Morgunblaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„VIÐ sem bíðum eftir lyfinu erum öll í afturför.
Mér finnst ótrúlegt hvað við erum látin bíða,“ seg-
ir Svana Kjartansdóttir, en hún er með MS-sjúk-
dóminn (Multiple Sclerosis), sem hefur áhrif á
miðtaugakerfið. Svana og fjórir aðrir sem eru
haldnir sjúkdómnum hafa í meira en ár beðið eftir
að lyfið Tysabri fáist afgreitt hér. Hún segir lyfið
það besta sem hægt sé að gefa sjúklingum í dag,
það stöðvi eða hægi á einkennum sjúkdómsins og
þau gangi jafnvel til baka að hluta til.
Svana segist hafa fengið þær upplýsingar að
lyfið sé komið til landsins og búið að mennta
hjúkrunarfræðing sem eigi að gefa sjúklingum
lyfið, en því er sprautað í æð á nokkurra vikna
fresti.
Hún segir að lyfið hafi verið notað við MS-sjúk-
dómnum í nokkur ár. Það sé m.a. gefið MS-sjúk-
lingum í nágrannalöndunum. Um tvö ár séu síðan
fyrst var rætt um að gefa það fólki með sjúkdóm-
inn hér á landi. Fyrir áramót hafi fólki verið sagt
að lyfið væri væntanlegt og það yrði gefið sjúk-
lingum hér upp úr áramótum. „Svo átti að byrja í
vor, þá í haust en við bíðum enn,“ segir Svana.
„Blæðir ekki nóg úr okkur“
Reynt hafi verið fá upplýsingar um stöðu máls-
ins, m.a. með því að ræða við heilbrigðisnefnd,
þingmenn, ráðherra og yfirstjórn LSH, en engin
svör fáist. „Það blæðir líklega ekki nógu mikið úr
okkur. Það sést ekki hvernig okkur líður,“ segir
Svana, en hún bendir á að þegar fólk óttist að
hrörna svo að það missi t.d. sjón geti það ekki beð-
ið í lengri tíma eftir viðeigandi meðferð.
Sjálf er Svana í hjólastól en kveðst enn geta not-
að hendurnar og farið sjálf á snyrtingu. „Ég get
ekki farið sjálf í bað eða eldað en ég er enn heima
hjá mér og fyrir þjóðfélagið er það mjög gott að
þurfa ekki að vera með hóp af fólki á rándýrum
hjúkrunarheimilum,“ segir hún. Hún bætir við að
fólk með MS-sjúkdóminn vilji geta verið heima
með fjölskyldu sinni sem lengst. Svana segir að
hún hafi í fyrra hætt á svonefndu bremsulyfi, sem
hún tók áður. „Mér var sagt það að ég yrði að vera
hætt á því í að minnsta kosti sex mánuði áður en
ég byrjaði [á Tysabri].“ Hún vilji ekki byrja á öðru
lyfi núna heldur fá besta lyfið sem er í boði.
Minnkar heilabólgu sjúklinga
Haukur Hjaltason, taugalæknir á taugadeild
Landspítala, segir Tysabri vera fyrirbyggjandi lyf
við MS-köstum. Lyfið minnki heilabólgu sem verði
í MS-kasti og hemji bólgur.
Haukur segir að lyfið hafi komið fram árið 2003.
Fljótlega hafi komið í ljós hættuleg aukaverkun
sem orsakast hafi af svonefndri JC-veiru. Nokkrir
sjúklingar hafi dáið af völdum aukaverkunarinnar
og þá hafi verið hætt að nota lyfið um tíma. „Vorið
2006 var aftur farið að nota lyfið. Í fyrrasumar var
farið að nota það í Evrópu,“ segir hann. Notkun
lyfsins hafi gengið mjög vel síðan. „Það eru engin
frekari tilvik af þessari hættulegu aukaverkun.
Tysabri virðist hafa mun betri áhrif heldur en þau
lyf sem hafa verið notuð hingað til við að fækka
eða hemja þau köst sem MS-sjúklingar fá,“ segir
hann. Sjúklingar sem áður hafa fengið eitt kast á
ári fái eitt kast á um fimm ára fresti, taki þeir hið
nýja lyf.
