Morgunblaðið - 27.11.2007, Síða 36

Morgunblaðið - 27.11.2007, Síða 36
Ég kýs að túlka þetta sem svo að Japanir séu almennt mjög nettir í vaxtarlagi … 40 » reykjavíkreykjavík Í VIKUNNI lauk sýningu sjö ís- lenskra myndlistarmanna í um- breyttu flugskýli í Salzburg. Sýn- ingin nefndist „Hérna“ og var myndarlega að henni staðið og við- tökur góðar. Talsvert mun hafa selst af verkum, einkum þó eftir aldurs- forseta hópsins, Helga Þorgils Frið- jónsson. Þar á meðal keypti franski leikarinn Gérard Depardieu „Ís- lenska fiska“, þriggja metra langt málverk sem sýnir röð svífandi bol- fiska – eitt af stærstu verkum sem listamaðurinn hefur málað. Sýningarsalurinn er í eigu Ma- teschitz, auðkýfings sem efnaðist á Red Bull-orkudrykknum og á einnig keppnislið í formúlunni. Er hann ástríðufullur listverkasafnari. Sýningarstjórar komu að utan og völdu listamennina, sem voru auk Helga þeir Aron Reyr Sverrisson, Birgir Snæbjörn Birgisson, Davíð Örn Halldórsson, Guðmundur Thor- oddsen, Ragnar Kjartansson og Þorri Hringsson. Helgi Þorgils vissi ekki hvað mörg verkanna seldust endanlega en hann átti um 20 á sýningunni. „Mateschitz keypti sjálfur sjö verk. Svo keyptu systur sem ég þekki tvö, ætluðu að kaupa fiskaverkið líka en töldu sig svo ekki hafa nóg veggpláss og gáfu það eftir til leikarans. Það er frægt Michelin-veitingahús þarna í flug- skýlinu, hann kokkar víst þar stund- um og sá þá sýninguna. Sýning- arstjórarnir segja hann eiga gott safn og það sé ágætt að eiga verk þar á meðal,“ sagði Helgi Þorgils. Depardieu keypti fiskana Í flugskýlinu Þrjú verk eftir Helga Þorgils Friðjónsson á sýningunni í Salzburg, fjær sést eitt af verkum Guðmundar Thoroddsen.  Glysrokk- ararnir í Sign luku hljóm- leikaferð sinni með Skid Row nú á sunnudag og virðist túrinn hafa tekist vel í öllum aðalatriðum. Á föstudagskvöldið fóru næstsíðustu tónleikarnir fram og þeim var fagn- að með heljarinnar drag-sýningu að hætti Sign-manna. Egill Rafns- son trommari bloggar svo á túr- bloggi sveitarinnar, Sign.blog.is: „Heimir varð Betty Crocker, Aggi var Elvis á g-streng og ég veit ekki einu sinni hvað Addi var. Hann var einhverskonar geim-maður í bún- ingi sem hann segist hafa saumað sjálfur. Ég efa það samt, því ef hann saumar svona þá er hann á rangri hillu í rokkinu. Við gengum alveg fram af Skiddurunum og þeir sögðu að þetta væri eitt það eft- irminnilegasta á 20 ára ferli. Þeir hafa samt án efa verið að ýkja.“ Á rangri hillu ef marka má saumaskapinn  Gengið hefur verið frá því að verslunin Saltfélagið og Te & kaffi verði áfram til húsa í gamla Alli- anz-Ellingsen húsinu við Granda- garð. Eftir að Ingunn Werners- dóttir festi kaup á húsinu hefur verið óljóst hvaða starfsemi færi þar fram, en nú mun þeim spurn- ingum hafa verið svarað, í bili að minnsta kosti. Í Saltfélaginu, sem sérhæfir sig í húsgögnum skapandi hönnuða, stendur til að setja reglulega upp sýningar myndlistarmanna. Þá eiga listamenn athvarf á efri hæðum hússins, þar er meðal annars hljóð- ver hljómsveitarinnar Slowblow. Saltfélagið áfram Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is MEÐ tilheyrandi sveiflu komst lagið „Fullkomið líf“ áfram í söngvakeppninni í Laugardagslög- unum um helgina. Það var Eurobandið með Reg- ínu Ósk og Friðrik Ómar í farabroddi sem flutti lagið sem margir segja sniðið inn í Söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Höfundur þess, Örlygur Smári, neitar því heldur ekki að lagið hafi verið samið með söngvakeppnina í huga. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef samið meðvitað fyrir Evróvisjón,“ segir Örlygur sem er ekki ókunnugur keppninni. „Ég kom tveimur lögum inn í undankeppnina árið 2000 og vann hana að endingu með „Tell me“ í flutningi Ein- ars Ágúst og Telmu. Ég hafði þá aldrei verið mikill Evróvisjónkarl en árið áður hafði Selma rifið upp stemninguna gagnvart keppninni og mér fannst tilvalið að prufa að senda inn lög sem ég var leiður á að hafa ofan í skúffu.