Morgunblaðið - 01.12.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 29
Opið hús í dag 1. des. frá kl. 13.00–17.00
í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg.
Lifandi brúðuleiklist og sýning á leikbrúðum
Jóns E. Guðmundssonar og fleiri íslenskra brúðulistamanna.
Dagskrá:
14.00: Leikbrúðuland: Vinátta
16.00: Sögusvuntan: Súpan hennar Grýlu
Aðgangur er ókeypis í boði Landsbankans.
Brúðulistahátíð Leikminjasafnsins
- síðasti sýningardagur
M
b
l 9
41
86
7
RISA JÓLAUPPBOÐ
Næsta listmunauppboð Gallerís Foldar verður haldið á
Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudagskvöldið 2. desember og
mánudagskvöldið 3. desember.
Á uppboðinu verður að venju gott úrval verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna.
Öll verkin eru sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg föstudag 10–18,
laugardag 11–17 og sunnudag 12–17, en það sem boðið verður upp á
mánudagskvöld verður einnig sýnt á mánudag 10–18.
Hægt er að skoða uppboðsskrána með myndum á vefslóðinni myndlist.is.
Rau›arárstíg 14, sími 5510400 · www.myndlist.is
N
ína Tryggvadóttir
EINU sinni las ég bók eftir Roger
Zelazny og Robert Sheckley sem
nefnist Bring Me the Head of Prince
Charming. Það er fantasía sem
fjallar um djöfla og engla, og hefst
hún í helvíti. Púkarnir hræra í
stórum pottum þar sem sálir for-
dæmdra kveljast um alla eilífð, en í
kring leika misheppnaðir tónlist-
armenn músík eftir misheppnuð tón-
skáld. Þessi tónskáld eru löngu
gleymd ofan jarðar, en í helvíti vita
allir hver þau eru.
Mér datt þetta í hug á tónleikum
Kammermúsíkklúbbsins á sunnu-
dagskvöldið. Á dagskránni var tón-
verk eftir Sergei Taneijev, en það
hafði ég aldrei heyrt áður. Þegar ég
las ævisögur Rakmaninoffs og Skrí-
abíns á sínum tíma og komst að því
að kennari þeirra í tónsmíðum hefði
verið einhver Taneijev, hélt ég að
hann hefði verið eitt af misheppnuðu
tónskáldunum á vonda staðnum. Og
svo virðist almennt hafa verið talið.
Þar til nýlega, þegar þetta sama tón-
verk, kvintett fyrir píanó og
strengjahljóðfæri opus 30, birtist í
stafrænu formi í flutningi afburða
listamanna, og var lofað upp í há-
stert af tímaritinu Grammophone.
Hvað er svona merkilegt við þessa
tónsmíð? Jú, hún er sérlega hugvit-
samlega samin, talsvert flóknari að
gerð en margt sem nemendur Ta-
neijevs sömdu (Prokofíev var einnig
nemandi hans) og ekki eins aðgengi-
leg, en ótrúlega innihaldsrík og djörf
þegar kafað er undir yfirborðið.
Maður gleymir ekki þannig tónlist.
Af hverju gleymdist þá Taneijev?
Kannski vegna þess að hann var
ekki eins „glamúrkenndur“ og sam-
tíðarmenn hans í Rússlandi, hann
var ekki „poppari í hámenning-
arbúningi“, eins og heimspeking-
urinn Adorno uppnefndi Tsjaj-
kovskí. Sum tónskáld gleymast
nefnilega stundum án þess að eiga
það skilið; Bach féll úr tísku á tíma-
bili vegna þess að fólk skildi hann
ekki. Á Taneijev eftir að verða vin-
sælt tónskáld síðar meir, eins og
Bach er núna?
Það var ekki síst að þakka frábær-
um leik fimmmenninganna á tón-
leikunum sem hér eru til umfjöll-
unar að verk Taneijevs kom svona
vel út. Þetta voru fiðluleikararnir
Auður Hafsteinsdóttir og Pálína
Árnadóttir, víóluleikarinn Iben
Bramsnes Teilmann, píanóleikarinn
Mona Sandström og Bryndís Halla
Gylfadóttir sellóleikari. Túlkun
þeirra var mögnuð, ótrúlega kraft-
mikil og sannfærandi, með afar fal-
lega útfærðum blæbrigðum sem un-
aður var á að hlýða. Maður var ekki í
grautarpotti í undirheimum þar,
ónei.
Kvintett Taneijevs var aðalatriðið
á dagskránni, en einnig fluttu þær
Auður, Bryndís Halla og Mona tríó í
g-moll eftir Smetana, hrífandi tón-
smíð sem skilaði sér fullkomlega í
vandaðri túlkuninni; og Trio eleg-
iaque eftir Rakmaninoff, æskuverk
tónskáldsins sem gaman var að
hlýða á.
Þetta voru skemmtilegir tón-
leikar, efnisskráin var vönduð og
metnaðarfull, spilamennskan him-
nesk. Er hægt að biðja um meira?
Himnaríki
og helvíti
TÓNLIST
Bústaðakirkja
Tónlist eftir Taneijev, Smetana og Rak-
maninoff í flutningi Auðar Hafsteins-
dóttur, Pálínu Árnadóttur, Iben Bramsnes
Teilmann, Monu Sandström og Bryndísar
Höllu Gylfadóttur. Sunnudagur 25. nóv-
ember.
Kammermúsíkklúbburinn
Morgunblaðið/Ómar
Kammermúsíkklúbburinn Bryndís, Iben, Pálína, Auður og Mona.
Jónas Sen