Morgunblaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 19
tíska MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 19 Þótt jólalög hamri á allrigleðinni og tilhlökkuninnifyrir jólin er alls ekki öllum hlátur í huga. Stress og depurð er fylgifiskur jólanna hjá sumum og kemur þar helst þrennt til: sam- band/sambandsleysi og samskipti við ástvini og fjölskyldu, fjárhags- áhyggjur og yfirkeyrsla sem kemur niður á hreyfingu og svefni. Á vef bandarísku sjúkrastofn- unarinnar MayoClinic er að finna tólf ráð til að koma í veg fyrir eða draga úr neikvæðum áhrifum jólahátíðarinnar sem er á næsta leiti. Tólf ráð til varnar jólastressinu 1.Viðurkennið fyrir sjálfum ykkur líðan ykkar. Ef þið hafið nýlega misst ástvin eða þið getið ekki verið hjá þeim sem þið vilduð er eðlilegt að þið séuð döpur. Það er ekki hægt að neyða sig til að vera glaður bara af því það eru jól. 2.Leitið stuðnings. Ef ykkur finnst þið vera einangruð eða niður- dregin leitið til fjölskyldu og vina eða samfélagsins. Að hjálpa öðr- um er líka ómetanlegt. 3.Verið raunsæ. Breytingar verða hjá fjölskyldum og stundum breytast hefðir. Notið leiðir tækninnar eða bara ljósmyndir til að njóta jólanna saman úr fjar- lægð. 4. Gleymið öllum ágreiningi. Takið fjölskyldumeðlimum og vinum eins og þeir eru, þótt þeir séu ekki eins og þið gjarna vilduð, það er líka möguleiki að jóla- áhyggjurnar hrjái þá. Lærið að fyrirgefa. 5. Gerið fjárhagsáætlun og haldið ykkur við hana. Ákveðið áður en þið farið í innkaupin hve miklu þið ætlið að eyða og getið eytt. 6. Skipuleggið tímann. Takið frá daga fyrir t.d. innkaup, bakstur og vinafundi. Ákveðið hvað þið ætlið að borða á jólunum og farið í tíma í eina allsherjarinnkaupa- ferð. 7. Lærið að segja nei. Ótrúlegt en satt, fólk tekur neitun gilda. Gefið aðeins grænt ljós á það sem ykk- ur langar til að gera. Ef það er ekki hægt að segja nei, t.d. við yf- irmann, verður einhver annar „dagskrárliður“ að víkja í staðinn. 8. Ekki gleyma hollustunni. Það er allt í lagi að leyfa sér svolitla óhollustu í mat en algjört óhóf eykur á stressið og slæma sam- visku. Fáið ykkur hollan bita áður en þið farið í jólaboð og ekki gleyma hreyfingunni og góðum nætursvefni. 9. Takið ykkur smáhvíld. Bara að hvíla sig í 15 mínútur frá áreitinu getur gert gæfumuninn. Farið t.d. í göngutúr og hlustið á ró- andi tónlist, allt til að hægja á önduninni og kyrra hugann. 10. Hugsið dæmið upp á nýtt. Leið- ir sem virtust rétta lausnin geta verið kolrangar ef þær eru óraunsæjar. 11. Fullkomnun er fráleit. Farsæl endalok verða ekki á tveimur tímum eins og í sjónvarpinu því það kemur alltaf eitthvað upp: Þið gætuð tafist í vinnunni og misst af leikritinu hjá börn- unum, systkin gætu ýft upp gömul sár, makinn brennt kök- urnar í ofninum og mæður gagnrýnt barnauppeldið, og það allt á sama degi. Gerið ykkur grein fyrir því að enginn er full- kominn, ekki heldur þið. 12. Leitið til sérfræðings ef það þarf. Ef depurðin stendur í lengri tíma, örvænting, svefn- leysi eða vonleysi, og þið getið ekki beitt ykkur í daglegum verkum, talið þá við lækni um líðanina því um þunglyndi gæti verið að ræða. Morgunblaðið/Sverrir Jólaös Það er ekki eintóm gleði hjá öllum í kringum jólin því að sumir finna fyrir stressi og depurð á þessum árstíma. Uppskrift að gleðilegum jólum PAPPÍR er allajafna ekki hentugt efni í fatagerð. Þó eru alltaf einhverjir sem hafa gaman af að gera tilraunir með þennan viðkvæma en þó um leið sterka efnivið þegar kem- ur að fatahönnun og svo var um kúbversku pappírs- listamennina sem sýndu þessar flíkur á götum úti í Havana á dögunum. Tilefnið var 488 ára afmæli borgarinnar. Reuters Blómleg Hatturinn minnir á risastórt blóm og kjóll- inn er ekki síður blómlegur ásýndar. Litrík Það er ekki laust við að hún minni svolítið á frels- isstyttuna í New York þessi fyrirsæta. Pappírsprinsessur á götum Havana F plús hjá VÍS er samheiti yfir tryggingar fyrir fjölskyldur og heimili. Þarfir fólks, fjölskyldu- og heimilishagir eru mismunandi og þess vegna er mikilvægt að hafa tryggingu sem tekur mið af því. Kynntu þér F plús og veldu þá tryggingu sem hentar þér og þínum best. VÍS – ÞAR SEM TRYGGINGAR SNÚAST UM FÓLK Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 www.vis.is TRYGGING SEM VEX MEÐ ÞÉR V IN S Æ L A S T A F J Ö L S K Y L D U T R Y G G IN G IN VÍÐTÆK ASTA FJ ÖLSKYL DUTRYG GINGIN F í t o n / S Í A Ó D Ý R O G H A G K V Æ M Ó D Ý R M E Ð F E R Ð A T R Y G G IN G U M Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, ekki í síma eða á netinu. Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is Elsta fyrirtækjasalan á landinu. Gjöf en ekki sala Nú bjóðum við tvær stórglæsilegar fataverslanir á verði sem þú heldur að sé prentvilla. Nýinnréttaðar tvær búðir, sem opnuðu í vor, með öllu því flottasta sem til er. Ljósabúnaður í báðum búðunum kostaði um 4 millj. Nýtt tölvukerfi, kassakerfi. Fullkomin strikamerking í tölvukassa og sölukerfi sem kostaði 2 millj. Fullkomið símkerfi, frítt á milli búða. Þegar eru jólavörurnar komnar og búið að panta vorvörurnar. Þetta er verslunarkeðja í Portugal með hátísku, vandaðan kven- og herrafatnað á milliverði, sem er að breiðast út um allan heim. Einkaumboð á Ís- landi fylgir með. Leigusamningur til 2015, önnur búðin í Rvík og hin búðin í nágrannabyggð. Eftir er að auglýsa og markaðssetja vörurnar sem eru bæði fyrir konur og karla. Og haldið ykkur fast. Nú kemur verðið á báðum búðunum: Báðar búðirnar aðeins kr. 5 millj. + vörulager samkv. talningu. Ekki missa af þessu tækifæri!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.