Hjörtur segir að á Landspítala sé allt tilbúið til
þess að hefja meðferð með notkun Tysabri, en lyf-
ið hafi verið skráð í ágúst. „Það er allt til reiðu hér
á taugadeild,“ segir Haukur. Eins og sakir standa
strandi málin á peningamálum spítalans. Á dög-
unum hafi verið haldinn fundur með fulltrúum
taugadeildar og yfirmönnum og fleirum sem hafa
með lyfjamál að gera, ásamt yfirmönnum spít-
alans. Niðurstaðan af þeim fundi hafi verið sú að
ekki væru til peningar til að setja í meðferðina.
Hægt að hefja notkun í haust
Gerðar voru svonefndar klínískar leiðbeiningar
vegna lyfsins hjá sjúkrahúsinu. Haukur segir að
þær hafi verið tilbúnar fyrir nokkrum vikum. „Það
hefði verið hægt að hefja þessa meðferð í byrjun
hausts ef það hefði verið komið grænt ljós frá öll-
um aðilum,“ segir hann. Klínísku leiðbeiningarnar
hafi þá reyndar ekki verið skrifaðar, en það hefði
ekki átt að reynast fyrirstaða.
„Ótrúlegt hvað við erum
látin bíða eftir lyfinu“
Lyfið Tysabri sem hefur gefið góða raun við MS-sjúkdómnum var skráð hér á
landi í ágúst Lyfið er ekki enn komið í notkun en fjármagn skortir
Bréf Svana Kjartansdóttir og fleira fólk með MS-
sjúkdóminn hafa sent frá sér bréf vegna málsins
og óska viðbragða ráðamanna við því.
Morgunblaðið/Kristinn
Með MS Svana Kjartansdóttir (t.v.) og Jóhanna Kr. Teitsdóttir bíða eftir að geta notað lyfið Tysabri.
„ÞAÐ sem vantar er fjármagn. Það
kostar að lágmarki 100 milljónir, laus-
lega reiknað, að gefa sjúklingum þetta
fyrsta árið,“ segir Björn Zoëga, fram-
kvæmdastjóri lækninga á Landspít-
ala, um lyfið Tysabri. Hann segir að
gera megi ráð fyrir því að um 40-45
sjúklingar myndu nota lyfið fyrsta ár-
ið og þeim myndi svo fara fjölgandi.
Kostar 2,7 milljónir á ári
Hann segir að lyfið hafi verið til í
nokkurn tíma og bendir á hinar alvar-
legu aukaverkanir sem fram hafi kom-
ið fljótlega eftir að notkun þess hófst
erlendis. „Það gerði að verkum að
menn fóru varlega og athuguðu lyfið
upp á nýtt,“ segir Björn. Lyfið virðist
gott við MS-sjúkdóminum en svo virð-
ist sem fara þurfi mjög varlega, því
miklar hættur séu vegna aukaverk-
ana. Hann telur málið hafa verið í eðli-
legum farvegi fram til þessa.
Björn bendir á að Tysabri sé svo-
kallað s-merkt lyf. Það þýðir að spít-
alinn greiðir fyrir lyfið, en ekki not-
andi þess. Kostnaður við notkun
lyfsins á ári sé um 2,7 milljónir króna
á hvern sjúkling.
„Reglur spít-
alans, sem eru
settar með öryggi
sjúklingsins að
leiðarljósi, eru að
þegar nýtt
s-merkt lyf kemur
eru gerðar klín-
ískar leiðbein-
ingar,“ segir hann.
Það þýði að farið sé í gegnum notk-
unarferil lyfsins, hvaða aukaverkanir
séu fyrir hendi, hvenær eigi að hefja
gjöf lyfsins og hvenær hætta. Þá sé
þar farið nákvæmlega yfir notkun
lyfsins.
Björn segir að taugalæknar hafi
skrifað þessar leiðbeiningar. Á fundi
með deild lyfjamála á spítalanum á
dögunum hafi menn sammælst um að
leiðbeiningarnar væru næstum til-
búnar. Viðbótarupplýsingar hafi vant-
að og þeim séu taugalæknar að safna.
