Morgunblaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 29 Í dag verður til moldar borinn Sigurður I. Bergsson tengdafaðir minn. Sigurður var hreinskiptinn og hlýr í samskiptum. Hann hafði ánægju af því að rifja upp gamla tíð og var fróðlegt að hlýða á hann lýsa eigin aðstæðum og samverka- manna, ekki síst í Dýrafirði og síðar við sjósókn, m.a. við síldveiðar fyrir Norðurlandi. Sigurður var gestrisinn og var ætíð ánægjulegt að dvelja á heimili þeirra heiðurshjóna, hans og Þor- bjargar Ólafsdóttur. Ég kveð þig og þakka þér veg- ferðina. Öldnum fróðleik unnir mest, ættlands góður mögur, öllu, er þjóðin átti best: íslensk ljóð og sögur. Ólafur Ólafsson. Þó okkur sértu farinn frá og finni ég trega í hjarta. Góðar stundir streyma hjá sólskins daga bjarta. Það ég þakka vinur minn þær mun alltaf geyma. Söknuð þó í sál ég finn Siggi er ekki heima. Frjáls úr fjötrum ertu nú friðinn hefur hlotið. Í aldingarði gengur þú gróin sár, og brotið. Í þessum garði gleðin er grær í hverju skrefi. Sorg og lúi læknast hér og Ijúfa hvíld þér gefi. (Á.S.) Jón Þór Sigurðsson, Ásta Svendsen og börn. Elsku afi, nú ertu farinn frá okk- ur. Við söknum þín svo mikið. Þú varst okkur alltaf svo góður. Það er svo sárt að þurfa skrifa þér og kveðja þig og fá aldrei aftur að njóta þess að vera í kringum þig. Við vitum ekki hvernig við getum sagt bless við þig elsku afi eða hvernig við eigum að geta kvatt þig með orðum. Orðin eru svo mörg sem okkur langar til að skrifa en við eigum svo erfitt með að koma þeim á blað. Okkur langar til að hafa þig áfram hjá okkur. Okkur langar til að geta tekið utan um þig elsku afi og sagt þér enn og aftur hversu vænt okkur þykir um þig. Við eigum margar skemmtilegar stundir til að minnast þín og ætlum við að geyma þær í hjarta okkar og minnast þeirra og kátínu þinnar. Þegar við söknum þín sem mest, þá verðum við að hugsa til þess að nú líður þér vel elsku afi minn, því við vitum að þú varst orðin svo veikur og þá líður manni svo illa. Mamma sagði við okkur að við ættum að minnast þín með gleði og hugsa til þess að nú værir þú ekki veikur lengur, Guð væri búin að taka van- líðan þína og sársauka þinn í burtu. Það var alltaf svo stutt í brosið hjá þér og þú leyfðir okkur að hjálpa þér að setja niður trén og laga sumarbústaðinn. Þú varst besti afi í heimi. Það er ekki langt síðan þú hjálpaðir okkur og pabba að jarða kanínuna okkar. Pabbi bjó til litla kistu handa kanínunni og við fengum að jarða hana í garðinum uppi í bústað. Það var svo gaman þegar við fórum til ykkar í sum- arbústaðinn á Þingvöllum, sem var nokkuð oft. Við minnumst þess þeg- ar amma var að rista brauð og þú fórst að segja okkur brandara og við skellihlógum. Það var svo gam- an. Eins þegar það var ópera í sjón- varpinu og þú fórst að syngja með og við skellihlógum öll og þú líka. Það var svo gaman að tala við þig og vera með þér og ömmu. Við komum oft til þín og ömmu upp í Breiðholt, þið voruð nýflutt í nýju íbúðina þegar þú veiktist. Elsku afi, nú er amma orðin ein. Viltu hjálpa okkur að passa hana og vernda og hjálpa henni að komast yfir sorgina og vera ein án þín. Hvíl í friði elsku afi okkar. Edith Soffía Sigríður Bech Guðnadóttir, Rakel Ösp Bech Guðnadóttir, Benjamín Aron Bech Guðnason. Nú er hann Siggi fyrrverandi tengdafaðir minn dáinn, farinn inn í hina eilífu hvíld til Guðs. Ég kynnt- ist Sigga og Boggu fyrst fyrir rúm- um 16 árum. Ég man eftir því, er ég kom fyrst á heimili þeirra. Þau buðu mér upp á nýlagað kaffi og ný- bakaðar, heimatilbúnar kræsingar. Aldrei var tekið í mál að maður færi þaðan án þess að bragða á nýbök- uðum kökum sem tengdó var ávallt svo dugleg að baka. Alltaf varstu málhress, ákveðinn og mjög dug- legur maður. Minningabrot fara um hugann. Þið keyptuð ykkur sumarbústaða- land árið 1973. Þú varst mjög dug- legur og byggðir bústaðinn af eigin getu og þekkingu. Sumarbústaður- inn átti hug þinn allan. Þú elskaðir að vera þarna með fjölskyldunni í friði og ró frá erli dagsins. Þú og Bogga dunduðuð ykkur mikið við garðvinnu, kartöflurækt, trjárækt og fleira. Alltaf gastu fundið þér ný verkefni. Krakkarnir elskuðu að koma þangað og fá að hjálpa ykkur. Árið 1992 bjuggum við tímabundið hjá ykkur á meðan við vorum að gera upp íbúðina okkar. Eddý var aðeins 2ja mánaða. Ég man þegar þú tókst Eddý oft í fangið þegar hún hágrét af magakveisu og rugg- aðir henni og talaðir við hana. Þá var ég búin að ganga með hana í fanginu hágrátandi um gólf í 2-3 tíma. Oftast sofnaði hún í fangi þínu og enginn mátti hreyfa við henni þar. Í fangi þínu fékk hún að sofa værum svefni, þreytt eftir allan grátinn