“ Samdi í Svíþjóð Aðalkeppnin 2000 var síðan haldin í Svíþjóð þar sem Örlygur bjó sín æskuár. „Svíar eru þriðju stærstu tónlistarútflytjendur í heiminum þannig að mér fannst spennandi að flytja aftur þangað og reyna fyrir mér í brans- anum þar. Ég lærði líka hljóðupptökur í Stokk- hólmi jafnhliða því að ég otaði mínum tota áfram í tónlistinni. Ég komst inn í hóp lagahöfunda sem ég vann með í rúmlega tvö ár. En þegar maður er á svona stórum markaði er allt svo þungt í vöfum og mér var farið að leiðast þetta þóf, við vorum búnir að semja fullt af góðri tónlist en aldrei gerðist neitt en allt var næstum því að fara að gerast. Við fjölskyldan ákváðum því að flytja heim árið 2005. Hérna heima er ferlið frá því að þú gerir lag og kemur því á framfæri styttra og auðveldara. Nokkrum mánuðum eftir að heim til Íslands var komið var auglýst eftir lögum í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2006 og ákvað ég að prófa að senda inn tvö lög sem komust bæði inn,“ segir Örlygur sem stofnaði fyrirtækið Hljóðhönnun er hann flutti heim þar sem hann starfar að framleiðslu tónlistar auk hljóðvinnslu fyrir sjónvarp. Tónlistarsaga Örlygs nær þó lengra en til Evróvisjón árið 2000 því hann var söngvari og rytmagítarleikari ballhljómsveitarinnar Kirsu- bers í tíu ár. „Við vorum alltaf með þau plön að gefa eitthvað út en ekkert varð úr því annað en við sendum frá okkur tvö lög,“ segir Örlygur og kveðst ekki finna til löngunar að standa í sviðs- ljósinu aftur enda leikur lífið við hann sem laga- höfund og útsetjara um þessar mundir. Hann samdi meðal annars fjögur lög á nýjustu plötu Páls Óskars, Allt fyrir ástina, þar af hafa þrjú þeirra farið á toppinn, auk þess sem hann útsetti átta af þeim ellefu lögum sem eru á henni. Örlyg- ur er samt ekki eingöngu í danstónlistinni. „Ég á líka eitt lag, „Ég hef fengið nóg“, á plötunni með Hara-systrum, annað á plötu Einars Ágústs, „Af stað“, og þrjú á væntanlegri plötu Bermúda og þetta eru allt venjuleg popplög.“ Örlygur segir drauminn vera að geta helgað sig tónlistinni algjörlega og óskipt. „Mér þætti líka spennandi að koma á fót einskonar lagahöf- undasamvinnu eins og ég var þátttakandi að í Svíþjóð. Ég hef engan metnað í að koma fram sjálfur, heldur að gera góð lög sem fara í hend- urnar á góðum tónlistarmönnum sem lyfta þeim á enn hærra plan. Um daginn stóð ég úti í sal á útgáfutónleikunum hans Páls Óskars, hlustaði á hann flytja lög eftir mig og alla syngja með. Fyr- ir tónlistarmann er það besta upplifun sem mað- ur getur fengið. Að gera eitthvað sem hreyfir svona við fólki er ómetanlegt.“ Vill gera góð lög Örlygur Smári samdi fjögur lög á plötu Páls Óskars og tekur þátt í Evróvisjón Morgunblaðið/Frikki Örlygur Smári Farsæll lagahöfundur sem tekur þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár auk þess að reka fyrirtækið Hljóðhönnun heima hjá sér og starfa sem hljóðmaður í lausamennsku. ■ Fim. 29. nóvember kl. 19.30 Adés og Stravinskíj. Dáðasta tónskáld Breta af yngri kynslóðinni, Thomas Adés, sækir okkur heim. Flutt verða verkin Asyla og Concentric Paths eftir Adés og Scherzo Fantastique og Sálmasinfónían eftir Stravinskíj. Stjórnandi: Thomas Adés. Einleikari: Carolin Widman, fiðla Kór: Hamrahlíðarkórarnir. Kórstjóri: Þorgerður Ingólfsdóttir ■ Fös. 7. desember kl. 19.30 Lífið kallar. Styrktartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar og FL Group. Uppselt. ■ Lau. 15. desember kl. 14 nokkur sæti laus og kl. 17 Jólatónleikar. Hnotubrjóturinn eftir Tsjajkovskíj. Nemendur úr Listdansskóla Íslands dansa og trúðurinn Barbara segir söguna. Athugið: Þeir sem eiga frátekna miða á Vínartónleikana í janúar þurfa að greiða þá í síðasta lagi í byrjun desember.Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.