„Þegar þær eru komnar eru klín-
ísku leiðbeiningarnar tilbúnar. Þá
vantar ekkert nema peningana,“ segir
Björn.
Í samningi sem gerður hafi verið
fyrir nokkrum árum milli Trygg-
ingastofnunar, heilbrigðisráðuneyt-
isins og Landspítalans, um notkun
s-merktra lyfja, segi að heilbrigðis-
ráðuneytið tryggi fjármögnun þegar
ný lyf sem eru merkt þannig komi
hingað. Undanfarið hafi slíkt fjár-
magn ekki fengist þegar s-merkt lyf
hafi komið.
10 s-merkt lyf í notkun ár hvert
Björn segir að vöxtur í s-merktum
lyfjum hafi verið mun meiri en í öðr-
um lyfjaflokkum. „Það er komið mik-
ið af mjög dýrum, sterkum lyfjum,“
segir hann. Innan við 10 ný s-merkt
lyf fari í notkun ár hvert.
Björn segir að um leið og nýjustu
upplýsingar frá taugalæknunum ber-
ist muni yfirstjórn LSH hafa sam-
band við heilbrigðisráðuneytið og
kynna málið. Hingað til hafi peningar
verið teknar af rekstrarfé spítalans til
að fjármagna ný, dýr lyf, en um sé að
ræða pólitískt úrlausnarefni. Fáist
fjármagn yrði hægt að taka lyfið í
notkun innan fárra mánaða.
„Það sem vantar er fjármagn“
Björn Zoëga
ERLEND lán heimilanna jukust um
4,7 milljarða í síðasta mánuði, þar
af 700 milljónir vegna íbúðalána.
Skuldir heimilanna í erlendri mynt
námu í lok október 112, 8 millj-
örðum, þar af 25,9 milljarðar vegna
húsnæðislána.
Um síðustu áramót námu erlend
lán heimilanna 6,1% af heildar-
skuldum heimilanna við bankakerf-
ið. Í lok október var þetta hlutfall
komið upp í 10,5%.
Yfirdráttarlán heimilanna námu
74,2 milljörðum í lok október, en
þessi lán hækkuðu um 2,5 milljarða
í októbermánuði einum.
Erlend lán
heimilanna
112 milljarðar
LYFJASTOFNUN Evrópu hefur
lagt til við framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins að markaðsleyfi
lyfja sem innihalda carisoprodol
verði afturkölluð í öllum löndum
Evrópusambandsins, en slík lyf eru
í notkun hér á landi.
Í fréttatilkynningu frá Lyfja-
stofnun segir að í ljós hafi komið að
áhætta við notkun þessara lyfja sé
meiri en ávinningurinn. Á Íslandi
eru á markaði lyfin Somadril og
Somadril comp sem innihalda
carisoprodol.
„Þeir sem nota þessi lyf eiga ekki
að hætta töku þeirra skyndilega
vegna hættu á fráhvarfseinkennum
heldur ráðfæra sig við sinn lækni,“
segir í tilkynningu frá Lyfjastofn-
un.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins mun fara yfir þessar til-
lögur og taka endanlega ákvörðun
um afskráningu þessara lyfja.
Lagt til að lyf
verði tekið af
markaði
UM 2.000 golfkúlum og átta bolta-
körfum var stolið úr golfkúlusjálf-
sala við Svarfhólfsvöll í Laugar-
dælum við Selfoss í síðustu viku.
Málið er óupplýst. Rúður voru
brotnar í grunnskólanum í Hvera-
gerði um síðustu helgi, ekki er ljóst
hverjir voru að verki. Brotist var
inn í Benz-bifreið við íbúðarhús í
Árbæjarhverfi norðan við Ölfusá.
Eigandinn uppgötvaði á föstudag
að tjakki, sjónauka og ökuritaskíf-
um hafði verið stolið, en bifreiðin
hafði lengi staðið óhreyfð.
2 þúsund golf-
kúlum stolið