í ruggustólnum þínum. Þú elskaðir að fá að dúlla með litlu afa- börnin þín. Árið 1997 fæddist sonur okkar Guðna og man ég hversu stoltur afi þú varst, að fá lítinn afa- strák sem hafði yndi af að heim- sækja afa sinn og ömmu. Árið 2000 skildu leiðir okkar Guðna. Aðra hverja helgi heimsóttu börnin og Guðni ykkur og ófáar voru sögurn- ar sem ég fékk að heyra af skemmtilegum ferðum þeirra til ykkar og svo upp í bústað. Þú leit- aðir mikið til Guðna sonar þíns eftir aðstoð og hjálp vegna sumarbústað- arins, einkum síðustu árin, því mikil þörf var á að endurnýja og gera við. Guðni hefur átt ófáar og dýrmætar stundir með þér í vinnu við að end- urbyggja bústaðinn og fengu börn- in að njóta góðs af því og hjálpa til oft á tíðum. Þegar þú síðan veiktist, fyrir tæpum tveimur mánuðum síð- an, vorum við flutt norður. Guðni hringdi í okkur og lét börnin vita. Þau höfðu miklar áhyggjur af afa sínum, að afi gæti dáið og amma yrði ein. Mikið og sárt var grátið þegar Guðni hringdi og færði þeim sorgarfregnina. Guðni, ég veit það var mikið álag á þér og þú fékkst lítinn svefn á meðan pabbi þinn var veikur. Þú þurftir einnig að annast alfarið um mömmu þína þegar hún veiktist, skömmu eftir að pabbi þinn fór á spítalann. Ég bið góðan Guð að veita þér og börnunum vernd og styrk í ykkar miklu sorg. Elsku Siggi. Þakka þér fyrir öll ár- in sem við fengum að njóta með þér. Hvíldu í friði. Elsku Bogga mín. Ég bið almátt- ugan Guð að vernda þig og veita þér styrk í þinni miklu sorg. Elsku Bjarni, Guðrún, Magga og Siggi, ég færi ykkur mínar innilegustu sam- úðarkveðjur og bið Guð að gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Hjördís Bech Ásgeirsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MAGGÝ LÁRENTSÍNUSDÓTTIR, Skólastíg 23, Stykkishólmi, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju fimmtu- daginn 29. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á orgelsjóð Stykkishólmskirkju. Ágúst Bjartmars, Petrína Bjartmars, Sumarliði Bogason, Kristján Bjartmars, Jóhanna Rún Leifsdóttir, Lárentsínus Ágústsson, Heiðrún Leifsdóttir, börn, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Við viljum þakka öllum þeim sem sýndu hug sinn vegna andláts og útfarar okkar ástkæru ÁSLAUGAR PÉTURSDÓTTUR Með kærri kveðju og vinarhug, Jón Haukur Jóelsson, Pétur Jónsson, Ásta Lorange, Jón Haukur Pétursson, Kristinn Pétursson, Rakel Pétursdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur, tengdasonur, faðir, tengdafaðir og afi, ÓSKAR HÁLFDÁNSSON, Holtastíg 16, Bolungarvík, varð bráðkvaddur í Bolungarvík laugardaginn 24. nóvember. Karitas Hafliða, Hálfdán Einarsson, Petrína H. Jónsdóttir, Níelsína Þorvaldsdóttir, Benedikt N. Óskarsson, Heiðrún Helgadóttir, Hálfdán Óskarsson, Rósa S. Ásgeirsdóttir, Ingibjörg Óskarsdóttir, Guðmundur S. Brynjólfsson, Halldóra Óskarsdóttir, Guðmundur B. Björgvinsson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KATRÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Eyrargötu 29, Siglufirði. Guð blessi ykkur öll. Páll Gíslason, Ólöf Pálsdóttir, Ari Már Þorkelsson, Jóhanna Pálsdóttir, Þorsteinn Haraldsson, Guðmundur Pálsson, Ágústa Pálsdóttir, Böðvar Eggertsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku mamma mín, amma okkar og langamma, KARÓLÍNA PÉTURSDÓTTIR Hjallaseli 55 (Seljahlíð), áður til heimilis að Bogahlíð 13, sem lést laugardaginn 17.nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. nóvember kl 13:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á styrktarfélag Einstakra barna. Pétur Þór Jónsson, Karólína Pétursdóttir, Örn Einarsson, Elena Kristín Pétursdóttir, Þorvaldur Magnússon, Arna Hildur Pétursdóttir, Ragnar Börkur Ragnarsson og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN GUÐJÓNSSON rafvirkjameistari, Hjúkrunarheimilinu Eir, áður Brautarlandi 6, Reykjavík, lést 21. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju 29. nóvember kl. 13.00. Arndís Guðjónsdóttir, Guðjón Magnús Jónsson, Sigríður Þorláksdóttir, Margrét Katrín Jónsdóttir, Hrönn Guðjónsdóttir, Björn Baldvinsson, Magnea Ólöf Guðjónsdóttir, Halldór Kjartansson Björnsson, Arndís Guðjónsdóttir, Magnús Örn Guðmarsson, Jón Þór Guðjónsson, Eva Björg Torfadóttir, Hrafn Eyjólfsson, Hrafnhildur Eyjólfsdóttir, Halldór Ingi Hákonarson, Jón Örn Eyjólfsson og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR S. BJÖRNSDÓTTUR kennara. Sérstakar kveðjur og þakkir fær starfsfólk 3G á Hrafnistu í Reykjavík. Kristín Gísladóttir, Jakob Kristinsson, Örn Gíslason, Guðrún Áskelsdóttir, Björn Gíslason, Karólína Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.