Morgunblaðið - 01.12.2007, Side 4
4 SATURDAY 1. DECEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Soffíu Haraldsdóttur
soffia@mbl.is
NOVA, nýtt íslenskt samskiptafyr-
irtæki í eigu Novators, opnar form-
lega verslun og þriðju kynslóðar far-
símaþjónustu sína í dag, 1.
desember. Liv Bergþórsdóttir,
framkvæmdastjóri Nova, segir fyr-
irtækið boða breytta tíma í notkun
farsímans.
„Okkar áhersla liggur í notkun
netsins í gegnum símann og þær
breytingar sem eru að verða á far-
símanum. Þetta er svo mikið meira
en bara sími.“
Liv segir Nova opna nýjar dyr að
stærsta skemmtistað í heimi, sem sé
netið. Fjölmargt verði í boði fyrir
viðskiptavini. Má þar nefna að hægt
er að spjalla við aðra á MSN, blogga,
höndla tölvupóst, skoða myndskeið
og hafa aðgang að öðru því sem netið
hefur upp á að bjóða. Allt í gegnum
símann.
Ein nýjungin eru svokallaðir Vina-
tónar, í staðinn fyrir hefðbundinn
biðsón í símanum er spiluð tónlist
sem sá sem hringt er í hefur valið.
Og hægt er að spila mismunandi tón-
list eftir því hver hringir.
Þriðju kynslóðar (3G) farsíma-
tæknin hefur í för með sér aukinn
gagnaflutningshraða auk sítenging-
ar við háhraðanet, líkt og er með
ADSL-nettengingar. Til að nýta
tæknina þarf farsíma sem styður
hana. Í nýrri verslun Nova í Lág-
múla 9 eru slíkir símar seldir og boð-
ið upp á þjónustu við notkun þeirra.
Að auki hefur vefurinn nova.is verið
opnaður en þar er DJ Nova talsmað-
ur fyrirtækisins. „Nova er nýtt sam-
skiptafyrirtæki og miklu betra en
gömlu símafyrirtækin,“ sagði DJ
Nova í léttum tón á blaðamanna-
fundi Nova í gær og bauð fundar-
menn velkomna til framtíðarinnar.
Myndsímtöl hjá Nova munu kosta
það sama og önnur símtöl en greitt
er fyrir netnotkun í símanum eftir
gagnamagni, eins og er með netnotk-
un í tölvum.
Nova er í eigu fjárfestingarfélags-
ins Novators, sem hefur m.a. sér-
hæft sig í fjárfestingum á sviði fjar-
skipta. Novator er í eigu Björgólfs
Thors Björgólfssonar. Félagið fékk
tilraunaleyfi fyrir þriðju kynslóðar
farsímakerfi árið 2006 og formlegt
rekstrarleyfi, ásamt Símanum og
Vodafone, í mars síðastliðnum.
Nova boðar breytta tíma –
öll netnotkun í farsímann
MSN í farsímann,
myndskeið, blogg
og valin biðtónlist
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Netið í símann Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, varpar upp á
vegg viðmótinu sem mætir símanotendum þegar farið er á fréttavef mbl.is.
HRAFN Jökulsson rithöfundur og Guðni Ágústsson al-
þingismaður hittust í Alþingishúsinu í gær. Sá fundur
varð tilefni til þess að þeir skiptust á bókum sem þeim
tengjast og koma út nú fyrir jólin. Eftir Hrafn kemur út
bókin Þar sem vegurinn endar og Sigmundur Ernir Rún-
arsson hefur ritað ævisögu Guðna, Guðni – Af lífi og sál.
Skiptibókamarkaður á Alþingi?
Morgunblaðið/Ómar
SALA á kjöti hefur aukist um 7% á
innanlandsmarkaði á síðustu 12
mánuðum. Þetta er mun meiri aukn-
ing en á síðasta ári. Mest er aukn-
ingin í sölu á kjúklingum, eða 16,6%,
en einnig hefur sala á nautakjöti
aukist umtalsvert eða um 12%. Sala
á lambakjöti hefur hins vegar dreg-
ist saman um 3,6%.
Þrátt fyrir mikla sölu á kjúkling-
um að undanförnu hefur framleiðsl-
an aukist enn meira. Þannig var
birgðasöfnun á kjúklingakjöti í októ-
bermánuði.
Sigmundur Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri Norðlenska, segir að
ýmislegt hafi orðið til að auka sölu á
kjöti. Lækkun virðisaukaskatts á
matvælum hafi aukið söluna. Þá hafi
fiskur hækkað mikið í verði sem
stuðlað hafi að því að fleiri velji kjöt.
Einnig skipti fjölgun landsmanna
máli, ekki síst innflutningur fólks er-
lendis frá.
Kjötsala
eykst enn
Lækkun virðisauka-
skattsins jók sölu
HÓPUR tvítugra manna réðst á tvo
14 ára unglinga, pilt og stúlku, í
Vogahverfi í Reykjavík sl. laugar-
dagskvöld. Að sögn Guðrúnar Sverr-
isdóttur, móður stúlkunnar, voru
ungmennin á heimleið fótgangandi
eftir Skeiðarvoginum á tólfta tíman-
um um kvöldið þegar bíll kom þar að
og tveir menn stukku út úr honum og
reyndu að draga stúlkuna með sér
upp í bílinn. Þegar bekkjarbróðir
stúlkunnar reyndi að koma henni til
bjargar börðu árásarmennirnir hann
í andlitið.
