Morgunblaðið - 01.12.2007, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
INNLEYST tap af sölu FL Group á
8% hlut í AMR er um 15 milljarðar
króna. Samkvæmt tilkynningu frá
félaginu hafa 13 milljarðar þar af
þegar verið gjaldfærðir á fyrstu
þremur fjórðungum ársins og því
munu áhrif af sölunni á afkomu
fjórða ársfjórðungs nema um tveim-
ur milljörðum króna. Taka ber fram
að í þessum tölum er undanskilinn
fjármagnskostnaður vegna kaup-
anna á hlutnum á sínum tíma og má
því gera ráð fyrir að áhrifin verði
eitthvað meiri. Erfitt er þó að áætla
hversu miklu meiri þar sem upplýs-
ingar um lánakjör FL Group liggja
ekki fyrir.
Miðað við heildarhlutafé AMR og
gengi félagsins í kauphöllinni í New
York í fyrradag má ætla að FL Gro-
up hafi fengið um 25,3 milljarða
króna fyrir hlut sinn í bandaríska fé-
laginu. Samkvæmt tilkynningu til
kauphallar styrkir salan sjóðstöðu
FL Group um 10 milljarða króna og
hafa því um 15 milljarðar farið í að
greiða niður skuldir. Miðað við að
félagið hafi fengið í sinn hlut ríflega
25 milljarða og tapað um 15 millj-
örðum á fjárfestingunni má telja
víst að fjárfestingin, þ.e. vegna
þeirra 8% sem í fyrradag voru seld,
hafi verið um 40 milljarðar króna.
FL Group heldur eftir 1,1% í félag-
inu og miðað við gengi AMR í gær
er markaðsvirði þess hlutar um 3,5
milljarðar króna.
Salan í fyrradag er skýrð með því
að FL Group vilji, í samræmi við
stefnu félagsins, auka fjölbreytni
eignasafns síns og muni skoða
áhugaverð fjárfestingartækifæri.
Óvissa ríki um framtíðaráform
AMR og margt bendi til þess að
hækkun olíuverðs muni halda áfram
auk þess sem samdráttur geti vel
verið framundan í bandarísku efna-
hagslífi.
Nær allur hlutur FL
Group í AMR seldur
Tap á fjórða ársfjórðungi ekki minna en tveir milljarðar
Reuters
Selt Sjóðstaða FL Group styrktist um 10 milljarða við söluna á 8% í AMR.
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar OMX
á Íslandi hækkaði um 1,28% gær og
er 6.983 stig. Gengi bréfa SPRON
hækkaði mest, eða um 5,15%. Bréf
Exista hækkuðu um 3,4%, en bréf
Marels lækkuðu um 1,1%.
Krónan styrktist um 0,72% sam-
kvæmt upplýsingum frá Glitni, en
velta á millibankamarkaði nam 21
milljarði króna. Gengi Bandaríkja-
dals er nú 61,15 krónur, punds
125,85 krónur og evru 89,90 krónur.
Áfram hækkanir
í Kauphöllinni
● ÞRÁTT fyrir verðhrun á nýjum íbúð-
um í Bandaríkjunum í októbermán-
uði, hinu mesta í 37 ár, nægði það
ekki til að lífga við sölu íbúðanna.
Sölutölur voru talsvert lægri en
hagfræðingar höfðu spáð fyrir um og
fjöldi tilbúinna nýrra íbúða sem ekki
hafa selst hefur aldrei verið meiri,
en þær voru 191 þúsund talsins.
Meðalverð nýrrar íbúðar var 13%
lægra í október en á sama tíma í
fyrra, eða jafnvirði um 13 milljóna
króna, að því er segir á fréttavef
CNN. Lækkunin milli ára hefur ekki
verið meiri síðan árið 1970 en þá
var meðalverð íbúðar í Bandaríkj-
unum tæplega 1,4 milljónir króna.
Fyrir þá fjárhæð fæst tæplega nýr
bíll í dag.
Verðhrun á nýjum
íbúðum í BNA
● BRESKA verðbréfafyrirtækið
Cenkos Securities hefur tilkynnt að
áhugi þess og Landsbankans á
breska fjármálafyrirtækinu Close
Brothers Group sé enn til staðar.
Fram hefur komið að Landsbank-
inn og Cenkos hafi átt í viðræðum
við stjórn Close Brothers með yfir-
tökutilboð í huga. Tilboð þeirra
hljóðaði upp á 950 pens á hvern
hlut. Cenkos bendir á að miðað við
verðlækkun á markaði ætti verð
bréfanna í dag að vera 723 pens.
Sérfræðingar á breskum markaði
telja hins vegar að hækka þurfi í
1.100 pens til að það fáist sam-
þykkt.
