Morgunblaðið - 27.11.2007, Side 4

Morgunblaðið - 27.11.2007, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „VIÐ sem bíðum eftir lyfinu erum öll í afturför. Mér finnst ótrúlegt hvað við erum látin bíða,“ seg- ir Svana Kjartansdóttir, en hún er með MS-sjúk- dóminn (Multiple Sclerosis), sem hefur áhrif á miðtaugakerfið. Svana og fjórir aðrir sem eru haldnir sjúkdómnum hafa í meira en ár beðið eftir að lyfið Tysabri fáist afgreitt hér. Hún segir lyfið það besta sem hægt sé að gefa sjúklingum í dag, það stöðvi eða hægi á einkennum sjúkdómsins og þau gangi jafnvel til baka að hluta til. Svana segist hafa fengið þær upplýsingar að lyfið sé komið til landsins og búið að mennta hjúkrunarfræðing sem eigi að gefa sjúklingum lyfið, en því er sprautað í æð á nokkurra vikna fresti. Hún segir að lyfið hafi verið notað við MS-sjúk- dómnum í nokkur ár. Það sé m.a. gefið MS-sjúk- lingum í nágrannalöndunum. Um tvö ár séu síðan fyrst var rætt um að gefa það fólki með sjúkdóm- inn hér á landi. Fyrir áramót hafi fólki verið sagt að lyfið væri væntanlegt og það yrði gefið sjúk- lingum hér upp úr áramótum. „Svo átti að byrja í vor, þá í haust en við bíðum enn,“ segir Svana. „Blæðir ekki nóg úr okkur“ Reynt hafi verið fá upplýsingar um stöðu máls- ins, m.a. með því að ræða við heilbrigðisnefnd, þingmenn, ráðherra og yfirstjórn LSH, en engin svör fáist. „Það blæðir líklega ekki nógu mikið úr okkur. Það sést ekki hvernig okkur líður,“ segir Svana, en hún bendir á að þegar fólk óttist að hrörna svo að það missi t.d. sjón geti það ekki beð- ið í lengri tíma eftir viðeigandi meðferð. Sjálf er Svana í hjólastól en kveðst enn geta not- að hendurnar og farið sjálf á snyrtingu. „Ég get ekki farið sjálf í bað eða eldað en ég er enn heima hjá mér og fyrir þjóðfélagið er það mjög gott að þurfa ekki að vera með hóp af fólki á rándýrum hjúkrunarheimilum,“ segir hún. Hún bætir við að fólk með MS-sjúkdóminn vilji geta verið heima með fjölskyldu sinni sem lengst. Svana segir að hún hafi í fyrra hætt á svonefndu bremsulyfi, sem hún tók áður. „Mér var sagt það að ég yrði að vera hætt á því í að minnsta kosti sex mánuði áður en ég byrjaði [á Tysabri].“ Hún vilji ekki byrja á öðru lyfi núna heldur fá besta lyfið sem er í boði. Minnkar heilabólgu sjúklinga Haukur Hjaltason, taugalæknir á taugadeild Landspítala, segir Tysabri vera fyrirbyggjandi lyf við MS-köstum. Lyfið minnki heilabólgu sem verði í MS-kasti og hemji bólgur. Haukur segir að lyfið hafi komið fram árið 2003. Fljótlega hafi komið í ljós hættuleg aukaverkun sem orsakast hafi af svonefndri JC-veiru. Nokkrir sjúklingar hafi dáið af völdum aukaverkunarinnar og þá hafi verið hætt að nota lyfið um tíma. „Vorið 2006 var aftur farið að nota lyfið. Í fyrrasumar var farið að nota það í Evrópu,“ segir hann. Notkun lyfsins hafi gengið mjög vel síðan. „Það eru engin frekari tilvik af þessari hættulegu aukaverkun. Tysabri virðist hafa mun betri áhrif heldur en þau lyf sem hafa verið notuð hingað til við að fækka eða hemja þau köst sem MS-sjúklingar fá,“ segir hann. Sjúklingar sem áður hafa fengið eitt kast á ári fái eitt kast á um fimm ára fresti, taki þeir hið nýja lyf. Hjörtur segir að á Landspítala sé allt tilbúið til þess að hefja meðferð með notkun Tysabri, en lyf- ið hafi verið skráð í ágúst. „Það er allt til reiðu hér á taugadeild,“ segir Haukur. Eins og sakir standa strandi málin á peningamálum spítalans. Á dög- unum hafi verið haldinn fundur með fulltrúum taugadeildar og yfirmönnum og fleirum sem hafa með lyfjamál að gera, ásamt yfirmönnum spít- alans. Niðurstaðan af þeim fundi hafi verið sú að ekki væru til peningar til að setja í meðferðina. Hægt að hefja notkun í haust Gerðar voru svonefndar klínískar leiðbeiningar vegna lyfsins hjá sjúkrahúsinu. Haukur segir að þær hafi verið tilbúnar fyrir nokkrum vikum. „Það hefði verið hægt að hefja þessa meðferð í byrjun hausts ef það hefði verið komið grænt ljós frá öll- um aðilum,“ segir hann. Klínísku leiðbeiningarnar hafi þá reyndar ekki verið skrifaðar, en það hefði ekki átt að reynast fyrirstaða. „Ótrúlegt hvað við erum látin bíða eftir lyfinu“  Lyfið Tysabri sem hefur gefið góða raun við MS-sjúkdómnum var skráð hér á landi í ágúst  Lyfið er ekki enn komið í notkun en fjármagn skortir Bréf Svana Kjartansdóttir og fleira fólk með MS- sjúkdóminn hafa sent frá sér bréf vegna málsins og óska viðbragða ráðamanna við því. Morgunblaðið/Kristinn Með MS Svana Kjartansdóttir (t.v.) og Jóhanna Kr. Teitsdóttir bíða eftir að geta notað lyfið Tysabri. „ÞAÐ sem vantar er fjármagn. Það kostar að lágmarki 100 milljónir, laus- lega reiknað, að gefa sjúklingum þetta fyrsta árið,“ segir Björn Zoëga, fram- kvæmdastjóri lækninga á Landspít- ala, um lyfið Tysabri. Hann segir að gera megi ráð fyrir því að um 40-45 sjúklingar myndu nota lyfið fyrsta ár- ið og þeim myndi svo fara fjölgandi. Kostar 2,7 milljónir á ári Hann segir að lyfið hafi verið til í nokkurn tíma og bendir á hinar alvar- legu aukaverkanir sem fram hafi kom- ið fljótlega eftir að notkun þess hófst erlendis. „Það gerði að verkum að menn fóru varlega og athuguðu lyfið upp á nýtt,“ segir Björn. Lyfið virðist gott við MS-sjúkdóminum en svo virð- ist sem fara þurfi mjög varlega, því miklar hættur séu vegna aukaverk- ana. Hann telur málið hafa verið í eðli- legum farvegi fram til þessa. Björn bendir á að Tysabri sé svo- kallað s-merkt lyf. Það þýðir að spít- alinn greiðir fyrir lyfið, en ekki not- andi þess. Kostnaður við notkun lyfsins á ári sé um 2,7 milljónir króna á hvern sjúkling. „Reglur spít- alans, sem eru settar með öryggi sjúklingsins að leiðarljósi, eru að þegar nýtt s-merkt lyf kemur eru gerðar klín- ískar leiðbein- ingar,“ segir hann. Það þýði að farið sé í gegnum notk- unarferil lyfsins, hvaða aukaverkanir séu fyrir hendi, hvenær eigi að hefja gjöf lyfsins og hvenær hætta. Þá sé þar farið nákvæmlega yfir notkun lyfsins. Björn segir að taugalæknar hafi skrifað þessar leiðbeiningar. Á fundi með deild lyfjamála á spítalanum á dögunum hafi menn sammælst um að leiðbeiningarnar væru næstum til- búnar. Viðbótarupplýsingar