1. desember kl. 10.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á kvennfélagið Líkn. Valdimar Þór Gíslason, Ásgerður Jóhannesdóttir, Valdimar Karl Sigurðsson. ✝ Sigurður Ingi-bergur Bergs- son fæddist á Þing- eyri við Dýrafjörð 17. september 1926. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 14. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guð- björg Bjarnadóttir, f. 11.9. 1883, d. 10.1. 1964, og Bergur Bjarnason, f. 20.1. 1899, d. 26.6. 1979. Systkini Sigurðar eru: Þóra B. Scherstrom, f. 14.5. 1923. Hún býr í Washington DC, eiginmaður hennar, sem nú er látinn, var Nor- mann Eric Scherstrom. Þau eign- uðust fimm syni og eru fjórir á lífi. Snorri, f. 21.2. 1925, d. 11.2. 1988, eiginkona hans var Vagna Sólveig Vagnsdóttir, f. 22.9. 1935. Þau eignuðust fjögur börn, þrjú eru á lífi. Fyrri kona Snorra var Hrefna V. Stefánsdóttir, f. 1.8. 1923, d. 8.6. 1990. Fóstursonur þeirra er Hilm- ar Gunnarsson, f. 28.11. 1949. Dóttir Hrefnu og fósturdóttir Snorra er Stefanía Valgarðsdóttir, f. 21.8. 1944. Hinn 6. september 1953 giftist Sigurður Sigríði Þorbjörgu Bjarn- eyju Ólafsdóttur, f. 22.9. 1922. For- eldrar hennar voru Ólafur Oddur Ólafsson, bóndi á Króki í Selárdal við Arnarfjörð, f. 5.11. 1890, d. 24.7. 1970, og Guðrún Þuríður Þorbergsdóttir, f. 9.12. 1901, d. 3.1. 1962. Fyrrverandi maki er Hjördís Bech Ásgeirsdóttir, f. 9.6. 1960. Börn þeirra eru: a) Edit Soffía, f. 30.9. 1992, b) Rakel Ösp, f. 21.8. 1994, c) Benjamín Aron, f. 8.8. 1997. Hjördís á fyrir Pál og Stellu Sif. Sigurður ólst upp á Þingeyri. Ungur fór hann á sjó og var hann á ýmsum bátum, m.a. á síld. Hinn 17. febrúar 1946 gekk vonskuveður yfir landið. Þá var Sigurður á bátnum Gullfaxa og í veð- urhamnum tók hann út af bátnum. Slasaðis hann mikið og lá í fjóra mánuði í sjúkraskýlinu á Þingeyri. Þegar hann komst á fætur aftur lá leiðin suður til lækninga en menjar slysins bar hann alla ævi. Sigurður og Þorbjörg hófu bú- skap sinn í Reykjavík en 1953 fluttu þau vestur á Þingeyri og bjuggu þar til ársins 1960, er þau fluttu aftur til Reykjavíkur. Á ár- unum fyrir vestan var hann í at- vinnurekstri en hann átti og rak vörubíla sem notaðir voru í vega- vinnu og við byggingu Mjólk- árvirkjunar. Eftir flutninginn suð- ur réð Sigurður sig til Eimskipafélags Íslands og var á nokkrum af Fossum þeirra, lengst af sem vélamaður. Hinn 6. maí 1970 var hann á Bakkafossi, en í þeim túr slasaðist hann mikið og gat ekki stundað sjómennsku eftir það. Sigurður hóf störf sem stöðu- mælavörður hjá Bílastæðasjóði Reykjavíkurborgar 1971 og vann þar í 22 ár. Þau hjónin byggðu sér sumarbústað við Þingvallavatn, dvöldu þau þar öllum stundum og var það þeirra skjól. Þau bjuggu í Hólabergi 22 í 26 ár en í september sl. fluttu þau að Suðurhólum 35. Útför Sigurðar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. 10.7. 1972. Sigurður og Þorbjörg eign- uðust sex börn, þar af tvenna tvíbura og eru fimm þeirra á lífi. Þau eru: 1) Bjarni Guðbergur, f. 12.5. 1953, barnsmóðir hans er Hulda Jens- dóttir, f. 24.3. 1959. Barn þeirra er Berg- ur Arnór, f. 21.4. 1983. Hulda á fyrir Hrafnhildi Elínu og Róbert Elías. 2) Guð- rún Ólöf, f. 24.7. 1956, sambýlismaður hennar er Halldór Karl Hermannsson, f. 6.12. 1958. Maki Guðrúnar var Sigurður Hafþór Sigurðsson, f. 9.5. 1955, d. 15.12. 1998. Börn þeirra eru a) Eva Björg, f. 27.5. 1978, sambýlis- maður hennar er Rafn Franklín Arnarson, f. 7.3. 1978, synir þeirra eru Hafþór Örn, f. 6.9. 2003, og Hilmir Rafn, f. 25.1. 2005. b) Þröst- ur Þór, f. 3.8. 1988. Sonur Halldórs er Guðmundur Ágúst f. 7.2. 1996. 3) Magnfríður Sigríður, f. 23.8. 1959, sambýlismaður Ólafur Ólafs- son, f. 5.5. 1957. Fyrrverandi maki er Þorleifur Jónasson, f. 24.11. 1958. Börn þeirra eru: a) Jónas Ingi, f . 5.11. 