Enn áhugi á yfirtöku
á Close Brothers
● PORSCHE-
forstjórinn, Wen-
delin Wiedeking,
er talinn hafa haft
meira en 60 millj-
ónir evra, eða
meira en 5,4
milljarða króna, í
tekjur í fyrra að
því er segir frétt
Die Welt. Það gerir meira en 450
milljónir á mánuði og 15 milljónir á
dag. Josef Ackermann, forstjóri
Deutsche Bank, stærsta banka
Þýskalands, er beinlínis láglauna-
maður við hliðina á Wiedeking en
Ackermann hafði ekki nema 99 millj-
ónir króna á mánuði í fyrra.
Með meira en 450
milljónir á mánuði
NORSKA fjármálaeftirlitið, Kredit-
tilsynet, hefur afturkallað leyfi inn-
heimtufyrirtækisins Intrum Justitia
A/S (dótturfélags Intrum Justitia í
Svíþjóð og systurfélags Intrum á Ís-
landi) til innheimtustarfsemi í Nor-
egi. Ástæðan er samkvæmt tilkynn-
ingu frá eftirlitinu sú að fyrirtækið
hefur 3.600 sinnum á árunum 2006
og 2007 látið skuldara greiða hærri
innheimtugjöld en leyfð eru sam-
kvæmt norskum innheimtulögum.
Brotin eru samkvæmt Kredit-
tilsynet álitin mjög alvarleg og hef-
ur leyfið því verið afturkallað.
Sænska blaðið Dagens Industri
hefur eftir Eirik Bunæs, deild-
arstjóra hjá Kredittilsynet, að enn-
fremur hafi Intrum í Noregi sent út
innheimtubréf of snemma en
strangar reglur séu í Noregi um
hversu langur tími megi líða frá
gjalddaga til kröfu uns tímabært er
að senda út innheimtubréf.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Kredittilsynet hefur afskipti af
starfsemi Intrum í Noregi en árið
2005 var fyrirtækið gagnrýnt
harkalega fyrir vinnubrögð sín að
sögn DI.
Í fréttatilkynningu frá Intrum
Justitia segir að forritunarvilla hafi
valdið því að of há innheimtugjöld
voru rukkuð en að því hafi þegar
verið kippt í liðinn. Þá hefur Intr-
um áfrýjað úrskurði Kredittilsynet
til norska dómsmálaráðuneytisins
og mun starfsemi félagsins ganga
sinn vanagang uns ráðuneytið fellir
úrskurð sinn.
Svipt innheimtuleyfi
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MARKAÐIR erlendis hækkuðu al-
mennt í gær, líkt og sá íslenski, þótt
ekki væri um miklar hækkanir að
ræða.
Í rauninni var Nasdaq-vísitalan
bandaríska sú eina af stóru vísitöl-
unum sem ekki hækkaði, en bréf í
tæknifyrirtækjum, sem mörg eru
skráð í Nasdaq, áttu erfiðan dag í
gær. Greint var frá því að forstjóri
fjarskiptafyrirtækisins Motorola, Ed
Zander, myndi hætta störfum og þá
olli slakt uppgjör hjá tölvuframleið-
andanum Dell lækkun á gengi bréfa
félagsins um 13,5%.
Vaxtalækkun í pípunum
Bréf fjármálafyrirtækja sóttu í sig
veðrið í gær vegna frétta af því að
samkomulag væri að nást milli
Bandaríkjastjórnar og helstu fjár-
málafyrirtækja um að frysta tíma-
bundið vexti af ákveðnum ótryggum
húsnæðislánum, en slík lán eru
mörgum fjárfestingarfélögunum nú
þungur baggi. Vaxtafrysting af þessu
tagi myndi létta á þrýstingnum sem
verið hefur á fjármálafyrirtækjum og
hafa fréttir af samkomulaginu aukið
bjartsýni meðal fjárfesta.
Annars virtust markaðir taka vel í
ummæli seðlabankastjóra Banda-
ríkjanna, Bens Bernankes, sem al-
mennt eru túlkuð sem svo að bankinn
muni lækka stýrivexti enn á ný í
þessum mánuði. Lækkandi olíuverð
mun einnig hafa haft jákvæð áhrif á
markaðina.
Hófleg bjartsýni á hluta-
bréfamörkuðum ytra
Reuters
Ráðagerðir Miðlarar ráða ráðum
sínum í kauphöllinni í New York.
Í HNOTSKURN
» Gengi bréfa deCode Gene-tics, móðurfélags Íslenskrar
erfðagreiningar, hélt áfram að
hækka í gær, eins og undanfarna
daga.
» Hækkaði gengið um 0,38%og stendur nú í 4,32 banda-
ríkjadölum.
» Fyrir rúmum tveimur vikumvar gengi bréfa fyrirtækisins
3,03 dalir og er því um umtals-
verða hækkun að ræða á ekki
lengri tíma.