hafi vant- að og þeim séu taugalæknar að safna. „Þegar þær eru komnar eru klín- ísku leiðbeiningarnar tilbúnar. Þá vantar ekkert nema peningana,“ segir Björn. Í samningi sem gerður hafi verið fyrir nokkrum árum milli Trygg- ingastofnunar, heilbrigðisráðuneyt- isins og Landspítalans, um notkun s-merktra lyfja, segi að heilbrigðis- ráðuneytið tryggi fjármögnun þegar ný lyf sem eru merkt þannig komi hingað. Undanfarið hafi slíkt fjár- magn ekki fengist þegar s-merkt lyf hafi komið. 10 s-merkt lyf í notkun ár hvert Björn segir að vöxtur í s-merktum lyfjum hafi verið mun meiri en í öðr- um lyfjaflokkum. „Það er komið mik- ið af mjög dýrum, sterkum lyfjum,“ segir hann. Innan við 10 ný s-merkt lyf fari í notkun ár hvert. Björn segir að um leið og nýjustu upplýsingar frá taugalæknunum ber- ist muni yfirstjórn LSH hafa sam- band við heilbrigðisráðuneytið og kynna málið. Hingað til hafi peningar verið teknar af rekstrarfé spítalans til að fjármagna ný, dýr lyf, en um sé að ræða pólitískt úrlausnarefni. Fáist fjármagn yrði hægt að taka lyfið í notkun innan fárra mánaða. „Það sem vantar er fjármagn“ Björn Zoëga ERLEND lán heimilanna jukust um 4,7 milljarða í síðasta mánuði, þar af 700 milljónir vegna íbúðalána. Skuldir heimilanna í erlendri mynt námu í lok október 112, 8 millj- örðum, þar af 25,9 milljarðar vegna húsnæðislána. Um síðustu áramót námu erlend lán heimilanna 6,1% af heildar- skuldum heimilanna við bankakerf- ið. Í lok október var þetta hlutfall komið upp í 10,5%. Yfirdráttarlán heimilanna námu 74,2 milljörðum í lok október, en þessi lán hækkuðu um 2,5 milljarða í októbermánuði einum. Erlend lán heimilanna 112 milljarðar LYFJASTOFNUN Evrópu hefur lagt til við framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins að markaðsleyfi lyfja sem innihalda carisoprodol verði afturkölluð í öllum löndum Evrópusambandsins, en slík lyf eru í notkun hér á landi. Í fréttatilkynningu frá Lyfja- stofnun segir að í ljós hafi komið að áhætta við notkun þessara lyfja sé meiri en ávinningurinn. Á Íslandi eru á markaði lyfin Somadril og Somadril comp sem innihalda carisoprodol. „Þeir sem nota þessi lyf eiga ekki að hætta töku þeirra skyndilega vegna hættu á fráhvarfseinkennum heldur ráðfæra sig við sinn lækni,“ segir í tilkynningu frá Lyfjastofn- un. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins mun fara yfir þessar til- lögur og taka endanlega ákvörðun um afskráningu þessara lyfja. Lagt til að lyf verði tekið af markaði UM 2.000 golfkúlum og átta bolta- körfum var stolið úr golfkúlusjálf- sala við Svarfhólfsvöll í Laugar- dælum við Selfoss í síðustu viku. Málið er óupplýst. Rúður voru brotnar í grunnskólanum í Hvera- gerði um síðustu helgi, ekki er ljóst hverjir voru að verki. Brotist var inn í Benz-bifreið við íbúðarhús í Árbæjarhverfi norðan við Ölfusá. Eigandinn uppgötvaði á föstudag að tjakki, sjónauka og ökuritaskíf- um hafði verið stolið, en bifreiðin hafði lengi staðið óhreyfð. 2 þúsund golf- kúlum stolið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.