1981, sambýliskona hans er Kristin Björfelt, f. 30.8. 1980, b) Jóhann Þórir, f. 17.6. 1985, c) Birgitta Bjarney Guðmunda, f. 13.3. 1990. Sonur Ólafs er Ólafur, f. 18.8. 1991. 4) Þórir f. 23.8. 1959, d. 23.7. 1982. 5) Sigurður Kristinn, f. 3.1. 1962, og 6) Guðni Birgir, f. Elsku pabbi, þá er komið að kveðjustund. Þú sem ætlaðir að verða 95 ára, en engin ræður sínum tíma. Við systurnar viljum minnast þín í örfá- um orðum. Ein af fyrstu minning- unum er þegar þú komst heim af sjónum eftir meira en mánaðar sigl- ingu. Mikil spenna og gleði ríkti hjá okkur yfir að fá þig heim eftir langa fjarveru, en einnig vissum við að þú kæmir færandi hendi. Þú gættir þess ætíð vel að gera ekki upp á milli okkar og má þar nefna þegar þú færðir okkur stóru dúkkurnar, önnur fékk dökkhærða en hin ljós- hærða, að öðru leyti voru þær eins. Ein jólin fengum við ljósbláa pífuk- jóla sem breyttu okkur í prinsessur. Þú varst stoltur af börnunum þín- um og þú hvattir okkur til mennt- unar og kenndir okkur réttsýni og heiðarleika. Einnig munum við hve söngelskur þú varst og hvað það var gaman þegar þú greipst í harm- onikkuna. Þú varst bóngóður heim að sækja og varst alltaf tilbúinn að aðstoða aðra og máttir ekkert aumt sjá. Minnisstætt er okkur hversu kvikur þú varst í öllum hreyfingum og léttur á þér. Þá talaðir þú oft um æskuárin á Þingeyri þar sem þú ólst upp og áttir þú góðar minningar þaðan. Þú unnir Dýrafirði heitt þó þú hafir ekki getað farið þangað eins oft og þú vildir. Þá varst þú mikill náttúruunnandi sem best sést á uppgræðslunni og trjágróðrinum við sumarbústaðinn ykkar við Þing- vallavatn. Þú varst með góðan húm- or og sagðir skemmtilega frá og allt fram á síðasta dag gastu slegið á létta strengi þrátt fyrir að vera mik- ið veikur. Veikindi Þóris bróður voru ykkur mömmu þungbær og mikið áfall var það þegar Siggi Haf- þór lést skyndilega, en hann var ykkur sem sonur. Þeir tveir hafa ef- laust tekið á móti þér og þið fallist í faðma, njótið samverunnar saman. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl þú í friði. Þínar dætur, Guðrún og Magnfríður. Sigurður Ingibergur Bergsson Það er erfitt til þess að hugsa að fá ekki að hitta þig aftur, elsku afi. Við vitum þó að þú ert á góðum stað og þar er vel hugs- Haukur Þorsteinsson ✝ Haukur Þor-steinsson fædd- ist í Reykjavík 14. desember 1921. Hann lést á líkn- ardeild Landspítala 11. september síð- astliðinn og var útför gerð gerð frá Fossvogskirkju 24. september. að um þig. Við erum þakklát fyrir allan þann tíma sem við höf- um átt með þér og við erum mjög þakklát fyrir að hafa átt þig sem afa, stríðinn, skemmtilegan, ræð- inn, áhugasaman um allt, hraustan og góð- an. Það er ekki hægt að hugsa sér betri afa, að ekki sé minnst á langafa. Það er erfitt að út- skýra fyrir litlu afak- rílunum þínum að þú sért farinn og komir ekki aftur. Það er alltaf erfitt að kveðja þá sem maður elskar. Þú áttir fallegt líf, elsku afi, líf sem marga dreymir um að eiga. Heppn- astur varstu þó þegar þú hittir hana ömmu, fallegustu konu veraldar, að innan jafnt sem utan. Við vitum að þú vakir yfir henni og hvíslar fal- legum orðum að henni og við öll pössum hana vel fyrir þig. Guð geymi þig. Þín Guðný og Marteinn. Elsku afi minn, þú varst allt- af svo góður og blíður við mig. Ég á eftir að sakna þess að vera í návist þinni. En ég veit að þér líður vel og þá líður mér betur. Þú kemur kannski í heim- sókn, ef þú getur. Kveðja Júlía. Brosið breitt og augun skær, bið guð þig að geyma, bestu þakkir, þú varst mér svo kær. Þér mun ég aldrei gleyma. (Guðný Sigríður Sigurðardóttir) Kveðja Katla Örk. Fagur sem fugl á sveimi fagnar honum lítill gaukur. Hef þig í hjartanu og geymi elsku afi Haukur. (Guðný Sigríður Sigurðardóttir) Kveðja Sigurður Ríkharð. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.