VÍSITALA neysluverðs mun hækka
um 0,6% í desember gangi spár
greiningardeildar Kaupþings eftir,
og mun tólf mánaða verðbólga þá
mælast 5,8% samanborið við 5,2% í
nóvember.
Í spánni segir að hækkun mán-
aðarins helgist einkum af hækk-
andi fasteigna- og eldsneytisverði.
Að mati greiningardeildarinnar er
líklegt að krónan verði áfram tals-
vert frá sínu sterkasta gildi á árinu,
sem skili sér að lokum út í verðlagi
til neytenda.
Hvað varðar vaxtaákvörðun
Seðlabankans segir í spánni að þar
togist á tvö sjónarmið. Verðbólgu-
þróun hafi verið afar slæm frá síð-
asta vaxtaákvörðunarfundi og hins
vegar hafi verið verulegar lækk-
anir á hlutabréfamörkuðum. Útlit
sé fyrir kólnun á helstu mörkuðum
hér heima og hægari umsvif í hag-
kerfinu á næstu misserum. Spáir
Kaupþing því að verðbólga hækki
um 1,1% á næstu þremur mánuðum,
en að hratt muni draga úr verð-
bólguhraða þegar líði á næsta ár.
Spá 5,8%
verðbólgu
! "#
!"#$%
&
' "( # &)
*+$
,-./,0.
,1-,-
//,,.21
20,..,110
,2/.,00,//0
,-.1,-
01,22,
.,.0/,-1/,2/
,./-,..,1.
1/,.2,0.
0,20,.2.
,,
0,00,/
0,.,
,.2,/
,0-,
.,02,
,,/
--,2,1
./,-0,-0
0,.,
3.-
13
.3/
.3/
.32
0-32
.23.
103
0/3
-3
-30
3
.301
-3
203
03
3/
123
3.
130
.03.
30
0.3
30
131
.32
.31
.32
0/3
.23
103
0/3-
-3
-31
3
.3
-3/
2.3
3
32
.3
3
131
.03/
3
/3
03
3
-3
45
!"#$%
0
..
/
.
1
/.
0
0
.
.
2
2
&
%&
!"#,!
"
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
0,,./
.2,,./
0,,./
0,,./
0,,./
1,,./
0,,./
.-,,./
..,2,./
0,,./
,,./
.,,./
% #6 +$78,
##!56 +$78,
9%78,
:6 +$78,
6%'#78,
8,;#$8<&=
>?
6 +$78,
*+$@&'#78,
: '#= 78,
%+;+ +"A 4A8,',78,
B;78,
C+78,
! "
0-78,
8
?78,
%%?D
%
+;DE
##
&6 +$78,
F B#
>?
?6 +$78,
78,
G7
478,
DH B&&&;"%5"78,
I+%5"78,
# $ ! %&
J
%+B+;+; 6 78,
;$"478,
ÚRVALSVÍSITALA tólf veltumestu
fyrirtækjanna í Kauphöll OMX á Ís-
landi lækkaði um 13,9% í nóv-
embermánuði, eða um rúm 1.100
stig. Í 15 ára sögu hennar hefur hún
aldrei lækkað svo mikið í einum
mánuði, samkvæmt Vegvísi Lands-
bankans. Mesta lækkun innan mán-
aðar hingað til var í október 2004
þegar lækkunin nam 11,5%.
Í nóvemberbyrjun var vísitalan
8.114,8 stig en lækkaði hratt þegar
leið á mánuðinn. Lægst fór lokagildi
hennar í 6.674,6 stig þann 27. nóv-
ember. Lækkunin innan mánaðar
nam þá 17,7%. Á síðustu dögum hef-
ur vísitalan tekið að hækka á ný og
stóð hún í gær í 6.983,7 stigum.
'()*)
'(+*,
-
2.
2
/2
/-
/
/.
/
-2
--
,K!
;'
./, 0,0,
Nóvember
verstur í
sögunni
● NÆSTSTÆRSTA líftryggingafélag
Kína, Ping An Insurance, hefur keypt
4,2% í belgíska fjármálafyrirtækinu
Fortis og er það í fyrsta sinn sem
Kínverjar fjárfesta í erlendu trygg-
ingafélagi. Hluturinn kostaði þá jafn-
virði um 160 milljarða króna.
Financial Times hefur eftir Peter
Ma, stjórnarformanni og forstjóra
Ping An, að sérþekking Fortis m.a. á
sviði áhættustýringar og vöruþróun-
ar komi til með að nýtast Ping An
vel.
Þess má geta að helsti keppinaut-
ur Ping An í Kína og stærsta félagið
þar á sínu sviði áformar einnig að
kaupa hlut í stóru tryggingafélagi, í
Evrópu eða Bandaríkjunum.
Kínverjar kaupa hlut
í Fortis í Belgíu