„Sem betur fer kom kona þarna
aðvífandi, sem ég veit ekki hver er,
sem gat fælt árásarmennina í burtu,
þannig að þeir stukku inn í bílinn og
hurfu á braut,“ segir Guðrún í sam-
tali við Morgunblaðið og vill koma á
framfæri þakklæti til konunnar fyrir
að hafa bjargað unglingunum. „Mað-
ur veit ekki hvernig þetta hefði end-
að ef þessi kona hefði ekki átt leið
hjá, því þessir krakkar hefðu ekki
haft neitt í þessa drengi. Mér finnst
það kraftaverk að hún skyldi eiga
leið hjá og takast að stugga þeim í
burtu.“
Það getur greinilega allt gerst
Að sögn Guðrúnar segja ungling-
arnir atburðarásina hafa verið það
hraða að þau hafi hvorki náð bílnúm-
erinu né tekið almennilega eftir því
hvernig bíllinn eða árásarmennirnir
litu út, nema hvað þau hafi veitt því
athygli að mennirnir voru miklir
töffarar, ljósabekkjabrúnir og með
hvítt hár. Að sögn Guðrúnar hefur
árásin ekki verið kærð til lögregl-
unnar, þar sem unglingarnir báðust
undan því. Guðrún telur þó fyllstu
ástæðu til að vekja máls á henni.
„Mér finnst þetta svo grafalvarlegt
mál að þetta þarf að vera víti til varn-
aðar. Ég get ekki ímyndað mér að
nokkur geri svona nema í annarlegu
ástandi. Það er örugglega ekki góður
tilgangur sem liggur þarna að baki.“
Guðrún hafði samband við skóla-
stjóra Vogaskóla sem í framhaldinu
greindi foreldrum nemenda skólans
frá atvikinu, svo þeir brýni fyrir
börnum sínum að vera ekki ein á ferli
og gæta sín á ókunnugum. „Það er
ljóst að fólk þarf að passa börnin sín
vel. Það getur greinilega allt gerst,
hvar og hvenær sem er, þannig að
maður er skíthræddur um börnin.“
Reyndu að draga
unglingsstúlku inn í bíl
Í HNOTSKURN
»Ráðist var á tvo 14 áraunglinga sl. laugardag.
»Árásarmennirnir reynduað draga unglingsstúlku
inn í bíl til sín.
»Árásin hefur ekki enn ver-ið kærð til lögreglu.
200 TONN af frystri síld reyndust
hafa skemmst í lestum flutninga-
skipsins Axels eftir að það steytti á
Borgeyjarboða úti fyrir Horna-
fjarðarósi á þriðjudagsmorgun.
Alls voru um 1.700 tonn af fiski í
skipinu og tókst að bjarga 1.500
tonnum í land á Akureyri þar sem
skipið fer í slipp.
Unnið var að því í gær að tæma
skipið og þegar sjó var dælt úr
lestunum tók olía að þrýstast út og
kom í raun ekki á óvart, að sögn
Ara Axels Jónssonar, eiganda
skipsins. Var fengin aðstoð
Slökkviliðsins á Akureyri til að
koma olíunni upp með öruggum
hætti og gekk almennt vel að tæma
skipið að sögn Ara Axels.
„Það eru skemmdir undir lest-
inni og jafnvel á tanktoppnum
líka,“ segir Ari Axel. „Það eina sem
skemmdist var neðst í forlestinni,
um 200 tonn. En nú þarf að drífa
skipið upp í kví um leið og veð-
urskilyrði leyfa og þar er unnið við
skipið allan sólarhringinn.“
200 tonn af
fiski skemmd
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Axel Skipið er nú komið í slipp.
LANDSVIRKJUN gaf í síðustu
viku út skuldabréf að fjárhæð 75
milljónir bandaríkjadala, sem svara
til um 4,5 milljarða króna. Lánstím-
inn er 7 ár og eru kjör skuldabréfsins
0,07 prósentustig yfir Libor-vöxtum.
Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir
að þar með sé fjármögnun ársins
2007 lokið.
Þrátt fyrir að lánakjörin séu mikl-
um mun betri en lánakjör viðskipta-
bankanna segir Davíð Ólafur Ingi-
marsson, yfirmaður lánamála hjá
Landsvirkjun, að kjörin séu þó að-
eins verri en buðust fyrir rúmu hálfu
ári. „Þá hefðum við fengið lánið á
0,02 prósentustigum yfir Libor, en
kjörin eru þrátt fyrir það afar góð,“
segir Davíð.
Landsvirkjun
hefur lokið
fjármögnun
♦♦♦
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistara
og golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan Íslandsmeistar
a
GOLF
ENN BETRABETRA
G
O
LF
A
rnar M
ár Ó
lafsson og Ú
lfar Jónsson
11/20/07 11:46:42 PM
Jólabók golfarans!
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson